Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Blaðsíða 16
16 Fréttir Fimmtudagur 28. maí 1998 Ung kona frá Eyjum nær frábærum námsárangri í Bandaríkjunum Meðal átta efstu úr 350 manna hópi Á föstudaginn út- skrifaðist Margrét Þórarinsdóttir með BA-próf í sálfræði frá ríkisháskólanum í Kaliforníu, California State University, sem staðsettur er í North- ridge skammt frá Los Angeles. Þarna var Margrét að ljúka á þremur ámm, námi sem yfirleitt tekur fjögur ár. Þrátt fyrir það var árangur hennar glæsilegur og er hún í hópi bestu nemenda sem útskrifuðust að þessu sinni. Er hún auk þess eini erlendi námsmaðurinn sem kemst í þann hóp. Margrét er borinn og bamfæddur Vestmannaeyingur, dóttir Sigurlínar Ámadóttur frá Túni. Fyrir þremur árunt flutti hún til Bandanlcjanna ásamt manni sínum og dóttur. Hún hóf þá strax nám í sálfræði við ríkis- háskólann í Kalifomíu. Þegar Fréttir höfðu samband við Margréti vildi hún ekki gera mikið úr árangri sínum, sagði þó að hann hefði kostað mikla vinnu en ekki mætti gleyma þætti ættingjanna. Hefði tengdafólk að- stoðað sig á alla Iund og hefði það ásamt hvatningu og stuðningi frá fjölskyldunni íEyjum gert sér kleift að stunda námið af fullum krafti. Margrét er gift Karli James Gunn- arssyni sem er fæddur í Bandaríkj- unum en er íslenskur að uppruna að þremur fjórðu. Margrét og Karl kynntust í Vestmannaeyjum en fluttust til Bandaríkjanna árið 1995 ásamt dótturinni Línu Katrínu sem í dag er sex ára gömul. „Eg byrjaði strax í náminu eftir að við komum út,“ segir Margrét í samtali við Fréttir. „Skólinn er mjög stór, ég held að nemendur séu í allt um 27 þúsund. Eg bý í eins og hálfs klukkustundarakstur frá aðalskólanum en ég er svo heppinn að útibú frá skólanum er í bænum þar sem ég bý. Þar hef ég stundaö námið og útskrifaðist þaðan á föstudaginn. Ég gat reyndar valið á rnilli þess hvom megin ég útskrifaðist en ég valdi að vera hér með fólkinu sem ég hef verið með síöustu þrjú árin.“ Margrét útskrifaðist með BA próf í sálfræði og segir aðspurð að sér hatl gengið ágætlega og í raun og veru mjög vel. Er það ekki orðum aukið því árangur hennar er frábær. Hún er ein átta nemenda seni náði gráðunni Magna Cum Laude sem er hæsta gráða sem hægt er að ná. Árangur Margrétar er frábær sem sést best af því að hún er í hópi 350 nemenda sem útskrifaðist í sálfræði, hún lýkur fjögurra ára námi á þremur ámm og er eini útlendingurinn íhópi þeirra bestu. Samhliða náminu hefur Margrét unnið í litlum háskóla sem hún segir að sé líkari því að vera framhaldsskóli eins og við þekkjum þá. „Eftir að krakkamir útskrifast úr þessum skóla em tvö ár í háskóla til að ná sér í próf. Hef ég verið við aðstoðarkennslu, bæði í tölvunarfræðum og sálarfræði." Margrét hefur í nógu að snúast þessa dagana. eftir útskriftina á föstudaginn tóku við veisluhöld og á mánudag og þriðjudag var hún að taka við verðlaunum og viðurkenningum fyrir námsárangurinn. Margrét hyggur á frekara nám í sálfræði en fyrst ætlar hún að taka sér ársfrí. „Mér veitir ekki af því að taka mér frí _því ég er gjörsamlega útbrunnin. Ég er ekki ákveðin í hvað ég geri næsta árið og það getur vel verið að ég komi heim,“ segir Margrét og útilokar ekki að koma til starfa í Eyjum. í Eyjum. „Ég er að láta athuga þessi mál fyrir mig og væri gaman ef einhver möguleiki Margrét og Lína Katrín við útskriftina á föstudagínn. Athöfnin stóð í úrjá tíma og segir Margrét að mjög heitt hafi verið bennan dag. yrði fyrir mig að fá vinnu heima í Eyjum. En það yrði að vera innan einhvers skólans. Ég stefni á masters- nám og tek þá líklega fyrir skóla- sálfræði. Mastersnámið tekur tvö ár og svo verður að ráðast hvort ég held áfram og fer í doktorsnám." Eins og áður hefur komið fram vill Margrét hafa sem fæst orð um þennan glæsilega árangur. „Árangur í skóla er ekki spurning um gáfur. Fyrst og fremst er þetta mikil vinna og ég lagði mikið á mig. Mér gekk líka vel af því að fjölskylda Kalla er mjög dugleg að hjálpa okkur. Kalli vinnur við olíuvinnslu og er því oft að heiman. Þetta hefði því aldrei gengið ef fjöl- skyldunnar hefði ekki notið við.“ Leikskólarnir eiga líka sinn skóladag Síðastliðinn sunnudag var haldinn vorfagnaður í leikskólanum Kirk jugerði. Þetta er þriðja árið sem slíkur fagnaður er haldinn í leikskólanum og var margt sér til gamans gert. Það er foreldrafélag Kirkjugerðis sem sér um framkvæmd dagsins og er hann öðrum þræði haldinn til að efla foreldrasamstarfið. Veðrið lék við börnin og foreldra sem úðuðu í sig pylsum, og vöflum með rjóma og skoluðu niður með svaladrykkjum. Spicegirls komu í heimsókn og Emil í Kattholti talaði við börnin, sem eltu hann um allan leikskólann og leikskólalóðina full aðdáunar. 'W * ® |A 1!E* 1 'tjSlf f WÍ

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.