Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.1998, Síða 15
Fimmtudagur 25. júlí 1998
Fréttir
15
Landssímadeildin 10. umferð: ÍBV 3 -Þróttur 0
Steinsrímur með þrjú
-Er langmarkahæstur 03 er þetta önnur þrenna hans í sumar
Þessir fyrrum félagar í ÍBV eru markahæstír í Landssímadeildinni. Steingrímur
hefur skorað 14 mörk í 11 leikium og harf aðeins að skora sex mörk í sjö leikjum
til að slá markakóngsmetið. Tómas Ingi hefur skorað níu mörk og til samans
hafa heir huí skorað 23 mörk en til gamans má geta hess að ÍBV hefur skorað
26 mörk hað sem af er en næstu lið ekki nema 18 mörk.
Jafntefli og tap hjá
KFS
KFS sótti ekki gull í greipar Vík-
inga frá Ólafsvík í 3. deildinni þegar
Eyjamenn máttu þakka fyrir að ná
jafntefli 6-6.
Staðan í hálfleik var 3 - 2 Ól-
afsvíkingum í vil og höðfu þeir 6-3
yfir þegar 15 mínútur voru til
leiksloka. Þá kom Eyjabaráttan.
eins og hún gerist best, til skjalanna
og bjargaði einu stigi.
Mörk KFS: Jóhann Sveinn
Sveinsson 2, Stefán Bragason 1,
Haraldur Bergvinsson 1, Yngvi
Borgþórsson 1 og Magnús Stein-
dórsson I.
KFS gekk heldur betur á móti
Snæfelli. Þar náðu Eyjamenn fram
1 - 2 sigri með mörkum Jóhanns
Sveins og Yngva.
í fyrri leiknum var Magnús
Steindórsson bestur en Gestur
Magnússon var ásamt Jóhanni
Sveini jafnbestur í leikjunum.
Bestur KFS-manna í seinni
leiknum var Sigurgeir Viktorsson
markmaður en hann kom inn á
vegna meiðsla aðalmarkvarðar.
Einnig var Sigurður Smári Benó-
nýsson frábær.
Eftir fyni leikinn var haldinn
neyðarfundur vegna lélegs vam-
arleiks og skilaði hann sér beint í
seinni leikinn.
KFS var án nokkurra lykilmanna
í þessari ferð á Snæfellsnesið en í
liðið vantaði Heimi Hallgríms, Jón
Braga. Sigga Gylfa, Erling Rikka,
Kára Hrafnkels, Helga Braga.
Félagið á nú eftir fjóra heimaleiki
en hefur lokið við alla útileikina.
Saðan í 3. deild
Afturelding 9 leikir 21 stig
KFS 10 leikir 19 stig
Léttir 9 leikir 15 stig
Bruni 9 leikir 15 stig
Gunnar Heiðar í
landsliðið
Gunnar H. Þoi'valdsson, leikmaður
með 3. og 2.flokki ÍBV. hefur verið
valinn í 16-manna hóp drengja-
landsliðsins í knattspymu. Gunnar
er mikið efni, og hefur heldur betur
verið á skotskónum, með sínum
flokki í sumar.
Framundan
Föstudagur24.júlí
K1.20:00 mfl.kv Coca-Cola
bikar kvenna
3. d. ka KFS - Hamar
Sunnudagur 26.júlf
Kl. 14:00 3.fl.ka ÍBV - Þróttur
Reykjavík.
Þriðjudagur 28.júlí
Kl. 20:00 mfl. kv. ÍBV - Breiðablik
Miðvikudagur 29.júlí
kl.20:00 Mfl.ka ÍBV - Obilik
í Evrópukeppni meistaraliða.
Venni úr leik
Sigurvin Ólafsson, miðvallarleik-
maðurinn snjalli. er úr leik í sumar.
Venni var ásamt félögum sínum í
úteyjarferð f Suðurey, þegai- hann
slasaðist alvarlega í síðustu viku.
Sköflungurinn brotnaði illa, og að
auki tá-og ristarbrotnaði Venni.
Þetta er mikið áfall fyrir bæði hann
og ÍBV-liðið.
Sjómannamótið laugardag
Hið árlega sjómanna- og útvegs-
mannamót GV og Ismar verður á
laugardaginn. Vakin er athygli á
auglýsingu á bls. 11.
Eyjamenn fengu spútniklið Þróttar
úr Reykjavík, í Landssímadeildinni
á laugardag. Leikið var í blíð-
skaparveðri á frábærum Hásteins-
velli. Leikurinn var frábær
skemmtun og voru yfírburðir IBV
þó nokkrir og lauk leiknum með
sigri heimamanna 3 - 0. Fyrirfram
var búist við einvígi markahæstu
manna deildarinnar, Steingríms
Jóhannssonar hjá IBV og Tómasar
Inga Tómassonar Eyjamannsins í
liði Þróttara. Því einvígi lauk með
yfirburðasigri Steingríms sem náði
að skora þrennu í leiknum.
Nýliðar Þróttar náðu að halda
aðeins í Eyjamenn í fyrri hálfleik, þeir
vörðust mjög aftarlega, og beittu
nokkuð ógnandi skyndisóknum, en
þar var Tómas Ingi virkilega ógnandi.
En ÍBV hafði undirtökin allan fyrri
hálfleikinn. Það var samt ekki fyrr en
um 10 mínútur voru til leikhlés, að
Steingrímur Jóhannesson, skoraði gott
skallamark eftir sendingu frá ívari
Bjarklind, og einnig eftir hroðalegt
úthlaup hjá markmanni Þróttar.
Mikilvægt mark sem kom á mikil-
vægum tíma. í seinni hálfleik héldu
Eyjamenn áfram að þjarma að
gestunum, og spumingin var bara sú,
hvenær annað markið yrði að
veruleika. Það kom eftir gott spil upp
miðjuna, Jens Paeslack, gaf góða
sendingu fyrir og hver annar en
Steingrímur var mættur til að skora af
stuttu færi. Á lokamínútum leiksins
skoraði Steingrímur þriðja mark ÍBV,
og sitt þriðja mark í leiknum, eftir
góða stungusendingu frá Inga
Sigurðssyni. Þannig urðu lokatölur
leiksins, sannfærandi 3 - 0 sigur.
Saetur
Nú er nokkuð ljóst að dómur vegna
kæru Stjörnunnar út af leik IBV og
Stjörnunnar í átta liða úrslitum
bikarkeppni kvenna í síðustu viku
mun verða ÍBV í óhag. Það var
engu líkara en Eyjastelpur hefðu
þetta á bak við eyrað þegar þær
tóku Stjörnuna í nefíð leik liðanna í
Eyjum á þriðjudagskvöldið. Urslit
leiksins urðu sex mörk gegn einu og
þar með komst IBV upp að hlið
Stjörnunnar með tíu stig.
ÍBV-stelpumar sýndu strax að þær
ætuðu sér ekkert nema sigur og fyrsta
markið kom strax á fjórðu mínútu
þegar Bryndís Jóhannesdóttir skoraði
glæsimark. ÍBV hafði vindinn í fangið
í fyrri hálfleik en þrátt fyrir það óðu
stelpumar í fæmm en tókst þó ekki
nema einu sinni að koma boltanum í
mark andstæðinganna. Þar var íris
Sæmundsdóttir að verki.
Fyrri hluti seinni hálfleiks var algjör
einstefna að marki Stjömunnar.
Hjördís Halldórsdóttir fór fyrir
Eyjastelpum og skoraði tvö fyrstu
mörkin í hálfleiknum, á 1. og 10.
mínútu. Eftir það fór að bera á
einbeitingarleysi hjá ÍBV og á 20.
rnínútu tókst Stjömunni að skora sitt
fyrsta og eina mark. Þá tók Olga
Stefánsdóttir málin í sínar hendur,
skoraði tvö mörk og þar með varð
niðurlæging Stjömunnar algjör.
Best í liði ÍBV var Anna
Rentschler, stjómaði vel á miðjunni
og sótti óhikað í andstæðingana.
LiðÍBV: Petra 7 - Fanný 7, Ema 7,
Sigríður Á 8, Kristín E. 6) - Elena 8,
Bestu menn ÍBV í leiknum voru þeir;
Hlynur Stefánsson, sem hélt Tómasi
Inga alveg niðri í leiknum. Kristinn
Hafliðason og Ivar Ingimarsson voru
og afgerandi á miðjunni og síðan en
ekki síst, maður leiksins, Steingrímur
Jóhannesson, sem lék óaðfinnanlega í
þessum leik. Steingrfmur er nú
kominn með 14 mörk í deildinni og
Anna 9, Hrefna 7 (Dögg L. 5), Hjördís
8 (Jóna Heiða 5)- íris 8, Bryndfs 7
(Olga 8).
Sigur en tap í bikarnum?
Á miðvikudagskvölið í síðustu viku
áttust við IBV og Stjarnan í 8 -liða
úrslitum Coca-Cola bikarsins í knatt-
spymu. Leikurinn fór fram á Há-
þarf nú aðeins að skora sex mörk í
þeim sjö leikjum sem eftir eru af
mótinu, til þess að slá markametið.
Lið ÍBV: Gunnar 7 - ívar 7, Hlynur
8, Zoran 7, Kjartan 7(Hjalti 6) - Ingi 6,
Kristinn H. 7, ívar I. 7, Kristinn L. 6(
Jens 6), Steinar 6(Guðni 6) -
Steingrímur 9.
steinsvelli, við mjög góðar aðstæður
og lauk með 2 - 0 sigri ÍBV. Þrátt
fyrir sigurinn er ekki útséð um fram-
haldið vegna kæru Stjömunnar.
Dórnur verður að liggja fyrir í dag eða
á morgun því annað kvöld verður
leikið í undanúrslitum þar sem annað
hvort ÍBV eða Stjaman mætir
Breiðabliki.
Bikardraumurinn úti
Annar tlokkur karla, fékk lið
Keflavíkur f heimsókn, síðastliðinn
föstudag. Þetta var leikur í bikar-
keppni KSÍ, og því að duga eða
drepast. Þarna mættust tvö af betri
liðum landsins og var rnikið í húfi í
þessum leik. Jafnræði var með
liðunum fyrri hluta leiksins, en
staðan í hálfleik var, 2-1. Fyrirliði
IBV, Bjami G. Viðarsson, var rek-
inn útaf í fyrri hálfleik, vegna
tveggja gulra spjalda, sem og einn
Keflvíkingur. Magnús Elíasson,
skoraði bæði mörk ÍBV í fyrri
hálfleik. fyrst eftir gott spil og
seinna markið gerði hann eftir
stungusendingu. En í byrjun seinni
hálfleiks gerðu Keflvíkingar tvö
mörk með stuttu millibili, og náðu
undirtökunum í leiknum. Fjórða
mark gestanna kom um miðjan
seinni hálfleikinn, og nteð þvf
marki fengu Eyjamenn rothöggið.
Lokatölur leiksins urðu því, 2-4, og
ÍBV þar með úr leik í bikarnum.
Magnús Elíasson, átti bestan leik
Eyjapeyja, en aðrir geta mun betur.
Miðað við mannskapinn, sem ÍBV
hefur á að skipa, þá er liðið alls ekki
að spila góðan bolta og eiga
strákamir mun meira inni.
Stelpurnar í góðum
málum
Annar flokkur kvenna lék við
Stjömuna í síðustu viku. Leikið var
í Garðabæ, og lyktaði leiknum með
jafntefli, 1-1. Mark ÍBV skoraði
Hjördís Halldórsdóttir.
Á sunnudaginn var fengu stelp-
urnar síðan FH í heimsókn, og
endaði leikurinn með sigri ÍBV, 5-
0. eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 2-0. Hanna, Hjördís H.,
Hrefna, íris og Hjördís J. skoruðu
mörkÍBV.
Gunnar meó fjögur
Þriðji flokkur karla fékk KA frá
Akureyri f heimsókn í síðustu viku.
Eyjamenn áttu ekki í vandræðum
með gestina að norðan, og sigruðu
örugglega, 6-0. Gunnar H. skoraði
fjögur mörk í leiknum, en þeir Atli
og Bjami R. eitt mark hvor.
Sætur sigur hjá
strákunum
Strákamir í tjórða flokki hafa staðið
sig framar vonum í sumar. Nú
síðast lögðu þeir lið Leiknis úr
Reykjavík, með fjórum mörkurn
gegn einu. Víðir Róbertsson gerði
þrennu í leiknum og Andri Ólafsson
skoraði eitt mark.
Fimmti flokkur á
skotskónum
Fimmti flokkur karla spilaði við
Leikni úr Reykjavík, síðastliðinn
fimmtudag. Hjá a-liðunum endaði
leikurinn, 5-1 og skoruðu þeir
Björgvin 3 og Grétar 2 mörk. B-
liðiö burstaði sinn leik, 15-0, og
meðal markaskorara voru þeir;
Einar K., Garðar Ó, Bjami, Ragnar,
Steingrímur, Hersir, Sævald og
Þorgils O.
Leiðrétting
í grein um úrslit í Vestmanna-
eyjamótinu í fimleikum féllu niður
tvö nöfn. Kristrún Ósk Hlynsdóttir
og Ása Guðrún Guðmundsdóttir
sem féngu 9,80 á dýnu.
ÍBV átti flesta keppendur á Guli og silfur mótinu í Kópavogi þar sem
eigast við yngri flokkar kvenna í knattspyrnu. ÍBV náði einum
meístaratitli. Var pað hinn ósigrandi 4. flokkur A sem hampaði enn einum
titlinum. Aðrir flokkar ÍBV náðu einnig góðum árangri sem greínt verður
frá í næsta blaði.
Efri röð f.v. Karítas Þórarinsdóttir, Berglind Jóhannsdóttír, Ásta Hrönn
Guðmannsdóttír, Eyrnn Haraldsdóttir og Erna Sævarsdóttir.
Heðri röð f.v. Margrét Lára Viöarsdóttir, Hanna Carla Jóhannsdóttir, Halla
Björk Hallgrímsdóttír og Sara Sigurlásdóttír.
Meistaradeild kvenna: ÍBV 6 - Stjarnan 1
hefndarsisur