Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Side 1
Mikið var um dýrðir á lokahófi yngri flokkanna í fótbolt- anum á laugardaginn. Sjá nánarbls. 18. Sjómannafðlagið Jötunn virðir ekki ðskir áhafnarinnar um frí segir Guðmann Magnússon, skipstjóriú Ofeigi Frétt blaðsins í síðustu viku, um lögskráningu áhafnar Ofeigs VE á Grundarfirði, vakti nokkra athygli. Fréttir slógu á þráðinn til Guð- manns Magnússonar, skipstjóra á Ófeigi og spurðu hann hvernig þetta mál snerti áhöfnina. „Ég fæ ekki séð að þetta breyti nokkru hjá okkur,“ sagði Guðmann. „Annars er þetta mál svo skrýtið að við um borð skiljum bara ekki um hvað það snýst. I raun eru þessar breytingar vegna kröfu Sjómannafélagsins Jötuns. Við höfum landað á Grundarfirði og hefðum átt að taka hafnarfn þar, ijórum sinnum í rnánuði. Krafa Jötuns var að við söfnuðum saman þessum fríum, fjórum sólarhringum og tækjum það frí í Vestmannaeyjum einu sinni í mánuði. Þetta vildi mannskapurinn ekki, hvorki safna þessum fríum né taka heilan sólarhring á Grundarfirði. Menn tóku sér bara frí sjálfir eftir ákveðinn tíma og fóru til Vestmanna- eyja á kostnað útgerðarinnar. Ahöfnin skrifaði meira að segja undir yfir- lýsingu um þetta, þannig vildu menn hafa þetta. Við stöndum ekki í neinu ströggli við útgerðina, það er sjómannafélagið sem vill hafa annan hátt á og þess vegna standa þessi mál svona. Ég er búinn að leita til míns stéttarfélags og fá á hreint að ég hef verið að gera rétt enda hlýtur áhöfnin að vera í rétti til að haga þessum hlutum eins og henni þykir best. Mér finnst líka eins og við höfum verið lagðir í hálfgert einelti. Af hveiju erum við kærðir en ekki aðrir? Það er fullt af skipum sem eru á því sem ég vil kalla grá svæði en þau eru látin afskiptalaus. Ég vil líka benda á að á sínum tíma, þegar Austfjarðabátamir komu hingað á vertíð þá var lögskráð á þá í Vestmannaeyjum. I mínum huga skiptir þessi skráningarstaður ekki meginmáli í dag. Það er komin á tölvuskráning alls staðar á landinu og skiptir í raun ekki höfuðmáli á hvaða stað hún fer fram," sagði Guðmann Magnússon, skipstjóri á Ófeigi VE. „Þessi háttur hefur verið hafður á, þessi haust sem við höfum landað á Grundarfirði,“ sagði Bergur Kristins-2 son, stýrimaður á Ófeigi. „Skipið hefur ekki stoppað en menn hafa tekið sér launalaust frí eftir tvo til þrjá túra. Ég held að það hafi verið upp og ofan hvort menn voru ánægðir með þetta fyrirkomulag. Surnir voru ánægðir, aðrir ekki. En við erum á leið tii Eyja núna og tökum sennilega a.m.k. sólarhring í frí. Og ég veit ekki til að neinn um borð hafi pantað sér flug til Grundarfjarðar," sagði Bergur. Oánægja hjá foreldrum með skóladagheimilið Vestmannaeyjabær hefur rekið skóladagheintili fyrir börn á grunn- skólaaldri. Skóladagheimilið er fyrir börn í Hamarsskóla og Barnaskóla Vestmannaeyja sem þurfa á vistun að halda, eftir að kennslu lýkur í skólanum. Nokkurrar óánægju hefur gætt með skóladagheimilið vegna þess hversu langir biðlistar hafa myndast, en boðið er upp á pláss fyrir 17 börn og mun það ekki nærri nóg miðað við eftirspurn. Einnig hefur það þótt undrum sæta nieðal foreldra sem eiga börn á skóladagheimilinu hversu aðstaðan fyrir börnin innan dyra er á allan hátt ófullnægjandi og að ekki sé litið til með þeim úti. „Það er fráleitt að bjóða einungis upp á 17 pláss þar sem um hundrað sex ára böm voru að byrja í skóla og þá em þau sem eldri em ekki talin með. Það eru að sjálfsögðu misjafnar fjöl- skylduaðstæður þannig að oft geta eldri systkin passað yngri eða einhverjir nákomnir en það em ekki allir svo heppnir og því er nauðsynlegt að hér verði komið á fót góðu skóla- dagheimili sem helst er staðsett nálægt skólanum. Það er fjöldi foreldra óá- nægður með skóladagheintilið sem boðið er upp á núna. Það er engin aðstaða fyrir bömin til þess að læra og þeim er beinlínis bannað að læra á skóladagheimilinu, það vantar sjálf- sagða hluti eins og til dæmis borð og stóla og tvær konur em í starfi þama sem eiga að hafa ofan af fyrir bömunum. Það er engin gæsla á lóðinni og þau böm. sem frökkust em, geta stolist í burtu og ég veit dæmi þess að þegar foreldrar hafa ætlað að ná í böm sín, þá em þau horfin. Og miðað við hversu léleg aðstaðan er finnst mér út í hött að greiða fyrir þessa þjónustu eins og um leikskólapláss væri að ræða, þar sem fólk getur þó treyst á fagmenntað fólk sem sér um bömin og aðstæður em í lagi,“ sagði Áslaug Rut Áslaugsdóttir sem á bam á biðlista. Hún segir að þar sem boðið sé upp á vistun á skóladagheimili ætti að vera aðstaða fyrir þau. Hún segir að þeim sem ekki komist að eða lenda á biðlista sé vísað á dagmömmu, sem er þá að gæta miklu yngri bama líka og er það varla boðlegt. „Eina móður veit ég um sem varð að minnka vinnu sína vegna þess að hún fékk ekki skóladag- heimilispláss og verður að vera þeima eftir hádegið með bami sínu. Ég hef ekki kost á að rninnka mína vinnu og maðurinn minn er einnig að vinna fullan vinnudag. Margir hafa þó leyst þetta vandamál með því að fá pössun hjá vinum og vandamönnum.“ Áslaug Rut segir að hún hafi leyst málið með því að hafa sex ára dóttur sína á róluvelli eftir að hún hefur lokið skólanum á hádegi. „Hún gengur svo til mín í vinnuna eftir fjögur á daginn og auðvitað er mikið óöryggi og stress samfara því. Ef hins vegar veðrið er vont hef ég getað fengið pössun hjá vinkonum mínum. Mér finnst það hins vegar ekki rétt að konur eigi ekki að geta verið á vinnumarkaði allan daginn vegna þess að ekki fæst pláss á skóladagheimili, eins og sjálfsagt er til dæmis í Reyjavík." Hvaða svör hefur þú fengið hjá skólamálayfirvöldum? „Dóttir mín er reyndar komin efst á biðlistann núna, svo að einhveijir hafa hætt við eða fengið aðra úrlausn sinna mála. Mér finnst hins vegar að skólinn eigi að sjá um að veita þessa þjónustu og að hún sé þá í samræmi við !ög og reglur sem hljóta að vara til um þessa vistun, enda sé þá innheimt fyrir þessa þjónustu í samræmi við það. Ég hvet skólamálaráð til að framkvæma könnun þar sem athugað er hvort foreldrar myndu ekki nýta sér skóladagheimilpláss ef til staðar væri nútímalegt skóladagheimili sem væri með viðunandi aðstöðu fyrir bæði bömin og þá sem þar vinna!!“ Sjá blaðsíðu 2. Jórunn Lilja var stjarna kvöldsins á Eyjakvöldi Fjörunnar um helgina. Sjá bls. 13. Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉUINGAR OG SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 481 1535 VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ: Græðisbraut 1 -sími 481 Herjólfur fer í slipp Fagranesið siglir 10.október til 4. nóvember Frá Eyjum Frá Þorl.höfn Alla daga 8.15 13.00 Ucrjólfur /rúcw/i/id Sími 481 2800 Fax 481 2991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.