Morgunblaðið - 29.10.2014, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Sagnabálkur Elís Freyssonaraf þeim heimi sem varð tilvið Sundrunguna, þegargamla heiminum var eytt
og nýr varð til, verður umfangs- og
áhrifameiri með hverri bók, auk-
inheldur sem Elí
fer fram sem rit-
höfundi.
Fyrst í sagna-
bálkinum var
Meistari hinna
blindu sem kom
út fyrir þremur
árum, þá kom
Ógnarmáni, og
svo kallið og nú Kistan. Í fyrstu bók-
inni var Mikael aðalpersóna, í ann-
arri var það Kody en í þeim tveim
sem síðast komu er höfuðpersónan
unglingsstúlkan Katja sem hefur þá
köllun að berjast við hið illa, enda er
hún ein af Rauðkuflunum ofurmann-
legu.
Fyrsta bókin hófst þar sem læri-
meistari birtist Kötju og tekur hana
að sér, kennir henni að verða víga-
maður. Í þeirri bók var mikil áhersla
lögð á þjálfun Kötju, en minni í inn-
viði hennar, við fengum ekki nógu
skýra mynd af persónunni. Í Kist-
unni leggur Elí meira í persónu-
sköpun með góðum árangri og glíma
Kötju við örlög sín er trúverðug –
það hvernig hún tregar hlutskipti
sitt að vissu leyti, það að geta ekki
verið venjuleg, en að sama skapi
skilur maður kraftinn sem drífur
hana áfram í baráttunni gegn myrk-
um öflum.
Eins og ég nefndi í upphafi fer Elí
fram með hverri bók og þá ekki bara
í persónusköpun, heldur verður
flétta sögunnar þéttari og hnitmið-
aðri – nánast hvert atvik í bókinni
skipti máli varðandi framvindu
hennar og smám saman raknar úr
flækjunni með spennuþrungnum
köflum og hrikalegri orrustu í lokin
– þessi bók er ekki fyrir myrkfælna.
Ekki er nauðsynlegt að hafa lesið
allar bækurnar til að átta sig á sögu-
sviðinu, en það var óneitanlega gam-
an að sjá gamlan kunningja úr
fyrstu bókunum tveim birtast í bók-
inni þó að hann hafi ekki gegnt
veigamiklu hlutverki. Kápa bók-
arinnar er listavel gerð.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Spenna Elí fer fram með hverri
bókinni sem hann skrifar um heim-
inn sem varð til við Sundrunguna.
Ævintýri
Kistan bbbnn
eftir Elí Freysson.
Höfundur gefur út. 269 bls. kilja.
ÁRNI MATTHÍASSON
BÆKUR
Ekki fyrir myrkfælna
Mosfellsbær stendur fyrir haustmenningarhátíð sem
hefst í dag og stendur til laugardags. Á næstu dögum
verður boðið upp á ýmsa tónlistar- og menningar-
viðburði þar sem mosfellskir listamenn koma fram og
er aðgangur ókeypis á alla viðburði.
Í kvöld kl. 20 verður svonefnt Laxnesskvöld í Lága-
fellskirkju þar sem fram koma m.a. söngvararnir
Diddú og Einar Clausen, Matthías Stefánsson á fiðlu,
Bjarki Bjarnason rithöfundur, Gunnar Kristjánsson,
prófastur á Reynivöllum, og kirkjukórinn.
Annað kvöld kl. 20 sýnir Jeanne Bøe einleik sinn Með
tröll í hjarta sem byggist á Pétri Gaut eftir Henrik Ib-
sen. Einleikurinn verður fluttur á ensku í Bæjarleik-
húsinu í Mosfellsbæ. Bøe lærði leiklist við The Aca-
demy of Live and Recoded Arts í London og hefur
komið fram víðsvegar um heim. Hún er frá Skien sem
er vinabær Mosfellsbæjar í Noregi.
Föstudaginn 31. október les Sara Hrund fyrir börn á
jarðhæð í Kjarnanum í Þverholti 2 milli kl. 16 og 17.
Sama kvöld kl. 20 flytur Jeanne Bøe fyrrnefndan ein-
leik á norsku í Þjóðleikhúskjallaranum í samstarfi við
norska sendiráðið.
Laugardaginn 1. nóvember kennir Ragnheiður Jó-
hannsdóttir byrjendum að hekla frostrós á Bókasafni
Mosfellsbæjar milli kl. 12.30 og 16.30. Áhugasamir
þurfa að skrá sig með því senda tölvupóst á netfangið
mos@mos.is.
Haustmenningarhátíð hefst í dag
Fjölhæf Norska leikkonan Jeanne Bøe flytur einleik
sinn um Pétur Gaut bæði á ensku og norsku.
Interstellar, kvikmynd Christopher
Nolan sem tekin var upp að hluta
hér á landi, verður frumsýnd í
Bandaríkjunum 7. nóvember nk. og
er nú farin að birtast gagnrýni um
hana, m.a. í Variety, Hollywood Re-
porter, Time Out London, Tele-
graph og Guardian. Flestir gagn-
rýnendur eru ánægðir með
myndina og þá sérstaklega rýnar
Time Out London og Variety.
Myndin er með meðaltalseinkunn-
ina 77 af 100 á vefnum Metacritic.
Interstellar almennt vel tekið
Geimferð Matthew McConaughey á
íslenskum jökli í Interstellar.
Tæplega 300 ungmenni skráðu sig í
söngkeppnina Jólastjarnan en
skráningu lauk fyrir helgi. Dóm-
nefnd keppninnar hóf störf í gær og
mun sigurvegarinn, Jólastjarnan
2014, syngja á jólatónleikum Björg-
vins Halldórssonar, Jólagestir
Björgvins, 13. desember í Laug-
ardalshöll. Ungmenni 16 ára og
yngri geta tekið þátt í keppninni
sem er nú haldin fjórða árið í röð.
Þátttakendur sendu inn myndbönd
af sér að syngja og mun dómnefnd-
in fara yfir þau og velja úr tíu bestu
söngvarana.
Söngvararnir tíu
verða boðaðir í
prufur. Sýnt
verður frá
keppninni í þætt-
inum Ísland í dag
á Stöð 2. Í dóm-
nefnd sitja
Björgvin Hall-
dórsson, leik-
stjórinn Gunnar
Helgason og Jólagestirnir Gissur
Páll og Jóhanna Guðrún.
Um 300 ungmenni í Jólastjörnunni
Björgvin
Halldórsson
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 1/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/12 kl. 13:00 30.k.
Sun 2/11 kl. 13:00 20.k. Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas.
Fös 7/11 kl. 18:00 Aukas. Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k.
Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Fös 26/12 kl. 13:00
Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Fös 26/12 kl. 16:00
Sun 9/11 kl. 13:00 21.k. Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Lau 27/12 kl. 13:00
Sun 9/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Sun 28/12 kl. 13:00
Lau 15/11 kl. 13:00 22.k. Lau 13/12 kl. 13:00 29.k.
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Sun 9/11 kl. 20:30 8.k. Þri 11/11 kl. 20:00 Aukas. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Sýningin 11. nóvember. verður textuð á ensku.
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Mið 29/10 kl. 20:00 Aukas. Fim 6/11 kl. 20:00 18.k. Sun 16/11 kl. 20:00 aukas.
Fim 30/10 kl. 20:00 15.k. Fös 7/11 kl. 20:00 19.k. Fim 20/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 31/10 kl. 20:00 16.k. Lau 8/11 kl. 20:00 20.k. Fös 21/11 kl. 20:00 24.k.
Lau 1/11 kl. 20:00 17.k. Fim 13/11 kl. 20:00 21.k. Lau 22/11 kl. 20:00 25.k.
Sun 2/11 kl. 20:00 Aukas. Fös 14/11 kl. 20:00 22.k. Sun 23/11 kl. 20:00 aukas.
Mið 5/11 kl. 20:00 Aukas. Lau 15/11 kl. 20:00 23.k. Lau 29/11 kl. 20:00 26.k.
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Gaukar (Nýja sviðið)
Fös 31/10 kl. 20:00 11.k. Sun 9/11 kl. 20:00 Lau 29/11 kl. 20:00
Lau 1/11 kl. 20:00 12.k. Fös 14/11 kl. 20:00 14.k. Sun 30/11 kl. 20:00
Fim 6/11 kl. 20:00 13.k. Fim 20/11 kl. 20:00
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
Beint í æð (Stóra sviðið)
Mið 29/10 kl. 20:00 Forsýning Fim 13/11 kl. 20:00 7.k. Lau 22/11 kl. 20:00 14.k.
Fim 30/10 kl. 20:00 Forsýning Fös 14/11 kl. 20:00 8.k. Sun 23/11 kl. 20:00 15.k.
Fös 31/10 kl. 20:00
Frumsýning
Lau 15/11 kl. 20:00 9.k. Fim 27/11 kl. 20:00 16.k.
Lau 1/11 kl. 20:00 2.k. Sun 16/11 kl. 20:00 10.k. Fös 28/11 kl. 20:00 17.k.
Sun 2/11 kl. 20:00 3.k. Þri 18/11 kl. 20:00 aukas. Lau 29/11 kl. 20:00 18.k.
Þri 4/11 kl. 20:00 4.k. Mið 19/11 kl. 20:00 11.k. Sun 30/11 kl. 20:00 19.k.
Mið 5/11 kl. 20:00 5.k. Fim 20/11 kl. 20:00 12.k.
Fim 6/11 kl. 20:00 6.k. Fös 21/11 kl. 20:00 13.k.
Forsala í fullum gangi - Frumsýning 31. október
Gaukar –★★★★ , A.V. - DV
Musteri lifandi steina er ný bók
þar sem saga frímúrara er rakin og
siðum þeirra lýst í máli og myndum.
Bókin skýrir margt í starfi þeirra
sem ekki hefur áður komið fyrir
sjónir almennings á Íslandi.
Frímúrarar hafa löngum verið
sveipaðir dul og því orðið upp-
spretta ýmissa misjafnra sagna og
ranghugmynda. Musteri lifandi
steina er fyrsta bókin á íslensku
um sögu frímúrara, uppruna,
þróun, siðaathafnir, táknfræði
og hugsjónir.
Njörður P. Njarðvík og
Bera Þórisdóttir eru
höfundar bókarinnar.
nbforlag.com
Musteri lifandi steina
Bók um sögu og siði frímúrara
Hvað erfrímúrari?
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Róðarí (Aðalsalur)
Fim 30/10 kl. 20:00
Útlenski drengurinn (Aðalsalur)
Sun 16/11 kl. 15:00 Lau 22/11 kl. 14:00 Fim 4/12 kl. 20:00
Fös 21/11 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00
GOOD/BYE + this is it (Aðalsalur)
Fim 6/11 kl. 20:00 Sun 9/11 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Sun 2/11 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 13:00
Lau 8/11 kl. 14:00 Lau 15/11 kl. 14:00
Coming Up (Aðalsalur)
Lau 15/11 kl. 20:00 Sun 23/11 kl. 20:00
Útgáfutónleikar Siggu Eyrúnar (Aðalsalur)
Lau 22/11 kl. 20:00
Strengir (8 ólík rými Tjarnarbíós)
Fös 31/10 kl. 19:00 Lau 1/11 kl. 19:00
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is