Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Qupperneq 17

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Qupperneq 17
Fimmtudagur 28. maí 1998 Fréttir 17 Gódur bati hjá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja 1997: Tæplega 600 manns fá lífeyrí úr sjóðnum Frá ársfundi Lífeyrissjóðsins. Ársfundur Lífeyrissjóðs Vest- mannaeyja var haldinn 25. apríl 1998. Árið 1998 er 29. starfsár sjóðsins, en upphaf hans má rekja til kjarasamninga ASÍ og VSÍ frá 19. maí 1969. Frá ársfundi 1997 gegndi Elías Björnsson embætti stjórnarformanns og Magnús Krist- insson embætti varaformanns. Aðrir aðalmenn í stjórn eru Arnar Sigurmundsson, Eyjólfur Martins- son, Guðrún Erlingsdóttir og Jón Kjartansson. Fulltrúar vinnuveit- enda og verkalýðsfélaga skiptast á um formennsku í stjórn sjóðsins og til ársfundar 1999 sinnir Magnús Kristinsson formannsembætti og Jón Kjartansson embætti varafor- manns. Stöðugildi á skrifstofu sjóðsins eru talin 3,5 og hefur svo verið óbreytt í um áratug. Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris í árslok 1997 var kr. 6.937.468.118,- og hækkaði um 12,4% á árinu. Greiðandi sjóðfélagar voru 2.574 og námu iðgjöld tii sjóðs- ins 370,8 milljónum á árinu. Aðmeð- altali ávann hver greiðandi sjóðfélagi sér 2,36 stig á árinu og voru réttindi hvers þeirra að meðaltali 23,3 stig í árslok. Framreiknuð réttindi þessara sjóðfélaga til 67 ára aldurs svara til um 69 stiga að meðaltali. Alls eiga rúmlega 12.300 manns einhver réttindi í sjóðnum. Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu 150,3 milljónum á árinu og hækkuðu um 13,6% frá fyrra ári. Alls fengu 596 einstaklingar greiddan lífeyri, sumir fleiri en eina tegund lífeyris. Ellilífeyris nutu 267, makalífeyris 102, örorkulífeyris 197, og bamalífeyri fengu forráðamenn 83 bama. Tryggingafræðileg úttekt í árslok 1997 sýnir góðan bata á hag sjóðsins á liðnu ári, einkum hvað snertir áunninn lífeyrisrétt sjóðfélaga, en hann er metinn vera 6.465 milljónir. Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris var þá 472 milljónum hærri, eða um 7% umfram áfallnar skuldbindingar. Batinn gefur þó ekki tilefni til breytinga á reglum sjóðsins, til hækkunar lífeyris eða til lækkunar lífeyrisaldurs, enn sem komið er. Að meðtalinni núvirðingu á skuldabréfa- eign sjóðsins miðað við 3,5% raunávöxtun, telst hrein eign sjóðsins vera um 20% umfram áfallnar skuld- bindingar og um 3% umfram heildarskuldbindingar. Orðrétt segir í lokaorðum tryggingastærðfræðings: „Það er mitt mat að staða sjóðsins í árslok 1997 sé allgóð og verulegar líkur til þess að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar. Væm hinar sérstöku skuldbindingar vegna sjómanna ekki til staðar væri staðan mjög góð og næsta víst að sjóðurinn gæti staðið við skuldbindingar sínar nema veruleg frávik verði á forsendum." Lífeyrissjóðurinn ráðstafaði 980,8 milljónum til verðbréfakaupa á árinu 1997. Verðbréfasafn sjóðsins er fjölþætt og ábyrgðir að baki þess traustar. Um 73% þess er í skulda- bréfum (verðbréfum með föstum tekjum), þar af 62% með rikisábyrgð, 17% með ábyrgð banka og sparisjóða og um 10% með ábyrgð sveitarfélaga. Verðgildi þessara eigna er metið miðað við upphaflega kaupávöxt- unarkröfu þeirra. Eign lífeyrissjóðsins í hlutabréfum og hlutdeildarsjóðum (verðbréfum með breytilegum tekjum) er um 16% af fjárfestingum hans, og skiptist nokkum veginn til helminga á milli innlendra hlutabréfa og erlendra verð- bréfasjóða og hlutabréfa. Bundin innlán í bankastofnunum í Vestmannaeyjum nema 11 % af fjár- festingum sjóðsins, en að viðbættum skuldabréfum sömu stofnana, em 17% af fjárfestingum ávöxtuð í heima- byggð. Um 18,4% af verðbréfaeigninni er útgefin í eða tengd erlendum gjald- miðlum, þar með talin innlend ríkisskuldabréf og skuldabréf Hús- næðisstofnunar í erlendri mynt. Fram kom á ársfundinum að sjóðurinn mun hætta að taka við Stórframkvæmdir við Flugstfiðina „Ákvörðun hefur verið tekin um stækkun Flugstöðvarinnar á Vestmannaeyjaflugvelli auk veru- legra endurbóta og endurskipu- lagningar og framkvæmdir ættu að geta hafist í haust," segir Árni Johnsen alþingismaður í samtali við Fréttir. Árni á sæti í flugráði sem forgangsraðar framkvæmdum í flugmálum og kveðst Arni hafa verið að vinna að undrbúningi þessa verkefnis undanfarin ár. „Flugstöðin verður stækkuð til austurs um rúma 100m2. biðsalur rýmkaður og farþegaafgreiðsla færð til þannig að brottfararfarþegar fara um sama hluta stöðvarinnar.en komufarþegar koma inn um nýbygginguna þótt opið sé á rnilli, því stöðin verður áfram eitt rými.“ Þá segir Ámi að farangursrými verði endurskipulagt og stækkað, og húsið allt tekið í gegn bæði að utan og innan, m.a. sett nýtt þak. Ráðgert er að verkið verði boðið út á næstu mánuðum. lánsumsóknum frá sjóðfélögum hinn 1. ágúst næstkomandi, en umsóknir hafa ekki náð því að vera ein á mánuði að meðaltali undanfarin misseri, auk þess sem sjóðfélagar eiga orðið völ hagstæðari kosta í beinum viðskiptum við bankastofnanir. Ávöxtun lífeyrissjóðsins hefur verið mjög góð og nokkuð jöfn undanfarin ár. Allt frá árinu 1986 hefur rauná- vöxtun eigna hans verið um og yfir 7% þegar skoðuð em 5 ára meðaltöl, miðað við lánskjaravísitölu. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar er 7,8% árin 1996 og 1997, miðað við vísitölu neysluverðs. (Við útreikning hreinnar raunávöxtunar er rekstarkostnaður dreginn frá íjármunatekjum.) Innlend hlutabréf og erlend hlut- deildarskírteini eru færð á mark- aðsverði í bókum sjóðsins og fylgja því sveiflum sem verða á fjár- málamörkuðum. Með auknu vægi þeirra í eignum sjóðsins má gera ráð fyrir að sveiflur verði á ávöxtuninni, ýmist til hækkunar eða lækkunar, sem munu hafa áhrif á mat eigna gagnvart skuldbindingum. Ársuppgjör er nú gert samkvæmt nýrri forskrift Seðlabankans um framsetningu ársreikninga lífeyris- sjóða. Nýmæli em m.a. að kostnaði er skipt á milli fjárfestinga annars vegar og annars rekstrar hinsvegar. Einnig hefur birtingu kennitalna úr upp- gjörum lífeyrissjóða verið breytt og sumar felldar niður, svo sem kennitala um kostnað sem hlutfall af veltu, kennitala um endingartíma eignar, kennitala um réttindahlutfall, kennitala um lífeyrisgreiðslur sem hlutfall af hreinni eign, og um innborguð stig hvers sjóðfélaga að meðaltali á ári, svo nokkuð sé tíundað. Ástæður fyrir þessari skiptingu kostnaðar og breyttum kennitölum virðast einkum vera þau saman- burðarfræði, sem tíðkast hafa á milli lífeyrissjóða og einnig samkeppni þeirra við verðbréfafyrirtæki, sem reka séreignasjóði og auglýsa grimmt sitt eigið ágæti. Hinar nýju kennitölur virðast hagstæðari stærri sjóðunum en þeim minni og er efalaust ætlað að vera hvati til enn frekari sameiningar lífeyrissjóða. Á ársfundi voru kynntar tillögur til breytinga á reglugerð sjóðsins, til samræmis við ný lög um starfsemi Ufeyrissjóða, sem taka gildi 1. júlí næstkomandi, nema þau ákvæði laganna, sem fjalla um skiptingu ellilífeyris á milli hjóna, en þau ganga ígildi l.maíárið 1999. Breytingamar hafa ekki áhrif á lífeyrisréttindi sjóðfélaga. Tillögumar gera einnig ráð fyrir að stofnuð verði sér- eignadeild við sjóðinn, sem taka mun við framlögum sjóðfélaga inn á sérstaka lífeyrisspamaðarreikninga. í ljósi mikilla breytinga á sviði h'feyrismála undanfarið og nýrra laga um starfsemi lífeyrissjóða hefur sjóð- urinn hafið undirbúning að stefnu- mótun og framtíðarsýn og fengið til liðs við sig sérfræðinga í slíkum málum. Sameiningar lífeyrissjóða undanfarin ár kalla á nýtt mat á stöðu Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja og e.t.v á varnarbaráttu fyrir tilveru hans. Meta þarf hvernig hag sjóðsins og sjóðfélaga hans verður best borgið í framtfðinni og hvaða þýðingu það hefur fyrir sjóðfélagana, atvinnulíf í Eyjum og bæjariélagið í heild, að reka sérstakan almennan lífeyrissjóð í Vestmannaeyjum. Frá afhendingu uerðlaunanna, f.u. Sturla Arnarsson, Viktor Smári Kristjánsson, Sindri Úlafsson, Sæliór Jáhannesson, Kolbeinn Úlafsson og Júlíana Theódórsdóttir sem tók uið uerðlaunum fyrir MargréO Rós dóttur sína. Sigurvegarar í stærðfræðikeppiiiimi Á skólaslitum Framhaldsskólans á laugardaginn voru tilkynnt úrslit í stærðfræðikeppni Framhaldsskólans fyrir 8.9. og 10. bekk grunnskólanna sem skólinn stóð fyrir. Þátttakendur vom alls 26, 17 úr Bamaskólanum ogníu úr Hamarsskólanum. Piltar vom 19 og stúlkurnar sjö og urðu úrslitin þessi: í tíunda bekk varð Kolbeinn Ólafsson í 1. sæti. Guð- niundur Eyjólfsson í 2. og Þórir Pálsson og Margrét Rós Ingólfsdóttir í 3. og 4. sæti. Drengimir em báðir Bama- skólanum en Margrét Rós kemur úr Hamarsskólanum. í 9. bekk varð Sindri Ólafsson úr Hamarsskóla í I. sæti. Sæþór Jóhannesson í 2. sæti og Sigurður J. Ingibergsson í 3. en báðir em í Barnaskólanum. í 8. bekk bar Sigurjón Viðarsson í Hamarsskóla sigur úr býtum, 2. varð Sturla Amarsson og í 3. sæli Viktor Smári Kristjánsson en þeir em báðir í Bamaskólanum. Verðlaun gáfu Athafnaverið sem gaf öllum þátttakendum mánaðarkort, íslandsbanki sem gaf öllum verðlaunahöfum filofax, auk klukku í önnur verðlaun og forláta penna í fyrstu verðlaun í öllum flokkum. Tölvun gaf tölvuleik að eigin vali að verðmæti 5000 í fyrstu verðlaun og KÁ geisladisk að eigin vali í önnur og þriðju verðlaun. Umsjón með keppninni var í höndum Ólafs Týs Guðjónssonar deildarstjóra í stærðfræði við

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.