Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Blaðsíða 9
Fimmtudagur26. febrúar 1998 Fréttir 9 svipaðar, þótt kennslugögnin hér séu fjölbreyttari. Bömin héma hafa kannski breiðari félagslegan bak- grunn, heldur en bömin sem við kennum. Einnig er rétt að nefna það að í skólanum okkar eru ekki nema tvö iiundruð böm, en í Bama- skólanunr em þau rúmlega fjögur hundmð. Böm em hins vegar alltaf böm held ég hvar sem er í heiminum." Börnin fljót að læra og móttækileg Donal segir að honum finnist bömin í Bamaskólanum mjög vin- gjamleg og hjálpsöm, og þau tala mjög góða ensku, þannig að engir tungumálaörðugleikar hindruðu samskipti þeirra við bömin. „Þau voru einnig fljót að læra dansinn sem við kenndum þeim sem kom okkur á óvart, því hann er alls ekki auðveldur þeim sem ekki þekkja til. Þau virtust finna sig vel í dansinum ekki síður en við. Við vomm reyndar með myndband með okkur þar sem við niðurstöðum verkefnisins, en hug- myndin er sú að gera það aðgengilegt á tölvutæku formi og setja það á CD- ROM disk. Þar munu öll verkefni og upplýsingar liggja fyrir hvort heldur sem er myndband, ljósmyndir eða texti, handa hverjum og einum til upplýsinga og þekkingar og ekkis síst skólunum okkar. Mikill undirbúníngur og skípulag Donal segir því að svona samskipti byggi ekki eingöngu á kennslunni, heldur einnig á skipulagi og sam- skiptum af öllu tagi. „Bömin sendu myndir af sér og skrifuðu til hinna bamanna, sendu hvert öðm jólakort og myndir frá áhugaverðum stöðum viðkomandi lands. Við skiptumst á upplýsingum um nánasta umhverfi okkar þjóðlegar hefðir, uppskriftir, leiki og þessum upplýsingum er síðan komið fyrir á vefsíðu, svo allir geti skoðað. I dag vomm við til að mynda að læra um víkingana og sameiginlega forfeður og hvemig sjórinn tengir okkur saman, þar sem Donal Ryan kennir leiðbeinir nemendum í flautuleík. gátum sýnt þeim hvemig dansinn væri, en þau vom ekkert lengur að því heldur en bömin heima í Dublin." Hann segir að íslensku kennaramir hafi komið til Dublin síðast liðið haust á vinnufund en þá hafi þeir haft með sér til íslands tinflautur handa nemendunum til þess að læra á. „ Við sendum þeim einnig nótur með einföldum lögum sem þau hafa verið að æfa sig á og það kom okkur líka skemmtilega á óvart hversu vel bömunum hefur gengið að læra á flautumar." Fiskveíöar. eyja og sameiginlegir forfeður Hvemig konr það til að Vestmanna- eyjar voru valdar til þessa verkefnis? „Við byrjuðum að huga að þessu fyrir tveimur ámm, en þannig er að í hverju landi er hægt að sækja um styrki til Evrópusambandsins en þar er líka hægt að skoða lista þar sem lönd eru á skrá sem vilja fara í svona samstarf. Við gerðum það og Iýstum yfir áhuga okkar á því að eiga samskipti við tvö lönd, sem ekki vom sérstaklega tiltekin þá. Við sáum skóla í Svíþjóð og einn á íslandi sem okkur leist vel á. Það sem réði kannski úrslitum var að ísland er eyja og byggir á fiskveiðum og við eigum sameiginlega forfeður, þannig að við ákváðum að reyna þessi tvö lönd. Fyrsta svarið sem við fengum var frá Eygló sem kennir héma við Bama- skólann og þannig komust á samskipti. Við hittumst svo öll tvisvar sinnum og skipulögðum starfið sem okkur langaði að vinna að og hvers konar þekkingu og reynslu við vildum miðla. Þetta var samþykkt og hið eiginlega starf hófst svo í september á síðastaári. Þetta ár munum við einnig gera áætlanir fyrir það næsta. Við gerðum einnig áætlanir um það hvemig við ætluðum að skila loka- við emm jaðarþjóðir í Evrópu, þó ekki Svíþjóð. Þannig læra bömin unr siði, venjur og landið sjálft. Bömin í Dublin em til að mynda í skólabúningum, en ekki hér og héma fara bömin í skólann í myrkri þegar böm í Dublin mæta þegar dagur er orðinn bjartur. Þannig að reynslan er bæði fagleg og persónuleg. Næsta ár, ef við fáum áframhaldandi styrk munum við efla þessa þætti og bæta nýjum við, en eins og ég sagði áðan er mikið starf í kringum þetta sem kennaramir borga úr eigin vasa. Þess vegna er full ástæða til að vekja athygli á því við bæjarfélög og opinbera aðila að styðja vel við bakið á svona samstarfi vegna þess að Evrópustyrkurinn gerir ekki meira en að dekka fargjöldin milli landa.“ Donal vill að lokum koma á framfæri þakklæti fyrir ánægjulega dvöl og frábærar móttökur bæði starfsliðs skólans og allra bamanna sem hafi verið mjög gaman að vinna með. Leikió af innlifun. r------------------------------1 Pemavika í Barnaskólanum: [ Eykur sjálfstraust | og eflir frumkvæði í í síðustu viku var haldin þemavika í Barnaskóla Vestmannaeyja. Þá var brugðið út af hcfðhundinni stundaskrá skólans og sitthvað gert til þess að brjóta upp námið í leik og starfi. Meðal þess sem börnin tóku sér fyrir hendur var að smíða eldflaugar, búa til flugdreka, smíða bfl í Fintstone- stfl, semja ritgerðir og greinar um eldgosið, og yngstu deildirnar tóku auk þess að sér að hlaða vörðu í minningu eldgossins á Heimaey fyrir 25 árum. Hjálmfríður Sveinsdóttir skóla- stjóri Bamaskólans segir að starfið sem fer fram þessa þemaviku auki bæði sjálfstraust nemenda og að nemendur kynnist öðmm nemendum betur vegna þess að bekkjum er blandað saman. „Þetta er fjórða árið sem þetta starf fer fram og krakkamir njóta sín mjög vel í starfinu. Að vísu hafa yngstu krakkamir bara verið einn dag í svona starfi, en við höfum fjölgað dögunum á hverju ári og í ár voru þeir alla vikuna, og það gafst vel í alla staði. Krakkamir kynnast einnig öðmm hliðum á kennurunum ekki síður en nemendunum." Vikunni lauk svo á árshátíð nemenda á föstudagskvöldið, en krakkamir höfðu meðal annars verið að undirbúa árshátíðina alla vikuna, þar sem meðal annars voru flutt minni kennara og nemenda. Nemendumir æfðu leikþætti sem þeir sömdu sjálfir, skreyttu anddyri og sal skólans, hönnuðu búninga, elduðu matinn og báru fram sjálf, auk þess sem hljómsveitin sem lék var að hluta til skipuð nemendum úr skólanum. Það er óhætt að segja að krakkamir hafi tekið þemavikuna með krafti. Sköpunargleðin og starfsgleðin skein úr hverju andliti, þó vart hafi mátt á rrúlli sjá hvorir hefðu meira gaman af eldflaugatil- raununum, kennarar eða nemendur. Þessi eldflaug for eina 90 m. Varhúnsúeina semnáði einhuerju flugi. Q . a Twist-stelpurnar múnuðu hjartanalegaframaní áhorfendur í lokin. Þorpsfólkið mætti á suiðið og með KFUM lagið uíbrandi í raddböndunum féll salurínn að fótum þeirra. Með ögrandi dansí og uel útfærðri kóreógrafíu huíaði salurinn. L J

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.