Morgunblaðið - 29.10.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Örvar vöðva, styrkir þá og lyftir.
Meðferðin tekur 30-45 mínútur.
HYDRADERMIE
LIFT
Andlitslyfting
án skurðaðgerðar!
Snyrtistofur sem bjóða Hydradermie Lift meðferð og Guinot vörur:
Snyrtistofan Gyðjan – s. 553 5044
Snyrtistofan Ágústa – s. 552 9070
Snyrtistofan Hrund – s. 554 4025
Snyrtistofan Ársól – s. 553 1262
Snyrtistofa Marínu – s. 896 0791
GK snyrtistofa – s. 534 3424
Snyrtistofan Garðatorgi – s. 565 9120
Dekurstofan – s. 568 0909
Guinot-MC stofan – s. 568 9916
Snyrtistofan Þema – s. 555 2215
Snyrtistúdíó Önnu Maríu – s. 577 3132
SG snyrtistofa – s. 891 6529
Landið:
Snyrtistofa Ólafar, Selfossi – s. 482 1616
Snyrtistofan Abaco, Akureyri – s. 462 3200
Snyrtistofan Lind, Akureyri – s. 462 1700
Snyrtistofa Guðrúnar, Akranesi – s. 845 2867
Snyrtistofan Sif, Sauðárkrókur – s. 453 6366
www.guinot.is
HYDRADERMIE
LIFT
Andlitslyfting
án skurðaðgerðar!
Með 6 meðferðum
í Hydradermie Lift fylgir
andlitskrem að andvirði 7.200 kr.
Skipholti 50d | 105 Reykjavík | Sími 553 5044 | gydjan@gydjan.is
Tilboðið gildir út nóvember.
Ljósmynd/Anna Kristín Arnardóttir
Dark Þema síðasta tölublaðs Dea Magazine var Dark. Hér má sjá eina af
þeim myndum og tónar hún ágætlega við Hrekkjavökuna sem er á morgun.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við hvetjum fólk til að hittaokkur fyrir myndatökunaí smáspjall svo við getumaðeins fengið að kynnast
þeim, þannig getum við nálgast það
með myndavélinni á persónulegri
hátt,“ segir Heiðdís Gunnarsdóttir
ljósmyndari en hún og kærasti
hennar, Styrmir Kári, sem líka er
ljósmyndari, taka að sér að mynda
ástfangið fólk, hvort sem það er að
gifta sig, trúlofa eða fagna ástinni á
einhvern annan hátt. „Við Styrmir
Kári höfum ferðast saman um allt
Ísland með myndavélarnar í far-
teskinu, enda fyllir íslensk náttúra
okkur andagift. Fyrir okkur er ljós-
myndun frábær leið til að svala for-
vitni okkar og búa til sögur. Okkur
finnst skemmtilegt að kynnast nýju
fólki og öllu því sem heillar það í líf-
inu og takast svo á við það ögrandi
verkefni að segja sögu þess í mynd-
um. Bestu sögurnar eru stútfullar af
tilfinningum og þess vegna er frá-
bært að mynda ástfangið fólk, slíkar
myndir verða alltaf kraftmiklar.“
Gifting á fjallstindi
Heiðdís og Styrmir Kári fara
saman í myndatökurnar, annað
þeirra myndar brúðina og hitt brúð-
gumann. „Með því að vera tvö í
myndatökunni fáum við fjölbreyttari
sjónarhorn. Við fylgjum brúðhjón-
unum allan daginn, líka í undirbún-
ingnum en í þeim myndum er oft
mikil stemning,“ segir Heiðdís og
bætir við að þau Styrmir Kári vilji
líka gjarnan sinna myndatökum sem
eru á einhvern hátt öðruvísi en
venjulega, til dæmis gifting á fjalls-
tindi, í hlöðu eða að heiðnum sið.
Frábært að mynda
ástfangið fólk
Ljósmyndaparið Heiðdís og Styrmir Kári fara tvö saman þegar þau mynda ást-
fangið fólk, þannig fá þau fleiri sjónarhorn og geta fylgt báðum aðilum eftir. Heið-
dís gefur líka út ljósmyndatímarit á netinu til að gefa ungum ljósmyndurum tæki-
færi til að kynna sig fyrir veröldinni. Kínverjar eru duglegir að skoða myndirnar.
Ástin blómstrar Heiðdís og Styrmir fóru á Snæfellsnes með Hrefnu og
Kalla til að mynda þau í haustlitum í seiðandi náttúrunni þar.
Óp-hópurinn er félagsskapar nokk-
urra óperusöngvara sem hófu sam-
starf fyrir nokkrum árum og halda
reglulega tónleika. Hópurinn hefur
ráðist í krefjandi verkefni undanfarin
misseri, m.a. uppsetningu ópera og
styttri sýninga. Á morgun, fimmtu-
dag, ætla nokkrar úr hópnum, Bylgja
Dís Gunnarsdóttir sópran, Erla Björg
Káradóttir sópran, Hörn Hrafnsdóttir
messósópran og Jóhanna Héðins-
dóttir messósópran, að halda tón-
leika undir heitinu Dúettadýrð, í
Salnum í Kópavogi kl. 20. Gesta-
söngvarar verða Jóhann Smári Sæv-
arsson bass-bariton, Egill Árni Páls-
son tenór, Rannveig Káradóttir
sópran og píanistinn Hrönn Þráins-
dóttir. Þau ætla að flytja marga af
fallegustu dúettum óperubók-
menntanna.
Vefsíðan www.op-hopurinn.is
Glæsileg Gestasöngvararnir Jóhann og Egill ásamt nokkrum af söngkonunum.
Dúettadýrð á einni kvöldstund
Opið hús verður í Bláa lóninu Lækn-
ingalind í tilefni af alheimsdegi Psori-
asis í dag frá kl. 14 til 20.
Gestum gefst kostur á að koma og
kynna sér Bláa lóns-psoriasis-
meðferðina og aðstöðuna í Lækn-
ingalindinni. Einnig verður kynning á
Blue Lagoon-meðferðarvörum en þær
eru mikilvægur hluti af Bláa lóns-
psoriasismeðferðinni. Hún er einstök
náttúruleg meðferð sem byggist á
lækningamætti jarðsjávar Bláa lóns-
ins. Náttúrulegt umhverfi, ferskt loft,
hreint vatn og Blue Lagoon-húðvörur
leika einnig mikilvægt hlutverk í
meðferðinni. Meðferðin er viður-
kenndur meðferðarvalkostur hjá ís-
lenskum heilbrigðisyfirvöldum og
hefur verið veitt um árabil.
Endilega …
… kíkið við í
Lækningalind
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bláa lónið Alheimsdagur psoriasis.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.