Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Side 6
Fréttir Fimmtudagur 24. október 1996 Sýn til Eyja Sjónvarpsstöðin Sýn mun á næstu viku stækka dreiftketfi sitt. Meðal annars mun Sýn ná til Vestmannaeyja en dagskráin verður send á örbylgju á UHF- rásum til Eyja. <Áhorfendur þurfa því engan viðbótarútbúnað til að ná útsendingunum. Stefnt er að því að útsendingar hefjist til Eyja eftir 6-8 vikur. 34 þús. upp í 170 millj. kr. kröfur 34 þúsund upp í 170 millj. kröfur Skiptum í þrotabúi útgerðar- félagsins Kleifa hf. í Vestmannaeyjum er lokið en búið var tekið til gjaldþrotaskipta í nóvember 1994. Almennar kröfur námu tæpum 170 milljónuin króna. Alls greiddust rúmar 34 þúsund krónur upp í almennar kröfur. Tvær stærstu kröfuhafar voru íslands- banki og Skeljungur en kröfur þeirra voru samtals 129 milljónir. Kleifar hf. gerði nt.a. út Gjafar VE. SPURT&SVARAÐ: Ersaltkjöt rómantískt? Eiríkur Sæland í Eyjablómum: „Þaö má setja margt annað ofan í pottana en pottablóm. Þetta er bara í framhaldi af grænmetissölunni hjá mér um daginn og er til að trekkja að viðskiptavini auk þess að sýna fram á fárán- leikan í verslun og viðskiptum í Vestmanna- eyjum nú til dags“ Eiríkkur Sæland blómasali auglýsir saltkjöt til sölu í Sprönguskelli. Fyrir skömmu hóf hann að selja kartöflur og grænmeti í blóma- og gjafavörubúð sinni. Simi 481 1151 • Fax 481 3202 • KL 460195-2179 • Vak. 45288 Garöavagur 15 • 900 Vestmannaayjar VESTMANNAEYINGA Barnalög Helgu Jónsdóttur hljónna nú í öllum kirkjum landsins og í sjónvarpi: Ævintýrí ííkast Eins og sjá mátti í sunnuda- gaskóla Ríkissjónvarpsins sl. sunnudagsmorgun voru Vest- mannaeyjar þar í aðalhlutverki. Litlir lærisveinar, barnakór Landa- kirkju, sungu lag Helgu Jónsdóttur en þess var farið á leit við hana í vor að semja lög fyrir fræðsludeild Þjóðkirkjunnar í sunnudagaskólum landsins í vetur eins og kom fram í Fréttum á sínum tíma. Helga samdi tíu lög og voru fjögur af þeim valin og sett í fræðsluhefti Þjóðkirkj- unnar sem er lagt til grundvallar starfi sunnudagaskólanna í landinu. Ekki nóg með það heldur voru tvö lög tekin upp á myndband og öll tíu lögin sem Helga sendi til fræðslu- deildar kirkjunnar voru tekin upp af Ríkissjónvarpinu til að sýna í sunnudagaskóla morgunsjónvarps- ins á sunnudögum í vetur. Helga sagði í samtali við Fréttir að þetta væri rnikill heiður fyrir sig. Hún hefði verið að semja barnalög í gegnum tíðina en búist við því að það yrði aðeins fyrir sig og sína nánustu. Helga starfaði í barnastarfi Hvíta- sunnukirkjunnar í mörg ár en sl. vetur var hún og eiginmaður hennar, Amór Hermannsson, fengin til þess að vera með í sunnudagaskóla Landakirkju þar sem Helga hefur kynnt lög sín við frábærar undirtektir. Elín Jóhanns- dóttir, sem sér um bamastarfið á vegum fræðsludeildar Þjóðkirkjunnar, heyrði af lögum Helgu vegna ábendingar frá séra Jónu Hrönn Bolladóttur. Elín varð yfir sig hrifin og ákvað að koma þeim á framfæri. Segja má að boltinn hafi farið að rúlla fyrir alvöru eftir ábendingu Jónu Hrannar því lög Helgu hljóma nú í sunnuda- gaskólum í kirkjum landsmanna um land allt. Og ekki nóg með það heldur tók Ríkissjónvarpið, eins og fyrr segir, lög Helgu upp á arma sína. „Fræðsludeild kirkjunnar hefur einnig beðið mig að sentja jólalag sem senda á öllum leikskólum á landinu. Þá vantaði einfalt jólalag sem semja átti út frá ákveðinni sögu. Ég er nýbúin að senda lagið frá mér og búin fá það samþykkt. Ég hef fengið þau skilaboð frá þjóðkirkjunni að hún hyggi á meira samstarf við mig í framtíðinni. Fyrir mig er þetta algjört ævintýri. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að starfa í sunnudagaskóla Landakirkju. Annars hefði ég aldrei fengið þetta tækifæri. Mér hefur nú Helga og Arnór ásamt Bjarna Landakirkju sl. sunnudag. verið falið að stjóma bamakór í Landakirkju sem við köllum Litla lærisveina. Það er kórinn sem syngur lögin í sjónvarpsupptökunum og mér sýnist við hafa nóg að gera í vetur,“ segir Helga. Lög Helgu eru skemmtilega upp byggð. Þeim fylgja ýmsar einfaldar hreyfingar, táknmál og hljóð og höfða því vel til bamanna. Það hefur blaða- maður sjálfur séð í sunnudaga- skólanum. „Uppbygging laganna er meðvituð hjá mér, ég verð að semja lögin í takt við tíðarandann til að ná athygli bam- anna. Boðskapurinn er einfaldur þar sem ég höfða til vináttu, réttlætis og reglusemi. Sem dæmi er mér hugleikin saga úr Biblíunni sem ég ákveð að semja lag um. Ég einfalda guðfræðina og sleppi smáatriðum og reyni þannig að aðlaga textann að hugsanagangi og orðaforða iítils bams. Ég er allt frá einum degi og upp í tvo mánuði að semja lögin, það er allur gangur á því. Ég reyni að hafa lögin þannig að þau hafi uppeldislegt gildi. Það er einfaldlega mín ábyrgð þar sem þau eru farin að ná til fjöld- presti með barnakórnum Litlum lærisveinum í sunnudagaskóla ans,“ segir Helga. Fullt hefur verið út úr dyrurn í sun- nudagaskóla Landakirkju í vetur. Helga segir bamastarf í Landakirkju í miklum blórna og sé leitun að öðru eins á landsvísu og þótt víðar væri leitað. Aðdáunarvert sé einnig að sjá hversu foreldrar em duglegir að koma með bömin sín í sunnudagaskólann „Ég er þakklát fyrir það örlæti frá Guði að hafa gefið mér þessa gjöf. Ég vona að ég ofmetnist aldrei," sagði Helga ennfremur. 10%10 afsláttur %1i 0% ... á flísfataefnum ... á útsaum ... á gjafavörui Undir nál m INA Stóra skriðdýra- sýningin í fyjm ínæsfvviku Stóra skriðdýrasýningin sem notið hefur mikill vinsælda í Reykjavík, kemur til Eyja í næstu viku. Hún verður í gamla samkomuhúsinu (sal Hvítasunnusafnaðarins) þriðjudag, miðvikudag og fimm- tudag í næstu viku og verður opið frá kl. 14-21. Að sögn Jörundar Guðmunds- sonar, sem hefur veg og vanda af komu skriðdýrasýningarinnar, munu koma hingað tugir lifandi skriðdýra auk annaira dýra. Þar má nefna hæt- tulegustu og eitruðustu slöngu í heinri, mömbur. skröltomrar, mokka- sínormar, afrískir Adder o.s.frv. Einnig verða risasnákar, bóaormar og pythonslöngur, eðlur, skjald- bökur, tarantullur og sporðdrekar. Þá má geta þess að hundruðir suðrænna fiðrilda eru í safninu. „Þegar þið heimsækið sýninguna verðið þið að minnast þess að öll dýrin eru í sínu eðlilega umhverfi, sem þýðir til dæmis að í eitruðu slön- gunum eru bæði eitur og eitur- tennumar til staðar. Þið skulið ekki halda að dýrin séu með nokkrum hætti svæfð niður eða deyfð í kulda. Það er eðlilegt að rnenn gætu haldið að svo sé vegna þess að hættir skriðdýra eru þess eðlis að þau hreyfa sig ekki mjög mikið og geta verið klukkustundunum saman á einum stað. Dýrin í sýningunni em einnig orðin vön því að á þau sé horft. Markmiðið með skriðdýra- sýningunni er að koma á framfæri réttum upplýsingum um skriðdýr sem ekki eru í okkar umhverft. Þess vegna höfum við um þau fastmótaðar hugmyndir og oft ranghugmyndir og álíta margir þau vera blaut og köld kvikindi. Á kynningunum sem verða í salnum megið þið jafnvel eiga von á að fá að koma við lifandi slöngu,“ segir Jömndur. Skriðdýrin koma með Herjólfi eftir helgi. Jömndur sagði að þar sem hiti þyrfti að vera góður þyrfti að skrúfa upp alla ofna í gamla sam- komuhúsinu eins og kostur væri. „Ég hef ávallt reynt að koma til Vestmannaeyja með ýmsar sýningar sem ég hef staðið fyrir. Ég vona að Vestmannaeyingar kunni að meta þetta framlag rnitt og að öll fjölskyld- an hafi gagn og gaman að.“ sagði Jömndur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.