Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fjáreignir fjármálafyrirtækja námu alls 14.778 milljörðum króna í lok síðasta árs og voru eignir fjármála- fyrirtækja í slitameðferð þar af 3.220 milljarðar króna. Þetta kemur fram í greiningu Hagstofu Íslands sem gefur nú út í fyrsta sinn heild- stætt kerfi fjármálareikninga fyrir Ísland fyrir árin 2003–2013. Þar sem fastafjármunir eru ekki með í þessum reikningum notar Hagstofan hugtakið fjáreignir. Til að setja 14.778 milljarða í sam- hengi er áætlaður hluti ríkisins af rekstrarkostnaði Landspítalans í fjárlögum 2015 um 45 milljarðar. Fjáreignir fjármálafyrirtækja voru því ríflega 328 sinnum hærri. Heildarfjáreignir í fjármálageir- anum eru bornar saman við heildar- fjáreignir ríkisins í grafi hér til hlið- ar. Þar má m.a. sjá að heildar- fjáreignir fjármálafyrirtækja í slitameðferð voru ríflega 3.220 millj- arðar um síðustu áramót, eða um þrefaldar heildarfjáreignir ríkisins. Fjáreignir erlendra aðila innan ís- lenska hagkerfisins námu 12.929 milljörðum króna í árslok 2013 og var það 690% af landsframleiðslu, eða nærri sjöföld landsframleiðsla. Spurð um nýmæli í þessari samantekt segir María Finnsdóttir, sérfræðingur á þjóðhagsreikninga- deild Hagstofu Íslands, að nú sé búið að einangra eignarhaldsfélögin út úr öðrum fyrirtækjum. Um er að ræða svonefnd bundin fjármálafyrirtæki, sem er þýðing á erlendu hugtaki [e. captive financial institutions]. Lána- skuldir þeirra urðu mestar árið 2009, eða samtals 2.623 milljarðar, og höfðu hækkað frá árinu 2007 um tæpa 270 ma. kr. er þær stóðu í 2.354 ma. kr. Árið 2008 var hlutafé og eig- ið fé slíkra félaga 2.554 milljarðar. Eignabruni eignarhaldsfélaga Til samanburðar var hlutafé og annað eigið fé slíkra félaga metið á 3.482 milljarða í árslok 2007, sem var 1.128 milljarða umfram lánaskuldir. Með öðrum orðum lækkaði hlutafé og annað eigið fé íslenskra eignarhaldsfélaga um 928 milljarða milli ára 2007 og 2008. Lækkunin hélt áfram 2009, þá lækkaði hlutafé og annað eigið fé um 1.290 milljarða og var komið niður í 1.264 ma. í árs- lok 2009. Allar þessar tölur eru á verðlagi hvers árs og miðast við ára- mót. „Eitt af því sem sérkennir ís- lenska hagkerfið eru eignarhalds- félögin fyrir og eftir hrun og gífurleg eignasöfnun þeirra fyrir fjármála- hrunið, þegar eignarhaldsfélögin fóru að stækka og þeim að fjölga. Það er kortlagt með þessum tölum,“ segir María. Spurð út í áætlaðar heildarfjár- skuldbindingar fjármálafyrirtækja í slitameðferð segir María að skráðar skuldir á efnahagsreikningi þeirra séu að mestu leyti bundnar við er- lenda kröfuhafa. Hér séu lagðar fram samanlagðar tölur eins og þær birtast á efnahagsreikningi þeirra. „Ljóst er að skuldastaðan breytist mikið í fjármálareikningum þegar búið er að gera upp gömlu bankana,“ segir María. Heildarfjáreignir fjármálafyrir- tækja voru 464% af vergri lands- framleiðslu árið 2003 og stighækkaði síðan hlutfallið í 1.468% árið 2007. Það þýðir að heildareignir fjármála- fyrirtækja voru þá tæplega fimm- tánföld landsframleiðsla. Hlutfall eignanna hrundi niður í 1.013% 2008 og hefur síðan lækkað ár frá ári í 789% í árslok 2013. Eignirnar voru því tæplega áttföld landsframleiðsla síðustu áramót. Hlutfallslega eru þær því um 70% meiri en þær voru 2003. Fjármálakerfið enn stórt Segir á vef Hagstofunnar að Ís- land sé enn með eitt „umfangsmesta fjármálakerfi“ Evrópu, þrátt fyrir að það hafi minnkað á síðustu árum. Heildarfjárskuldbindingar fjár- málafyrirtækja voru 468% af lands- framleiðslu árið 2003 og jukust í 1.633% árið 2008, er þær náðu há- marki. Þær hafa síðan lækkað og voru 1.088% af landsframleiðslu um síðustu áramót, eða tæplega ellefu- föld landsframleiðsla. Hlutfall slíkra skuldbindinga hjá fjármálafyrir- tækjum var því meira en tvöfalt hærra um áramótin en í árslok 2003. Eins og fram kemur á grafinu hér fyrir ofan voru fjárskuldbindingar fjármálafyrirtækja í slitameðferð um 9.705 milljarðar um síðustu ára- mót. Samkvæmt talnaefni Hagstof- unnar voru þar af 914,6 milljarðar á formi sjóða og innstæðna og tæpir 5.169 milljarðar á formi verðbréfa, annarra en hlutabréfa. Segir María að þar sé einkum um skuldabréf að ræða, sem séu að stærstum hluta í eigu erlendra kröfuhafa þrotabúa bankanna. Lánaskuldbindingar fjár- málafyrirtækja í slitameðferð voru 3.512 milljarðar um síðustu áramót en viðskiptaskuldir 110,4 ma. Nær sjöföld landsframleiðsla  Fjáreignir erlendra aðila innan íslenska hagkerfisins námu 12.929 milljörðum í árslok 2013  Hagstofa Íslands birtir nýtt yfirlit yfir gríðarlegan eignabruna eignarhaldsfélaga í hruninu Samanburður á heildarfjáreignum Staðan í árslok 2013 í milljónum króna 16.000.000 14.000.000 12.000.000 10.000.000 8.000.000 6.000.000 4.000.000 2.000.000 0 Fjármála- fyrirtæki Innláns- stofnanir Verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfesta- sjóðir Önnur fjármála- fyrirtæki Fjármála- fyrirtæki í slita- meðferð Lífeyris- sjóðir Ríkið Heimild: Hagstofa Íslands/fjármálareikningar 2003-2013 14 .7 77 .8 82 3. 08 1. 78 7 59 1. 57 6 1. 36 1. 51 3 3. 22 0. 71 5 2. 70 1. 77 7 1. 06 2. 14 1 Hjá erlendum kröfuhöfum » Á vef Hagstofunnar segir að fjárskuldbindingar fjármála- fyrirtækja í slitameðferð hafi numið 9.705 mö. í árslok 2013 og hafi að mestu verið bundn- ar við erlenda kröfuhafa. » Heildarfjáreignir innlendra efnahagsgeira námu 1.289% af landsframleiðslu í árslok 2013. Heildarfjáreignir og fjárskuldbindingar fjármálafyrirtækja í milljónum króna Stofnstærðir 31.12. hvert ár – á verðlagi hvers árs Eignir Eignir EignirEignir Eignir Fjárskuld- bindingar Fjárskuld- bindingar Fjárskuld- bindingar Fjárskuld- bindingar Fjárskuld- bindingar Fjármálafyrirtæki Innlánsstofnanir Verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóðir Önnur fjármálafyrirtæki Fjármálafyrirtæki í slitameðferð 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 4.029.804 5.845.462 9.061.131 13.624.980 20.164.674 15.679.747 14.464.370 13.933.155 14.890.074 14.688.960 14.777.882 200.336 275.974 371.718 453.898 696.758 212.133 195.243 284.248 516.302 563.026 591.576 1.467.839 2.217.658 3.983.466 6.323.771 9.631.722 3.837.720 3.010.208 2.751.379 2.871.982 2.945.598 3.081.787 741.432 881.541 1.053.078 1.440.344 1.210.996 1.462.846 1.489.524 1.434.676 1.402.636 1.381.390 1.361.513 .. .. .. .. .. 2.883.138 3.578.072 3.272.072 3.066.670 3.294.058 3.220.715 4.065.310 5.857.341 9.154.940 14.394.458 20.152.647 25.270.450 24.305.917 22.474.761 22.066.784 20.588.417 20.386.906 200.477 276.574 382.146 453.903 696.758 212.133 195.242 284.249 370.674 415.511 461.632 1.476.604 2.236.197 3.883.949 6.335.753 9.699.061 4.347.825 3.066.060 2.881.350 3.059.058 3.063.945 3.149.437 688.789 861.002 1.026.395 1.305.657 1.296.988 1.340.628 1.256.809 1.205.995 1.178.915 1.168.124 1.162.731 .. .. .. .. .. 11.503.457 12.454.931 11.733.705 10.409.991 10.241.700 9.705.381 Heimild: Hagstofa Íslands/fjármálareikningar 2003-2013 Morgunblaðið/Ómar Reykjavík séð frá Höfðatorgi Greining Hagstofu Íslands sýnir m.a. eignir erlendra kröfuhafa vegna fjármálafyrirtækja sem eru í slitameðferð. Af 2.885 starfandi hjúkrunarfræð- ingum í Félagi íslenskra hjúkrunar- fræðinga geta 900 farið á eftirlaun á næstu þremur árum og 630 á næstu tveimur árum. Þetta kom fram í máli Ólafs G. Skúlasonar, formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, á málþingi á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu í gær. „Á þessum þremur árum getur einn þriðji starfandi hjúkrunarfræðinga farið á eftirlaun, kjósi þeir svo. Sam- kvæmt mannaflaspá sem við gerðum árið 2007 útskrifum við 145 hjúkr- unarfræðinga á ári sameiginlega bæði úr Háskóla Íslands og Háskól- anum á Akureyri. Það gerir um 435 hjúkrunarfræðinga á þessum þrem- ur árum. Það sjá því allir að við mun- um ekki ná að mennta helminginn af þeim fjölda sem má fara á eftirlaun,“ sagði Ólafur G. í ávarpi sínu. Í fyrra útskrifuðust 134 hjúkrunarfræð- ingar og segir Ólafur að átaks sé þörf til að fá ungt fólk til þess að hefja nám í hjúkrunarfræði. Þriðjungur getur farið á eftirlaun á næstu þremur árum ÁLÞAKRENNUR Viðhaldslitlar Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar. Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki. Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is HAGBLIKK ehf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.