Málfríður - 15.03.2011, Blaðsíða 24
eins og samtal eða hugsun og… það má hlæja. Það er
allt önnur upplifun að hlusta á ljóð lesin eða flutt af
höfundi en að lesa þau í bók. Ég held það hafi komið
mörgum á óvart hvað þetta var skemmtilegt.
Að vinna með ljóð þegar maður er að læra eða „rann-
saka“ annað tungumál er frábær leið og gott verkfæri.
Bæði að lesa og hlusta á annarra manna texta og að
búa sjálfur til ljóð. Það er leikur og tilraun með orð
og merkingu orða, og maður ræður því alveg sjálfur
hvernig maður vill hafa það. Það getur ekki verið
rangt. Maður reynir að finna eins konar ryþma og að
velja orð eftir því hvernig þau hljóma. Sum orð hafa
mjúkan blæ, önnur harðan og áreitinn.
Nokkrar bækur eftir Solju er að finna í Norræna
húsinu, og að minnsta kosti ein þeirra er með ljóðin
líka á geisladiski. Nokkur dæmi um bækur hennar eru
barnabækurnar Jag behöver lillbrorsan og Lille Ville, og
ljóðabækurnar Stenar och moln, Jag behöver busschauffö-
ren og Redo för skrubben.
Til að fá meiri upplýsingar um Solju Krapu má skoða
skemmtilegu heimasíðuna hennar: http://soljakrapu.se.
Hér er stutt ljóð úr fyrstu bók hennar „Stenar och moln“.
Það er rímað, en oftast eru ljóðin hennar órímuð.
VEMODETS VÄSEN
Min far var en karl
och min mor var inte kräsen
Jag föddes efter
den första fadäsen.
Mitt liv blev ett nystan
av trassel och burr.
Nu dansar jag tango
till dammsugarsurr.
Det är det
som är vemodets väsen.
Erika Frodell, kennari í sænsku
við Laugalækjarskóla
Í lok janúarmánaðar kom ljóðskáldið Solja Krapu í
heimsókn til Íslands. Hún var hér í boði FNOS, Félags
norsku- og sænskukennara á Íslandi. Solja hefur unnið
sem myndmenntakennari og skrifað barnabækur,
ljóðabækur og eina skáldsögu. Þar að auki hefur hún
keppt í „Poetry Slam“ og verið kosin sænskur meistari
í tvígang. Solja er virk í svenska.nu sem er verkefni til að
efla áhuga á og færni í sænskri tungu meðal finnsku-
mælandi unglinga í Finnlandi. Í vetur hefur hún verið
með sýningu og/eða uppistand í Helsingfors og
Stokkhólmi. Sýningin heitir „Det var en gång en svensk,
en sverigefinne och en finlandssvensk. Sånger och dikter från
en väntsal“ og er samvinnuverkefni þriggja listamanna.
Sýningar Solju hafa oft eins konar ívaf af „stand-up-
comedy“.
Solja er fædd í Finnlandi en flutti 15 ára gömul
með eldri systur sinni til Svíþjóðar til að fara í nám.
Solja flutti til Umeå (sem er á sömu breiddargráðu
og Reykjavík) og býr þar enn. Hún skrifar á sænsku
en hefur „endurlært“ finnsku eins og hún orðar það.
Uppruninn verður mikilvægari með tímanum.
Solja hélt „workshop“ (námskeið) með kennurum
þegar hún var hér. Hún var einnig með eina sýningu
fyrir almenning og eina fyrir nemendur í sænsku og
foreldra þeirra. Þetta heppnaðist mjög vel og kætti fólk
á öllum aldri. Ljóðin hennar fjalla um hversdaglega
hluti sem flestir hafa upplifað eða þekkja til. Ljóðin
þurfa ekki að fylgja málfræðireglum, þau geta verið
24 MÁLFRÍÐUR
Solja Krapu.
Heimsókn rithöfundarins og
ljóðskáldsins Solja Krapu