Morgunblaðið - 01.11.2014, Qupperneq 52
reglulega hafi verið haldin spila-
kvöld, dansnámskeið, böll, ræðunám-
skeið og fleira, „allt sem skólarnir
hafa nú yfirtekið“.
Helgi er samt bjartsýnn á framtíð
ungmennafélaganna. „Ég held að
þau verði áfram mikilvæg á ákveðnu
uppeldissviði.“ Bendir á að umræða
sé í gangi um sameiningu þriggja
ungmennafélaga í Flóahreppi – Sam-
hygðar, Vöku og Baldurs – og það sé
af hinu góða enda hafi skólarnir á
svæðinu verið sameinaðir fyrir ára-
tug. „Ég held að í framtíðinni verði
ungmennafélögin meira íþróttafélög
og starfi á vissu menningarsviði í
dreifbýlinu,“ segir hann.
Almennt félagsstarf hefur breyst
mikið með auknum möguleikum á af-
þreyingu. „Nú mætirðu hvorki
krakka né unglingi án þess að hann
glápi á síma. Um leið og við komum
úr skólanum á veturna fórum við að
renna okkur á skautum eða reyna
fyrir okkur í öðrum íþróttum. Það
trúir þessu ekki nokkur maður en
svona var þetta nú samt.“
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 305. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Án heimilis á morgun
2. 18 hættu hjá 365 í gær
3. „Þú nauðgaðir konum Bill Cosby“
4. „Ég var bara að kafna“
Nýtt útilistaverk eftir Halldór Ás-
geirsson verður afhjúpað í dag kl. 16
á Borg í Grímsnesi og er viðburðurinn
hluti af dagskrá Safnahelgar á
Suðurlandi. Útilistaverk Halldórs
samanstendur af hringlaga fleti sem
er í heild tíu metrar í þvermál með
hraunsteini fyrir miðju sem er um
það bil tveir metrar á hæð og breidd,
eins og segir í tilkynningu. „Hluti
hraunsins er logsoðinn en við það
umbreytist það í svartgljáandi gler-
ung. Í kringum hraunsteininn er
hellulögð stétt og á hellurnar eru
máluð hrauntákn í ýmsum stærðum
með svörtum lit og eru að grunni
teikningar sem listamaðurinn hefur
dregið upp af svartgljáandi glerungi
sem verður til þegar bræddur
hraunsteinninn kólnar,“ segir um
verkið. Ljóskösturum með ljós-
díóðum í mismunandi litum verði
beint að hraunvörðunni eftir að
dimma tekur þannig að hraungler-
ungurinn glitri. Verkið er sagt eins
konar samtal náttúrunnar við sköp-
unarkraft mannsins.
Útilistaverk Halldórs
afhjúpað á Borg
Það verður mikið um að vera í Hinu
húsinu í dag. Frá kl. 15 til 17 leika
hljómsveitirnar Eistun, Major Pink og
Sig fyrir gesti, hita sig upp fyrir tón-
listarhátíðina Iceland Airwaves í
Betri stofunni. Í Gallerí Tukt
verður opnuð samsýning
ungmenna sem fóru í
ferðalag um Eþí-
ópíu og í Gallerí
Gangi opnar
Ganna Shvarova
frá Úkraínu sýningu
þar sem hún kafar
m.a. ofan í kvenleikann.
Myndlist og upphitun
fyrir Airwaves
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 15-23 og rigning eða slydda norðvestantil, annars
mun hægari austan- og suðaustanátt og væta með köflum. Hiti 2 til 10 stig.
Á sunnudag Norðaustan 15-23, en hægari suðaustantil fram á kvöld. Víða slydda eða
snjókoma og sums staðar rigning við ströndina fyrripartinn. Kólnandi veður.
Á mánudag Norðan og norðaustan 8-15, hvassast suðaustantil. Éljagangur austantil,
víða bjartviðri sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 6 stig.
Kristinn Jakobsson kveður sem besti
dómari Pepsi-deildar karla í fótbolta
en hann leggur flautuna á hilluna í
árslok. Kristinn varð efstur í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins á þessu
ári og fyrstur til að fá hæstu einkunn
fyrir frammistöðu sína. Farið er yfir
einkunnir dómaranna á nýliðnu
keppnistímabili í blaðinu í dag. »4
Kristinn Jakobsson
kveður á toppnum
Líður vel á vell-
inum í Málaga
Ásgeir Örn Hallgrímsson kemur aftur
inn í íslenska landsliðið í handbolta
þegar það mætir Svartfjallalandi á
morgun en hann fékk frí frá leiknum
gegn Ísrael vegna fjölgunar í fjöl-
skyldunni. „Það er mikil löngun hjá
öllum að sýna sitt rétta andlit og
maður finnur að það
er allt öðruvísi og
betri stemning
en var í kringum
Bosníuleikina í
sumar,“ segir
Ásgeir. »1
Öðruvísi og betri
stemning í liðinu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég gekk í félagið um leið og ég hafði
aldur til, 12 ára,“ segir Helgi Stefáns-
son, bóndi í Vorsabæ II, en hann,
ásamt fjórum öðrum mönnum, var
sæmdur heiðursfélaganafnbót í Ung-
mennafélaginu Samhygð fyrir góð og
heillarík störf í þágu félagins í yfir
hálfa öld.
Ungmennafélagið Samhygð í Gaul-
verjabæjarhreppi var stofnað 7. júní
1908 og hefur verið eitt af öflugustu
ungmennafélögunum á Suðurlandi.
Stefán Jasonarson, faðir Helga, var
mikil driffjöður í félagsstarfinu í
sveitinni og var meðal annars for-
maður Samhygðar í nær þrjá áratugi.
Síðan tók Guðmundur Guðmundsson,
einn fyrrnefndra fimmmenninga, við
og stýrði félaginu í fimm ár áður en
Helgi varð formaður 1970 eftir að
hafa verið gjaldkeri í þrjú ár. Hann
gegndi formannsembættinu í tvo ára-
tugi auk þess sem hann var formaður
HSK í eitt ár. „Það var mikið púsl að
þjóna öllum, kúnnunum í vinnunni og
fólkinu í félaginu, vinnudagurinn var
langur, allar helgar og öll kvöld, en
þetta gekk allt saman,“ segir Helgi,
sem jafnframt hefur verið vörubíl-
stjóri í yfir 50 ár, en hann var einnig
formaður Landssambands vörubíl-
stjóra í 12 ár.
Öflugt félagslíf
Helgi segir að þorri sveitunga hafi
starfað í Samhygð með einum eða
öðrum hætti á árum áður. „Þetta var
afþreying, holl og góð,“ segir hann.
Nefndir eins og skemmtinefnd, leik-
nefnd og íþróttanefnd hafi verið mjög
virkar, gefnar hafi verið út starfs-
reglur fyrir hverja nefnd og gefið hafi
verið út fréttabréf sveitarinnar. „Við
byrjuðum á því í formannstíð minni,
gáfum það út fjórum sinnum á ári, en
nú kemur það út mánaðarlega,“ segir
Helgi. „Ég var með í íþróttunum en
var aldrei mikill keppnismaður,“
heldur hann áfram. Bætir við að
Þungavigtarmenn heiðraðir
Hafa starfað
fyrir félagið í yfir
250 ár samanlagt
Nýkjörnir heiðursfélagar Ungmennafélagsins Samhygðar Frá vinstri: Jón M. Ívarsson, Markús Kr. Ívarsson,
Guðmundur Guðmundsson, Helgi Stefánsson og Sigurður Guðmundsson með heiðursviðurkenningarnar.
Ljósmynd/HSK
Formenn á héraðsþingi HSK 1976 Jóhannes Sigmundsson 1966 - 1976,
Helgi Stefánsson og Sigurður Greipsson 1922 - 1966. Helgi var 10. formaður
HSK og gaf ekki kost á sér til endurkjörs ári síðar vegna anna.
Jón Arnór Stefánsson, lands-
liðsmaður í körfubolta, er
ánægður með byrjunina hjá
einu besta liði Spánar, Uni-
caja Málaga. „Mér líður vel á
vellinum og það skiptir mestu
máli. Mér hefur gengið frá-
bærlega í vörninni og í sókn-
inni spila ég eins og ég er
vanur, læt boltann ganga og
tek skotfæri sem bjóðast,“
segir Jón í ítarlegu
viðtali. »2