Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 26. febrúar 1998
Landakirkja
Fimmtudagur 26. febrúar
Kl. 11:0() Kyrrðarstund á Hraun-
búðum
Kl. 17:00 T.T.T. (10- 12ára)
Föstudagur 27. febrúar
Kl. 14:00 Útför Bjarkar Aðal-
heiðarBirkisdóttur
Laugardagur 28. febrúar
Kl. 11:00 Útför Guðrúnai' Ei-
ríksdóttur
Kl. 14:00 Útför Arnbjargar Magn-
úsdóttur.
Sunnudagur 1. mars
KL 11:00 Sunnudagaskólinn.
Kl. 14:00 Almenn Guðsþjónusta
á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar.
Æskulýðsfulltrúar Landakirkju,
Gylfi Sigurðsson og Hulda Líney
Magnúsdóttir ásamt unglingum
úr KFUM & K Landakirkju
þjóna í messunni. Fjölskyldur
fermingarbama sérstaklega
hvattartil kirkjugöngu!
Pönnukökur og kleinur til
sölu í messukaffi. Ágóði
rennur til æskulýðsstarfsins.
Kl. 20:30 Útgáfutónleikar í
safnaðarheimilinul!
Barnakór Landakirkju Litlir
Lærisveinar kynnir nýjan geisla-
disk ásamt hljómsveit. Stjómandi
kórsins er Helga Jónsdóttir.
Enginn aðangseyrir en diskurinn
verður til sölu í safnaðarheimili.
Pönnukökur og kleinur til sölu á
eftir. Ágóði rennur til KFUM &
K Landakirkju. Nú á að
fjölmenna!!
Mánudagur 2. mars
Kl. 20:30 Bænasamvera og
Biblíulestur í KFUM & K-
húsinu
Þriðjudagur 3. mars
Kl.l6:00 Kirkjuprakkarar (7-9
ára)
Kl. 20:30 Eldrideild KFUM &
K fundar í liúsi félaganna.
Miðvikudagur 4. mars
Kl. 10:00 Mömmumorgunn
Kl. 12:10 Kyrrðarstund í hádegi
Kl. 15:30 Fermingartímar -
Barnaskólinn
Kl. 16:30 FermingíU'tímar -
Hamarsskólinn
Kl. 20:00 KFUM & K húsið
opið unglingum
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Þriðjudagur
Kl. 17:30 Krakkakirkja (aldurinn 9
-12 ára)
Finimtudagur
Kl. 20:30 Biblíulestur
Föstudagur
KL. 17:30 Krakkakirkja af lffi og
sál (fyrir börn frá 3 - 9 ára)
Kl. 20:30 Unglingastarfið
Laugardagur
Kl. 20:30 Bænasamkoma
Sunnudagur
Kl. 15:00 Vakningarsamkoma
Lilja Óskarsdóttir talar. Samskot
tekin til kristniboðsins.
Aðventkirkjan
Laugardagur 28. febrííar.
Kl. 10:00 Biblíurannsókn
Allir vdkomnir.
BaháíSAM-
FÉLAGIÐ
Opið liús að Kirkjuvegi 72B.
Kl. 14:00 Sunnudaginn 1. mars
mun guðfræðineminn Þorkell
Óttarsson fjalla um Kristni í ljósi
Bahá’í-trúarinnar
Allir velkomnir.
Baháí’ar
Lesendabref: ly®wi F0 íuwnaíííín ^ \
Brevtinga er bðrf
Mjög víðtæk umræða er nú meðal
hinna ýmsu verkalýðsfélaga landsins
um sameiningu. Þessi umræða hefur
átt lítinn hljómgrunn hér í Vest-
mannaeyjum.
ÍMBL sunnudaginn 21. febrúarer
sagt frá umræðum í Reykjavík,
Ámessýslu og Vestfjörðum. Nú reka
félög launþega í Vestmannaeyjum
skrifstofur á a.m.k sjö stöðum í
bænum, nokkur í sameiginlegu hús-
næði og önnur heima hjá gjaldkerum
sumra félaganna.
Hvað kostar þessi rekstur félögin?
Það er skoðun mín að þessi rekstur
kosti ekki undir 35 milljónum á
ári.Þessi kostnaður er utan alls vel-
sæmis og væri peningunum betur
varið til sterkari sjúkrasjóða og jafn-
vel fleiri mála er horfi til framtíðar,
s.s. aukinni fræðslu til trúnaðarmanna
og annarra félagsmanna.
Fyrir allmörgum árum voru uppi á
borðum hugmyndir að viðbyggingu
austan við Alþýðuhúsið, þar sem reka
mætti sameiginlega skrifstofu fyrir öll
félögin hér í Eyjum, jafnvel Starfs-
mannafélag Vestmannaeyjabæjar.
Þessa byggingu mætti fjármagna með
þvf húsnæði sem félögin eiga í dag og
nýta mætti sem íbúðarhúsnæði.
Slíkar skrifstofur eru reknar víða,
s.s. á Húsavík og víðar. Þau félög,
sem ekki hafa skrifstofuþjónustu í dag
gætu gerst samstarfsaðilar slíkrar
skrifstofu. Einnig mætti reka At-
vinnumiðlun þá sem nú er á Bæjar-
skrifstofu í Ráðhúsinu, á þessari
sameiginlegu skrifstofu.
Þetta yrði fyrsta skrefið að
sameiningu margra félaganna s.s.
beggja verklýðsfélaganna, verslunar-
manna og fleiri. Með öllum þeim
breytingum sem orðið hafa á lögum
um stéttarfélög og vinnudeilur, sem
Alþingi samþykkti á vordögum 1996
er slík samvinna og sfðan hugsanleg
sameining lífsspursmál fyrir okkur.
Allt hjáróma tal um sameiningu, yrði
því kveðið í kútinn og verkin vonandi
látin tala. Fyrirtækjasamningar yrðu
auðveldari og vonandi yrði þetta til að
bæta kjör verkafólks hér í Eyjum,
kjör sem verður að bæta til að
haldauppi því samfélagi, sem við öll
viljum
stuðla að, Eyjunum okkar til fram-
dráttar.
Guðni F. Gunnarsson
fiskverkamaður
Minning:
Björk A. Birkisdóttir
Fædd 18. 10. 1956. Dáin 19.2. 1998.
Mér er orðið ljóst að stundum lendum
við í þeirri aðstöðu í lífinu að ekki
verður annað gert en að taka eitt skref
í einu og lifa frá einni andrá til
annarrar.
Björk A. Birkisdóttir var í stjóm og
trúnaðarmannaráði Verkakvennafé-
lagsins Snótar um árabil og gegndi
þeirri vinnu af alúð og ósérhlífni.
Ég minnist Bjarkar sem mjög
kjarkaðrar konu, sem sagði hlutina
eins og þeir voru. Þó að veikindin
væru farin að há henni og hún hefði
nóg í að snúast heima við, gaf hún sér
alltaf tíma í að kikja í kaffi hjá
stelpunum í Snót svona til að athuga
hvemig gengi í samningunum. Voru
þá teknar upp rökræður um kosti og
galla þeirrar vinnu sem lá fyrir, oft
vom umræðurnar svo heitar að ég
gleymdi því að þama væri kona sem
ætti við alvarleg veikindi að stríða.
Eins þótti mér vænt urn upphring-
ingamar á morgnanna, var þá oftast
rætt um lífið og tilveruna og það
tímabil þegar við unnum báðar í
ísfélaginu.
Elsku Björk nú kveð ég þig með
þakklæti fyrir samvemna og sam-
vinnuna.
Fann ég eigi orðin þá
er ég segja vildi,
varð þó feginn eftir á
að þegja skyldi.
Ókunnur höfundur
Elsku Beddi, Þórður, Birkir og Guðný
megi góður guð styrkja ykkur í
sorginni.
F.h. Verkakvennafélagsins
Snótar
Linda Hrafnkelsdóttir
AMundur Líknar:
Guöbjörg ósk Jóns-
dóttir áfram formaður
Kvenfélagið Líkn hélt aðalfund sinn
2. feb. sl. í félaginu em nú 115
félagskonur og einn heiðursfélagi.
Allar þessar konur vinna saman að
hinum ýmsu störfum félagsins eftir
bestu getu og hentugleikum.
Á síðasta ári gaf félagið til ýnissa
líknar- og félagsmála samtals
1.578.619 krónur.
Stjóm félagsins skipa nú: Guðbiörg
Ósk Jónsdóttir, formaður; Ema Ölöf
Ólafsdóttir, gjaldkeri; Sjöfn Sigur-
bjömsdóttir, ritari; Helga Guðjóns-
dóttir, varaformaður; Svanbjörg
Gísladóttir, vararitari og Drífa
Kristjánsdóttir meðstjómandi.
Lfknarkonur þakka bæjarbúum
góðan stuðning og velvild á liðnum
árum og vonast eftir stuðningi
bæjarbúa hér eftir sem hingað til, því
að án ykkar emm við lítils megnugar.
Kærar kveðjur og þakkir.
F.h. Líknar. Guðbjörg Ó. Jónsdóttir
(F réttatilkynning)
Elín gerð að heiðursfélaga
Sjúkraliðadeildar Vm
Afmælisfagnaður Sjúkraiiðadeildar Vestmannaeyja var haidinn fyrir
skömmu. Þar var Elín Guðlaugsdóttir gerð að heiðursfélaga
deildarinnar. Heil 24 ár eru síðan hún útskrifaðist frá Landspítalanum.
Hér sést Elín ásamt Kristínu Þórarinsdóttur, en hún er fyrsti
heiðursfélagi deildarinnar.
Á Æskulýðsdegi Þjóikirkjunnar:
Útgáfutónleikar
Litlu lærisueinanna
Á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar.
sunnudaginn kemur kl. 20:30,
rennur upp stór stund í safn-
aðarheimilinu er haldnir verða
útgáfutónleikar í tilefni af hinum
nýja geisladiski bamakórs Landa-
kirkju. Lítilla Lærisveina.
Geysileg undirbúningsvinna er að
baki og nú er diskurinn kominn og
veldur gleði og aðdáun allra sem
heyrt hafa. Við leyfum okkur að
fullyrða að skemmtilegri og metn-
aðarfyllri bamadiskur hefur ekki
komið út lengi og aldrei hefur
söfnuður á íslandi gefíð út annað
eins tónlistarefni fyrir böm. Stór
orð, ensönn! Öll lögin og textamir
eru eftir Helgu Jónsdóttur sem
jafnframt er stjórnandi kórsins. Er
útgáfan afrakstur af samstarfi ótal
aðila sent unnið hafa frábært starf í
því skyni að lífskrafturinn og gleðin
sem einkennir Litla Iærisveina
komist til skila inn á íslensk heimili
og nái að móta ungar sálir til góðs.
Hinn einfaldi og skýri trúarboð-
skapur einkennist af helgri glaðværð
sem smitar alla sem hlusta.
Diskurinn er gefinn út í 2000 ein-
tökurn og mun kosta 2000 krónur.
Unnt verður að kaupa hann í anddyri
safhaðarheimilisins eftir tónleikana á
sunnudaginn auk þess sem gengið
verður í hús næstu daga. Hvetjum
við allt fólk til að fjölmenna á
skemmtilega tónleika og sýna
þannig í verki stuðning við einstakt
menningarátak á æskulýðsdegi þjóð-
kirkjunnar.
Prestar Landakirkjn.
Bikarkeppni Suðurlands í brids:
Sveit Magneu komin í úrslit
Sveit Magneu Bergvinsdóttur heldur áfram sigurgöngu sinni í bikarkeppni
Suðurlands í brids.
Um síðustu helgi vann hún sigur á sveit Sigfúsar Þórðarsonar, sterkri sveit frá
Selfossi, og er þar með komin í úrslit keppninnar. (
Úrslitaleikurinn verður háður innan tíðar við sveit Þórðar Sigurðssonar frá
Selfossi. Með Magneu em í sveitinni þeir Daníel Lee Davis. Bjarki Guðnason,
Guðbjöm Guðmundsson og Jón Hauksson. Sveitir frá Eyjum hafa á
undanfömum árum tekið þátt í þessari keppni en aldrei fyrr komist í úrslit.