Morgunblaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kaupum bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
Ný húsakynni Barnahúss voru
formlega opnuð í gær en það fagn-
ar jafnframt sextán ára afmæli
starfseminnar um þessar mundir. Í
húsinu eru tvö viðtalsherbergi en
þar fara fram rannsóknarviðtöl,
læknisskoðanir og greining og
meðferð fyrir börn sem grunur
leikur á að hafi sætt kynferðisof-
beldi. Um fjögur þúsund börnum
hefur verið vísað til hússins á þess-
um sextán árum.
Ólöf Ásta Farestveit, for-
stöðumaður Barnahúss, tók við
veglegum blómvendi í tilefni dags-
ins, og klappaði Eygló Harðar-
dóttir, félagsmálaráðherra, henni
lof í lófa.
Barnahús blómstrar í nýju húsnæði
Morgunblaðið/Eggert
Sextán ár liðin frá því að starfsemi Barnahúss hófst á Íslandi
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Haldi fram sem horfir mun jafn mikil
hraunkvika hafa streymt úr Holu-
hrauni um næstu áramót og þegar
Surtsey reis úr sæ árið 1963.
Þetta segir Haraldur Sigurðsson
eldfjallafræðingur og bendir á að nú
hafi runnið 0,6 rúmkílómetrar af
kviku úr Holuhrauni, borið saman
við 1 rúmkílómetra af bergkviku sem
streymdi í neðansjávareldgosinu.
Hún hafi þó aðallega orðið að ösku,
þegar kvikan blandaðist við sjó.
Múrsteinn í byggingu Íslands
„Það hefur ekki orðið jafn stórt
gos síðan 1963. Gosið í Holuhrauni er
orðið stórt. Það má segja að hraunið
sé eins og nýr múrsteinn í byggingu
Íslands. Ef farið er um Austfirði eða
Vestfirði má sjá blágrýtismyndanir
og lárétt lög í fjöllunum. Þarna er
komið eitt slíkt lag,“ segir Haraldur
sem hefur reiknað út að eldgosið
muni standa fram í febrúar, eða
mars, eða þangað til dregið hefur úr
þrýstingi í kvikuþrónni, ef engar
breytingar verða.
„Það eru allir möguleikar á því að
á þessum slóðum verði eldgos í nokk-
ur ár. Þetta er enda nauðalíkt
Kröflueldum, sem voru frá 1975-
1984, í níu ár. Þá komu mörg svona
gos í röð. Það getur vel verið að við
séum aðeins að sjá fyrsta gosið.“
Haraldur segir aðspurður að öll
eldfjöll heimsins losi árlega koldíoxíð
í andrúmsloftið sem nemur einum
hundraðshluta af losun mannsins.
Þorsteinn Jóhannsson, sérfræð-
ingur í loftmengun hjá Umhverfis-
stofnun, segir vatnsgufu algengustu
gastegundina sem berst frá Holu-
hrauni. Þar á eftir komi koldíoxíð og
brennisteinsdíoxíð.
Þorsteinn segir erfitt að mæla ná-
kvæmlega hversu mikið af gasteg-
undum berist frá gosinu en áætlað
hefur verið að 20 til 60 þúsund tonn
af brennisteinsdíoxíði berist frá gos-
inu á dag, eins og komið hefur fram.
Til samanburðar losa öll ESB-ríkin
28 samtals 14 þúsund tonn á dag og
álverið í Reyðarfirði 16 tonn.
Milljónir tonna af brennisteini
Eldgosið hófst 29. ágúst sl. Undir
miðnætti í nótt voru að þeim degi
meðtöldum 64 dagar liðnir frá upp-
hafi gossins. Hafa því losnað 1,28-
3,84 milljónir tonna af brennisteins-
díoxíði frá gosinu, eftir því hvort
margfaldað er með 20 eða 60 þúsund
tonnum á dag. Það samsvarar losun
álversins í Reyðarfirði á brenni-
steinsdíoxíði í 219 til 658 ár.
Spurður hversu mikið úrkoma
muni halda menguninni í skefjum
bendir Óli Þór Árnason, veðurfræð-
ingur hjá Veðurstofu Íslands, á að
Holuhraun sé á einum þurrasta stað
landsins. „Vatnajökull er feikilega
öflugur skjólveggur. Mest af úrkom-
unni kemur í sunnanáttum. Vatna-
jökull tekur mest af henni á sig. Það
verður því yfirleitt ekki úrkoma hlé-
megin jökulsins,“ segir Óli Þór.
Hann segir mestar líkur á að
mengunin berist til höfuðborgar-
svæðisins í hægri og þurri norðaust-
anátt. „Síðan þarf að lægja þegar
mengunin er komin í nágrenni höf-
uðborgarsvæðisins. Það hefur gerst í
minnst tvígang síðasta mánuð. Það
eru ágætar líkur á að þetta muni
endurtaka sig áður en gosinu lýkur.“
Nálgast eldgosið í Surtsey
Talið að kvikan í Holuhrauni verði senn orðin jafn mikil og í Surtseyjargosinu
Brennisteinsmengunin eins og losun frá álverinu í Reyðarfirði í hundruð ára
Morgunblaðið/RAX
Eldgos Nýja hraunið í Holuhrauni
er orðið ríflega 65 ferkílómetrar.
Um 550 manns sóttu starfakynningu
Eures í Noregi sem haldin var á
Centerhotel Plaza í miðborg Reykja-
víkur í gær. Það eru um helmingi
fleiri en sóttu starfakynningu níu
norskra fyrirtækja í fyrrahaust. Sá
atburður var hins vegar lítið auglýst-
ur og er aðsóknin í takt við síðustu
kynningar Eures á Íslandi.
Til samanburðar sóttu um 2.500
fyrstu starfakynningu Eures á Ís-
landi eftir hrun. Fyrsta kynningin á
vegum Eures á Íslandi var haldin
2006 og hefur verið árlegur viðburður
síðan. Þrettán sveitarfélög og fyrir-
tæki í Noregi kynntu tækifæri fyrir
Íslendinga til starfa ytra í gær. At-
vinnurekendur kostuðu viðburðinn
sem var á vegum Eures í Noregi.
Fjölbreyttur hópur Íslendinga
Þóra Ágústsdóttir, verkefnisstjóri
hjá Eures á Íslandi, samstarfsvett-
vangs opinberra vinnumiðlana á
EES-svæðinu, segir fjölbreyttan hóp
hafa kynnt sér störfin.
„Við höfum talað við alls konar fólk.
Það hafa t.d. komið margir bílstjórar.
Það virðist vanta bílstjóra í Noregi.
Að minnsta kosti tvö fyrirtæki hafa
leitað að bílstjórum. Fyrirtækin gera
kröfur. Þau vilja fólk sem hefur öll
leyfi, reynslu og menntun og helst
fólk sem talar Norðurlandamálin.“
Spurð um atvinnuástandið í Noregi
segir Þóra atvinnuleysi heldur að
aukast. „Norðmenn vantar hins vegar
fólk í vissar greinar.“
Hún segir laun í Noregi „virðast
vera betri“ en á Íslandi. Þau séu þó
ekki jafn há og á uppgangsárunum
2007-9 í Noregi. baldura@mbl.is
Annríki á Noregskynningu
550 manns sóttu starfakynningu í miðborg Reykjavíkur
Bjarni Benedikts-
son, fjármála- og
efnahagsráð-
herra, telur ekki
ástæðu til við-
bragða eða af-
skipta af sinni
hálfu vegna frétta
að undanförnu
um Höllu Sigrúnu
Hjartardóttur,
stjórnarformann
Fjármálaeftirlitsins, FME.
„Ég mun ekki hafa afskipti af
þessu máli. Formaður stjórnar Fjár-
málaeftirlitsins hefur brugðist við
þeirri umræðu sem átt hefur sér stað
undanfarna daga og hún hyggst ekki
sækjast eftir skipun í stjórnina að
nýju. Ég tel því ekki ástæðu til af-
skipta af minni hálfu á þessu stigi,“
sagði Bjarni í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Aðspurður hvort fréttir af við-
skiptum formannsins og kæru á
hendur henni frá Íslandsbanka, þeg-
ar hún hætti störfum þar, hefðu veikt
stöðu Fjármálaeftirlitsins svaraði
Bjarni: „Á meðan málið var óútskýrt,
þá var það til tjóns fyrir Fjármálaeft-
irlitið. Nú hefur formaður Fjármála-
eftirlitsins brugðist við og það sem
meira er, hún hefur tilkynnt mér að
hún muni ekki sækjast eftir endur-
skipun í stjórnina, en skipunartími
hennar er alveg við það að renna út.
Þar með tel ég að við þessu hafi verið
brugðist,“ sagði Bjarni Benediktsson.
agnes@mbl.is
Mun ekki
hafa af-
skipti
Bjarni
Benediktsson
Telur formann
hafa brugðist við
Slitabú Landsbankans (LBI) og
Landsbankinn komust í dag að sam-
komulagi um að framlengja aftur
frestinn vegna gildisskilyrða í
samningi um breytingar á skil-
málum skuldabréfa Landsbankans
til 17. nóv. nk. LBI hefur sent Seðla-
bankanum fjórar undanþágubeiðn-
ir um heimild til að greiða hluta-
greiðslur til forgangskröfuhafa,
alls rúmlega 402 milljarða króna.
Landsbankinn fær
frest til 17. nóvember
Ekkert miðaði á fundi samninga-
nefndar tónlistarskólakennara og
sveitarfélaganna í gær. Að sögn Sig-
rúnar Grendal, formanns Félags tón-
listarskólakennara, lögðu kennarar
fram hugmynd til lausnar sem hún
segir að hafi ekki verið tekið fagn-
andi. Næsti fundur hafi verið boðaður
í síðasta lagi á þriðjudag.
Hún gagnrýnir Reykjavíkurborg
harðlega fyrir að halda viðræðunum í
gíslingu og eiga stóran þátt í því sem
sé ekki hægt að kalla annað en aðför
að tónlistarskólakerfinu.
Eftir að ríki og sveitarfélög gerðu
með sér samkomulag um að efla tón-
listarnám árið 2011 hafi borgin verið
eina sveitarfélagið sem túlkaði það
þannig að hún gæti dregið úr fjárveit-
ingum sínum á móti þrátt fyrir að
sveitarfélögum beri skv. lögum að
standa undir launakostnaði skólanna.
Skólarnir í Reykjavík hafi barist í
bökkum síðan þá og fjárhagsstaða
þeirra aldrei verið verri. Þeir séu bit-
bein ríkis og sveitarfélaga um fjár-
magn.
„Manni sýnist að menn ætli að fara
í hrossakaup með þetta samkomulag
og hvernig þeir ætla að koma tónlist-
arskólakerfinu fyrir í framtíðinni. Við
verðum eins og skiptimynt. Það vill
enginn borga brúsann,“ segir Sigrún.
Segir við-
ræður í
gíslingu
Tónlistarkennarar
séu skiptimynt
Bandaríska fyrirtækið Qlik hefur
keypt allt hlutafé í íslenska fyrir-
tækinu Datamarket. Hjálmar Gísla-
son, stofnandi og framkvæmda-
stjóri Datamarket, greindi frá
þessu á bloggsíðu sinni í gærkvöldi.
Þar sagði hann að þjónusta við við-
skiptavini fyrirtækisins á Íslandi
myndi ekki breytast og það væri
ekki á leið úr landi. Qlik er fyrir-
tæki á sviði viðskiptagreindar.
Bandarískt fyrirtæki
kaupir Datamarket