Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 26. febrúar 1998 Fréttir 7 Lesendabref: SlGURGEIR SCHEVING Nlilliarðaganga -en veiðarfærin óuppsett Það vekur furðu mína að í öllum þeim umræðum sem undanfarið hafa átt sér stað bæði á borgarafundi og í blöðum, aðallega ritstýrðum af meirihluta bæjarstjómar og þeirra fylgifiskum, hefur hvergi verið minnst á þá atvinnugrein sem er í mestum uppgangi hér á landi og víðar og á ég þar við ferðaþjónustuna. Talið er að ferðaþjónustan gefi af sér í þjóðarbúið a.m.k. 18 milljarða á þessu ári og til ársins 2006 er talið að sú upphæð tvöfaldist eða fari í 36 milljarða. Það væri einhver útgerðarmaðurinn farinn að gera veiðarfærin klár ef vel veiðanlegar fiskigöngur fyrir slíkar upphæðir væru væntanlegar að land- inu árlega. Úti um allt land er unnið ötullega að uppbyggingu á þessu sviði bæði af forráðamönnum bæjarfélaga og ein- staklingum, studdum og hvöttum af sömu forystumönnum og skapar þessi uppbygging ótal störf. A Egilsstöðum er talað um það í alvöru að byggja upp aðstöðu, ferða- mönnum til fróðleiks og afþreyingar, fyrir tvo og hálfan til þrjá milljarða. Frá sunnanverðum Austfjörðum og þar suður með heyrir maður fréttir um hundruð milljóna tjárfestingu fyrir ferðaþjónustuna og tala fólks sem við slíkt starfar, hefur margfaldast. Á Hofsósi er búið að koma upp safni í minningu um vesturfara. A Flateyri tala menn um að endurbyggja frægt hús af sömu gerð og geftð var til Reykjavíkur á sínum tíma. Talið er að það muni kosta um 45 milljónir og á það að notast sem safnahús í staðinn fyrir það sem fór undir snjóflóð fyrir ekki alllöngu. Bæjarstjóm Akureyrar hefur gert nokkurra ára áætlun um uppbyggingu á gömlum húsum og ýmiss konar aðstöðu í Listagilinu svokallaða, ferðamönnum og bæjarbúum til afþreyingar og ánægju, fyrir á annað hundrað milljónir. Við Eyjamenn höfum alla tíð verið taldir stórhuga dugnaðarvargar og yfirleitt verið í forystu. Við áttum stærsta vélbátaflotann og vomm fyrstir til að vélvæða hann. Keyptum tíl landsins fyrsta björgunarskipið sem síðar varð upphaf að Landhelgisgæslu íslands. Áfar okkar og langafar byggðu upp stærsta samkomuhús landsins með berum höndum og þannig mætti lengi telja. Annars ættum við ekki að vera undrandi yftr þvf þó „forystumenn'1 í bæjamiálum -flokkurinn- vilji lítið um ferðamál tala og atvinnumöguleika á því sviði því að í þeim málum má segja að andsk... ekkert haft verið gert á undanfömum árum. Við fáum sjálfsagt að sjá myndir af útsýnis- pöllum í Fylki fyrir kosningar og er það hið besta mál. Annað er í endalausum súluritum, unnið af ýmsum fræðingum og geymt niðri í skúffum. Kannski verða þau líka dregin upp fyrir kosningar og útlistuð fyrir okkur almúganum - eða haldið vandlega leyndum vegna þess að súlur fara lækkandi. Landlyst var á sínum tíma riftn og fúnar nú í geymslu uppi í Dölum þrátt fyrir árlegar ijárveitingar frá ríkinu og kröfu um endurbyggingu. Rústimar af Blátindi við Heimagötuna fyrr- verandi eru að hmni komnar og báturinn Blátindur, sem fyrir dugnað og framsýni nokkurra manna var bjargað frá báli og fluttur hingað til Eyja, grotnar niður í slippnum. Áhuginn fyrir því að bjarga Skaft- fellingi kemur annars staðar frá en úr Eyjum. Umhverfið við Sprönguna, þar sem komið er með þúsundir ferðamanna, auk forseta, kónga, drottninga og annarra fyrirmanna erlendra, er til skammar. Ekki var heldur nóg að missa um 400 hús undir ösku og hraun. Niðurrif af mannavöldum er tekið við og miðbærinn orðinn eins og skörðóttur tanngarður. Tangahúsið horfið o.s.frv., o.s.frv. Ég vil taka fram, þar sem ég er nú að hripa þessar línur niður í Húnavallaskóla í Torfulækjarhreppi við Blönduós, að þetta er ekki skrifað í svartsýni eins og sumir vilja kalla allagagnrýniídag. Heldurer hér-því miður- verið að fjalla um blákaldar staðreyndir sem menn geta skoðað sjálfir ef þeir líta upp og horfa í kringum sig. Þar sem ég er bjartsýnismaður og hef ennþá óbilandi trú á Eyjamönnum (flestum) og veit að við eigum ómetanlegan sjóð í dugnaðarfólki á öllum aldri veit ég að við getum snúið við blaðinu og orðið aftur í forystu á sem flestum sviðum. íslandsmeistaratitillinn í knatt- spymu sannar okkur margt. Þar hafa eldhugar lagt sig fram árum saman og er uppskeran nú að koma fram. í öðrum íþróttagreinum hafa samtaka fjölskyldur og einstaka dugnaðar- forkar líka náð frábærum árangri. Shellmót, Pæjumót og Golfævintýri eru okkureinnig til mikils sóma. Þar er samtakamáttur Eyjamanna að verki með slíkum árangri að aðdáun vekur. í menningarmálum og listum eig- um við líka eldhuga sem reyna að halda kyndlinum á lofti, oft við erfiðar aðstæður og skilningsleysi. Ég held að við Eyjamenn ættum að hugsa alvarlega okkar gang og reyna að virkja eldmóðinn í þeim sem sýna hann en láta þá sem orðnir eru samdauna sinnuleysinu og virðast endalaust sætta sig við „sæmilegt" víkja. Við eigum ekki að sætta okkur við eitthvað „sæmilegt" ef metnaður, stórhugur og frjóar hugmyndir geta gert sama hlutinn stórkostlegan. Sigurgeir Scheving Höfimdur er einn af þeim óháðu Eyjamönnum sem vill jákvœðar umbœtur í bœjarmálum með metnað, stórlmg og bjartsýni að leiðarljósi. Lin Mikið úrval - Verið velkomin Gleraugnaþjónusta verður nú í versluninni í dag, á morgun og á laugardag. Nýtt frá Matsuda Takumi Oval Traction Production Alain Mikli ^^l=élóferð 6. mars fyrir 8. 9. og 10. bekk ^^^^feeinasti innritunardagur á morgun Hin árlega Félóferð verður fain 6. mars nk. og verður m.a. farið á Samfésball, sem ersameiginlegt ball allra félagsmiðstöðva á landinu. Þátttökugjald er 3.500 krónur og eru allar ferðir, matur, miði á ballið, bíómiði og gisting innifalin í gjaldinu. Þeir sem hafa tekið þátt í starfinu í Féló í vetur, eru í 8. - 10. bekk og hafa hug á að taka þátt í ferðinni, þurfa að skrá sig í lúgunni í Féló í seinasta lagi á morgun, föstudaginn 27. febrúar Fundur vegna Félóferðar Fundur vegna félóferðar verður haldinn mánudaginn 2. mars klukkan 17 í Féló. Allir sem hafa skráð sig í ferðina og ætla að taka þátt í ferðinni, eiga að mætaáfundinn. Þeirforeldrarsem áhuga hafa, mega mæta á fundinn. Ljósmyndasamkeppni Ákveðið hefur verið að kanna hvort ekki sé áhugi fyrir því að haldin sé keppni í Ijósmyndun. Um getur verið að ræða einstaklingskeppni eða tveir saman. Skráning verður í lúgunni í Féló í seinasta lagi 5. mars nk. Nánari upplýsingar í Féló Við í Féló §tÁ>ulaná£eifuM/ Land og synir á Höfðanum laugardagskvöld Strandvegi 65 Sími 481 1475 HITACHI HÚSEV BYGGINGAVÖRUVERSLUN VESTMANNAEYINGA HUSEY

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.