Morgunblaðið - 01.11.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Samhentir Leikstjórinn og hluti handritahópsins. Upptalning frá vinstri: Hjálmar Hjálmarsson, Arnar Ingi
Tryggvason, Ómar Ólafsson, Jón Bjarni Ísaksson, Arnór Sindri Sölvason og Davíð Örn Óskarsson.
Höfundarnir fjórir segja því af
og frá að í revíunni sé bara talað um
pólitík. „Nei, nei. Revían er full af
þáttum, sk. sketch-um, þar sem
bæði menn og málefni eru tekin fyr-
ir. Keflavík music festival er eitt
dæmi og ýmsir þekktir einstaklingar
í bæjarlífinu fá sinn skerf. Við skoð-
uðum líka hvernig menning er í
bænum og metum hvað fólki finnst
um bæinn almennt.“ Nýrisinn
stefnumótastaur úr dægurlaginu
„Skólaball“ eftir Keflvíkinginn
Magnús Kjartansson blasti við
blaðamanni á sviðinu svo væntan-
lega eru honum gerð skil í revíunni
og Guðmundi Stefáni Gunnarssyni
yfirþjálfara hjá júdódeild UMFN
sést bregða fyrir í sínum fræga bind-
isbol, sem hann klæddist m.a. í kosn-
ingabaráttunni sl. vor.
Margir áberandi karakterar
í Reykjanesbæ
Það sem kom handritshöfund-
um ekki síst á óvart við vinnuna er
hversu oft Reykjanesbær er í frétt-
um, svona þegar þeir fóru að hlusta
eftir því. Þeir sögðu Hjálmar Hjálm-
arsson leikstjóra einnig hafa komið
með nýjar fréttir í hús á hverri æf-
ingu, fréttir sem hann hafði heyrt í
útvarpinu á leiðinni, bæði jákvæðar
og neikvæðar. Hjálmar sagði þetta
svo sem ekkert undarlegt, þetta
væri ekki síður stórt landsvæði en
stórt bæjarfélag. „Það kemur mjög
oft fyrir þegar ég er á leiðinni hingað
að það berast fréttir úr bænum eða
af svæðinu. Ég kann enga skýringu
á því, nema það sé mikil aksjón í
bænum. Þið eruð með völlinn, eruð
að taka á móti hælisleitendum, eruð
með mikið af nýbúum og það er ým-
islegt sem gerist í tengslum við
þetta. Svo eruð þið með áberandi
karaktera hér, þetta er náttúrlega
gamli bítlabærinn og flottir lista-
menn sem koma héðan og þið hafið
verið mjög dugleg í menningarlífinu,
að setja ykkur á stall, þannig að það
er margt sem hjálpast að við að gera
Reykjanesbæ að miðpunkti Íslands
með reglulegum hætti,“ sagði
Hjálmar í samtali við blaðamann.
– Hvað er það við revíur sem
gerir þær svona vinsælar?
„Ég veit það ekki alveg en hitt
veit ég að það er lífsnauðsynlegt að
hafa smá húmor og gera grín, bæði
að okkur sjálfum og náunganum,
sérstaklega þeim sem eru mest
áberandi og taka sér þá stöðu, eins
og pólitíkusarnir og „fræga fólkið“
og það allt saman. Það er nauðsyn-
legt fyrir „almúgann“ að fá að gera
grín að „kónginum“ með reglulegu
millibili eins og gert var í gamla
daga. Ég myndi segja að þetta væri
nauðsynlegur spéspegill en í stærri
samfélögum er þetta gert í sjónvarp-
inu, Áramótaskaupið og Spaug-
stofan, en það sem er svo gaman hér
í þessu bæjarfélagi er að þetta sam-
félag er ennþá það lítið og þétt að
þetta er hægt. En þetta er einsdæmi
því þetta er stórt svæði, alþjóða-
samfélag með fjölbreyttu mannlífi
og ég held að það sé nauðsynlegt að
fá að hlæja aðeins að sjálfum sér og
stjórnmálamönnunum. Hér er líka
hlægilegt fólk og svo náttúrlega
mikið af hæfileikaríkum leikurum og
sprellfjörugum höfundum sem
hrista þetta fram úr erminni af því
að þessi hefð hefur skapast. Þið haf-
ið gert revíur svo lengi, samfleytt í
25 ár. Þeir ungu hafa verið að læra
af þeim eldri og þetta eru býsna
ungir menn sem eru að skrifa,“ sagði
Hjálmar. Auk þeirrar skemmtilegu
vinnu og mikla lærdóms sem þeir
ungu hafa öðlast, nefndu þeir að eitt
það skemmtilegasta væri að sjá eig-
in atriði á sviði og fá sýn Hjálmars á
það. Þeir bregða sér sjálfir í hin
ýmsu hlutverk í revíunni.
Bindisbolurinn Guðmundur S. Gunnarsson júdókappi fær skerf í revíunni.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 2014
ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 553 8050
STEINAR WAAGE - SMÁRALIND & KRINGLAN
WWW.SKOR.IS
VERIÐ VELKOMIN
Í NÝJA OG GLÆSILEGA VERSLUN
OKKAR Í KRINGLUNNI
Ómar Jóhannsson heitinn var lunk-
inn revíuhöfundur og setti Leik-
félag Keflavíkur a.m.k. upp fjórar
Keflavíkurrevíur eftir hann, þá
fyrstu árið 1989 í tilefni af 40 ára
afmæli Keflavíkurkaupstaðar. Aðr-
ar revíur sem ratað hafa á svið á
undanförnum árum hafa verið
samdar af hópi leikfélagsfólks eða
áhugafólks eins og Breiðbandinu,
sem samdi revíuna „Bærinn breiðir
úr sér“ og sýnd var 2008. Henni
var fylgt eftir með „Bærinn bræðir
úr sér“ og hluti af höfundateyminu
þar mætt enn á ný í „Með ryk í
auga“.
Fyrstu revíurnar sem samdar
voru og fluttar í Keflavík voru
„Svipleiftur Suðurnesja“ árið 1936
og „Draumalandi“ árið 1941. Sú
fyrri átti upphaflega að vera
skemmtiatriði á sjómannadag árið
1936 en sýningunum fjölgaði vegna
vinsælda og urðu alls níu. Höfundar
voru Helgi Jónsson og Arinbjörn
Þorvarðarson, sem jafnframt léku
aðalhlutverkin, gerðu leiktjöld og
leikstýrðu. Í revíunum var gert
góðlátlegt grín að náunganum og
þær þóttu mikið listaverk vegna
þeirra revíusöngva sem hafa varð-
veist úr sýningunum. Bjarni Jóns-
son samdi söngvana í fyrri revíuna
og Kristinn Pétursson í þá seinni,
að því er fram kemur í „Sögu
Keflavíkur 1920-1949“ eftir Bjarna
Guðmarsson.
Páll Baldvin Baldvinsson sagði í
greininni „Og þú skalt sofa í hundr-
að ár“ í Skírni árið 1980 að revíur
væru samtímabókmenntir í besta
skilningi orðsins, þær sæki efni sitt
í líðandi stund og þar séu dægur-
mál efst á baugi. Vegna þessarar
samtímavísunar revíunnar sé hún
oft eftirkomendum sem lokuð bók.
„Og jafnvel þótt öll gögn, blöð,
bækur og tímarit, séu könnuð eru
alltaf inn á milli tilsvör sem vísa til
atvika sem fáir muna lengur. At-
vika sem hafa á sínum tíma verið
heilu bæjarfélagi kunn, en voru
þess eðlis að þau áttu ekki erindi á
blað. … En þrátt fyrir það eru reví-
ur skemmtilegar aflestrar. Þær
bera með sér sterkan svip tíðar-
anda, draga fram þætti sem þagað
er yfir í söguritun, og eru síðast en
ekki síst óbrotgjarn minnisvarði um
kímnigáfu höfunda sinna.“
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Forseti bæjarstjórnar Halla Karen Guðjónsdóttir bregður sér í revíunni í
gervi Önnu Lóu Ólafsdóttur forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Revíur sækja efni
sitt í líðandi stund
Revíur hafa átt miklum vinsældum
að fagna í Reykjanesbæ í á þriðja ára-
tug, að sögn Hjálmars Hjálmarssonar.
Keppnin um eftirrétt áarsins 2014
var haldin á Hilton Nordica hóteli
hinn 30. október og að því er fram
kemur á vefnum www.veitingageir-
inn.is luku 34 þátttakendur keppni.
Keppnin var haldin í fimmta skipti og
var þemað í ár „tropical“ en í því
fólst að í eftirréttunum mætti greina
suðræn áhrif. Keppendur léku sér að
súkkulaði og ávöxtum en á meðal
þess sem einkunn er gefin fyrir er
samsetning hráefnis, bragð, upp-
lifun, frumleiki og framsetning.
Sigurður Kristinn Laufdal bar sigur
úr býtum í þessum 34 manna hópi. Í
öðru sæti varð Axel Þorsteinsson og
Aðalheiður Dögg Reynisdóttir í því
þriðja. Dómnefnd skipuðu þeir Her-
mann Þór Marinósson, sigurvegari
ársins 2013, Stefán Hrafn Sigfússon
og Jóhannes Jóhannesson.
Sigurvegarinn, Sigurður Kristinn
Laufdal, hlýtur að launum námskeið
hjá Chocolate Academy Cacao Barry í
Englandi. Nánar um keppnina á vefn-
um www.veitingageirinn.is.
Eftirréttur ársins 2014
Suðrænir
straumar
Ljósmynd/Veitingageirinn.is
Sigur Aðalheiður, Sigurður og Axel.