Málfríður - 15.03.2011, Blaðsíða 8

Málfríður - 15.03.2011, Blaðsíða 8
Að þessu sinni verður sumarnámskeið STÍL í formi ritsmiðju, sem haldin verður dagana 14.–19. ágúst 2011 í samvinnu við Vesturfarasetrið á Hofsósi og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Fyrir skömmu komu fram óánægjuraddir háskóla- nema, sem töldu sig hafa ónógan undirbúning í fram- haldsskóla til að skrifa á fræðilegan hátt í háskóla. Það kveikti áhuga stjórnar STÍL á að styrkja kennara sérstak- lega að því er lýtur að skrifum, ritgerðarsmíð og ritunar- kennslu á breiðum grundvelli. Aðalkennari námskeiðs- ins er Jeffrey Wilhelm, prófessor í ensku við Boise State University í Bandaríkjunum. Honum til aðstoðar verða undirrituð og Baldur Sigurðsson, dósent í íslensku og forstöðumaður ritvers Menntavísindasviðs. Ritsmiðjan hefst síðla dags sunnudaginn 14. ágúst og lýkur um hádegisbil föstudaginn 19. ágúst. Nokkurs undirbúnings er krafist fyrir þátttöku í námskeið- inu, og má finna lista yfir lesefni á heimasíðu STÍL, www.stil.is. Námskeiðið fer fram á ensku og lesefni er einnig á ensku. Hins vegar geta þátttakendur skrifað á því tungumáli sem þeim hentar, svo fremi að a.m.k. tveir aðrir þátttakendur skrifi á sama tungumáli. Það er ánægjulegt að skýra frá því að samstarf hefur tekist við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þetta þýðir að námskeiðið er einnig opið háskólanemum og mögulegt verður að taka það til fimm háskólaein- inga, sé gengið frá því fyrirfram. Til að námskeiðið nýtist til eininga munu þeir þátttakendur, sem það kjósa, inna af hendi frekari vinnu í framhaldi af nám- skeiðinu. Tímasetning námskeiðsins er einfaldlega valin með útilokunaraðferðinni. Þetta er eini tíminn sem fyrir- lesarinn á lausan í sumar og kennarar geta mögulega nýtt. Þar sem þetta er síðasta vikan áður en framhalds- skólinn tekur til starfa á landsvísu er þetta líka síðasta tækifærið í sumar fyrir kennara að njóta íslensks sum- ars úti í náttúrunni, og STÍL kemur til móts við félaga á Vestur- og Norðurlandi. Með stofnun Vesturfarasetursins hefur Hofsós dregið að sér æ fleiri ferðamenn og viðburði af öllu tagi. Fjölmargir afþreyingarmöguleikar eru til staðar á Hofsósi og víðar í Skagafirði, þannig að þátttakendur sem hefðu hug á að taka með sér fjölskyldur sínar geta án efa fundið skapandi leiðir til að láta verða af því. Á Hofsósi bjóðast fjölbreyttir gistimöguleikar, auk þess sem fyrirtaks tjaldstæði er á staðnum. Samstarfsaðilar okkar í Vesturfarasetrinu á Hofsósi hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til að gera ritsmiðjuna að veru- leika og bjóða gistingu með 40% afslætti, á verðbilinu 1.500–3.300 á mann fyrir nóttina. Undirrituð hafði einstaka ánægju af að leggja drög að þessu námskeiði, enda leiddi það hugann að framhaldsnámsárunum í University of Wisconsin í Madison. Eitt námskeið bar af öllum öðrum innan þeirra fjögurra deilda sem nám mitt spannaði, ensku- deild, bókmenntafræðideild, menntunarfræðideild og deild afrískra tungumála og bókmennta. Það námskeið sem hafði hvað dýpst áhrif á mig var einmitt ritsmiðja, sem var í umsjón David Schaafsma og Don Hudson. Meðal þess sem lagt var til grundvallar ritsmiðjunni í UW var að allir geta skrifað, enda er það eðlilegur hluti af lífi nútímamannsins að skrifa. Lykilsetningin sem hópurinn valdi sér kom úr munni Don Hudson: “writing is thinking, not thinking written down.” Kjarninn í þeim orðum vísar til þess að það að skrifa jafngildir því að hugsa á blað, og við að lesa það sem þegar hefur verið skrifað er hugsað uppá nýtt og þann- ig verða skrifin órjúfanlegur þáttur í hugsanaferlinu, líkt og samtal manns við sjálfan sig, hugsun í stöðugri endursköpun. Mikið var lagt upp úr því sem kennarinn nefndi sam- félag höfunda, “a community of writers.” Undirrituð hafði lítinn áhuga á því fyrirfram, vildi bara læra af kennaranum og skrifa í einrúmi eins og áður. Það kom því verulega á óvart þegar til kastanna kom, hversu dýrmætt það var að verða hluti af samfélagi höfunda sem var að glíma við að finna sína eigin rödd í skrifum. Það var til að mynda ógleymanlegt að átta sig á því í samvinnu við tvo aðra samnemendur, hversu oft það sem lesandinn sér reynist harla ólíkt því sem höfund- urinn taldi sig vera að segja í skrifum sínum. Það er mér mikil ánægja að geta boðið STÍL-félögum uppá úrvalskennara og þaulvanan ritsmiðjumeistara, Jeffrey Wilhelm, sem er forstöðumaður the Boise State 8 MÁLFRÍÐUR Ragnheiður Jóna Jónsdóttir. Ragnheiður Jóna Jónsdóttir, formaður STÍL Hugsað á blað Hueber Verlag Kundenservice Tel. + ()-    Fax: + ()-   E–Mail: kundenservice@hueber.de www.hueber.de www.facebook.com/hueberverlag Ideal zum Lernen unterwegs! Die handlichen deutsch üben Taschen- trainer bieten Grammatik und Wort- schatz zum konzentrierten, schnellen Wiederholen zwischendurch in einem kompakten Format. deutsch üben Taschentrainer Fit in Grammatik A/A ISBN –––– Wortschatz Grundstufe A bis B ISBN –––– Unregelmäßige Verben A bis B ISBN –––– Artikel ISBN –––– Präpositionen ISBN –––– Mit den Hueber Wheels haben Sie mit einem Dreh die richtige Form oder Redewendung entdeckt – ideal für die Schule, am Arbeitsplatz und unterwegs. Hueber Wheels Wheel Deutsch – Flirt-Trainer ISBN –––– Wheel Deutsch – Schimpfen und Fluchen ISBN –––– Wheel Deutsch – Akkusativ oder Dativ? ISBN –––– Wheel Deutsch – Modalverben ISBN –––– Wheel Deutsch – Präpositionen ISBN –––– Weitere Titel dieser Reihen unter www.hueber.de Anzeige_A5quer_Wheel.indd 1 24.02.11 16:00

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.