Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Side 4

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Side 4
Fréttir Fimmtudagur 24. október!996 Sælkeri vikunnar - Róbert Sigurmundsson Indverskur karrýréttur Eyjólfur Heið- mundsson skoraði á Róbert Sigurmunds- son í Prýði sem sælkera vikunnar. Get'um Róbert orðið: „Eyjólfur veit sem er að ég er ekki oft yfir eldhúsverkunum. En heppnin er oft með mér á lífsleiðinni því ég er kvæntur húsmæðraskólagenginni stelpu sem kann sitt fag svo ég gekk í smiðju hennar. Hún minnti mig á rétt sem ég hafði eldað með ágætis árangri hér um árið sem er mjög einfaldur í vinnslu - en mjög góður. Á fneðan hann kraumar á eldavélinni getur maður ryksugað og þurrkað af. INDVERSKUR KARRÝRÉTTUR 1 kg lambakjöt 2 st. laukur 1 st. hvítlauksrif 28 gr smjör 2 tsk. karrý 1 !/2 msk. hveiti 2-3 tómatar 1 st. lárviðarlauf 2 tsk. kanill 28 gr rúsínur 2 st. epli, rifin 2 msk. pikkles 2 tsk. salt 1 peli vatn 2-3 súputeningar Allt skorið niður og sett í pott og látið malla í 2‘/2-3 klst. Síðan borið fram með soðnum hrísgrjónum. Þessi uppskrift er fyrir 4-5. EFTIRRÉTTUR: FERSKUR ÁVAXTARÉTTUR 2 stk. bananar 1 stk. ananas eða V2 dós 80 stk. jarðarber eða Vi dós 2 stk. epli 2 stk. kíví Allt skorið niður í 2 sm bita, sett í tjórar skálar eða eina stóra og borið fram nieð rjómaís. Ég ætla svo að skora á Oskar Björgvinsson ljósmyndara að vera næsta sælkera en hann kann örugglega að framkalla gómsæta rétti. ORÐSPOR - Stóra skriðdýrasýningin verður í Eyjum í næstu viku. Allskoma um 100 dýr sem íslendingar eru ekkivanirað hafaínátt- úrunni. Dýrin verðaflutt með Herjólfi og nú segja gárunganir að skipið verði héreftir kallað ÖRKIN HANS NÓA.... Elsta glerverksmiðja ó íslandi Söluumboð í Eyjum (Erum með einfalt gler ó lager) Drangur ehf. Straridvegi 80 Gengið inn að norðan Sími 481 -3110 og 481-3120 • Fax 481-3109 Heimas. Kristján 481- 1226 og 481-1822. Þórólfitr 481-2206 Nýfœddir Vc s t m q n n q c y i n g g r Stúlka Þann 13. okt. sl. eignuðust Þórunn Rúnarsdóttir og Kristinn Valgeirsson stúlku. Hún vó 14 merkur og var 51 sm. Hún er í fangi bræðra sinna, Daníels Andra og Sveins Ágústs. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir. Stúlka Þann 14. okt. sl. eignuðust Bergey Edda Eiríksdóttir og Magnús Steindórsson stúlku. Hún vó 14 merkur og var 50 sm. Ljósmóðir: Guðný Bjarnadóttir. Drengur Þann 11. okt. sl. eignuðust Lilja Þórarinsdóttir og Valdimar G. Hafsteinsson dreng. Hann vó 16,5 merkur og var 54 sm. Drengurinn er í fangi systkina Verð kannski heiðursborgari í síðasta blaði var greint frá því því að fyrirspurn Odds Júlíussonar verkamanns um ágóða af sölu Happdrættis DAS í Eyjum, hafi skilað bænum óvæntum glaðningi eða á níunda hundruð þúsund kr. Þessi samningur mun hafa „gleymst” en ekki á harða diskinum hjá Oddi. Fyrirspurn hans skilaði sér líklega í útsvari hátt í tylftar verkafólks, hvorki meira né minna. Oddur er Eyjamaður vikunnar. Fullt nafn? Oddur Björgvin Júlíusson. Fæðingardagur og ár? 1. febrúar 1957. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Ókvæntur og barnlaus. Menntun og starf? Lauk gagn- fræðaskólaprófi, starfa sem verkamaður. Laun? 69.992 kr. miðað við 40 stunda vinnuviku. Helsti galli? Óþolinmóður. Helsti kostur? Hvað er nú það? Uppáhaldsmatur? Fýll og rófur. Versti matur? Er litið hrifinn af bjúgum. Uppáhaldstónlist? Kórsöngur og orgelmúsík. Hvar myndir þú vera ef þú yrðir fluga á vegg í einn dag? í fund- arsal bæjarráðs. Uppáhalds stjórnmálamaður? Ögmundur Jónasson. Uppáhalds íþróttamaður? ÍBV liðið í heild sinni. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Telst vera meðlimur í mannfélaginu. Hvert er eftirlætissjónvarpsefn- iðþitt? Fréttir og fréttatengt efni. Hvaða sjónvarpsrás horfir þú mestá? Hefeinungis Ríkissjónvarpið og sé það í lit. Uppáhaldsleikari? Gef áhugafólkinu í Leikfélagi Vestmannaeyja mitt atkvæði. Uppáhaldskvikmynd? Kofi Tómasarfrænda. Uppáhaldsbók? Bréf til Láru. Hver eru helstu áhugamál þín? Hef áhuga á því sem gerist umhverfis mig. Svo les ég talsvert. Hvað metur þú mest í fari annarra? Hreinskilni. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Forvitni. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Þingvellirog Vestmannaeyjar. Hvernig í ósköpunum mundir þú eftir þessum samningi á milli DAS og Vestmannaeyjabæjar? Kvarnirnar mala. Ég virðist hafa meira en skammtímaminni. Finnst þér ekki að þú ættir að fá einhvers konar verðlaun frá bænum fyrir þennan tekjuauka? Ef til vil verð ég gerður að heiðurs- borgara áður en yfir lýkur. Hvers vegna ertu að senda inn þessar fyrirspurnirtil bæjarins og færðu einhver viðbrögð frá yfirvöldum? Vegna þess að sam- félagið kemur okkur öllum við. Mál fá þetta 2-3 mínútur til umfjöllunar í bæjarráði. Bæjarstjórnarfundir standa stutt og ekki ómaka bæjar- fulltrúarnir sig við að upplýsa bæjarbúa með greinarskrifum. Viðbrögðin fyrir fyrirspurnum mínum eru m.a. tilefni þess að ég sit nú og svara þessum spurningum. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð: - DAS? Þarft fyrirtæki um gott mál. - Svarbréf? Ólatir pennavinir. - Áhaldahúsið? Þar er samankomin mikil reynsla og þekking. - Eitthvað að lokum? Er ekki mál að linni? Ég gæti endað í heilu blaði að lokum. Stúlka Þann 10. okt. sl. eignuðust Hulda Karen Róbertsdóttir og Bergur Kristinsson stúlku. Hún vó 14 nierkur og var 52 sm. Hún er í fangi stóru systur, Áslaugar Dísar. Ljósmóðir: Guðný Bjarnadóttir. sinna Þórarins Inga og Birgitar Óskar og Guðný frænka er líka á myndinni. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir Drengur Þann 18. sept. sl. eignuðust Margrét Sveinsdóttir og Guðmundur Guðmundsson dreng. Hann vó 18 merkur og var 54 sm. Hann er í fangi systur sinnar, Láru Daggar. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir. Móðir okkar GUÐRÚN ÁGÚSTA ÁGÚSTSDÓTTIR Heiðarvegi 55 lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 23. október sl. Böm, tengdaböm, barnaböm og bamabarnaböm

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.