Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 18. júní 1998
Eyj astelpur náðu góðum
árangri á frábæru Pæjumóti
Níunda Pæjumóts ÍBV verður lengi niinnst fyrir veðurblíðunnar sem
stúlkurnar nutu alla mótsdagana. Mótið hófst strax á
fimmtudagsmorguninn þó mótssetningin væri ekki fyrr en um kvöldið.
Þegar upp var staðið höfðu 1003 mörk verið skoruð af 295 leikmönnum í
328 leikjum. Vestmannaeyingar geta vel unað árangri sinna stúlkna í
mótinu. Þær léku til úrslita í fjórum flokkum af átta og stóðu uppi sem
Pæjumótsmeistarar í 4. flokki A og 6. flokki B. Þessi frábæri árangur
staðfestir að ÍBV er að festa sig í sessi sem verðandi stórveldi í
kvennaknattspyrnunni.
Sól og blíða settu svo sannarlega mark sitt á Pæjumótið 1998. Skilaði
það sér í betri knattspyrnu og öll framkvæmd mótsins varð svo miklu
léttari og skemmtilegri og síðast en ekki síst fóru keppendur héðan með
góðar minningar um sólbakaðar Vestmannaeyjar. Keppendur voru
hvorki fleiri né færri en 830, stelpur á aldrinum sex til 15 ára. Alls tóku
15 félög þátt í mótinu með samtals 82 lið og var keppt í þriðja, fjórða,
fímmta og sjötta aldursflokki.
Eftir því sem leið á mótið jókst spennan en þegar nær dró lokum
riðlakeppninnar sást að hverju stefndi, ÍBV og Brciðablik voru að ná
bestum árangri. Þegar upp var staðið áttu þessi stórveldi
kvennaknattspyrnunnar sín hver fjögur liðin í úrslitum. Breiðablik hafði
svo betur, sat uppi með þrjá Pæjumótstitla en ÍBV tvo sem verður að
teljast mjög góður árangur. Varð IBV meistari í 4. flokki A og 6. flokki B.
í 2. sæti varð ÍBV í 5. flokki A og 3. flokki.
Árangur hjá öðrum liðum ÍBV var eftirfarandi: IBV varð í 3. sæti í 3.
flokki A, í 6. sæti og 11. sæti 4. flokki B, í 5. sæti í 5. flokki B, í 3. sæti í 6.
flokki A og í 3. og 4. sæti í 6. flokki B.
Úrslitaleikirnir fóru fram á sunnudaginn á Þórsvellinum sem skipt var
niður í þrjá velli og um tíma voru lið frá IBV að spila á þeim öllum.
Mikill fjöldi fylgdist með setningunni á fímmtudagskuöldið.
LEIKID MEÐ HJARTANU. Margir leikir í Pæjumótinu uoru bráðskemmtilegir eins og sést af bessari mynd sem tekin er úr
leik ÍBV og Breiðabliks í 6. flokki. Þessi félög náðu bestum árangri á métinu, ÍBV náði tueimur tidum og Breiðablik bremur.
ÍBV númer eitt
hjá Margréti Láru Viðarsdóttur ÍBV
Pæjumótsmeistara og markakóngi
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍB V varð Pæjumótsmeistari í 4.flokki
A, og jafnframt varð hún markahæst í sama flokki, en hún skoraði
hvorki meira né minna en 14 mörk á mótinu.
Margrét Lára verður 12 ára á þessu ári og þetta er fimmta
Pæjumótið sem hún tekur þátt í. En er þetta alltaf jafn
skemmtilegt? „Já, það finnst mér. Mótið í ár var sérstaklega
skemmtilegt, vegna þess að veðrið var svo gott. Síðan var líka
frábært að spila leikina og að standa uppi sem sigurvegarar,"
sagði Margrét Lára. Henni fannst einnig mjög gaman á
kvöldvökunni, þar sem Greifamir spiluðu og grillaðar voru pylsur
og dmkkið gos. Hún fylgist spennt með Heimsmeistarakeppninni
í Frakklandi, og þar em í uppáhaldi Brasilíumenn, en
uppáhaldsleikmaðurinn hennar er einmitt Ronaldo. Hér heima er
ÍBV númer eitt og Ivar Ingimarsson í miklu uppáhaldi. Margrét
Lára ætlar að leika með meistaraflokki kvenna IBV í framtíðinni,
en hún ætlar einnig að læra að verða sjúkraþjálfari og
íþróttaþjálfari.
Margrét Lára ásamt Kristínu Sigurðardóttur Val
og heiðursgestunum Rögnu Lóu Stefánsdóttur
ogArnariOttesen.
■II IBb 3
Gullstúlkurnar Gullstúlkurnar í 4. Flokki A, sem bekkja ekkert nema að sigra,
héldu uppteknum hætti í úrslitaleiknum gegn Knattspyrnufélagi Sigluf jarðar sem kom
skemmtilega á éuart með framistöðu sínni á Pæjumétinu. Það uar strax Ijést að bæði lið
ætluðu sér sigur og ekkert nema sigur. Ekki uar mikíð um færi í leiknum og fór suo að hann
endaði í framlengingu. Fliótiega í framlengingu fékk ÍBV aukaspyrnu sem markahrókurinn
Margrét Lára Uiðarsdóttir tók. Færið uar langt en hún lét sig ekki muna um að skora og nægði
petta stórglæsilega mark ÍBV til sigurs.
Hér fagna stúlkurnar árangrinum með írisi Sæmundsdéttur biálfara sínum.
Pæjumótsmeistarar ÍBVog Breiðablik áttust suo við í sjötta flokki B en
bær snerist dæmið uið. Leikurinn var jafn og spennandi. Kópauogsstelpur ætluðu sér stóra
hluti í leiknum en bær máttu sín lítils gegn ákveðnum Eyjastelpur sem lögðu upp með sömu
uæntingar. Strax í fyrri hálfleik voru ÍBV-stelpurnar komnar með aðra hönd á
Pæjumótstitilinn buí bær voru einu marki yfir í hálfleik. Þær undirstrikuðu suo sigurínn með
öðru marki í seinni háifleik og úrslitin urðu 2 - 0 ÍBV í vil. Mörk ÍBV skoruðu Anna María
Halldórsdáttir og Sara Dögg Guðjónsdóttir.
Þjálfari stúlknanna er Erna Þorleifsdóttir.