Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Side 1
♦
LAMELLA'
Parket
HUS
BYGGINOAVÖRUVeRSLUN
VESTMANNAEYINGA
Simi 481 1151 • F»« 481 3202 • Kt. 460195-2179 ■ V«k. 4528»
GarOavegur 15 • 900 Vostmamiaaytar
;k&8§ll
23. árgangur • Vestmannaeyjum 24. október 1996 • 43. tölublað • Verðkr. 130,- • Sími: 481 3310 • Myndriti:481 1293
Ársuppgjör Vinnslustöðvarinnar:
Eigið fé nálgast
1300 milljónir kr.
í ársuppgjöri Vinnslustöðvarinnar
fyrir reikningsár félagsins, frá 1.
sept. 1995 til 31. ágúst 1996, kemur
fram að afkoma félagsins hefur
verið góð á árinu og hefur batnað
verulega frá árinu á undan.
Rekstrartekjur á tímabilinu námu
3.153,8 milljónum kr. en á reikn-
ingsárinu þar á undan námu
rekstrartekjur 2.645,3 milljónum.
Heildartekjur námu nú 3.649,1
milljón en á rekstrarárinu á undan
námu þær 2.982,8 milljónum.
Aukningin er því um 22,3% milli
ára.
Af öðram eftirtektarverðum tölum í
ársuppgjörinu má nefna að niðurstaða
af reglulegri starfsemi varð jákvæð
um 83,3 milljónir en að teknu tilliti til
annarra tekna og gjalda nam
hagnaðurinn 597,7 milljónum króna.
Nú nemur bókfært eigið fé
félagsins 1.288,7 milljónum,
samanborið við 317 milljónir í lok
ágúst 1995. Eiginfjárhlutfall er því
27,4% en var 8,3% í lok síðasta
reikningsárs. Hlutafé félagsins er nú
794,2 milljónir. Veltufjárhlutfall er nú
1,05 en sama hlutfall var 0,68 í lok
ágúst.
Bókfært verðmæti heildareigna
nemur nú 4.703,6 milljónum en var
3.807 milljónir í ágúst 1995. Eignir
hafa því aukist um 896,6 milljónir.
Heildarskuldir nema nú 3.414,9
milljónum eri voru 3.490 milljónir í
ágúst 1995 og hafa því lækkað um 76
milljónir króna. Nettóskuldir námu
nú 2.490,4 milljónum en þær voru
2.586,8 milljónir í ágúst 1995.
Lækkunin nemur því 96,4 milljónum.
Þá kemur fram í uppgjörinu að
fjármagnsgjöld, að teknu tilliti til
verðlagsbreytinga, hafa einnig lækkað
verulega, nema nú 117 milljónum en
voru áður 293 milljónir.
í ársuppgjörinu gætir bjartsýni um
áframhaldandi rekstur félagsins,
rekstrarútlit fyrir nýhaftð rekstrarár
talið gott. Loðnu- og síldarstofnar séu
sterkir auk þess sem þorskstofninn sé
að styrkjast. Þá er talið að arðsemi í
nýfjárfestingum muni skila enn bættri
afkomu þegar líða tekur á rekstrarárið.
Arni b/ggir
bjálkahús
suiuráeyju
Árni Johnsen, alþingismaður,
vinnur þessa dagana að því að
koma upp bjálkahúsi sunnan við
Steinsstaði. Kjaliarinn er þegar
kominn upp og bjálkarnir í
húsið eru þegar komnir til Eyja.
Sjálft húsið er um 100 fm auk
rissins. „Húsið verður reist á næst-
unni,“ sagði Árni og vísaði á bug
orðrómi um að hann hefði ekki
fengið öll tilskilin leyfi. „Það
byggir enginn í dag án þess að hafa
alla pappíra í lagi. Þá hef ég upp á
vasann," sagði hann ennfremur.
Þegar rætt var við Áma í síðustu
viku var hann að olíubera
mótafleka og eins og myndin ber
með sér skartaði haustsólin sínu
fegursta. Er þetta smá sýnishom af
því sem hann má vænta þegar hann
flytur í húsið.
Hér má sjá hluta af vinakeðju um 400 nemenda við Hamarsskóla Vestmannaeyjum sem náði
utan um allan skólann. Þarna lögðust allir á eitt, nemendur, kennarar, starfsfólk ásamt
nokkrum foreldrum. Vinakeðjan innrammaði stórskemmtilega og vel heppnaða vinaviku í
Hamarsskólanum þar sem lögð var áherslu á að bæta samskipti nemenda í skólanum.
Vinatengsl voru á milli yngri og eldri nemenda þar sem ýmislegt var til gamans gert. í lok
vinavikunnar var vinalegasti bekkur Hamarsskólans valmn eftir ábendingar frá starfsfólki og
kennurum. Sá heiður kom í hlut 7. S.Þ. - &TÁ NÁNAR Á BLS. 18
íþróttahreyfingin á tímamótum:
Samkomulag
um að stofna
nýttfélag
Viðræðunefndir Vestmannaeyja-
bæjar og Týs og Þórs undirrituðu á
þriðjudaginn samkomuiag sem
miðar að kaupum bæjarins á
eignum félaganna gegn því að
félögin verði lögð niður og sameinist
í Knattspyrnu- og handknattleiks-
félagi ÍBV. Samkomulagið er und-
irritað með fyrirvara um sam-
þykki bæjarstjórnar og aðalfunda í
Þór og Tý og ársþings ÍBV hvað
varðar samstarfs- og rammasamn-
ing.
„Samkomulagið er bam síns tíma.
Þór og Týr eru of litlar einingar til að
takast á við þá þróun og það umhverfi
sem íþróttahreyfmgin í landinu býr
við. Með þessu ætlum við að halda
uppi öflugu íþróttastarfi í bæði yngri
og meistaraflokkum. Sameining
félaganna hefur verið vilji bæjarbúa
og nú leitum við til þeirra um að
styðja við bakið á nýja félaginu. Við
höfum verið að leita að fólki til að
taka við stjóm nýja félagsins og er sú
vinna langt komin en fleiri hendur
þarf til ef við ætlum að efla iþróttastarf
í bænum,“ segir í yfirlýsingu
viðræðunefndar Týs og Þórs vegna
samkomulagsins.
Guðjón Rögnvaldsson og Viktor
Helgason, fulltrúar Týs og Þór Vil-
hjálmsson og Björn Þorgrímsson frá
Þór skipuðu viðræðunefnd félaganna.
I samtali við Fréttir sögðu þeir, að eins
og staðan er í dag, séu þeir ánægðir
með samkomalagið og segjast vona
að þama sé komin lausn sem fólk
sætti sig við. Þeir leggja áherslu á að
mikil og góð samstaða hafi verið
innan nefndarinnar.
- Sjá nánar á baksíðu.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTOÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
Vetraráætlun Herjólfs
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Aila daga n/sunnudaga Kl. 08:15
Sunnudaga kl: 14:00
Aukaferö Föstudaga kl: 15:30
Kl. 12:00
kl: 18:00
kl: 19:00
Ucrjólfur h(.
BRUAR BILIÐ
Sími 4812800 Fax 4812991