Málfríður - 15.03.2011, Blaðsíða 30

Málfríður - 15.03.2011, Blaðsíða 30
málakennara og sækja því ekki símenntun sem í boði er á þeim vettvangi. Þótt þeir hafi oft töluverða persónulega færni í tungumáli telja þeir að stundum vanti upp á þekkingu í kennslufræði tungumála. Að sama skapi eru aðstæður kennara í fjölmennu fram- haldsskólunum aðrar en í þeim fámennari hvað varðar umfang greinarinnar og samstarf við aðra kennara. Í starfsþróun • Fræðslufundir og stutt námskeið eru helst í boði á þéttbýlli stöðum. Erfitt getur verið fyrir kennara í fámennum skólum í dreifðum byggðum að sækja fræðslu vegna fjarlægðar og kostnaðar. Oft er staðan sú að tiltölulega fáir kennarar geta sótt fræðsluvið- burði á vegum fagfélaganna. Tungumálatorgið er vettvangur þar sem kennarar geta sótt sér hugmyndir í kennslu og að verkefnum og gefið öðrum hlutdeild í eigin verkefnum og kennslu. Í samfélagið eiga kennarar að geta sótt eins konar endurmenntun í sínu fagi með fyrirspurnum og sam- ræðum við jafningja, þegið og veitt góð ráð og miðlað af eigin reynslu í jafningjahópinn. Ætlunin er að nota Tungumálatorgið til að koma til móts við þann hóp kennara sem ekki á þess kost að sækja endurmenntun og safna á einn stað efni frá þessum fundum og þingum sem eru haldin á vegum tungumálakennara á Íslandi og birta efnið í hagnýtu og aðgengilegu samhengi. Vefur Dagnýjar er dæmi um afrakstur af fyrirlestri sem hún flutti á málþingi hjá Félagi dönskukennara 2010. Eins er um efni frá fræðslufundum kennsluráðgjafa og kennara í íslensku sem öðru máli komið á framfæri með mynd og texta á vef íslensku sem annars máls. Efni frá námskeiðum og fræðslufundum sem birt er á Tungumálatorgi er aðgengilegt öllum og nær til allra samtímis, hvar sem menn eru í sveit settir. Vegna sam- vinnu við Menntavísindasvið er hægt að birta efni áður og samhliða því sem fræðsla fer fram. Efnið verður aðgengilegt kennurum til upprifjunar og útprentunar löngu eftir að fræðslu lýkur. Góð dæmi úr kennslustofum með efni sem hefur reynst vel ýtir undir sjálfstæði kennara og áræðni við að prófa eitthvað nýtt. Þar sem á torginu er safnað efni frá mörgum tungumálum eru hæg heimatökin við að sækja efni, fyrirmyndir og hugmyndir til kennslunnar til annarra. Þannig nýtist margt sem þar er sett fram þvert á tungumál. Á þennan hátt er stuðlað að því að allir kennarar sem málið varðar, hvar sem þeir búa og starfa geti m.a. átt greiðan aðgang að efni sem höfðar vel til samtímans. Þannig verður Tungumálatorgið stöðug uppspretta og endurnýjun námsgagna og kennsluhátta sem verður kennurum aðgengilegt í kjölfar þessara viðburða. texta á skjámyndunum og kynningunum. Pólskan og íslenskan birtast því notendum beggja tungumálanna í merkingarbæru samhengi. Skólar geta vísað foreldrum á kynningarnar og sparað þannig túlkaþjónustu þegar koma á algengum upplýsingum á framfæri sem geta verið vegvísir um íslenskt skólakerfi. Aðrir móðurmálsvefir eins og spænska og ítalska eru ætlaðir foreldrum barna sem hafa spænsku og ítölsku sem fyrsta eða annað mál. Uppistaðan er hentugt efni og ráð til að viðhalda og rækta tungumál þótt börnin búi fjarri málsvæðinu. Einnig er þarna efni sem kenn- arar í spænsku geta nýtt sér, bæði gagnvirkt efni og efni til útprentunar. Vonandi eru þessir móðurmáls- vefir bara upphafið að frekari þróun og fljótlega komi fleiri vefir sem þjóna þessum markhópi. Tengt mörgum vefsvæðum á torginu eru umræðu- svæði, Forum for samarbejde, Grupy polski, The English Common og Umræðan þar sem hver sá sem er innskráð- ur þátttakandi á torginu getur tekið þátt í og sett af stað umræður um valin málefni. Jarðvegurinn Hvernig Tungumálatorgið þróast á tíminn eftir að leiða í ljós, ekki er séð fyrir endann á öllum möguleikum sem vettvangurinn hefur og mun torgið mótast af þörfum, áhuga og starfi þátttakenda í þessu nýja félagsneti. Ástæður fyrir mikilvægi vettvangsins til að jafna aðstöðu tungumálakennara og þar af leiðandi nem- enda vítt um land eru margar og verður fjallað um þær hér að neðan. Stærð og staðsetning skóla • Minni skólar og lítil sveitarfélög sitja ekki við sama borð og stórir skólar í stórum sveitarfélögum þegar kemur að fjölda fagmenntaðra tungumálakennara. Þeir geta síður boðið upp á sama fjölda valgreina og standa höllum fæti þegar kemur að samstarfi, kaupum og þróun á námsefni og námsgögnum sem nauðsynleg eru til að koma til móts við ólíka getu- hópa. • Stærri skólar sem hafa t.d. haft marga nemendur af einum erlendum uppruna byggja upp þekkingar- og reynsluforða sem gæti nýst öðrum skólum. Reynsla og kunnátta flyst oft á tíðum með fólki frá einni stofnun til annarrar en situr ekki í skólamenningu og leggst af þegar viðkomandi lætur af störfum. Á Tungumálatorginu er tækifæri til að varðveita og koma á framfæri slíkri reynslu. Aðstæður kennara • Kennarar eru oft einyrkjar í starfi. Í grunnskólanum eru önnum kafnir bekkjarkennarar sem líta ekki á sig sem kennara í einstakri grein, t.d. tungumáli. Þeir eru sjaldan skráðir sem félagar í fagfélögum tungu- 30 MÁLFRÍÐUR

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.