Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Af fimmtíu læknum á Sjúkrahúsinu
á Akureyri (SAK) sem eru í Lækna-
félagi Íslands munu tólf sinna
bráðaþjónustu í dag þegar verk-
fallsaðgerðir lækna hefjast. Að
sögn Gróu Bjarkar Jóhannesdóttur,
framkvæmdastjóra á lyflækninga-
sviði, munu læknar á öllum deildum
sjúkrahússins, ef undan eru skildir
þeir sem starfa á skurðdeild og
bæklunardeild, leggja niður störf.
Nær engar aðgerðir verða fram-
kvæmdar í dag og á morgun þar
sem engir unglæknar og svæfinga-
læknar verða að störfum. Bráða-
móttaka verður opin og verður um
fjórðungur starfsfólks að störfum
og mun hann að mestu sinna neyð-
arþjónustu. „Þetta riðlar starfsem-
inni og mun hafa keðjuverkandi
áhrif inn í næstu vikur þannig að
biðlistar lengjast,“ segir Gróa.
Rólegra í gær en fyrradag
Öðrum degi verkfallsaðgerða á
Landspítalanum og á heilsugæslum
lauk á miðnætti. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Læknavaktinni í
Kópavogi hafði álagið verið mun
minna en í fyrradag og lítið hafi
verið að gera. Svipaða sögu er að
segja frá bráðamóttöku Landspít-
alans.
„Þetta hefur gengið vel og við
höfum alveg haft undan flæðinu og
engir sjúklingar þurft að vera á
göngunum,“ segir Guðmundur Jó-
hannsson, læknir á bráðadeild.
Verkfallsaðgerðum á rannsókna-
sviði LSH lauk á miðnætti. Í dag
hefjast verfallsaðgerðir á lyflækn-
ingasviði spítalans.
Verkfallsaðgerðir
munu ná til flestra
deilda á Akureyri
Rólegra á læknavaktinni og vel gekk
á bráðamóttöku Biðlistar lengjast
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sjúkrahúsið á Akureyri Verkfalls-
aðgerðir hefjast á SAK í dag.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Í yfirstandandi kjaraviðræðum hefur samn-
inganefnd Læknafélags Íslands farið fram á
talsverðar kjarasamningsbreytingar, auk
launatöflubreytinga og launaleiðréttingar. Sig-
urveig Pétursdóttir, formaður samninganefnd-
arinnar, segir ítarlegar viðræður hafa farið
fram milli samningsaðila um breytingarnar en
allt strandi á launaliðnum. „Það bara er ekki í
boði neitt sem kostar peninga af hálfu viðsemj-
andans,“ segir hún.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á mánudag var
sagt frá því að læknar hefðu farið fram á 30-
36% hækkun launa en hvorki Sigurveig né Þor-
björn Jónsson, formaður Læknafélagsins,
vildu staðfesta þessar tölur í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Sigurveig segir málið ekki svo
einfalt. „Allt fer þetta eftir því hvað er sam-
þykkt og hvernig hlutirnir vinnast hver enda-
talan í kröfunni verður,“ segir hún.
Vilja koma inn vinnuverndarákvæðum
Meðal þeirra breytinga sem læknar hafa
kallað eftir er að sett verði þak á fjölda vakta
og yfirvinnustunda á mánuði. „Þetta er náttúr-
lega bara orðinn gamall samningur og það er
ýmislegt í honum sem þarf að laga og færa til
nútímans,“ segir Sigurveig. „Það þarf að koma
inn vissum vinnuverndarákvæðum og slíku
þannig að fólk sem vinnur við nútímalegri
kringumstæður vilji koma til Íslands. Allur
leikurinn snýst um að halda sérfræðingunum
sem eru hér á landinu, að þeir hætti við að fara
til útlanda, og fá fólk sem er í sérnámi erlendis
til að vilja koma,“ segir hún.
Sigurveig segir að laun lækna ættu að vera í
samræmi við laun annarra háskólastétta og að
einhverju marki samkeppnishæf við hin nor-
rænu löndin. „Við erum ekki að setja fram
kröfu um að við fáum sömu laun og norskir
læknar. Það væri æskilegt en við vorum ekki
svo kröfuhörð. Okkur fannst að það að spenna
bogann þangað væri ekki til neins,“ segir hún.
Vilja setja þak á vinnuskylduna
Læknar vilja takmarka fjölda vakta og yfirvinnutíma í nýjum kjarasamningi Prósentuhækkun
launa veltur á öðrum samningsatriðum Hafa ekki farið fram á að fá sömu laun og kollegar í Noregi
Verkfall
» Í dag og á morgun verður gripið til
verkfallsaðgerða á lyflækningasviði
Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri. Á föstudaginn verður öll heil-
brigðisþjónusta með hefðbundnu móti.
» Næstkomandi mánudag og þriðjudag
verður farið í verkfall á aðgerðasviði og
flæðisviði LSH en á þriðjudaginn hefjast
einnig verkfallsaðgerðir skurðlækna.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
ÍAV, sem er í eigu Marti Contrac-
tor í Sviss, gekk nýverið frá 10
milljarða króna samningi við
norsku vegagerðina í samstarfi við
nokkur önnur Marti-systurfyr-
irtæki. Um er að ræða byggingu
5,8 km jarðganga undir Nornafjall
í sveitarfélaginu Kåfjord í Norður-
Noregi, ekki langt frá Tromsø.
Samningurinn nær til gerðar
jarðganganna ásamt brú yfir
Manndalsána og er reiknað með
að framkvæmdir hefjist núna í
desember.
Sigurður Sigurðsson, sem er
yfirmaður hjá Marti Norge AS og
var áður framkvæmdastjóri hjá
ÍAV, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að á vegum þessara
fyrirtækja, þ.e. ÍAV og nokkurra
Marti-fyrirtækja, væru nú þrjú
verkefni í gangi í Noregi.
Stærsta upp á 25 milljarða
„Það er þetta nýja í Kåfjörd,
svo erum við á lokastigi að ljúka
jarðgöngum fyrir lestir, verkefni
um áramótin lýkur því þriðja, sem
er hafnargerð á eynni Træna, sem
liggur við norðurheimskautsbaug.
Það verk hófst árið 2012.
„Eftir áramót verðum við því
með þrjú verkefni í gangi, þar af
tvö mjög stór,“ segir Gísli. Annað
þeirra sé stórt jarðganga- og
vegagerðarverkefni í Narvik við
Hálogalandsbrú. Því verki á ekki
að ljúka fyrr en 2016 og er það
upp á um átta milljarða króna, að
sögn Gísla.
Hitt stóra verkefnið sé jarð-
vinna og bygging fimm lítilla
vatnsaflsvirkjana við Tosbotn í
Norður-Noregi. Einnig eigi að
byggja 6,5 km löng jarðgöng,
fimm stöðvarhús, inntaksmann-
virki og stíflur. Þar sé einnig um
að ræða samning upp á um átta
milljarða króna. Áætluð verklok
þar séu 2017.
Loks nefndi Gísli gerð virkjunar
í ánni Glommu, sem sé minna
verkefni, upp á um 2,5 milljarða
króna.
Gísli segir að Ístak hafi næg
verkefni í Noregi fram á næsta
sumar.
upp á um níu milljarða króna, og
loks erum við að gera stór jarð-
göng fyrir Stafangur, sem er okk-
ar stærsta verkefni, upp á eina 25
milljarða króna,“ sagði Sigurður.
Sigurður segir að ÍAV taki virkan
þátt í þessum verkefnum, útvegi
mannskap og verksvit.
Ístak hefur nýverið lokið vega-
framkvæmdum og gerð vegskála
fyrir norsku vegagerðina í Ytre
Sortvik í Finnmörku, nyrst í Nor-
egi. Verkinu var formlega skilað
til verkkaupa 1. október sl., sam-
kvæmt upplýsingum Gísla H. Guð-
mundssonar, sem er fram-
kvæmdastjóri yfir starfsemi
Ístaks í Noregi.
Á milli 300 og 400 starfsmenn
Gísli sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að á vegum Ístaks
ynnu nú á milli 300 og 400 manns
í Noregi að fjórum mismunandi
verkefnum. Flestir starfsmann-
anna eru Íslendingar en einnig
vinnur nokkur hópur Pólverja fyr-
ir Ístak í Noregi.
Nýverið er einu verkefni lokið
og annað er alveg að klárast og
Lokahönd Ístak er að leggja lokahönd á vegskála fyrir norsku vegagerðina í Ytre Sortvik í Finnmörku.
Öflug verktakastarf-
semi Ístaks og ÍAV
Með verkefni í Noregi fyrir hátt í 70 milljarða króna
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Októberfest
í Veggsport
Persónulegt
þjónusta
og vinalegt
umhverfi
30% afsláttur í golfherminn
Skelltu þér í golf í góðu veðri
9 mismunandi golfvellir
2 fyrir 1 í skvass um helgar
Bjóddu vini þínum með í skvass!