Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú verður að gera þér grein fyrir því að ekki eru allir viðhlæjendur vinir og að ekki eru allir vinir með sama hætti. Haltu óvænt partí eða skálaðu við einhvern. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þig langar að ferðast um þessar mundir skaltu leita á kunnugar slóðir. En þú þarft ekkert að óttast, því að jafnaðargeð þitt skilar þér góðri upplifun. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er engin ástæða til þess að vera með samviskubit. Nú sérðu hvort gjörðir þínar færa þér árangur eður ei. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur lengi reynt að fá kunningja þinn til að skila ákveðnum hlut. Hamraðu því járnið á meðan það er heitt og fylgstu með framvindu mála. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Láttu ekki ákveðna persónu vera í óvissu með hvaða tilfinningar þú berð til hennar. Sumar eru á þínu valdi svo þú skalt ekkert bíða með þær. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ástvinir þínir rugla þig svo sannarlega í ríminu í dag með sínu óstöðuga framferði og skaplyndi. Skrifaðu hugsanir þínar niður áður en þú deilir þeim með öðrum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hafðu ekki áhyggjur þótt dagdraumar sæki á huga þinn í dag. Forðastu að gagnrýna vinnufélaga þína og það sem þeir eru að gera. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það eftir þér að upplifa ævintýrið og fara ótroðnar slóðir. Hafðu það hugfast að kurteisi kostar ekkert og með hana að vopni nærðu betri árangri en með frekju og ólátum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þetta er góður tími til að njóta lífsins með vinum þínum. Samræður eru alvarlegar og praktískar en líklegar til árangurs. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú getur haft þínar skoðanir en skalt ekki búast við að aðrir skilji þær. Finndu strax einhvern sem þér líkar við. Kvöldið tekur óvænta stefnu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur yndi af skáldsögum og lætur þig dreyma um að skrifa eina sjálfur. Sýndu tillitssemi og þá leysast öll mál af sjálfu sér fyrr en varir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu tjáningu og samskipti ganga fyrir. Láttu aðra um sín mál. Hvernig væri að gefa óttanum þínum nafn og kynna þig fyrir honum? Jafnvel bjóða hann velkominn? Alls konar pestir eru að gangaog kvartað undan maga- verk. Ármann Þorgrímsson orti: Brakar í landsins burðargrind bresti má heyra undir þind alltaf verðum af ótta blind ef að náttúran leysir vind. Fía á Sandi brást skjótt við: Allir tala um eitthvurt gos. Allir vilja spá í gos. Hvar er nú þetta árans gos? Ég ætla í sjoppu að kaupa gos. Sigrún Haraldsdóttir hefur frá öðru að segja: Sven hafði léleg lungu en lipra og hvassa tungu, hann klæddist í hökul og kleif up á jökul en álpaðist oní sprungu. Davíð Hjálmar Haraldsson hefur löngum verið veð- urglöggur: Það var suddi og sárkaldur rosi þegar Sven lenti í þessu vosi, samt lifð’ann af er séns honum gaf til að drukkna í Grímsvatnagosi. Brátt fór Davíð Hjálmar að hugsa um aðra hlutir. Umboðs- maður Alþingis hefur verið mik- ið í fréttum: Fyrir honum fátt má dylja, á flækjur laga ber hann skyn enda sýnast allir vilja Umba fyrir pennavin. Og enn kveður Davíð Hjálmar sér hljóðs. Hann sagðist á miðvikudag hafa heyrt í útvarpinu dósent í nær- ingarfræði ræða nauðsyn góðrar þarmaflóru. Flestur matur finnst mér vera bestur. Feitan dilk og nautgrip eða svín hef ég ætíð etið líkt og hestur enda blómstrar þarmaflóra mín. Ármann Þorgrímsson er hógvær eins og góðum hagyrðingi ber að vera: Engu tapar okkar þjóð eg þó bráðum hætti að ríma varla hafa verri ljóð verið samin nokkurn tíma. Magnús í Magnússkógum orti: Kvæða-akur fölna fer, falla liljur orða. „Gæðalakur orðinn er,“ inna þiljur borða. Þessi er úr rímum af Gríshildi góðu: Rúm um garpa raddargöng rennur vín og drýpur. fiðla, harpa sinfón söng, sumir blása í pípur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Magakveisa, þarma- flóra, gos og Umbi Í klípu „VIÐ SKULUM SETJA JÓLASVEINS- VÖRUMERKIÐ TIL HLIÐAR Í SMÁSTUND, OG TALA MEIRA UM ÞÁ PERSÓNU SEM JÓLASVEINNINN HEFUR AÐ GEYMA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „SENDU SEKTINA Á BÍLASÖLUNA, ÉG ÆTLA EKKI AÐ KAUPA HANN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að lesa stjörnu- spána hans á undan þinni eigin. MOGGINN MOG GINN EKKI ÞRÆTA! ÞETTA VERÐUR FYRSTA TÆKIFÆRI MÖMMU TIL AÐ SJÁ ÞIG MEÐ HJÁLMINN SEM HÚN GAF ÞÉR Í JÓLAGJÖF! SVO ÞÚ SKALT VERA MEÐ HANN! FYRIR MÖRGUM ÁRUM MÓÐGAÐI ÉG GAMLA GALDRANORN. HÚN LAGÐI Á MIG BÖLVUN. „TAKTU ÞENNAN KÖTT,“ SAGÐI HÚN! ER EINHVER NEIKVÆÐNI Í GANGI? Víkverji hefur aldrei orðið fyrir þvíóláni að brotist hafi verið inn á heimili hans. Reyndar hrakti hann einu sinni á flótta mann í slíkum hug- leiðingum, en aldrei hefur óboðnum gesti tekist að troðast inn í það allra heilagasta – griðastað fjölskyld- unnar. Sem er eins gott, því fregnir herma að tryggingafélög séu með afbrigðum treg til að bæta slík tjón. Yfirleitt er það skrifað alfarið á húseiganda að innbúið sé ekki lengur á sínum stað. Ef það er rétt, sem Víkverji heyrði fyrr í sumar, að tryggingafélag hafi neitað að greiða út bætur eftir inn- brot til fjölskyldu vegna þess að gluggakrækjur voru ekki festar, tel- ur Víkverji sínum peningum betur varið í eitthvað annað en tryggingar. x x x Í umræddri sögu átti innbrotsþjófurað hafa brotið sér leið inn á hemili í gegnum glugga sem hafði verið lok- að, þannig að stormjárninu hafði ver- ið „læst“, en krækjur ekki festar. Þjófurinn þurfti engu að síður að spenna upp gluggann með verkfær- um, en af því að hann komst hjá því að brjóta rúðuna leit trygginga- félagið svo á að heimilisfólkið hefði ekki staðið við sinn hluta samnings- ins sem ríkti þeirra á milli um trygg- ingar. x x x Hversu erfitt þarf að vera að steladótinu þínu, til þess að trygg- ingafélag samþykki að það hafi ekki verið þér að kenna? Víkverji fellst á að opnar og ólæstar útidyr sé van- ræksla. Opnir gluggar kæruleysi og lykill undir dyramottu áhætta. En gluggar sem búið er að loka og setja stormjárnið í lás, á það ekki að vera nóg? x x x Víkverji ræddi þessi mál við bróðursinn, á leið á ættarmót í sumar. Bróðirinn benti á að árlega væri gengin svokölluð Drusluganga, til að benda á að fórnarlömb kynferðisof- beldis bera aldrei ábyrgð á því, sama hvernig þau klæða sig eða hegða sér. Þó að samanburðurinn sé í besta falli hæpinn er þó um ofbeldisverk að ræða í báðum tilfellum, og algengar ranghugmyndir um hvar sökin liggi. víkverji@mbl.is Víkverji Enginn er sem þú, Drottinn. Voldugur ert þú og mikill er máttur nafns þíns. (Jeremía 10:6) Heflar, standborvélar, hjólsagir, bútsagir, loftpressur, sogkerfi og margt fleira. Tæki og tól á flottu verði Zipper trésmíðavélar, öflugar og hagkvæmar Sýningarvélar á staðnum. Einnig lamir, höldur, lím og aðrar vörur fyrir smíðar. Borðsög 250 mm blað 31.776 kr. Pokasog 100 mm barki 29.026 kr. Bútsög 210 mm blað 28.091 kr. Hefill/afréttari 210 mm breidd 50.110 kr. Sambyggð vél 5 stöðvar 178.448 kr. Loftpressa 200 l/50 l kútur 32.335 kr. Súluborvél 13 mm patróna 17.382 kr. IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.