Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Blaðsíða 4
L
Fréttir
Fimmtudagur 26. febrúar 1998
Föstudagsréttur húsbóndans
Þorsteinn Finn-
bogason, sælkeri
síðustu viku, sko-r-
aði á klúbbfélaga
sinn í Kiwanis og
réðst ekki á garðinn
þar sem hann er
lægstur heldur
valdi sjálfan forset-
ann, Guðmund Jóhannsson sem hér
tekur við.
„Ég vil þakka „Pippara Greinu" fyrir
áskorunina og Huldu fyrir upp-
skriftina. Þar sem ég veit að Þor-
steinn hefur aldrei nálægt matseld
komið, ætla ég að koma með
uppskrift sem er mjög auðveld og
fljótleg, meira að segja Píparinn gæti
gert þetta. Ég bauð honum einmítt
upp á þennan rétt síðast þegar hann
var einn heima með bömin, þau voru
orðin mjög svöng og Hulda ekki
endingu yfir. Þetta er borið fram með
hvítlauksbrauði, salati og rabarbara-
sultu og með þessu er drukkið vatn.
I eftirrétt er voða gott að hafa kaffi og
koníak (það skal þó tekið fram að
bömin hans Steina fengu ekki
svoleiðis heldur bara ís en Steini
fúlsaði hvorki við kaffinu né
koníakinu).
Ég var ekki í nokkrum vandræðum
með að finna einhvem til að koma
með næstu uppskrift. Karlpening-
urinn hefur verið fullmikið ráðandi í
þættinum að undanfömu og mál til
komið að fá kvenþjóðina til leiks á
ný. Og þar sem ég veit að ekkert er
að gera hjá elsku systur, Þorgerði,
ætla ég að skora á hana að koma með
eitthvað gott."
Guðmundur Jóhannsson, forseti
O r 5 0 p o jp
heima.
Föstudagsréttur húsbóndans:
spaghetti
500 g nautahakk
200 g sveppir
1 laukur
ltsk. oregano
1 tsk. kjötkraftur
tómatsósa
Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á
pakkanum. Saxið laukinn og látið
hann kraurna í smáslettu af olíu á
pönnu. Skerið niður sveppina og
bætið þeim út í. Setjið síðan hakkið
saman við og látið það brúnast.
Kryddið með oregano og kjötkrafti.
Síðan er sett ein sletta af tómatsósu og
smávegis af vatni. Látið þetta sjóða í
5-7 mínútur og setjið spaghettíið að
Sem kunnugt er hefur Georg Þór
Kristjánssyni hlotnast sá heiðurað vera
valinn umdaemisstjóri Kiwanis. Slikt
útheimtir rnikil ferðalög til annarra
landa í heimsóknir til hinna fjölmörgu
Kiwanisklúbba víðs vegar í heiminum.
Georg hefur haft þann háttinn á að hafa
með í farteskinu uppstoppaða lunda
sem hann hefur gefið þeim klúbbum er
hann hefur heimsótt. Nú segja sögur
að samtökin Wild Life, sem eru
náttúruverndarsamtök, hafi af því
miklar áhyggjur að þetta framtak
Georgs Þórs kunni að ganga af
lundastofninum í Eyjum dauðum þar
sem Kiwanisklúbbar jarðar munu
skipta hundruðum þúsunda.
Þá eru það sömu samtök sem gengið
hafa hvað harðast fram í því að senda
háhyrninginn Keiko afjur á sínar
heimaslóðir, hingað til Islands. Nú
hefur þeirri snjöllu hugmynd skotið
upp hjá samtökunurp að hafa skipti.
Keiko verði sendur til Islands en Georg
Þór komi í hans stað vestur um haf og
ílendist þar.
Inni á gólfi hjá Vélsmiðjunni Þór er víst
allt orðið fullt af jólaskrauti. Þetta er
skraut sem prýddi Ijósastaura bæjarins
en þoldi ekki vetrarveðrin hér. Þetta er
athyglivert í Ijósi þess að skrautið var
keypt af erlendum aðilum en bæði Þór
og aðrir aðilar innanbæjar töldu að þeir
hefðu getað smíðað sams konar
skraut á sambærilegu verði.
MEST GflMflN MEÐ SIGGU A JEPPANUM
9
Stúlka
Þann 28.
nóvember 1997
eignuðust Bára
Theodórsdóttir
ogTommy
Westman dóttur.
Hún vó 10
merkur og var
47 sm. að lengd.
Hún hefur verið
nefnd Embla
Míra.
Fjölskyldan býr
í Svfþjóð.
NYFfEDDIR VESTMfiNNfiEYINGfiR
Stúlka
Þann 1. febrúar eignuðust Hlíf Helgadóttir og Kjartan
Sigurðsson dóttur. Hún vó 7 1/2 mörk og var 43 sm. að lengd.
Hún fæddist á fæðingardeild Landspítalans í Reykjavík. Með
henni á myndinni em systur hennar.
Eins og lesa mátti í síðustu
Fréttum hetur verið stofnað
Útgerðarféiag Vestmannaeyja,
hlutafélag, sem nú þegar hefur
keypt togskipið Breka og í
bígerð er að kaupa fleiri skip.
Með þessu er ætiunin að sporna
við því að kvóti fari burt úr
byggðarlaginu og erþetta því
hið ágætasta framtak. Segja má
að guðfaðir þessa nýja fyrirtækis
sé Ásmundur Friðriksson sem
rekur Aðgerðarþjónustuna
Kútmagakot. Hann skrifaði fyrir
nokkru grein, sem birtist i
Fréttum, en í henni var einmitt ýjað að
þvíað stofna félag til kaupa á skipum
og aflaheimildum. Og þarmeð tók
boltinn að rúlla og fyrirtækið er orðið að
veruleika. Ásmundur er Eyjamaður
vikunnar að þessu sinni.
Fullt nafn? Ásmundur Friðriksson
Fæðingardagur og ár?
21. jan. 1956 (einum degi yngri en
Siggi Tryggva)
Fæðingarstaður? Reykjavík
Fjölskylduhagir?
Kvæntur Sigríði Magnúsdóttur, og
eigum við fimm börn
Menntun og starf?
Gagnfræðingur frá Skógum ‘73 og 5.
bekk frá Reykholti. Fiskverkandi m.m.
Laun? Þokkaleg á köflum
Helsti galli? Læt aðra dæma.
Helsti kostur? Á gott með að vinna
með fólki og koma hlutunum í kring.
Uppáhaldsdrykkur? Fer eftir tilefninu,
en appelsín klikkar aldrei.
Uppáhaldstónlist? Er alæta á músik.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir? Ferðast um óbyggðir með
Siggu íjeppanum.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
gerir? Ryksuga.
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Grynnka á
skuldum.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Um
þessar mundir, Guðjón Hjörleifsson.
Uppáhaldsíþróttamaður? Magnús
Karl Ásmundsson.
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Oddfellowstúkunni
Herjólfi, ÍBV og Golfklúbbnum.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttir og
íþrottir.
Uppáhaldsbók? Ég er að lesa Einar
Ben, sú bók er frábær.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Áhugamálin eru tengd þeim félags-
störfum sem ég sinni og vinnunni.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Heiðarleika og hreinskilni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér '9
fari annarra? Það gagnstæða, auk
þess sem ég þoli ekki söguburð.
Fallegasti staður sem þú hfur komið
á? Eyjan okkar er fallegust.
Hvenær kviknaði þessi hugmynd
hjá þér að stofna sérstakt
úgerðarfélag til að halda skipum og
afjlaheimildum í bænum? Það var á
síðasta ári og verulegur skriður komst
á málið þegar menn í alvöru áttuðu sig
á því að lóðsbátarnir voru orðnir fleiri
en netabátarnir.
Ertu sjálfur hluthafi í nýja félaginu?
Já ég er hluthafi.
Hvernig líst þér á framtíð þessa
útgerðarfélags? Ég bind miklar vonir
við þetta nýja félag og geri mér vonir
um að við Eyjamenn snúum vörn í
sókn í atvinnumálum bæjarins.
Hvað dettur þér í hug þegar þú
heyrir þessi orð?
- Útgerðarfélag Vestmannaeyja?
Kraftur og þor
- Kútmagakot? Frábært starfsfólk,
góður mórall.
- Friðrik Ásmundsson? Það er þegar
skólastjórinn var einhvern tíma staddur
í íþróttamiðstöðinni, kom út úr
þreksalnum og stóð nokkra stund á
laugarbakkanum, íklæddur bol með
mynd af Batman framan á en hvarf
síðan aftur inn í þreksalinn. Þá var í
lauginni ungur maður með föður
sínum, horfði stórum augum upp á
bakkann og sagði síðan þegar
skólastjórinn var horfinn á braut:
„Pabbi, veistu hver þetta var? Þetta
var Leðurblökumaðurinn!
Eitthvað að lokum? Ég vona að
svartsýni og bölsýni séu að baki og
framundan sé tími okkar Eyjamanna
og með léttri lund og jákvæðu
hugarfari eflum við byggðina okkar,
börnum okkar og afkomendum til
heilla.
Bifreiðaeigendur athugið!
Þeir bifreiðaeigendur sem enn eiga ógreidd bifreiðagjöld
eru minntir á að byrjað er að klippa af bifreiðum vegna
þeirra.
Gjalddagi bifreiðagjalda vegna 1. tímabils 1998 var 1.
janúar og eindagi 15. febrúar.
Innheimta ríkissjóðs í Vestmannaeyjum skorar hér með á
viðkomandi að gera skil sem allra íyrst, svo komast megi
hjá þessum aðgerðum.
Ekki má búast við frekari viðvörunum áður en til þeirra
kemur.