Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Page 11

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.1998, Page 11
Fimmtudagur 26. febrúar 1998 Fréttir 11 Ekki larnir að meta hugsanleg áhrif Umferð um Vestmannaeyja höfn gæti aukist mikið ef draumurinn um uegtengingu milli lands og Eyja vrði að veruleika. Nokkur umræða hefur verið um gerð jarðganga milli fastalandsins og Vestmannaeyja að undanförnu í fjölmiðlum. Hefur Árni Johnsen verið að afla hugmyndinni stuðnings til þess að gera megi einhverjar forathuganir og hag- kvæmniskannanir á slíkum göngum. Eins og heyra hefur mátt í umfjöllun fjölmiðla undanfarnar vikur þykir fuil ástæða til þess að kanna möguleikana á göngum, sem kæmu upp einhvers staðar í Landeyjunum. Með þetta í huga leituðu Fréttir til nokkurra sveitarstjóra á Suðurlandi til þess að kanna hvort þeir hefðu eitthvað velt fyrir sér þeim ávinningum og möguleikum sem getu falist í slíkum göngum milli lands og Eyja. Sérstaklega var þó spurt um möguleikana sem fælust í því að Vestmannaeyjar yrðu lesturnar- og losunarhöfn fyrir Suðurland, ef jarðgöngin yrðu að veruleika. Menn líta og til þess hvort hægt væri að lækka flutningskostnað með tilkomu slíkra ganga. Jákvæö áhrif á samgöngur Ágúst Ingi Ólafsson sveitarstjóri Hvolsvallar, segir að menn hafi ekki mikið velt fyrir sér þeim möguleikum sem sveitum á Suðurlandi opnuðust með tilkomu ganga. hitt væri þó ljóst að gegnumstreymi umferðar myndi aukast í báðar áttir. „Ég hef hins vegar engar forsendur til þess að meta hversu raunhæfur möguleiki þetta er. En það er engin ástæða til þess að blása af hugmyndir sem eru í umræðunni og miða að þvf að kanna hversu raunhæfur kostur þetta er.“ Hann segir að formlega hafi þessi gangagerð ekki verið rædd í sveitarstjóm Hvolhrepps, hins vegar hafi þetta verið í spjallinu milli manna. „Ég get alla vega ekki fortekið neitt í þessum efnum, því ef þessar hugmyndir ná fram að ganga, þá munu þær hafa jákvæð áhrif á samgöngumál fjórðungsins." Gæti aukiö valkosti inn- flytjenda á Suðurlandi Helgi Helgason bæjarritari á Selfossi segir þessa umræðu það nýtilkomna að menn hafi ekki velt þessum málum fyrir sér. „Þetta hefur ekki komið neitt formlega upp á vettvangi bæjar- kerfisins. En þetta er gæti verið mjög jákvætt fyrir Suðurland ef hægt væri að lækka til að mynda flutningsgjöld. Annars er þetta það mikið á frumstigi og menn hafa ekki kannað þetta ofan í kjölinn. Einhvem veginn er þetta svo fjarlægt manni.“ Helgi segir að miklar breytingar hafi hins vegar orðið á öllum innflutningi. Menn séu mikið í sameiginlegum magninnkaupum með innflytjendum á Reykjavíkursvæðinu, en það megi vel vera að gangagerð gæti aukið valkosti innflytjenda á Suðurlandi. „Það verður gaman að fylgjast með framvindu mála, en það er alveg Ijóst að hagræðið fyrir Vestmannaeyjar er ótvírætt." Mörgum spurningum ósvarað Guðmundur Hermannsson sveitar- stjóri Þorlákshafnar segir að þessu máli hafi ekki verið hreyft í sveitarstjóm Þorlákshafnar. „Þetta er allt á byrjunarreit. Hvalfjarðargöng munu fyrst hafa verið nefnd fyrir þrjátíu ámm, svo þetta getur verið langur meðgöngutími. Ef tæknilegur og peningalegur gmndvöllur er fyrir þessu, þá standa menn ekki í vegi fyrir framþróuninni og hagsmunir Vest- mannaeyinga hljóta að vega mjög þungt í þessu máli og ef Herjólfur verður lagður niður þá hljóta menn að meta það af skynsemi.“ Guðmundur segir að þetta séu einungis hugmyndir sem hafi verið viðraðar, þannig að það sé engin forsenda til efnislegrar umfjöllunar í sveitarstjóminni. „Það er hins vegar mörgum spurningum ósvarað varðandi þessa framkvæmd. Jafnvel þó menn sjái fyrir sér að hægt verði að lækka flutningsgjöld, ef menn losna við krókinn fyrir Reykjanes. Skemmtileg hugmynd Guðmundur Ingi Gunnlaugsson sveitarstjóri Rangárvallahrepps segir að engin afstaða hafi verið tekin á Hellu um hugsanleg áhrif jarðganga milli lands og Eyja. „Þetta er bara það sem maður hefur heyrt Áma Johnsen skýra frá undanfarið. Persónulega finnst mér hugmyndin góð, en er hún raunhæf? Annars þótti mér skemmtilegri hugmynd að leggja eins konar rör á milli. Miðað við það sem gerst hefur í síðast liðin tuttugu og fimm ár í samgöngumálum þjóð- arinnar, þá er þetta ekkert svo fjarlægur möguleiki og við hljótum að leita leiða til þess að geta verið í aksturssambandi við Eyjamar." Skipafélögin ekki farin að skoða málið Þegar haft var samband við forráða- menn Eimskips og Samskips sögðu þeir Samskipsmenn að þessi gangagerð hefði ekki komið til umræðu hjá fyrirtækinu og menn ekkert spáð í þessa hluti með tilliti til hugsanlegrar jarðgangagerðar milli lands og Eyja. Hjá Eimskip eru ekki uppi neinar hugmyndir til athugunar vegna flutningaþjónustu þeirra í Ijósi hugsanlegra jarðganga. Hjörleifur Jakobsson framkvæmdastjóri innan- landssviðs Eimskips, segir að þetta hafi ekki verið skoðað hjá félaginu. ,J raun og vem er þetta eins og margt annað sem menn em að spá í. Það em víða uppi hugmyndir um jarðgöng en erfítt er fyrir okkur að gera áætlanir út frá slíkum hugmyndum fyrr en við sjáum meira um kostnað við notkun slíkra ganga. Eins og staðan er núna þá liggja Vestmannaeyjar vel við inn- og útflutningi til og frá Evrópu. í fljótu bragði sé ég ekki að jarðgangagerð milli lands og Eyja sé valkostur til lækkunar og hagræðingar í flutningum til og frá landinu." Hermann Einarsson, SæUór Orri Guðjónsson, Ólafur Hreinn Sigurjónsson, Gunnhildur Bjarnadóttir og Ingi Tómas Björnsson. Framhaldsskólinn: Rauði krossinn styrhlr jafningjafræðsluna Á miðvikudaginn í síðustu viku færði Vestmannaeyjadeild Rauða- kross íslands, jafningjafræðslu Framhaldsskólans í Vestmanna- eyjum tvöhundruð og fimmtíu þúsund krónur til eflingar starf- seminnar í Vestmannaeyjum. Hermann Einarsson formaður deildarinnar afhenti gjöfina. Fyrir hönd jafningjafræðslunnar tók Sæþór Orri Guðjónsson við gjöfinni og af- henti síðan Ólafi H. Sigurjónssyni skólameistara FV gjöfina, en gefandi óskaði eftir því að féð yrði í vörslu hans og að hann hefði hönd í bagga með ráðstöfun tjárins. Ólafur hélt stutta tölu og þakkaði gjöfina fyrir hönd jafningjafræðsl- unnar og sagði að féð myndi koma í góðar þarfir til eflingar vírnu- efnavömum. Ólafur segir að jafningjafræðslan sé liður í því að nemendur taki vímuefnavarnir í sínar eigin hendur með nýjum og ferskum hætti. Hann segir að ekki sé ákveðið í hvað féð verði notað, en reynt verði að setja það í verkefni sem ná mætti eyrum og augum fólks og vekja athygli á þeirri vá sem vímuefni eru. Dagur tónlistarskólanna: Opið hús í Tónlistar- skólanum ð laugardag Árviss dagur tónlistarskólanna í landinu er næstkomandi laugardag. Þann dag standa allir tónlistarskólar landsins fyrir tónleikahaldi og ýmis konar kynningum á starfsemi sinni. Af því tilefni verður Tónlistarskólinn opinn frá kl. 3 síðdegis á laugardaginn. í samkomusal skólans verður vöfflur og kaffisala á vegum Foreldrafélags skólalúðrasveitarinnar til fjáröflunar í ferðasjóð. Verð fyrir fullorðna er kr. 500 á mann og kr. 200 fyrir börn. Skólalúðrasveit Vestmannaeyja á 20 ára afmæli um þessar mundir og hefur starfað óslitið þessi 20 ár í einni og stundum tveimur deildum og var formlega stofnuð 22. febrúar 1978. Þá var kosin stjórn og hún ásamt stjórnanda samdi starfsreglur, eða lög um æfingar, varðandi mætingar og hegðun meðlima. Veitt hafa verið verðlaun fyrir góða mætingu. Sveitin hefur sótt öll landsmót skólalúðrasveita frá upphafi, að einu undanskildu, en það ár fór sveitin ásamt stórum hluta foreldrafélagsins í tónleikaferð til Norðurlanda. Að auki hefur sveitin farið nánast árvisst í heimsóknir og einnig boðið öðrum sveitum víðs vegar að til Eyja, starflnu til eflingar. Árið 1983 var haldið glæsilegt landsmót hér í Eyjum, sem 20 skólalúðrasveitir sóttu. Við það mótshald naut sveitin og foreldrafélagið frábærrar aðstoðar Lúðrasveitar Vestmannaeyja og hefur samstarf sveitanna og skólans ávallt verið með hinum mestu ágætum. I tilefni 20 ára afmælisins stendur til að fara í skíðaferð upp í Skálafell og munu hljóðfærin fylgja með í farteskinu. Fréttatilkynning. Mikill áhugi fyrir iðngarðinum í tengslum við stofnun iðngarðs í Vestmannaeyjum var haldinn opinn kynningarfundur síðastliðinn laugardag í Rannsóknarsetrinu Strandvegi 50. Bjarki Brynjarsson segir að hátt í tuttugu áhugasamir aðilar hafi mætt á fundinn til þess að kynna sér þá möguleika sem væntanlegur iðn- garður kæmi til með að bjóða upp á. „Það var farið yfir samninginn sem gerður hefur verið milli Þróunar- félagsins og Sparisjóðs Vestmanna- eyja og kynnt námskeið um stofnun og rekstur smáfyrirtækja sem fyrirhugað er að halda um mánaða- mótin apríl og maí.“ Bjarki segir þessa mætingu vonum framar, þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir að fleiri en tíu aðilar kæmust að í Iðngarðinum. „Það var ákveðið að þeir aðilar sent áhuga hefðu á þátttöku sendu mér skriflegt erindi og tjáðu hvað þeir hefðu í huga og hversu mikið pláss starfsemi hvers og eins þyrfti. Ef fjöldinn yrði það mikill að plássið yrði ekki nóg yrði að vega og meta hverja umsókn gaumgæfilega.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.