Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Qupperneq 19

Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Qupperneq 19
19 Golf: Síðasta mót sumarsins hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja Baendaslíma með stæl Síðasta golfmót sumarsins hjá Golf- klúbbi Vestmannaeyja, Bænda- glíman, var haldið á laugardag. Veður hefði mátt vera betra, gekk á með útsynningi og rigningar- hryðjum og m.a. vegna þess heltust nokkrir úr lestinni vegna kulda og vosbúðar. Bændur voru þeir Júlíus Hallgríms- son, frá Uppsölum, sem nefndi lið sitt Liverpool eftir allþekktu knattspymu- liði ensku og Friðrik Sæbjömsson, frá Útistöðum en hann nefndi lið sitt Arsenal eftir ekki óþekktara liði. Mættu þeir bændur, að gömlum íslenskum sið, ríðandi í hlað og tilkynntu liðsskipan sína. Að því búnu stormuðu liðin tvö út á völl og hófu golfleik. Að þessu sinni var fyrir- komulag keppninnar svokallað Texas scramble en þá keppa tveir og tveir saman og velja alltaf betri bolta. Þrátt fyrir óhagstætt veður var árangurinn góður hjá flestum hverjum. Af 28 keppendum luku 24 keppni, fjórir gáfust upp vegna vosbúðar og kulda. Skipti þá engu þótt flestir væm vel nestaðir með franska og skoska brjóstbirtu eins og þykir hæfa í hófi á þessu móti. Slík var vosbúðin hjá þeim hópi að engin hlýindameðöl komu að gagni og endurheimtu þeir fjórmenningar ekki heitfengi sitt og gleði fyrr en líða tók á kvöld. Flestir luku keppni um hálfsjöleytið en einum hópnum dvaldist nokkru lengur á vellinum og lauk ekki keppni fyrr en rúmlega kl. sjö að kvöldi í náttmyrkri. Varsáhópuríumsjáfor- manns Golfklúbbsins og hafði hann með sér í för m.a. tvo golfleikara af Þessir þrír mænu að sjálfsögðu f Bændaglímuna og bíða hér úrslita. Frá uinstri. feðgarnir Leifur og Gunnar Stefánsson frá Gerði og Leifur Ársælsson. Nafnarnír voru saman í liði Júlíusar og mánu játa sig sigraða í sínum leik en hrúsuðu hins vegar sigri í liðakeppnínni har sem félagar heirrastóðusig öllubetur. Gunnar Stefánsson var svo sæmdur gullmerki GSÍ í hófi að leik loknum en alls voru sex félagar úr Golfklúbbi Vestmannaeyja sæmdir heiðurs- merkjum Golfsambandsins að bessu sinni. veikara kyninu. Sögðu illar tungur það ástæðu þess hve keppni þeirra dróst á langinn og höfðu við orð að ýmiss konar myrkraverk hefðu verið í gangi. Úrslit urðu þau að lið Júlíusar, Liver- pool vann nauman sigur á Arsenal- mönnum Friðriks, með 10 vinningum gegn 8. Samkvæmt venju þjónaði tapliðið sigurvegurum til borðs í kvöldverði að lokinni keppni. Ritari GSÍ, Rósa M. Sigursteins- dóttir, mætti til leiks á Bændaglímunni og afhenti nokkrum félögum í GV merki sambandsins. Til stóð að það yrði gert á 60 ára afmælisfagnaði klúbbsins í haust en vegna veðurs komust GSÍ menn þá ekki hingað. Gullmerki GSI hlutu þau Gunnar Stefánsson og Jakobína Guðlaugs- dóttir og silfurmerki sambandsins hlutu Hallgrímur Júlíusson, Sigurjón Pálsson, Kristján Olafsson og Gunnar Gunnarsson. Þar með er lokið keppni hjá GV á þessu ári ef frá er skilið hið árlega Gamlaársdagsmót sem haldið er á gamlaársdag eins og nafnið bendir til. Bændurnir, Friðrik Sæbjörnsson frá Útistöðum og Júlíus Hallgrímsson frá Uppsölum. mænu til leiks á reiðskjótum frá hrossabóndanum Gunnari flrnasyni. í sjálfa keppnina fóru heir hins vegar á tveimur jafnf Ijótum. Þá er og ætlunin að halda í vetur klúbbsins verður svo í nóvember og Vetrarkeppni á laugardögum eins og verður hann auglýstur sérstaklega. gert var á síðasta vetri enda var góð aðsókn í bau mót. Aðalfundur __—. Meistaradeild kvenna: Valur 25 - ÍBV 14 Hrun í seinni hálfleik Eyjastúlkur léku við Val í síðustu viku í l.deildinni í handknattleik. Fyrir leikinn var ÍBV í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga, reyndar eftir tvo auðvelda leiki gegn nýliðum deildarinnar, IR og KA. En ÍBV-stelpur brotlentu heldur betur í þessuni leik og töpuðu með 11 marka mun, 25 - 14-. ÍBV lék ágætlega í fyrri hálfleik og gekk sóknarleikur liðsins vel fyrir sig og vömin stóð fyrir sínu. Valsstúlkur höfðu aðeins eins marks forystu í leikhléi, 10-9. I síðari hálfleik gekk hins vegar allt á afturfótunum og Valur skoraði hvert markið á fætur öðru, án þess að Eyjastelpur gætu svarað fyrir sig. „Vömin var mjög léleg og við ein- faldlega gerðum ekki það sem fyrir okkur var lagt. Engin stemmning var hjá okkur og liðið spilaði ekki sem eitt lið, heldur var hver í sínu homi að reyna að gera eitthvað. Seinni hálfleikurinn gegn Val ætti að vera okkur lexía og við vonandi læmm af henni og lögum það fyrir næsta leik,“ sagði Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði ÍBV, eftir leikinn. Mörk ÍBV: Amela 6, Ingibjörg 4, Marie 3, Guðbjörg 1. Steinsrímur til Frankfurt Steingrímur Jóhannesson, sóknamiaður íslands- og bikarmeistara ÍBV og markahæsti Ieikmaður Landssímadeildarinnar síðasta sumars, hélt á þriðjudaginn til Þýskalands og mun þar dvelja hjá þýska stórliðinu Eintracht Frankfurt í vikutíma. Frankfurt spilar í þýsku A-deildinni en hefur gengið illa það sem er af leiktíðinni. Liðið er að leita að markaskorara og vildi fá Steingrím til skoðunar. Þess má einnig geta að nokkur önnur erlend félagslið hafa verið með Steingrím undir smásjánni. Nissandeildin: Valur 19 - IBV 24 Fyrsta tap Eyjamanna á Hlíðarenda í tvö ár Eyjamenn heimsóttu Valsmenn að Hlíðarenda í Nissandcildinni á sunnudagskvöld. Leikurinn var mjög katlaskiptur en heimamenn í Val sigruðu í Iciknum, 24 -19. Þess má geta að þetta var fyrsti sigur Vals á ÍBV í tvö ár á Hlíðarenda. IBV lék mjög hraðan og skemmtilegan bolta í fyrri hálfleik og voru þeir Guðfinnur Kristmannsson og júgóslavneska skyttan, Rankovic, í miklu stuði. Valsmenn náðu að hanga í Eyjamönnum og misstu þá aldrei langt fram úr sér. Staðan í hálfleik var, 9-11. Litháenska skyttan, Giedr- ius, meiddist í lok fyrri hálfleiks og gat því ekki beitt sér sem skyldi í síðari hálfleiknum. Þetta virtist hafa áhrif á Eyjaliðið sem var ekki svipur hjá sjón í seinni hluta leiksins. Valsmenn sigu hægt og rólega fram úr andstæðingum sínum og fögnuðu 5 marka sigri í lokin, 24 -19. Jóhann Pétursson í handknattleiksráði ÍBV hafði þetta að segja um leikinn: „Við byrjuðum mjög vel, boltinn gekk mjög vel og við vorum að spila reglulega vel. Síðan meiðist Giedrius í lok fyrri hálfleiks og þó svo að við séum með þokkalega breidd, þá munaði greinilega um hann í þessum leik. í síðari hálfleik spiluðum við ekki sem lið, kerfin gengu ekki upp og einstaklingsframtökin voru tilviljunar- kennd. Því fór sem fór og við ætlum okkur að gera betur næst, það er engin spuming," sagði Jóhann að lokum. Sigmar stóð sig vel í markinu, Guðfinnur og Rankovic voru sprækir í fyrri hálfleik. Daði var ógnandi í hominu, en besti maður ÍBV-liðsins í þessum leik var línumaðurinn sterki, Svavar Vignisson, sem gerði Valsmönnum lífið leitt allann tímann. Mörk ÍBV: Svavar 5, Guðfinnur 5, Rankovic 4, Daði 3, Sigurður 1, Giedrius 1. Varinskot: SigmarÞ. 14 Gunnar sló 27 ára gamalt met Framhaldsskólamót í frjálsum í- þróttum var haldið á Laugarvatni þann 23. september síðastliðinn. Níu skólar tóku þátt í mótinu og var þetta mjög sterkt mót og til marks um það voru nokkrir kepptendanna í landsliði Islands í frjálsum. Ellefu krakkar fóm héðan frá Vestmanna- eyjum og lentu þau í 5. sæti. Gunnar Heiðtir Þorvaldsson sló 27 ára gamalt Vestmannaeyjamet í 100 metra hlaupi og hljóp hann á tímanum 11,9 sekúndum og lenti í 4. sæti. Jón Stefánsson frá Mörk átti gamla metið, sem var 12,3 sek- úndur í 15 -16 ára aldursflokki Magnús Elíasson lenti í 3. sæti í 800 metra hlaupi, hljóp á tímanum 2 mínútur 19,2 sekúndur og setti Vestmannaeyjamet í 17 - 18 ára aldursflokki. Davíð Egilsson lenti í 3. sæti í 3000 metra hlaupi og hljóp hann á tímanum 11 mínúlur 1,4 sekúndur og setti hann Vestmannaeyjamet. Eyrún Sigurjónsdóttir lenti í 3. sæti í 800 metra hlaupi, hljóp á tímanum 2 nu'nútur, 54 sekúndur. Hinir krakkamir stóðu sig einnig mjög vel og þess má geta að þetta er í annað skiptið sem Eyjakrakkar ttúca þátt í þessu móti. Þjálfa yngri flokkana Þjálfarar yngri flokka ÍBV næsta starfsáreru eftirfarandi: Yfirþjálfari: Zelkjo Sankovic Drengir: 3. flokkurBjöm Elíasson 4. fiokkurZeljko Sankovic 5. flokkurZeljko Sankovic 6. flokkur Jón Ólafur Daníelsson 7. og 8. flokkur Sigurlás Þorleifsson Stúlkur: 3. flokkur Sigurlás Þorleifsson 4. flokkur fris Sæmundsdóttir 5. flokkurZeljko Sankovic og Olga Stefánsdóttir 6. Ilokkur Erna Þorleifsdóttir í næstu Fréttum verður auglýst æfingatafla knattspymudeildar fyrir veturinn en hún tekur fonnlega gildi 25. október nk. Eyjamenn í landsliði Þrír Eyjamenn tóku þátt í verk- efnum A-landsliðs íslands í knatt- spymu, gegn Armeníu og Rúss- landi. Það vom þeir Birkir Krist- insson, Hermann Hreiðtysson og Tryggvi Guðmundsson. Ivar Ingi- marsson var eini leikmaðurinn úr ÍBV, sem var í U-21 árs landsliðinu gegn sömu þjóðum. ÍBV - ÍR á morgun Á morgun fer fram leikur ÍBV og ÍR í Nissandeildinni í handknattleik. Leikið verður í íþróttamiðstöðinni hér í Vestmannaeyjum og hefst leikurinn klukkan 20:00. Dregið í bikarnum Dregið var í 32-liða úrslit í bikar- keppni karla um helgina. Eyja- menn tefla fram tveinuir liðum að þessu sinni og drógust bæði lið gegn frekar auðveldum andstæð- ingum þó ekki niegi vanmeta þá. ÍBV-b fær Ögra í heimsókn og ÍBV fer í Kópavoginn og leikur gegn 2. deildarliði Breiðabliks. Leikimir fara fram 31. október.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.