Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.1998, Qupperneq 15
Fimmtudagur 4. júní 1998
Fréttir
15
Landssímadeildin 3. umferð: IBK 0 - IBV 3
Loks sisraði
ÍBV í Keflavík
Síðastliðinn fímmtudag, áttust við í
Landssímadeildinni, lið IBV og
Keflavíkur. Eyjamenn hafa ekki
riðið feitum hesti frá viðureignum
sínum við IBK á þeirra eigin
heimavelli í gegnum tíðina, en þeir
sneru heldur betur við hlaðinu í
þessum leik
Leikurinn fór rólega af stað og
skiptust liðin á að sækja. En fram-
herjinn snöggi, Steingrímur Jóhannes-
son, kom ÍBV í vænlega stöðu
snemma í fyrri hálfleik með tveimur
mörkum. Fyrra markið skoraði hann
eftir klaufaleg mistök vamarmanna
Keflavíkurliðsins, en það seinna má
segja að hann haft skorað eftir send-
ingu frá sjálfum sér.
Eyjamenn bættu síðan við þriðja
markinu rétt fyrir lok fyrri hálfíeiks,
en þar var að verki Jens Paeslack, sem
skoraði með þrumuskoti. rétt fyrir
utan vítateig, eftir að Steingrímur
hafði lagt boltann út á hann. Staðan
því 0-3 í hálfleik, Eyjamönnum í vil
og nánast formsatriði að klára leikinn.
Heimamenn reyndu að byrja seinni
hálfleik af krafti og fengu oft á tíðum
góð færi, en annaðhvort fór boltinn
ekki nálægt markinu, eða að Gunnar
markmaður sá við skotum Keflavíkur.
Lítil spenna var í seinni hálfleik, þar
sem IBV hafði nánast gert út um
leikinn í fyrri hálfleik og fór svo að
lokatölur leiksins urðu, 0-3.
Eyjamenn komu mjög einbeittir til
þessa leiks og var greinilegt að
leikmenn liðsins ætluðu sér ekki að
tapa enn eitt árið í Keflavík.
Steingrímur og Jens náðu mjög vel
saman frammi og vömin náði að þétta
sig nokkuð vel. ívar Ingimarsson var
duglegur á miðjunni og Kristinn
Lárusson náði að halda leikstjómanda
ÍBK, Gunnari Oddssyni, í skeíjum.
Lið ÍBV: Gunnar 8 - Steinar 7
(Hjalti), Hlynur 7, Zoran 7, Hjalti 6 -
Ingi 5, ívar 7, Sigurvin 6, Kristinn 7 -
Steingrímur 8, Jens 8.
Maður leiksins í Keflavík var Steingrímur Jóhannesson sem skoraði tvö mörk
og náðí að leika sig inn í landsliðið f fyrsta sklpti.
Miklir
yfir-
buröir
hjá KFS
Síðastliðinn laugardag áttust við
KFS og Víkingur frá Ólafsvík, í
3.deildinni í knattspyrnu. KFS
átti ekki í vandræðum með
gestina, og sáust glæsileg tilþrif
hjá liðsmönnum KFS á köflum.
Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS.
var að vonum ánægður með sína
menn, sérstaklega fyrri hálfleik.
sem hann segir hafa verið þann
albesta síðan hann byijaði að þjálfa
hjáFramhetjaogloksKFS. Staðan
í hálfleik var 5-0. I seinni hálfleik
var varamönnunum leyft að spreyta
sig, en lokatölur leiksins, 7-1.
Mörk KFS skotuðu: Magnús S. 2,
Erlingur I, Kári 1. Stefán B. I.
Rúnar 1 og Óðinn 1.
Lið KFS var þannig skipað:
Tryggvi-Helgi(Jósef). Erlingur
(Óðinn), Magnús G. (Jónas), Sig-
urður S.-Kári (Stefán), Jón B.,
Rúnar (Bjami), Yngvi-Heimir,
Magnús S.
Maður leiksins var Heimir Hall-
grímsson. Geysilega yfirvegaður
og spilandi leikmaður, sem mataði
félaga sína með fallegum send-
ingum. Atti glæsilega hjólhesta-
spymu í lok leiksins.
í 3. sæti
KFS er nú í 3.sæti A-riðils, og að
sögn Hjalta þjálfara, þá mun
baráttan aðallega standa á milli
þriggja liða; Aftureldingar, Léttis
og KFS. Næsti leikur KFS er gegn
Hamri úr Hveragerði, og fer
leikurinn fram næstkomandi mánu-
dag, í Hveragerði.
Landssímadeildin 4. umferð: IR 1 - IBV 0
Ovaent tap gegn IR
Eyjamenn mættu nýliðum IR í
Landssímadeildinni, á annan í
hvítasunnu. Leikið var í Mjódd-
inni, heimavelli ÍR. ÍBV virtist vera
komið á gott skrið, eftir mjög
sannfærandi sigra í síðustu tveimur
leikjum. En heimamenn komu
mun ákveðnari til leiks og fór svo að
þeir uppskáru sigur að lokum.
IR-ingar komu vel stemmdir til
þessa leiks og ætluðu greinilega að
selja sig dýrt í þessum leik. Eitthvað
vantaði á að Eyjamenn væm á sömu
nótum, og lentu þeir því í basli með
nýliðana alveg frá byrjun.
Heimamenn skoruðu fyrsta og
jafnframt eina rnark leiksins, á 21.
mínútu. Það sem eftir lifði leiks
reyndu Eyjamenn hvað þeir gátu til að
jafna metin en ekkert gekk upp. Þess
má geta að IBV átti 20 skot að marki,
gegn 8 skotum IR-inga, og tíu hom-
spymur, gegn fjórum hornspymum
ÍR. Kristinn Hafliðason og ívar
Bjarklind. komu báðir inn á sem
varamenn í leiknum. og lífgaði Ivar
sérstaklega upp á sóknarleik liðsins.
Leikmenn ÍBV-liðsins fóm greini-
lega ekki með réttu hugarfari í þennan
leik og alla baráttu virtist vanta í liðið.
Það er vonandi að þeir láti sér þetta að
kenningu verða og sýni sitt rétta andlit
í næstu leikjum. Þeir sem ætla sér titla
verða líka að vinna lakari liðin.
Lið ÍBV: Gunnar 6 - Steinar 5 (ívar
7), Hlynur 6, Zoran 7, Hjalti 6
(Kjartan 5) - Ingi 6, ívar 6, Sigurvin 7,
Kristinn L. 6 (Kristinn H. 5) - Jens 6,
Steingrímur 6.
Flugfélags Islands mótið í golfi:
Mjög góður ár-
angur hcimamanna
Um hvítasunnuna fór fram hið
árlega Opna mót Flugfélags ís-
lands. Þátttaka var mjög góð eða
alls 42 keppendur, þar af 28 frá
Golfklúbbi Vestmannaeyja.
Keppt var bæði með og án for-
gjafar. í keppni með forgjöf röðuðu
Vestmannaeyingar sér í efstu sætin en
röð efstu varð þessi:
1. Sveinn Halldórsson 134 högg
2. Asbjöm Garðarsson 137 högg
3. Júltus Hallgrímsson 139 högg
I keppni án forgjafar varð röð efstu
þessi:
1. Kristinn G Bjamason GR 146högg
2. Júlíus Hallgrímsson GV 147 högg
3. Asbjöm Garðarsson GV I53högg
Eins og sjá má mega Eyjamenn vel
við sinn hlut una. Júlíus Hallgrímsson
vantaði aðeins eitt högg upp á að ná
landsliðsmanninum Kristni G Bjama-
syni eins og sjá má.
Einnig vom veitt verðlaun fyrir þá
sem næstir vom holu í upphafshöggi.
Þeir vom Haraldur Júlíusson GV,
Heiðar Breiðfjörð GR, Kristinn G
Sveinn Halldórsson sigraði íkeppni
með forgjöf.
Bjamason GR, Helgi Þórisson GS og
Agúst Ó Einarsson GV.
Flugfélag fslands gaf öll verðlaun til
þessa móts og vom þau hin
glæsilegustu að vanda, m.a. ferðir
bæði utanlands og innan.
Hampiðju- og Netmótið
um helgina
A laugardag verður á dagskrá GV
Golfmót Hampiðjunnar og Net hf.
Þetta er höggleikur með og án
forgjafar og leiknar 18 holur. Veitt
verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú
fyrstu sæti í báðum flokkum og auk
þess nándarverðlaun fyrir par 3
holumar. Þá verður dregið úr skor-
kortum viðstaddra í mótslok og óvænt
verðlaun þar í boði. Þetta mót er
öllum opið en sérstaklega em sjómenn
hvattir til að taka þátt í því.
Mótið hefst kl. 10 á laugardag og er
mótsgjald kr. 1500. Lokaskráning
verður að hafa farið fram á föstu-
dagskvöld kl. 21
HHH vann get-
raunaleikinn
Hjá Islenskum getraunum hafa
verið hópaleikir í gangi í allan vetur.
Svokölluðum vorhópleik var að
ljúka fyrir skömmu og þar vom þrír
Eyjamenn að gera það gott. Spilað
er í þremur deildum, og fer það eftir
fjölda raða, í hvaða deild menn
lenda. Þeir Hjalti Kristjánsson,
Haukur á Reykjum og Hjörleifur
Jensson, íhópnum HHH, lentu í I.-
2. sæti í fyrstu deild og í 3.-8. sæti í
annarri deild. Þeir hafa þegar unnið
sér inn eina utanlandsferð, og eiga
möguleika á annarri.
Guðni Rúnar
til ÍBV
Guðni Rúnar Helgason, er á leiðinni
til IBV á ný. Guðni reyndi fyrir sér
í atvinnumennsku í vetur, en dæmið
gekk ekki upp. Guðni samdi við
IBV til þriggja ára, og er hann
væntanlegur til Eyja um miðjan júlí.
Gunnar Heiðar
í drengja-
landsliðið
Gunnar H. Þorvaldsson, leikmaður
með öðrum og þriðja flokki ÍBV.
hefur verið valinn í 35 manna
æfingahóp drengjalandsliðs íslands.
Gunnar Heiðar er mikið efni og
hefur verið mikill markaskorari í
yngri flokkunum.
Fleiri í landslið
Sigurður A. Stefánsson var valinn í
23 manna æftngahóp, hjá íslenska
drengjalandsliðinu í handknattleik.
Landsliðsæfingar standa nú yfir og
eru þær liður í undirbúningi liðsins
fyrir mót í Austurríki, í þessum
mánuði.
Guðbjörg Guðmannsdóttir er
þessa dagana að spila með íslenska
unglingalandsliðinu í handknattleik,
skipuðu leikmönnum undir 18 ára.
á ntóti í Danmörku.
Steingrímur og
Venni í hópinn
Steingrímur Jóhannesson og Sigur-
vin Ólafsson, leikmenn ÍBV íknatl-
spymu, h_afa verið valdir í A-lands-
liðshóp Islands, sem spilar vin-
áttulandsleik við Suður-Afríku á
laugttrdaginn kemur. Leikurinn fer
fram í Freudenstadt í Þýskalandi og
hefst leikurinn kl. 16:00, eða kl.
14:00 að íslenskum tíma.
Framundan:
Fyrsti heimaleikur ÍBV í Meist-
aradeild kvenna, fer fram hér í
Eyjum í kvöld kl. 20:00. Leikurinn
fer að öllum líkindum fram á
Hásteinsvelli.
Laugardaginn 6. júní kl. 14:00
2. fl ka ÍBV-Þróttur. KI. 12:00 2.fl
kv ÍBV - KR.
Mánudagur 8. júní kl. 18:00 3.11.
kv.ÍBV-Valur.
Þriðjudagur9.júní kl. 20:00 mfl.
ka. ÍBV-Valur.