Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur ló.júlí 1998
Eyjamenn
safna kröftum
Færslur í dagbók lögreglu síðustu
viku voru 164 sem er nokkru færri
en síðast liðna viku. Það var rólegt
ytir næturlífinu um síðustu helgi og
aðeins 24 færslur í dagbók aðfara-
nótt laugárdags og sunnudags. Að
sögn lögreglu er ekki ólíklegt að
fólk sé að safna kröftum fyrir Þjóð-
hátiðina.
Peníngum ng
áfengi stolið
Tvö innbrot voru tilkynnt í síðast-
liðinni viku. Annað að Áshamri 71
á föstudaginn var. Þar var stolið
30.000 í peningum. Einnig var
brotist inn að Heiðarvegi 25 á
sunnudaginn var og stolið einhverju
lítilræði afáfengi. Lögreglan óskar
eftir upplýsingum, ef einhverjir
hafa orðið grunsamlegra manna-
ferða varir á þessum stöðum.
Grindogtvö
hjól
Þrír þjófnaðir voru tilkynntir.
Einhvem virðist hafa vantað grind
framan á bifreið sína og sótt sér
hana leyfislaust á annars manns
bifreið, enda rnálið tilkynnt lög-
reglu sem leitar nú grindarinnar.
Einnig var tveimur reiðhjólum
stolið, en annað hjólið er bless-
unarlega kornið í hendur eigenda
sinna.
Skemmdar-
vargar
Töluvert var um tilkynningar vegna
skemmdarverka eða alls um níu.
Um var að ræða hin ýmsu
skemmdarverk. Meðal annars
málun á grindverk. rispur og krot á
bifreiðar, rúðubrot o.s.fr.
Hraðaksturog
smáéhöpp
Einungis sjö ökumenn voru kærðir
vegna umferðarlagabrota. Tveir
voru kærðir fyrir fyrir hraðakstur.
Ók annar á 73km/klst. á Ham-
arsvegi en hinn á 71 km/klst. á sama
stað. Tvö umferðaróhöpp voru
tilkynnt, en þau voru bæði minni
háttar.
Högg á hendl
Eitt minni háttar vinnuslys var
tilkynnl til lögregu í síðustu viku.
Maður hafði verið að bora með
handborvél og fékk högg á hendi,
þegar borvélin festist.
ÁTVR sækir um
starfsleyfi
Fyrir bæjarráði á mánudaginn lá
bréf frá ÁTVR þar sem sótt er um
leyfi til reksturs vínbúðar að
Slrandvegi 50. Bæjarráð var sam-
þykkt erindinu.
Hugmyndir um að auka
veg Nánúrugripasafnsins
Krsitján f orstöðumaður við Ullögurnar sem verða til sýnis I safninu næstu daga.
Fiska- og náttúrugripasafnið í Vest-
mannaeyjum hefur lengi átt við
þröngan kost að búa og þykir sýnt
að ef ekki verði brugðist skjótt við
þörfum safnsins um stækkun
þannig að það þjóni því fræðahlut-
verki sem nútíminn krefst af slíkum
stofnunum, muni safnið dragast
aftur úr og daga uppi sem nátttröll.
Samt sem áður liafa aðstandendur
safnsins reynt að gera safnið eins
líflegt og mögulegt er miðað við
þann kost sem því er búinn. Safnið
verður 35 ára á næsta ári og ekki úr
vegi að gert verði myndarlegt átak í
málefnum safnsins. Hugsanleg stað-
sctning á nýju safni er í
Skansfjörunni.
Nú hefur safnið fengið tillögur að
framtíðarsýn og hugmyndum að nýju
fyrirkomulagi og áhersluþáttum í
starfi safnsins. Tillögurnareru unnar
af Ævari Harðarsyni í nánu samstarfi
við forstöðumann safnsins Kristján
Egilsson. Ævar mun vera einn hæfsti
maður sem völ er á til þess að vinna
að þessu verkefni, enda kynnt sér
sjávarlífssöfn víða um heim. Til-
lögumar em ekki hönnunartillögur að
byggingu, enda liggja ekki fyrir for-
sendur og hugmyndir að slíku.
Lagt er upp með það að Fiska- og
náttúrugripasafnið verði í auknum
mæli að kynna náttúrufar, dýralíf og
mannlíf í Vestmannaeyjum. „Áhersla
verður lögð á smáhveli, nytjafiska,
sjófugla, jarðfræði og manninn sem
lifað hefur á því að nýta náttúm-
auðlindir lands og sjávar. Umhverfið
verður í auknum mæli notað sem
„lifandi kennslubók" í náttúm- og
samfélagsfræði. Gestir verða leiddir
með gönguleiðum um fræðslusýn-
ingar um náttúruna til dæmis með
þemaheiti „Frá landi til hafdjúpanna“.
Helstu áherslusvið í starfseminni
verði fræðslusvið og þjónustusvið.
Að auki er ýmis stoðstarfsemi hugs-
anleg sent gæti tengt hina ýmsu
starfsemi saman. Megin áherslan á
starfseminni verður á náttúrusafnið.
Þar er viðfangsefnið lífríki hafsins,
fiskar og sjávardýr. Smáhvelum
verður gert sérstaklega hátt undir
höfði. Mikið er af háhyrningum og
öðm smáhveli í umhverfinu og nýjasti
íbúi svæðisins, Keikó hefur mikla
þýðingu í því samhengi. Kynning
verður á sjófuglum og öðmm fuglum
sem hafa fasta búsetu á eyjunum eða
dvelja þar sem gestir, einnig verður
jarðfræðinni og mótun eyjanna ásamt
gróðurfari gerð viðunandi skil.“
Kristján segir að ntikill áhugi sé
einnig fyrir því að taka inn hugmyndir
Þorsteins Inga Sigfússonar, sem hann
kennir við Delfi umhverfisins. „Þetta
em hugmyndir um að setja upp
aðstöðu til þess að koma á framfæri
upplýsingum um ástand umhverfisins
með margmiðlun unt Intemetið."
í dag 16. júlí verður opnuð sýning á
þessum tillögum og mun hún standa
til 23. júlí og verður opin frá kl. 11:00
- 17:00 alla daga og rétta að hvetja
Vestmannaeyinga til þess að mæta og
kynna sér framtíðarsýn safnsins.
Vatnslistaverk I tilefni 30
ára afmælis Vatnsueitunnar
Vatnslistaverkið uerður komið fyrír á Stakkagerðistúni.
í tilefni af 30 ára afmæli vatns-
lciðslunnar milli lands og Eyja hafa
Bæjarveitur Vestmannaeyja á-
kveðið að gefa Vestmannaeyjabæ
vatnslistaverk.
Friðrik Friðriksson veitustjóri segir
að áhugi sé fyrir því að setja verkið
upp á Stakkagerðistúni. „Endanlegt
skipulag Stakkagerðistúnsins liggur
reyndar ekki fyrir, en það er von okkar
að verkið verði haft inni í myndinni
þegar endanlegt skipulag svæðisins
liggur fyrir. Við munum afhenda
gjafabréf núna í tilefni afmælisins og
vonumst til að verkið verði sett upp á
næsta ári.“
Það er Kjartan Mogensen lands-
lagsarkitekt sem hannað hefur verkið
og umhverfi þess. Verkið er u.þ.b.
þriggja metra hátt úr slein eða málini.
Umhverfis það verður tjörn, en vatn
mun renna upp úr verkinu á einurn
stað. Síðan rennur það fram af
verkinu á tveimur stöðum og í
tjömina. Einnig verður drykkjarfontur
við verkið. Umhverfis verkið verða
svo bekkir í skjóli fyrir austan áttum
þar sem fólk getur setið á
góðviðrisdögum.
Málverkog
framhald
goslokahátíðar
Fyrsti fundur Menningarmála-
nefndar á nýju kjörtímabili var
haldinn miðvikudaginn áttunda júlí
sl. í nefndinni eru Sigrún Inga Sig-
urgeirsdóttir lbrmaður, Hjálmfríður
Sveinsdóttir varaformaður og
Ólafur Lámsson ritari.
Meðal mála sem tekin vom fyrir
á fundinum var bréf sem barst frá
Bárði G. Halldórssyni, þar sem
hann býður málverk eftir Kristján
Magnússon til kaups á kr. eina og
hálfa milljón. Myndin er.máluð
1930. Kristján er fæddur á ísafirði
árið 1903 og lést árið 1937 og mun
lengstum hafa starfað í Banda-
ríkjunum. Hann mun hafa komið
við í Vestmannaeyjum á sínum
tíma og málað nokkræ myndir.
Þess rná geta að Byggðasalnið á
eina ntynd eftir Kristján, en hún var
ein mynda sem kom úr gjöf
Fiskiðjunnar þegar hún var lögð
niður.
Annað mál sem kont inn á borð
nefndarinnar var útskrift úr
bæjarráði þar sem bæjarstjóra og
menningarmálafulltma í samráði
við menningannálanefnd er falið að
vinna að tillögum í framhaldi af
goslokahátið og skila til bæjarráðs.
Nýstíórn
Heimaeyjar
Bæjarráð hefur tilnefnt aðila í
stjóm Kertaverksmiðjunnar Heima-
eyjar. Eftirtaldir aðilar em til-
nefndir. Ingimar Georgsson, Þröst-
ur Gunnarsson, Hanna María
Sigurgeirsdóttir og Páll R. Pálsson.
Úskareftír
samstaifi
Lögreglan óskar eftir samvinnu við
bæjarbúa við að uppræta fíkniefni
I ljósi þess að nokkuð af fíkniefnum
hafa fundist hér í Vestmannaeyjum
að undanfömu óskar lögreglan eftir
santvinnu við bæjarbúa við að
uppræta þennan ófögnuð. Þeir sem
geta gefið einhverjar upplýsingar
varðandi fólk sem er í neyslu.
dreifíngu, eða sölu fíkniefna em
hvattir til að hafa samband við
lögreglu í síma 481-1666 eða
síntsvara 481 -1016.
Fyrstfundur
veitustiórnar
Nefndir, ráð og stjómir á vegunt
bæajrins em nú að halda sínu fyrsrn
fundi hver af annarri á á nýbyrjuðu
kjörtímabili. Stjórn Bæjarveitna
hélt sinn fyrsta fund í síðastu viku
en hana skipa fris Þórðardóttir,
Auróra Friðriksdóttir, Ragnar
Óskarsson, Guðjón H jörleifsson og
Andrés Sigmundsson.
EYJAM IÐSTÖÐIN
The "Islands' Centre'
[ FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söiuskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.