Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Qupperneq 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 28. maí 1998
Sælkeri síðustu
viku, Sóley Guð- jónsdóttir, skoraði á . |
Dröfn Gísladóttur semnæsta sælkera. „Eg þakka henni Sóley innilega fyrir þessa áskorun. Eg t s
ætla að bjóða upp á tvo rétti, aðalrétt
og eftirrétt. Humarvertíðin er hafin
og því ætti ekki að vera eifitt að
nálgast hráefni í aðalréttinn.
Humar í hvítlaukssósu
með grænmeti:
I kg skelfletturhumar
1/2 meðalstór spergilkálshaus
10 stk. meðalstórir sveppir
1/2 stk. blaðlaukur
1 stk. rauð paprika
3 stk. belgbaunir
salt og pipar
olía til steikingar
Hvítlaukssósa:
2 dl físksoð
2 dl rjómi
100 g rjómaostur
3 stk. hvítlauksgeirar, fínt saxaðir
1 msk. sítrónusafi
1/2 búnt steinselja
2 stk. súputeningar
Byrjið á að laga sósuna. Blandið
öllu saman í pott og bragðbætið með
súputeningum salti og pipar. Skerið
grænmetið smátt. Steikið humarinn
við snarpan hita, kryddið með salti og
pipar. Setjið í eldfast mót. Bætið olíu
á pönnuna og steikið grænmetið
meyrt. Setjið það yfir humarinn.
Hellið sósunni yfir og bakið í ofni við
200° hita í 2 lil 3 mínútur. Með þessu
er borið fram brauð og hrísgrjón.
Frost og funi:
I svampbotn
1 dós perur eða ferskjur
3 msk. Grand Mamier
1 lítri vanilluís
5 eggjahvítur
3 1/2 dl flórsykur
50 g möndlur
Botninn er látinn í mót og vætt í
honum með líkjömum, ávöxtum
raðað yfir. Stífþeytið eggjahvítumar,
bætið flórsykri í og þeytið ál'rarn í 10
mínútur. Spænið ísinn upp með skeið
og leggið yfir ávextina, setjið
eggjahvítur yfir og stráið möndlum
yfir. Setjið í ofn við 275° hita í 2 til 3
mínútur.
Það virðist vera í tísku að sælkerar
Frétta haldi sig við fjölskylduna og ég
ætla að gera það, að minnsta kosti
eina viku til viðbótar. Þórunn systir
mín er sérlega góður kokkur og ég
ætla að leyfa lesendum blaðsins að
njóta þess sem hún kann fyrir sér í
matargerðarlistinni. Reyndar er
Dröfn Gísladóttir er sælkeri
þessarar viku.
Huginn ekki síðri í eldhúsinu en þar
sem hann er úti á sjó þessa dagana er
líklega betra að elsku systir fái að
spreyta sig.
O x* ð s p o i>
- Heyrst hefurað austfirðingar, afsakið
Austurríkismenn, hugsi ekki fallega til
okkar Eyjamagna þessar vikurnar og
þó aðallega til Arna Johnsen. Við séum
nefnilega búin að stela af þeim
jarðgöngunum og því er þungt í þeim
hljóðið í okkar garð.
- Ekki á eftir að léttast á þeim brúnin
þegar rennur upp fyrir þeim að við
séum á góðri leið með að stela Keikó
líka.
- Fyrirspurn mun hafa borist, til Hauks
okkar á Reykjum, um hve mikið hann
tæki fyrir að flytja Keikó frá flugvelli og
niður að höfn. „Ekki krónu“ svaraði
Haukur að bragði en minnugir lesendur
orðspors muna að hann var einna
fyrstur til að nefna möguleikann á að fá
Keikó hingað og bauð strax ókeypis
flutning frá flughöfn til hafnar. Ekki er
að efa að þetta góða tilboð Hauks ýtir
undirhingaðkomu Keikó
- Þá er kosningabaráttan um garð
gengin og ólíkt rólegra yfir bæjarlífinu.
Það fór eins og svo oft áður að báðir
sigruðu og flestir ánægðir með sinn
hlut ekki síst prentsmiðjurnar sem þrátt
fyrir ýmsa aðra fjölmiðla fengu sína
vertíð. Þeir sem eiga kamínu eða arin
eru sjálfsagt búnir að ylja sér við
boðskapinn sem barst í stríðum
straumum inn um bréfalúgurnar.
Margir eru afar óánægðir. Ekki með
úrslit kosningabaráttunnar, heldur að
henni sé lokið. Engin alvöru útvarps-
stöð, en tvær voru á fullu í kosninga-
baráttunni. Engin ókeypis kaffihlað-
borð, grillveislur og þess konar
uppákomur, sem voru orðnar daglegt
brauð.
LEIDIST AÐ TAKATILI
HERBERGINU MINU
Framhaldsskólinn í
Vestmannaeyjum stóð í vetur fyrir
stærðfræðikeppni hjá nemendum
grunnskólanna í Vestmannaeyjum.
Þetta er nýbreytni sem mæltist vel
fyrir. Við skólaslit Framhaldsskólans
á laugardag voru afhentar viðurkenningar til
þeirra nemenda sem bestum árangri náðu í
keppninni. EinnþeirravarSæþór
Jóhannesson en hann erí 9. bekk
Barnaskólans. Hann er Eyjamaður
vikunnar af því tilefni.
Fulltnafn: SæþórJóhannesson.
Fæðingardagur og ár? 1. september
1983.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Bý með móður minni og
systur.
Menntun og starf? Var að Ijúka 9. bekk í
Bamaskólanum. Ber út Moggann.
Laun? Frekar lítil.
Helstigalli? Þaðveitégekki.
Helsti kostur? Það veit ég ekki heldur.
Uppáhaldsmatur? Hamborgari.
Versti matur? Skata.
Uppáhaldsdrykkur? Pepsí og vatn.
Uppáhaldstónlist? Alæta á tónlist nema
óperur og svoleiðis.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir? Að spila fótbolta.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir?
Taka til í herberginu mínu.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Leggja hana inn í banka.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn, er
ekkert í stjórnmálum.
Uppáhaldsíþróttamaður? Michael Owen
hjá Liverpool.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap?
ÍBV-íþróttafélagi.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Vinirog
fþróttir.
Uppáhaldsbók? Les ekki mikið af bókum.
Hver eru helstu áhugamál þín? Fótbolti
og tölvan.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Óheiðarleiki.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Vestmannaeyjar.
Hverer uppáhaldsgreinin þín í
skólanum? Smíðí.
Af hverju gengur þér svona vel í
stærðfræði? Ég veit það ekki, mér hefur
alltaf gengíð vel í stærðfræði, frá því að ég
varílbekk.
Ætlarðu að leggja stærðfræði fyrir þig í
framtíðinni? Neí, ég hugsa ekki, mig
langar til að læra á tölvur.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir
þessi orð?
-Stærðfræði? Plús og mínus.
-2 + 2? Fjórir.
-Pýþagóras? Stærðfræðingur.
Eitthvað að lokum? Nei, ekkert sérstakt.
NÝFÆDDIR VESTMfiNNfiEYINGfiR
Drengur
Þann 16. apríl eignuðust Kittý Ásgeirsdóttir og Gísli Elíasson
son. Hann vó 16 merkur og var 55 sm að lengd. Hann
fæddist á fæðingardeild Landsspítalans. Móðir og bam búa í
Kópavogi. Hann hefur verið skírður Aron Elí.
Drengur
Þann 20. apríl eignuðust Sonja Ruiz Martinez og Birkir
Ingvason son. Hann vó 15 1/2 mörk og var53 sm að lengd.
Með honum á myndinni er stóra systir Sólveig María.
Ljósm. var Guðný Bjamadóttir.
HANDVERKSFÓLK í
VESTMANNAEYJUM
sem áhuga hefur á að taka þátt í
handverkssýningu í Reykjavík 5. til 6. júní nk.
vinsamlegast hafið samband við
Þróunarfélag Vestmannaeyja c/o Auróra,
fyrir miðvikudaginn 3. júní.
ÞRÓUNARFÉLAG VESTMANNAEYJA
Atvinna
Aðstoð óskast á
tannlæknastofu.
Leitað er eftir
einstaklingi sem hefur
þægilega framkomu, er
snyrtilegur og stundvís.
Þarf að geta byrjað sem
fyrst.
Áhugasamir hafi
samband í síma 481
3067 eða 481 2967
Birgir Ólafsson tannlæknir
Frábær
staðgreiðsluverð á
innimálningu