Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 244. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Nýjar myndir af gosinu 2. Gos á ný í Holuhrauni … 3. „Þetta er mun öflugra gos“ 4. Jafnvel 50 sinnum stærra en … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Stuðmenn halda sína fyrstu tón- leika síðan 2012 nk. laugardag, 6. september, í Eldborg Hörpu. Að lokn- um tónleikum í Eldborg er tónleika- gestum boðið í eftirpartí í Silfurbergi þar sem hljómsveitin efnir til Stuð- mannaballs fram eftir nóttu. Þetta er í fyrsta sinn sem almenningi gefst kostur á að heyra hljómsveitina full- skipaða á dansleik síðan 2005. Morgunblaðið/Eggert Bjóða tónleikagestum í fjörugt eftirpartí  Páll Rósinkranz varð fertugur fyrr á árinu. Hann hóf söngferil sinn upp úr fermingaraldri og því heldur hann einnig upp á 25 ára starfsafmæli sitt á árinu. Í tilefni þessara tvöföldu tímamóta kemur Páll fram á alls- herjar afmælistón- leikum í Há- skólabíói laugardag- inn 11. október næstkom- andi. Tvöfaldir afmælistón- leikar Páls Rósinkranz Á þriðjudag Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og víða rigning, eink- um suðaustanlands, um kvöldið. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norð- austan. Á miðvikudag Suðvestlæg átt, 5-10 m/s. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s og rigning með köflum en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast fyrir austan. VEÐUR Stjarnan rígheldur í vonina um að vinna sinn fyrsta Ís- landsmeistaratitil karla í knattspyrnu eftir 3:2 úti- sigur á KR í 18. umferð Pepsi-deildar karla í gær. Stjarnan er með 39 stig í 2. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði FH sem hefur 41 stig í 1. sæt- inu. FH vann Fjölni 4:0. KR er í þriðja sæti en titilvonir liðsins eru litlar eftir tapið í gær. »2,4,7 Barátta FH og Stjörnunnar Mario Balotelli sneri aftur í ensku úr- valsdeildina í gær þegar Liverpool vann öruggan sigur á Tottenham. Bæði lið hafa keypt marga leikmenn á stuttum tíma en svo virðist sem Liverpool hafi náð að byggja upp betri liðs- heild og undir- strikaði það í uppgjöri lið- anna í gær. »6 Öruggur sigur Liverpool í stórleik helgarinnar Harpa Þorsteinsdóttir heldur áfram að skora mörkin. Hún skoraði þrennu í úrslitaleik Borgunarbikarsins á laugardaginn þegar Stjarnan lagði Selfoss með fjórum mörkum gegn engu á Laugardalsvelli. Stjarnan komst í gegnum keppnina án þess að fá á sig mark. Þetta er fjórði titill Stjörnukvenna á fjórum árum á fót- boltavellinum. »8 Harpa með þrennu í úrslitaleik bikarsins ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Ég er hæstánægður með að vera hamingjusamur og sjá gleðina í hlutunum. Það er mikilvægast. Og að eiga góða vini og hjarta sem slær,“ segir fjöllistamaðurinn þjóð- kunni, Ketill Larsen, sem er átt- ræður í dag. Hann fagnaði tímamót- unum með fjölskyldu og vinum í gær. Þar var glatt á hjalla, enda þurfa menn ekki að vera lengi í ná- vist afmælisbarnsins áður en þeir smitast af léttlyndi hans og lífsgleði. Ketill vann við bústörf hjá móður sinni, Helgu Þórðardóttur, á býlinu Engi við Vesturlandsveg á árunum fram á þrítugsaldur og var við nám í Bændaskólanum á Hvanneyri. „Ég var svolítið lengi að finna sjálfan mig,“ segir hann. Það átti ekki fyrir honum að liggja að verða bóndi. „Ég uppgötvaði eitt sinn í Þjóðleikhúsinu að það sem ég vildi gera í lífinu væri að leika, syngja, mála, semja og vinna með börnum.“ Ketill ákvað að læra leiklist: Hann var í tvö ár hjá Ævari Kvaran og þrjú ár í Leiklistarskóla Þjóðleik- hússins. Samhliða náminu vann hann hjá Æskulýðsráði Reykjavík- urborgar, seinna ÍTR, við leiðbein- andastörf og sumardvalir barna í Saltvík, Víðidal og víðar. Þetta átti eftir að verða aðalstarfsvettvangur hans í næstum fjörutíu ár. Ketill starfaði með Leikflokki Litla sviðsins í Þjóðleikhúsinu 1967- 1968 og Leiksmiðjunni 1968-1969. Þá lék hann ýmis hlutverk í Þjóð- leikhúsinu frá 1969. Hann var með- al annars einn leikenda hinnar frægu Inúk-sýningar sem sýnd var í nítján þjóðlöndum á árunum 1974- 1978. Auk leiklistar hefur Ketill fengist mikið við myndlist og haldið ótal einkasýningar í Reykjavík og Kaup- mannahöfn. Hann segir að misjafnt sé hve vel verkin seljist, en það sé ekki aðalatriðið. „Mestu skiptir að hafa gaman af listinni,“ segir hann. Einna þekktastur hefur Ketill orðið fyrir að leika jólasveina. Stjórnaði hann útiskemmtunum jólasveina í Reykjavík um langt ára- bil þegar kveikt var á Óslóartrénu á Austurvelli. Margir muna hann einnig í hlutverki Tóta trúðs á skemmtunum um land allt. Þá hefur Ketill samið fjölda leikþátta fyrir börn. Ketill er enn að. „Ég var Tóti trúður á þjóðhátíðinni í sumar og Sindri sæfari á menningarnótt fyrir nokkrum dögum,“ segir hann og bætir við hlæjandi að hann ætli að gæta sín á því að setjast ekki í „hinn lífshættulega helga stein“. Að sjá gleðina í hlutunum  Ketill Larsen fjöllistamaður er áttræður í dag Morgunblaðið/Golli Tímamót Vinir og ættingjar Ketils Larsens samfögnuðu honum í hófi í gær í tilefni áttræðisafmælisins í dag. Morgunblaðið/RAX Jólasveinninn Ketill Larsen hefur leikið jólasveina áratugum saman. Aska- sleikir er sérgrein hans og um hann hefur Ketill samið bók fyrir börn.  Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðv- arssonar árið 2014 hlaut Jó- hann Hjálmarsson ljóðskáld og Borg- firsk menning- arverðlaun hlaut karlakórinn Söng- bræður. Verðlaun- in voru veitt í níunda sinn í Reyk- holtskirkju. Söngbræður og ljóð- skáld verðlaunaðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.