Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 5
Fáir efast um að það hafi verið rétt ákvörðun að skipta yfir
í hægri umferð á Íslandi enda þótt sú vinstri hafi gengið
þokkalega fyrir sig. Við færðum okkur nær nútímanum og
tókum samstíga skref í átt til umferðarmenningar sem víðast
gilti í heiminum.
Á sama hátt er innleiðing rafrænna skilríkja mikið fram-
faraskref í íslensku samfélagi. Hún eykur öryggi okkar í raf-
rænum heimi, opnar fjölmargar nýjar og fljótvirkari leiðir
að persónulegum upplýsingum á netinu, gerir okkur kleift
að undirrita skjöl með rafrænum hætti og sparar bæði okkur
og umhverfinu sporin á margvíslegan máta.
Rafræn skilríki leysa gömlu notandanöfnin þín og lykil-
orðin, auðkennislykla, veflykla og flest aðgangsorð af
hólmi. Í staðinn býrðu til eitt nýtt númer, leggur það á
minnið og gerir að ferðafélaga hvert sem leiðin liggur.
Skilríkin einfalda þér lífið, auka öryggi til muna og greiða
þér leið í netheimum með því að sanna það á augabragði
að þetta sért þú - og enginn annar.
Þetta ert þú
Nánari upplýsingar fást á www.skilriki.is og einnig m.a. á vefsíðum banka og símfyrirtækja og vefjum ýmissa opinberra aðila sem opna upplýsingasvæði
sín fyrir handhafa rafrænna skilríkja.