Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Blaðsíða 1
\
R
i ®
iaMBBba
ÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINQA
25. árgangur • Vestmannaeyjum 26. febrúar 1998 • 8. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293
Morgun-
flugihætthjá
FlugfélagiVm
Vegna fiugmannaskorts hættir
Flugfélag Vestmannaeyja að
fljúga morgun- og kvöldflug
fyrir Islandsflug frá 1. mars nk.
I tilkynningu frá FV segir að flug
þetta hafi notið ntikilla vinsælda og
er stefnt að því að bjóða aftur upp á
það næsta vetur. íslandsflug flýgur
á Dornier flugvélum tvisvar á dag
milli Vestmannaeyja og Reykja-
víkur, í hádeginu kl. 12.30 og
síðdegis kl. 16.45 frá Eyjum en frá
Reykjavík er farið 45 mínútum
fyrr. I maf mun síðan bætast við
morgunflug og verður flogið
þrisvar sinnunt á dag í allt sumar.
Fjórirsækjaum
stöðuferða-
málaráðgjafa
Fyrir nokkru auglýsti Þróunar-
félag Vestamannaeyja eftir
manni í starf ferðamálráðgjafa.
Staðan er fimmtíu prósent starf og
gert ráð fyrir að ferðamálaráðgjafi
sinni allri framkvæmd ferðamála á
vegum Þróunarfélagsins, auk
kynninga, tengsla og skipulagn-
ingar verkefna.
Bjarki Brynjarsson hjá Þróunar-
félaginu segir að fjórir aðilar hafi
sótt um starfið og þeir séu allir
heimamenn. Hann segir að verið
sé að meta umsækjendur og að
ákvörðun um ráðningu verði tekin
á næstu dögum.
Bæjarveiturhækka
framlag sitttil
Þróunarfélagsins
A fundi stjórnar Bæjarveitna 18.
febrúar sl. var samþykkt að
hækka framlag Bæjarveitna til
Þróunarfélags Vestmannaeyja.
Er það gert vegna rekstrarverkefna
og tækjakaupa í samstarfsverkefni
úr 520 þúsundum í 1,5 milljónir á
árinu 1998. Þess ber að geta að
Bæjarveitur ásamt hafnarstjóm og
bæjarstjóm em stofnaðilar að
Þróunarfélaginu.
Guðmundur VE kemur með fullfermi af loðnu til Eyja á mánudaginn.
Rólegt yfir loðnunni
Óhætt er að segja að loðnuvertíðin
fari rólega af stað. Loðnan hefur
hegðað sér nokkuð öðruvísi en á
síðustu árum, rétt eins og hún fari
sér rólegar. Þeir á Austfjörðum
hagnast á því en þessi hegðan
kemur verr niður á þeim sem
vestar eru eins og hér í Eyjum.
Sigurður Friðbjömsson, hjá bræðslu
Vinnslustöðvarinnar, sagði í gær að
þeir væru búnir að taka á móti um
6000 tonnum og Kap var væntanleg
eftir hádegið með um 800 tonn.
Sigurður sagði að eitthvað væri búið
að frysta af hæng á Rússlandsmarkað
en það væri ekkert stórvægilegt, beðið
væri eftir að hrygnan skilaði sér og þá
færi allt á fullt.
Hörður Óskarsson, hjá Isfélaginu,
tjáði Fréttum að þeir væm búnir að
taka á móti um 4300 tonnum. I gær
brældi á miðunum og tók fyrir veiði
þannig að ekkert er væntanlegt alveg í
bráðina af loðnu hingað. Hörður
sagði að lítillega væri bytjað að frysta
á Japansmarkað en enn væri ekki ljóst
með hvert verð fengist fyrir þær
afurðir enda væri hrygnan á
mörkunum með að uppfylla kröfur
Japana. „Þetta er svona heldur rólegt
ennþá," sagði Hörður. „Mér finnst
þetta varla byijað ennþá.“
Sævald Pálsson á Bergi VE var að
koma frá Fáskrúðsfirði í gær þegar við
náðum sambandi við hann, rétt eftir
hádegi og átti eftir um 10 sjómílur á
miðin. „Þetta er búið að ganga alveg
prýðilega," sagði Sævald. „Við emm
búnir að landa fímm sinnum, komnir
með um 4500 tonn samtals og talsvert
af því hefur farið í frystingu. Þegar
brældi í gær vomm við komnir með
550 tonn, fómm með það inn og
megnið af því fór í frystingu. Það er
bræluskítur núna af suðvestri og
tæplega veiðiveður en trúlega lagast
það þegar hann gengur í norðrið. Þá
ætti hún að gefa sig á ný,“ sagði
Sævald Pálsson
Guðjón Rögnvaldsson sem á sæti í
stjórn hins nýstofnaða ahnennings-
hlutafélags Utgerðarfélagi Vest-
mannaeyja segir að hlutafjársöfnun
félagsins gangi mjög vel. „Við
lögðum upp með að ná 250
milljónum í hlutafé og það hefur
gengið vonum framar, þannig að
nú höfum við sett markið á 300
milljónir og allar líkur á að það
náist.“
Hann segir að öllum heimilum í
Vestmannaeyjum hafi verið sent
dreiftbréf, þar sem félagið var kynnt
og óskað eftir að fólk gerðist
hluthafar. „Reyndar varð einhver
misbrestur á að erindið bærist inn á öll
heimili í Eyjum en við ætlum að bæta
úr því með þvf að stjómin mun verða
til staðar í Akógeshúsinu við
Hilmisgötu milli klukkan 16:00 og
19:00. í dag fimmtudag 26. febrúar.
Þá geta allir sem áhuga hafa á að
kynna sér stofnun, rekstaráform og
starfsemi félagsins fengið svör við
spumingum sínum. Hins vegar sýna
þessar góðu undirtektir að Vest-
mannaeyingar geta staðið saman,
þegar spuming er um að halda skipum
og aflaheimildum í plássinu.“
Guðjón vill hvetja Vestmannaeyinga
til þess að nýta sér þennan íjár-
festingarmöguleika. Hann vonar og
að formlegur stofnfúndur hlutafélags-
ins verði það fjölmennur að halda
verði hann í íþróttamiðstöðinni.
Laugarnesssókn:
Skýristannað
kvöld hvort
Bjami hlýtur
hnossið
Það hefur verið staðfest að séra
Bjarni Karlsson hefur sótt um
starf sóknarprests í Laugarness-
sókn.
Bjami segir að hann eigi ákveðnar
rætur í Laugamesssókn og hafí
starfað þar á ámm áður, hins vegar
geti hann ekki metið hverja
möguleika hann eigi á starfinu.
„Það mun verða ljóst á föstu-
dagskvöldið hver fær stöðuna, en
svo er geftnn viku kæmfrestur, ef
menn sætta sig ekki við niður-
stöðuna. Að öðm leyti er lítið hægt
að segja um málið," segir Bjami.
Hlutlaus aðili metí
heyforðaGunnars
Fyrir bæjarráði í gær lá fyrir
bréf frá Gunnari Árnasyni varð-
andi fóðurmál og búfjárhald.
Bæjarráð vísaði erindinu til
landnytjanefndar sem fer með
landbúnaðarmál fyrir bæinn.
Ragnar Óskarsson (V) Iét bóka að
vegna misræmis á útreikningum á
heyforða Gunnars yrði hlutlaus
aðili fenginn til að skera úr um
hvað rétt er í málinu.
Kostar 28 mílljónir
Samkvæmt niðurstöðum tækni-
deildar Vestmannaeyjabæjar mun
framkvæmdakostnaður við flokk-
unarstöð Sorpeyðingarstöðvarinn-
ar vera um 28 milljónir króna að
meðtöldum aukaverkefnum og
breytingum. 2Þ ehf - Þór Engil-
bertsson - sjá um framkvæmdimar.
VoríEyjum
Fyrir bæjarráði í gær lá fyrir ósk frá
IB V-fþróttafélagi þar sem óskað er
eftir styrk vegna atvinnu og
þjónustusýningarinnar Vor í
Eyjum. Bæjarráð vísaði erindinu til
fjárhagsáætlunar 1998.
r-TTT Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alla daga nema sun. Kl. 08:15 Kl. 12:00
sunnudaga Kl: 14.00 4 Kl: 18.00
7/erjó/|ur
BRUAR BILIÐ
Sími 481 2800 Fax 481 2991
Bókabúöin
Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434