Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Síða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Síða 8
8 Fréttir Fimmtudagur 24. október 1996 NÝI LÓÐSINN KOMINN ÚT. Hann er fyrsta stálskip sem smíðað er í Vestmannaeyjum. Hann er næst stærsta skip sem hér hefur verið byggt, 164 tonn. Á innfelldu myndinni er Ólafur Friðriks- son, framkvæmdastjóri ásamt fleiri starfsmönnum Skipalyftunnar að fylgjast með. Nýi Lóðsinn kont- inn undir bert ioH Fréttatilkynning frá Sjóvá-Almennum: Bjóða 17 til 20 úra ökumönnnum ú númskeið Nýi Lóðsinn var tekinn út úr húsi Skipalyftunnar á mánudaginn var. Enn er talsverð vinna eftir við skipið og ekki vitað hvenær henni verður að fullu lokið. Nýi Lóðsinn verðurum 164 tonn að stærð og er annað stærsta skip sem smíðað hefur verið í Vestmanna- eyjunt. Helgi Helgason var stærri. Vélbúnaður er af Mitsubishi-gerð, 2x1000 hestöfl við 1500 snúninga á mínútu og skrúfugírar frá Mekanord svo og framgír fyrir brunadælu. Skrúfubúnaður er frá Hundested, tvær skrúfur í skrúfuhringjum, hvor skrúfa um sig 2080 mm í þvermál og eiga þær að gefa um 30 tonna togkraft. Tvær hjálparvélar eru í skipinu af Mitsubishi-gerð, 70 kW. Dráttarvinda verður 10 tonna með 70 tonna bremsukrafti og dráttarkrókur fyrir 75 tonna togkraft. Þá verður krani með vindu aftan á þiifarshúsi. Brunadæla verður við framgír aðalvélar og mun hún afkasta 250 tonnum á klst. við 150 m vatnssúlu. Þá verður slökkvibyssa á brúarþaki og kvoðukútur tengdur inn á slökkvibúnaðinn. Ibúðir verða í eins og tveggja manna klefum í þilfarshúsi og er annar þeirra sjúkraklefi. Þar verða einttig eldhús og matsalur, ásamt snyrtingu. Þá verður þriggja til fjögurra manna klefi frammi í undir aðalþilfari. Helstu undirverktakar Skipa- lyftunnar við smíðina voru Drangur, sem sáu um tréverk, Geisli í rafmagni og Grétar Þórarinsson með pípulagnir. Á námskeiðinu verða skoðaðir þeir þættir sem hjálpað geta ungum ökumönnum til að verða enn betri ökumenn. Námskeiðið er frítt og geta þeir sem hyggjast koma skráð sig hjá Sjóvá-Almennum í Vestmannaeyjum ís. 481-2550. Með þátttöku á námskeiðinu fá þátttakendur tveggja bónusflokka hækkun á bíiatryggingu á sínu nafni, allt að 20% lækkun iðgjalda á ári. Séu þeir ekki með bfl tryggðan, eiga þeir þessa hækkun inni þegar þeir koma með bfl í tryggingu. Á stórum fólksbfl nemur upphæðin um 22 þúsund kr. á ári eða um 120 þúsund á næstu átta árum meðan þú ert með fullum bónus og l5 þúsund á ári fyrir lítinn bfl. I tengslum við námskeiðið mun Veltibíll Bindindisfélags ökumanna og Umferðarráðs verða í Eyjuin. Almenningi verður boðið að fara í hann og upplifa hve bflbeltin eru mikilvæg. Hann verður í gangi kl. 14-16 laugardaginn 26. október framan við Skátaheimilið Faxastíg 38. Með kveðju frá Sjóvá-Almennum tryggingum í Vestmannaeyjum. Vinna við innréttingar á brú og mannaíbúðir í Lóðsinum er langt komin en hún er unnin af starfsmönnum Drangs. Þrír klefar verða í Lóðsinum og þar af einn sjúkraklefi. Öll aðstaða fyrir áhöfn er eins og best verður á kosið. Á myndinni eru Kristján ' framkvæmdastjóri Drangs og Ægir Sigurjónsson. Við gerum stundum glappaskot sem við getum lært af. Hvað umferðina varðar þá tekur það okkur mörg ár að ná góðri fænii sem ökumenn. Meðan við erurn að ná þessari fæmi er okkur hættara við mistökum. Því munu Sjóvá-Almennar trygg- ingar í Vestmannaeyjum bjóða ungurn ökumönnum á aldrinum 17 til 20 ára á dags námskeið um ökutækjatrygg- ingarog tjónamál. Námskeiðið ntun standa frá kl. 10.30 - 16.30 laugardaginn 26. okt- óber að Heiðarvegi 7 efri hæð (Sveinafélagi jámiðnaðarmanna). Lögreghn leHbeimr bömunum í imferóinni Endurskinsmerki á öll börn í síðustu viku var lögreglan með umferðarfræðslu í grunnskól- unum þar sem nemendur fyrsta til sjötta bekkjar voru leiddir í allan sannleikann um veigamestu atriði umferðarreglna fyrir gangandi vegfarendur. Einnig var farið yfir reglur um útivistartíma og lögð áhersla á að þær séu virtar að sögn Ágústs Birg- issonar lögregluvarðstjóra. „Einnig em bömin áminnt mjög ákveðið um reglur varðandi reiðhjól, sérstaklega Ijósabúnað þeirra. Það er einnig óskað eftir því að þau fari ekki á hjólunum í skólann,“ segir Ágúst. „Mjög er höfðað til barnanna að þau séu vakandi og eftirtektarsöm f umferðinni og að þau verði ein- göngu að treysta á sig sjálf. Ekki sé hægt að treysta á að aðrir virði umferðarreglumar eða einhver sé til staðar til að hjálpa þeim," sagði Ágúst ennfremur. Hann segir að skólastjórar og kenn- arar skólanna séu þakklátir fyrir þessa viðleitni lögreglunnar til að fræða nemendur urn umferðarreglur. „Þá hef ég farið í tíundu bekki skólanna í samvinnu við Gísla Magnússon kennara. Höfum við frætt nemendur skólanna um ökupróf á bifreiðar, bifhjól og léttbifhjól. Hefur það mæist vel fyrir hjá krökkunum," sagði Ágúst að lokum. í frímínútum var lögreglubifreið á skólalóðunum og sýndi Ágúst bömunum búnað hennar. Fengu þau m.a. að kveikja á neyðarljósum og sírenu bifreiðarinnar. Til foreldra skólabarna Kæru foreldrar. Nú þegar bam (böm) ykkar hefur hafið skólagöngu viljum við hjá lögreglunni vekja athygli ykkar á ákveðnum þáttum sem bamið og foreldrar þess þurfa að vita um og hvað ber að varast í umferðinni á leið í skólann. Við upphaf skólagöngu verða þáttaskil í lífi allra bama. At- hafnasvæði þeirra hefur fyrst og fremst verið nánasta umhverfi heimilis en nú bætast við daglegar ferðir í og úr skóla. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið gert til að tryggja öryggi bamanna á þeirri leið er margt óunnið. Börnin þarfnast því aðstoðar okkar. Við getum haftð aðstoðina með því að finna öruggustu leiðina í skólann í samvinnu við þau. Böm eru í mun meiri slysahættu en fullorðið fólk í umferðinni. Þau hafa hvorki þekkingu né reynslu okkar fullorðna fólksins og þau hafa einfaldlega ekki þroska til að meta aðstæður á sama hátt og við gerum. Það er því afar mikilvægt að vekja athygli bamanna á fáum einfóldum reglum sem stuðlað geta að bættu öryggi þeirra. Það er haldlítil slysavörn að kenna þeim eingöngu að hræðast hættur í umferðinni. Ein algengasta orsök slysa á bömum í umferðinni er sú að þau hlaupa skyndilega út á götu á milli bfla sem lagt hefur verið við gangstéttarbrún. Þá getur reynst afar erfitt fyrir ökumenn að sjá bömin og korna í veg fyrir slys. Bömin eiga líka mjög erfitt með að meta fjarlægð og hraða bflanna við þessar aðstæður. Á þetta þarft þú að leggja sérstaka áherslu við barnið þitt. Einhverjir kunna að sakna þess að hér er ekki minnst á hjólreiðar bama. Ástæðan er einfaldlega sú að böm ná afar takmörkuðu valdi á því að hjóla í umferð fyrr en þau em 10 til 12 ára. Böm sem em að byrja skólagöngu eiga alls ekki að vera á reiðhjóli í umferðinni. „Það læra bömin sem fyrir þeim er haft.“ Óvíða á þessi málsháttur betur við en í umferðinni. Því miður eru þess allt of mörg dæmi að atferli okkar fuilorðna fólksins beiniínis brjóti niður það sem reynt er að kenna börnunum. Mikilvægi þess að vera börnunum gott fordæmi fellur aldrei úr gildi. Hugleiðum það. Það er ósk okkar að ofangreint megi verða til þess að foreldrar íhugi öryggi bama sinna í umferðinni og verði þeim að gagni við að ala börnin upp í því að verða góðir vegfarendur. Þá viljum við enn og aftur hvetja til notkunar endur- skins í hvaða formi sem er og nota það alltaf hvort sem er við leik eða störf. Endurskinsmerki Björgunar- og slysavamadeildir SVFI á Suðurlandi í samstarfi við Mjólkurbú Flóamanna hafa ákveðið að gefa öllum 6 ára bömum endurskinsbelti. Beltin eru með mjög góðu end- urskini og eiga að sjást vel í myrkri. Heppilegt er að festa beltin með einhverjum hætti í yfirhafnir bam- anna. Það er von okkar að forráðamenn brýni fyrir bömum sínurn að nota beltin og stuðla þar með að fækkun slysa á börnum í skammdeginu. Með slysavarnakveðju, Slysavarnafélögin á Suðurlandi og MBF.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.