Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Side 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 24. október 1996
Sprönguskellur 24,, 25 og 26
Apótek Vestmannaeyja:
Ekkibara
Apótek Vestmannaeyja er eitt elsta
fyrirtæki í bænum, stofnað 1913 af
Sigurði Sigurðssyni frá Arnarholti.
Hanna María Siggeirsdóttir, sem
nú á Apótekið, er sjöundi apótekari
frá stofnun. Hún kom frá Stykk-
ishólmi og tók við rekstrinum þann
1. janúar 1995. Apótekið hefur frá
upphafi verið á sama stað við Vest-
mannabrautina og var elsti hluti
hússins byggður árið 1905.
Hanna María segir að því fylgi að
sjálfsögðu erfiðleikar að flytja á nýjan
stað og kynnast nýju fólki. „En eftir
því sem ég hef kynnst heimamönnum
hér betur því betur líkar mér við þá og
ég vona að það sé gagnkvæmt. Hvað
reksturinn varðar, þá hefur hann bara
gengið vel,“ segir Hanna Marfa.
Hanna María verslar ekki aðeins
með lyf og hefur tekið þátt í
Sprönguskelli frá upphafi. „Hérerum
við með hjúkrunarvörur. allar al-
mennar hreinlætisvörur og sérhæfðar
vörur eins og hárhirðuvörur, fóta-
hirðuvörur, líkamshirðuvörur að ó-
gleymdum fæðubótavörum og
heilsuvörum, snyrtivörur, angóru-
nærföt og bamavörur sem eru allt frá
bleyjum og upp úr. Skart fylgir því að
vera með snyrtivörur. Og hér fæst
fleira sem tengist heilsu á ýmsan hátt
og fólk getur fengið ráðgjöf og
leiðbeiningar um allt milli himins og
jarðar þegar kemur að heilsu og
heilbrigði," segir Hanna María og
vísar til þess að sjáf er hún
lyfjafræðingur. Auk þess vinna hjá
henni Elín Jacobsen lytjafræðingur og
lyfjatæknamir Guðfinna Sveinsdóttir
og Kristín Guðjónsdóttir og aðrar
starfsstúlkur hafa að baki langa
reynslu í Apótekinu.
Hanna María segist hafa góða
reynslu af Sprönguskellinum þó það
komi kannski ekki fram í beinni sölu.
„En fólk kemur og skoðar og
spekúlerar sem skilar sér seinna. Núna
ætla ég að bjóða upp á fótahirðuvörur
á afslætti. Undir þennan vöruflokk
heyra þjalir, klippur og olíur og fleira
til að hafa fína fætur,“ sagði Hanna
María að lokum.
... .5 W c=SI§
ÍÚ Í'ÍíSamMn^^^í^ll feðlLt MlsíJslaHþlWI
M v .
Fref
i7| ríTfpr
, |t|
IJ 3
'• i*. —
Jjfi >
Hanna María, lengst til hæari, ásamt Elínu Jacobsen lyfjafræðinqi, fyrir miðju, og Guðfinnu
Sveinsdóttur lyfjatækni.
Verslunin Miðbær opnar f dag eftirendurbætur:
Full búð af
nýjum vérum
Ágústa Guðmundsdóttir eða
Dúddý í Miðbæ eins og flestir
þekkja hana stendur í stórræðum
þessa dagana. I rúman hálfan
mánuð hafa farið fram breytingar
og endurbætur á verslun hennar
sem nú er lokið og opnar hún að
nýju í dag með fulla búð af nýjum
vörum.
Dúddý er enginn nýgræðingur sem
kaupmaður. Hún opnaði verslunina
Miðbæ árið 1972 og flutti að Mið-
stræti 14 árið 1978 og þar er hún enn.
„Ég er með mikið úrval af fatnaði
fyrir dömur og börn, snyrtivörur í
helstu merkjunum og prjónagarn,"
segir Dúddý um verslun sína sem á
næsta ári verður aldarfjórðungs-
gömul.
Þegar Fréttir litu við í Miðbæ á
mánudaginn voru endurbætur á
verslunarhúsnæðinu á lokastigi og
stefndi íað allt yrði klárt fyrir daginn
í dag. „Ég lét setja nýtt á gólf og loft
og endurnýja innréttingar og á
fimmtudaginn (f dag) ætla ég að opna
á ný. Það er gaman að það skuli
hittast svona á, að Sprönguskellur
skuli byrja um leið. Ég ætla að opna
með miklu úrvali af nýjum vörum,
t.d. nýjustu tískuna í haust- og
vetrarfatnaði. Á morgun, föstudag og
laugardag verður kynning á Lancome
snyrtivörum en með þeim fylgja
alltaf myndarlegar gjafn."
Sprönguskellurinn hefur komið vel
út að mati Dúddýar. „Við höfum
fundið fyrir aukinni sölu og ég heyri
ekki annað á viðskiptavinunum en
að þeir séu ánægðir. Okkar styrkur er
að flytja vöruna beint inn frá
útlöndum sem skilar sér í lægra verði
og það kemur enn frekar frant á og dömu- og herrasnyrtivörur,“ sagði
Sprönguskellinum. Núna verðunt við Dúddý að lokum.
nteð kápur og frakka á 20% afslætti
Ema Sævaldsdóttir, verslunarmaöur í Miðbæ og Dúddý
höfðu í nógu að snúast þegar Fréttir heimsóttu þær
Sigurborg við afgreiðslu í versiun sinni.
Verslunin Undir nálinni:
Mikið úrval af úf-
saums' og gjahvöru
Þann 17. nóveniber opnuðu hjónin
Sigurborg Magnúsdóttir og Magni
Rósenbergsson verslunina Undir
nálinni við Bárustíg þar sem þau
buðu upp á ýmis konar vefnaðar og
föndurvörur.
í vor fluttu þau verslunina að
Kirkjuvegi 10 þar sem verslunin er nú.
„Við reynum að vera nteð sem mest
og best úrval af vefnaðar- og
föndurvöru auk útsaums- og gjafa-
vöru,“ segir Sigurborg í samtali við
Fréttir.,J>etta hefur gengið nokkuð vel
hjá okkur og yfirleitt nóg að gera."
Hún segir að Sprönguskellurinn hafi
kornið vel út hjá. „Hann hefur skilað
sér í meiri verslun og ntargir líta við til
að skoða sem skilar sér seinna. Núna
ætlum við að bjóða alla gjafavöru með
10% afslætti og sami afsláttur verður
á flísefnunum vinsælu," sagði Sigur-
borg að endingu.