Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 24. október 1996
Hitaveitan leysti olíukyndinguna af hólmi á
áttunda áratugnum. Smám saman hefur þeim
sem kynda með olíu verið að fækka. Samkvæmt
upplýsingum frá olíufélögunum eru um tíu
íbúðarhús í Vestmannaeyjum kynt með olíu af
tæplega 1500. Auk þess eru nokkrar veiðar-
færagerðir og fáeinir kofar kyntir með olíu.
Olíukynding fór að ryðja sér til rúms í kringum
seinni heimstyrjöldina að því er fróðir menn telja.
Katlarnirsem notaðir voru í byrjun þóttu ekki merki-
leg smíði en þegar þeir urðu traustari voru flest öll
íbúðarhús og atvinnuhúsnæði í Vestmannaeyjum kynt
með olíu. Ragmagnskynding fór svo að ryðja sér til
rúms áður en hitaveitan kom til sögunnar.
Hér er ekki ætlunin að gera fræðilega úttekt á
olíukyndingu eða hitaveitukostnaði heldur grafa upp
síðustu móhikanana/sérvitringanna sem enn kynda
með olíu í þessu bæjarfélagi.
Til skamms tíma þótti ódýrara að kynda með olíu. í
dag ber „sérfræðingum" saman um að svo sé ekki,
nema kynda húsið aðeins hluta úr degi eins og dæmi
eru um. Lítirinn á hráolíu í dag til húsakyndingar er á
23.99 kr. og hefur hækkað um 1,80 kr. á nokkrum
vikum. Olía til húshitunar ber 14% virðisaukaskatt en
olía í bíla og skip er dýrari þar sem hún ber 24,5%
virðisaukaskatt.
Tonnið af heita vatninu hjá Bæjarveitum
Vestmannaeyja kostar í dag 103 kr. en heita vatnið
ber einnig 14% virðistaukaskatt. Meðaleinbýlishús
notar að meðaltali 2-2,5 tonn af heitu vatni á
sólarhring.
- Þorsteinn Gunnarsson
Gústaf os Aðalheiður:
Olíukyndins yfir
kaldasta tímann
Palli í Olíunni sá um að keyra olíunni í mörs ár:
Mikill slöngu-
dráttur
Gústaf Sigurjónsson og
Aðalheiður Hjartardóttir búa
að Hólagötu 48. Þau tóku að
sjálfsögðu hitaveituna inn á
sínum tíma. En þegar karlarnir
aetluðu að taka fírinn úr kjall-
arannm sagði Gústaf hingað og
ekki lengra. Það væri aldrei að
vita nema hann þyrfti á honum
að halda.
,Ég nota olíukyndinguna stundum
yfir kaldasta tímann. Hitaveitan ein
Hallgrímur Njálsson og Sigfríð
Björgvinsdóttir búa að
Hólagötu 15 og hafa kynt með
olíu síðan þau keyptu húsið
fyrir nokkrum árum.
„Við kyndum með hráolíu af
þeirri einföldu ástæðu að við fáum
betri hita í húsið. Þeir sem áttu húsið
á undan hituðu með olíu vegna þess
að það var ódýrara. Ég er ekki viss
um að svo sé í dag, ég hef hreinlega
ekki reiknað það út. Að sjálfsögðu
var lögð inn hitaveita í húsið á sfnum
og sér kyndir ekki nægilega vel.
Húsið er gamalt og ofnarnir líka.
Fírinn er í góðu lagi og ég lokaði
aldrei skorsteininum. Þetta er í góðu
lagi og ég er ekki frá því að olíu-
kyndingin sé mun betri. Alla vega er
hitinn meiri og jafnari. En olíukynd-
ingin er dýr, er ekki reyndar allt dýrt
í dag? Það var nú ákveðinn sjarmi
yfir þessari olíuntenningu hér áður
fyrr þegar karlarnir komu á olíu-
bílunum til dæla,” sagði Gústaf.
tíma. En ofnaketfið er ekki nógu
gott. Það kemur að því að skipta yfir
í hitaveitu en það verður bara að hafa
sinn gang,“ sagði Hailgrímur.
Fírinn í kjallaranum hefur stund-
um biiað en gengur annars ágætlega.
Grétar pípari sér til þess að hann
gangi.
„Fólk er hissa á að við kyndum
með olíu þangað til það heyrir
skýringuna. Hitinn er góður og ekki
svo ntikið dýrari en hitaveitan. Á
meðan svo er tel ég þetta vera í lagi.“
Páll Guðjónsson, betur þckktur
sem Palli í olíunni, hefur unnið
frá 1971 hjá Olíufélagi íslands.
Hann sá um að keyra olíu í
tankana við húsum bæjarbúa í
nokkur ár áður en hitaveitan
leysti olíukyndinguna af hólmi.
„Ég byrjaði á olíubílnum I97l og
var þangað til hitaveitan tók við eftir
gos. Hvert einasta hús í bænum var
kynt með olíu. Þetta var mikill slöngu-
dráttur, úr bílnum og í tankana.
Sérstaklega var þetta erfitt þegar snjór
var mikill. Þá þurfti að moka niður á
tankana," segir Páll.
Flestir tankar tóku á bilinu 200 til
300 lítra af olíu. Yfirleitt var dælt í
tankana á hálfs mánaðar ffesú að sögn
Páls en það fór auðvitað eftir því
hvemig tíðarfarið var.
„Við höfðunt yfirleitt reglu á þessu
hvemig rúnturinn var. En sumir vildu
hringja og panta. Yfirleitt var skrifað
hjá fólki og því svo sendur reikn-
ingurinn. En þeir voru nokkrir
sérvitringar sem vildu staðgreiða.
Oftar en ekki var okkur boðið inn í
kaffi og meðlæti og við þáðum það ef
tími var til. Á vertíð var oft mikið að
gera því við þurftum að fara í bátana,"
segirPáll.
Tveir olíubflar voru að þjónusta
bæinn hjá Esso, tveir frá Skeljungi og
einn frá Olís þegar mest var um að
vera þegar Páll var að keyra.
„Þetta breyttist auðvitað mikið
þegar hitaveitan kom til sögunnar.
Smátt og smátt hefur þeim verið að
fækka sem nota hráolíu til að kynda
kofana sína. Ekki vildi ég skipta aftur
yfir í olíukyndingu. Þrifnaðurinn er
auðvitað miklu meiri að hafa heitt
vatn. Mikið viðhald var á fírununt og
óþrifnaður gat verið töluverður. Hins
vegar er ég ekki frá því að olíukynd-
ingin haldi betur hita í húsunum en
hitaveitan segir Páll, sem hættir hjá
Olíufélaginu unt áramót þegar hann
verður kontinn á aldur, eins og hann
kemst að orði.
Emil Masnússon:
Spara
allt að
helmins
Emil Magnússon býr að Hátúni
8. Hann hefur alla tíð kynt
með olíu en hitaveitan var
lögð á sínum tíma inn í bíl-
skúr án þess að Emil hafi
tekið hana inn í hús.
„Ég kyndi enn með olíu af því
það er miklunt mun ódýrara. Ég
hef ekki tekið það saman nákvæm-
lega en ég er að spara alveg 30 til
50 prósent. Ég borga um fitnm til
sex þúsund á mánuði fyrir olíu-
kyndinguna en væri líklega að
borga helmingi meira fyrir
hitaveituna," segir Emil.
Spamaðurinn hjá Entil liggur
fyrst og fremst í því að hann kyndir
aldrei á nóttunni. hann segist vera
hræddur við það.
,Þ>að munar ansi miklu að kynda
ekki 10 eða 12 tíma á sólarhring. I
því liggur spamaðurinn. Ég kveiki
upp snemma á morgnana en ef það
er kalt kveiki ég eldsnemma. Ég er
með góðan ketil sent er frá því fyrir
gos og kyndir vel. Þeir hafa verið
að bjóða mér afslátt ef ég tæki inn
hitaveituna, t.d. með því að fá
inntakið frítt. En það er samt allt of
dýrt fyrir mig, það verður að leggja
allt upp á nýtt og kaupa hitakút,"
segir Emil.
Emil ætlaði á sínum tfma að fá
rafmagnskyndingu í húsið en var
neitað um það. Helst af öllu vill
hann hafa rafmagnskyndingu sem
var lögð í hverfið í kring.
„Því er ekki að neita hitinn frá
olíunni er mun skemmtilegri en
hitaveituylurinn. Mér finnst hann
mun þurrari frá hitaveitunni. En ef
ég ætti nógan aur myndi ég taka
hitaveituhelvítið inn,“ sagði Emil.
Emil Magnússon.
Hallsrímur og Sigfríð:
Betri hiti í húsið
j