Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Blaðsíða 20
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
§%■■!■ amamar *--*»- «-» *- f_„
vuyivyar nfou ■ ww md w»
Vöruafgreiðsla
Sldldiiigavegi 4 Slmi 481 3440
Vöruafgreiðsla i Reylcjavik
TVG Höðinsgafa 1 -3
Sími 581 3030
£ ÍTAIOt j
Margt var um manninn á
Stakkagerðistúni á
laugardaginn þar sem
boðiðvaruppá ýmsar
uppákomur. Bylgjan með
Hemma Gunn í fararbroddi
útvarpaði beint af Stakkó,
kraftajötnar reyndu með
sér í Hálandaleikum og
áhorfendur fengu að
spreyta sig í átökum. Hér
er ungur Eyjmaður að lyfta
110 kg. steini.
Rútuferðlr-Bustours
—
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
S£MQÍF£aðASÍLL
*481-2943,
I * 897-1178
Goslokanna minnst með myndarlegri dagskrá:
Forsetahjónin tylla niður
fæti í opinberri heimsókn
Boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá helgina 3-5 júlí vegna 25
ára goslokaafmælis. Vestmanna-
eyingum stendur til boða mikil og
fjölbreytt menningarveisla þar sem
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.
Setningarathöfn verður á Stakka-
gerðistúni klukkan 18:00, þar sem
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri mun
flytja ávarp, Lúðrasveit Vestmanna-
eyja mun leika, Samkór Vest-
mannaeyja mun syngja og nemendur
úr Tónlistarskóla Vestmannaeyja
munu leika. Þijár myndlistarsýningar
verða opnar, ein í Akóges, en þar mun
Vilhjálmur Vilhjálmsson sýna verk
sín og í Gallerý prýði munu myndir
Bjama Ólafs Magnússonar, Hallsteins
Sigurðssonar, Sylvie Achard og
Sjafnar Sigfúsdóttur verða til sýnis.
Jóhanna Bogadóttir opnar sýningu í
Listaskólanum sem hún kallar „Eyjar,
eldur og haf. Götuleikhús verður í
miðbænum sem Andrés Sigurvinsson
hefur veg og vanda af. Dagskrá mun
verða í Kiwanishúsinnu í umsjón
Hafsteins Guðftnnssonar sem nefnd
hefur verið „Þar sem fyrrum" og er
byggð á verkum Ása í Bæ og
Oddgeirs Kristjánssonar. Sigling
verður í boði Herjólfs umhverfis
Heimaey ásamt leiðsögumanni og
tónlist um borð. Boðið verður upp á
tónlistarflutning á Stakkó bæði
föstudags og laugardagskvöl, en þar
munu hljómsveit-imar Klón, Koks.
D-7 og Hljómsveit Fíladelfíu Ieika við
hvum sinn fingur. Dagskrá sem
byggð er upp á tónlist og söng ásamt
óvæntum skemmtiatriðum sem ber
yfirskriftina „Líf og fjör í Skvísu-
sundi.“.
Forseti íslands og hans frú munu
koma í opinbera heimsókn á laug-
ardeginum og verður móttökuathöfn á
Flugvellinum. Messa verður við
Eldfell og mun séra Jóna Hrönn
predika. A Skansinum og í fjömnni
við innsiglinguna verður grillveisla á
sunnudeginum í boði bæjarstjómar og
margháttuð skemmtiatriði í boði við
allra hæfi. Rétt er að vekja athygli á
vefsíðu sem nemendur Bamaskólans
hafa útbúið um eldgosið í Heimaey.
Slóðin er http.//rvik.ismennt.isrney
glob/.
Sjá nánar á bls. 6.
Prestsembættið:
Ein umsókn komin
Samkvæmt upplýsingum Frétta hefur ein umsókn borist um prests-
embættið í Vestmannaeyjum. Sú umsókn er frá Báru Friðriksdóttur,
guðfræðingi, en hún lauk prófi frá guðfræðideild Háskóla Islands 1995.
Bára er 34 ára, gift Guðmundi St. Ásmundssyni, prentsmið og hönnunarstjóra
hjá Kassagerð Reykjavíkur, og eiga þau tvö böm. Þau búa í Hafnarfirði.
„Það er rétt," sagði Bára þegar við slógum á þráðinn til hennar eftir hádegið í
dag. „Eg hef unnið að safnaðarstarfi í ein 15 ár, bæði fyrir Samhjálp og eins í
bama- og Ijölskyldudeild kirkjunnar. Aftur á móti hef ég enn ekki tekið vígslu.
Eg vil aftur á móti benda á að umsóknarfrestur er ekki útmnninn, hann er til 30.
júní, þannig að fleiri umsóknir geta borist. En ég er til þjónustu reiðubúin ef þess
verður óskað," sagði Bára að lokum.
Lilian Fourre kex......................^IcF.——494. 158 pk.
Paul Newman ’s
salad dressing 237 ml. 159 fl■
Paul Newmans örbylgjupopp 136 pk.
Dajm orange súkkulaði .’JciT-—m. 69 stk.
12“ Pizzalands Pizza -710^^289. 298 stk.