Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 18. júní 1998
Fréttir
19
Landssímadeildin 6. umferð: Fram 0 IBV 2
Eyjamenn jerðu skyldu sína
Eyjamenn sóttu neðsta lið deild-
arinnar, Fram, heim um síðustu
helgi. IBV náði sér heldur betur á
strik eftir óvænt tap gegn IR, en
Framarar eru búnir að vera í
miklum vandræðum það sem af er
móti og hafa aðeins skorað eitt
mark í sex leikjum.
Leikurinn fór fjörlega af stað og
snemma leiks var Framaranum, Baldri
Bjarnasyni, vikið af leikvelli fyrir að
sparka viljandi í Inga Sigurðsson.
Eyjamenn nýttu sér þennan liðsmun
og á 21. mínútu leiksins skoraði
Steingrímur Jóhannesson, iyrsta mark
leiksins og sitt níunda í deildinni, eftir
góðan undirbúning Inga Sigurðssonar.
Leikurinn var ágætlega leikinn á
köflum, mikið um góð marktækifæri,
sem ekki náðist að nýta og staðan í
hálfleik, eitt mark gegn engu, ÍBV í
vil. Framarar komu ákveðnir til seinni
hálfleiks og sköpuðu sér þó nokkur
góð tækifæri gegn heldur værukærum
Eyjamönnum. En á 78. mínútu leiks-
ins fór þreytan að segja til sín hjá
Frömurum og skoraði þá Kristinn
Lárusson, annað mark IBV, eftir
góðan undirbúning Steingríms og
Ivars Ingimarssonar. Eftir þetta var
eftirleikurinn auðveldur hjá ÍBV, og
tróna þeir nú einir á toppi deildarinnar
með 13 stig.
Lið ÍBV: Gunnar 7 - ívar B. 7, Hjalti
7(Kjartan 5), Hlynur 7, Zoran 7 - Ingi
8, ívar 7(Hjalti J.5), Steinar 6, Kristinn
6 - Steingrímur 8, Jens 6(Sindri 5)
Meistaradeild kvenna: Haukar 1 ÍBV 1
Fyrsta stisið
komið í höfn
ÍBV stelpur mættu Haukum að Ás-
völlum í síðustu viku. Þetta var
fjórði leikur stelpnanna í Meistara-
deildinni og fyrir þennan leik þá
voru þær ennþá án stiga.
Að sögn Sigurlásar Þorleifssonar,
þjálfara ÍBV, þá var þetta heldur
bragðdaufur leikur og ekki ntikið að
gerast. Fyrri hálfleikur bar þess
greinilega merki, enda var staðan í
hálfleik, 0-0. Heldur lifnaði yfir leikn-
unt í seinni hálfleik og fóru mark-
tækifærin að líta dagsins ljós. Elena
Einisdóttir kom IBV yfir um miðjan
seinni hálfleik, en Haukastelpur jöfn-
uðu skömmu síðar. Sigurinn hefði
síðan getað lent hvorum megin sem
var undir lokin.
Lið ÍBV: Sigríður 6 - íris S 6(Hjördís
5), íris 7, Ema 7, Eva 6 - Dögg
L.6(01ga 5), Hrefna 6, Sigríður Á 7,
Fanný 6, Elena 7 - Bryndís 7
ElenaskoraðimarkíBV
Góð bátttaka var í Hásteinshluapinu 17. iúní og hér má sjá sigurvegara í flokki
stúlkna koma í mark á Vestmannabrautinni.
Aríðandi
fundur
hjá dóm-
urum á
mánudas
Mjög áríðandi fundur er hjá
Dómarafélagi Vestmannaeyja nk.
mánudag í Þórsheimilinu kl. 20.30.
Rædd verður staða dómaramála í
Vestmannaeyjum en þrátt fyrir ýmsar
ráðstafanir eru þau ekki í nógu góðum
farvegi. Rætt verður hvaða leiðir em
til úrbóta því að ekki verður spiluð
knattspyma án dómara. Hvað er hægt
að gera til að fá dómara til að dæma
hjá okkur?
Allir dómarar með réttindi og þeir
sem áhuga hafa á dómgæslu em
hvattir til að mæta. Dómurum verður
raðað niður á þá leiki sem eftir em í
sumar ef mögulegt er.
Knattspyrnudeild ÍBV
Unglingaráð IBV
Dómarafélag Vestmannaeyja
(F réttatilkynning)
ÍÞRÚnfl- OG LEIKJRHGHSKElfl heklu og íbu
Námskeið nr. 2 (af 3) hefst
mánudaginn 22. júní og
stendur til 10. júlí
Námskeiðið er tvískipt:
LEIKJANÁMSKEIÐ:
Fyrir stráka og stelpur á aldrinum 4-8 ára, starf-
rækt mánudaga - föstudaga kl. 09.30 -12.00.
ÍÞRÓTTASKÓLI:
Fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-11 ára, starfræktur
mánudaga - föstudaga kl. 13.15 -15.30.
Verð fyrir námskeiðið er 2.000 kr. fyrir þá sem voru á því fyrsta en 3.000 kr. fyrir þá sem eru að byrja.
Innifalið í þátttökugjaldi er grillveisla, viðurkenning og uppskeruhátíð.
Meðal þess sem er á dagskrá:
íþróttir, gönguferðir, skoðunarferðir, leikir o.fl.
Uppfc^ja^ ***** ^
a\b Vra'kV.o sem 'n^'a a °
útiveru 03
E
HEKLA
Magnús með
þrennu
KFS heimsótti lið Léttis í síðustu
viku. Búist var við spennandi leik,
þar sem liðunum var spáð ofarlega í
deildinni. Leikurinn byrjaði af
krafti og náði Yngvi Borgþórsson,
leikmaður KFS, því einstaka atriði
að fá gult spjald, skora síðan og loks
fá rauða spjaldið, á fyrstu 15
mínútum leiksins. Eftir hálftíma
leik var staðan orðin 0-4, og
sigurinn því í höfn. Lítið markvert
gerðist í seinni hluta leiksins og
endaði leikurinn 1-5. Mörk KFS:
Magnús 3, Heimir 1 og Yngvi 1.
Bestu menn KFS voru þeir
Magnús, Heimir og Rúnar.
Annar flokkur
kvenna á
sigurbraut
Eyjastelpur heimsóttu FH-inga í
Kaplakrika á þriðjudaginn og tóku
þær heimamenn í bakaríið og
sigruðu, 1-6. Mörk IBV í leiknum
skoruðu þær; Jóna H.2, Hind 1,
Hrefna 1, Hjördís 1 og Hanna 1.
Þríðji flokkur
karía burstaði
Eyjastrákar fengu lið Stjörnunnar í
heimsókn og burstuðu þeir gestina,
11-0. Mörk IBV í leiknum skoruðu
þeir; GunnarH. 6, Atli 2, Bjami 1,
Olgeir 1 og Einar H. 1.
Fyrstu bikar-
leikir meist-
araflokkanna
verða í kvöld
Eyjamenn sækja iið Aftureldingtu'
heim í 32-liða úrslitum Coca-Cola
bikarsins og hefst leikurinn
kl.20:00. Hér í Eyjum fá Eyja-
stúlkur lið ÍA í heimsókn og hefst
leikur þeima kl.20:00
Margt
spennandi
framundan
Laugardagur 20.júní kl. 12:00
2.0.kv ÍBV - Haukar
Sunnudagur 21 .júní kl. 14:00
3.deild Bnini - KFS
kl. 14:00 3.fl.ka ÍBV-ÍBK
Mánudagur 22.júníkl.20:00
2.0.ka ÍBV - Fylkir
kl. 17:00 4.B.ka ÍBV - ÍR
Þriðjudagur 23júní ki.20:00
mO.kv KR - IBV
Miðvikudagur 24.júní kl.20:00
mO.ka ÍBV - Grindavík
Kylfingar
Munið Jónsmessumótið í golfi á
laugardag kl. 14. Lokaskráning
annað kvöld kl. 20.