Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.1998, Side 16
Leikurinn verður í Eyjum
ÍBV leikur heimaleikinn gegn júgó-
slavnesku meisturunum FK Obilic
í forkeppni Meistaradeildar Evr-
ópu nk. miðvikudag, 29. júlí, í
Eyjum. Undanþága hefur fengist til
þess að leikurinn fari fram hér.
Þorsteinn Gunnarsson, hjá ÍBV segir
að þjóðhátíðarstemmningin hetjist á
miðvikudaginn með Evrópuleiknum.
„Vonandi ntæta sem flestir til að
hvetja strákana. Það hefur kostað
mikla fyrirhöfn að fá að spila leikinn í
Eyj-um, völlurinn er á undanþágu þar
sem aðstaða fyrir áhorfendur er ekki
samkvæmt Evrópustöðlum.
Stuðningsmannaklúbbur ÍBV verður
með skemmtikvöld á þriðjudag sem
verður auglýst nánar.
Umferð um svæðið verður mjög
takmörkuð, bílastæði ekki leyfð
sunnan og austan vallar og það sýnt
með skiltum. Dómarar í leiknum
verða skoskir en eftirlitsdómari frá
Belgíu. Þess má geta að nýja búnings-
aðstaðan við Týsheimilið verður tekin
í notkun í Evrópuleiknum.
Mildi var að ekki varð stórslys inni í Herjólfsdal uni klukkan 16:30 í gær,
þegar mannlaus vörubifreið ók á austustu sjoppuna sem nýbúið er að setja
upp í tilefni Þjóðhátíðar.
Aðdragandi slyssins var með þeint hætti að verið var að ýta mannlausri
vörubifreiðinni í gang með traktorsgröfu, með þeim „ágæta“ árangri að
vörubifreiðin fór í gang og hélt sem leið liggur að sjoppunni. Bifreiðin
stórskemmdi sjoppuna og rafmagnsskáp sem var utan við hana, auk þess
að skekkja hluta sjoppulengjunnar og hljómsveitarsviðið á bakvið.
Tvær stelpur höfðu verið upp á þaki sjoppunnar við að mála og ný-
komnar niður af þakinu, þegar vörubifreiðin skall á sjoppunni. Töluvert
sá einnig á vörubifreiðinni. Þykja stelpurnar hafa sloppið með skrekkinn.
Mörg börn voru og við málningarvinnu hjá sjoppunni og í ljósi þess þykir
uppátæki þetta og tilgangur hinn undarlegasti.
Hjálmurinn bjargaði
Það slys varð um borð í Antaresi
VE sl. fóstudag að svonefndur haus
á nótaleggjara féll ofan á einn
skipverja og slasaðist hann nokkuð.
Hann var þegar í stað fluttur á
Borgarsjúkrahúsið í Reykjavík þar
sem óttast var að meiðsli hans væru
alvarlegs eðlis. Svo reyndist þó ekki
vera og í fyrradag kom hann til Eyja
þar sem hann liggur nú á
Sjúkrahúsinu. Hann er hvergi brotinn
en talsvert skrámaður og rnarinn. Að
sögn lækna hefur hann sloppið
ótrúlega vel og er það ekki síst þakkað
því að hann var með öryggishjálm.
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
Doyligflr hríhr hwf á iuf mi w.
Vöruafgreiðsla
Mdldingovegl 4 Mal 4S1 3440
Vöruafgreiðsla í Reykjavik
Aðatflutningar Héðinsgötu 3
Sínl 581 3030
Öll mþttaka ferðamanna, skóla- ogy'þróttahópa
()l)j K \SH KOS11 RIW II VH M
1927® 4811909 - 896 6810
J
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
S£MðÍFEBM8ÍLL
n481-2943,
* 897-1178
Þessar hressu stúlkur, og einn karlmaður, lögðu af stað í 55 km göngu, eftir Laugaveginum, leiðinni milli
Landmannalauga og Þórsmerkur, í fyrradag. Fararstjóri frá Ferðafélagi íslands, Kristján Jóhannesson, verður
þeim til halds og trausts í ferðinni, en hann var hér á ferð í síðustu viku og gekk með þeim á lokaæfingunni.
Ferðin tekur fjóra daga og I dag ganga þær frá Álftavatni og niður í Emstrur. Þaðan fara þær á morgun síðasta
spölinn niður f Þórsmörk, þar sem þær munu dvelja fram á sunnudag.
Stef nir í mikla aðsókn
Svo virðist sem aðsókn ætli að
verða góð á þjóðhátíð í ár, allavega
ef marka má fyrirspurnir og
bókanir í flugi, svo og hvernig
gengið hefur í forsölu á ntiðuni.
Forsala aðgöngumiða er í Spari-
sjóðnum. Erna Þórarinsdóttir, gjald-
keri, sagði í samtali við blaðið f gær
að búið væri að selja um 200 miða eða
svipað og í fyrra. „Þetta fer yfirleitt
rólega af stað en svo koma kippir í
það á milli," sagði Ema. Hún sagðist
eiga von á kipp í söluna í dag þar sem
fimmtudagur er víða útborgunardagur
launa.
Hjá BSÍ í Reykjavík er einnig forsala
aðgöngumiða. Raunar hófst sú sala
ekki fyrr en sl. mánudag en
samkvæmt upplýsingum sem þar
fengust í gær hefur verið mikil traffík
þá þrjá daga sem salan hefur verið í
gangi.
Arnar Richardsson hjá Flugfélagi
fslands sagði að þegar um sfðustu
helgi hefði allt flug félagsins á
föstudegi í þjóðhátíð verið upppantað.
„Það eru um 400 manns sem við
flytjum í ellefu eða tólf ferðum," sagði
Axnar. Amar sagði einnig að famar
yrðu sjö ferðir á laugardeginum en
enn væri laust pláss í einhverjum
þeirra..
Hjá íslandsflugi fengust þær upp-
lýsingar að mjög vel Iiti út með
aðsókn hingað. Þegar væri fullbókað
f þrjár ferðir á fimmtudag og tíu ferðir
á föstudag.
Magnús Jónasson, hjá Herjólfi, sagði
að hjá þeim væri nær allt fullbókað
fyrir bíla, bæði í næstu viku og svo
vikuna eftir þjóðhátíð. „Það er ntikið
búið að hringja og spyrja, bæði um
ferðir og verð, mun meira en á sama
tíma í fyrra. Mér sýnist á öllu að það
komi til með að verða mikil aðsókn á
þjóðhátíð að þessu sinni," sagði
Magnús Jónasson.
Trix
nestispokinn
/ E. Finnson\
sinnep 450 gr
Libbys
tómatsósa
794 gr. kt. 149
x T rix
heimilispokinn
Egils X-Orka 8x0,5 Itr. kíf872
nnotakOTW'®8*®4
ttáhæruveröi ]
Mhc iiísKarUnítaporo.fl.]
Igils gosdrykkjatilboð
Þjóðhátíðarbolur fylgir hverri kippu
Pepsi kippa=6x2 Itr. kr. 951,- 894,
7upklppa = 6x2ltr. iií.354- 894,