Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Qupperneq 20
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 • Fax 481-1293 Núfefhverað verða síðastu aðtnrggjasérslátur SlátursölunnUýkur 20. október Sendibílaakstur innanbæjar. Vilhjálmur Bergsteinsson $£AM£AdA6iU «481-2943, * 897-1178 Hvað líður hönnunar- kostnaðí? Á síðasta fundi bæjarráðs lagði Þorgerður Jóhannsdóttir fram tvær fyrirspurnir. I þeirri fyrri óskaði hún eftir skriflegum upplýsingum um fyrirspurnir er varða stjórnsýslu og rekstur bæjarins, sem berast bænum, spurningar og svör. Hversu mörgum fyrirspurnum væri ó- svarað og svo afrit af þeim sem borist hafa eftir að hætt var að bóka þessi mál í bæjarráði. Seinni fyrirspurn Þorgerðar varðaði Iþróttamiðstöðina. Þar segir orðrétt: „Oska eftir skriflegri greinargerð um í hvað hönnunar- kostnaður hefur farið, livað líður honum svo og framkvæmdum við húsið. Er gert ráð fyrir aðgengi fatlaðra í hönnuninni?" Það vekur óneitanlega athygli að spurt er hvað hönnunarkostnaði líði hvernig svo sem á að skilja það orðalag. Bæjar- ritara var falið að svara fyrri fyrir- spurninni en bæjarstjóra hinni seinni. Færafslátt Hið nýja fyrirtæki, Atlantic Island, sem hyggst framleiða hér flot og kúlur fyrir flotann, sótti um afslátt á gjöldum til Vest- mannaeyjabæjar. Á síðasta fundi bæjarráðs lá fyrir umsögn frá Þróunarfélaginu og í framhaldi af því samþykkti bæjar- ráð að veita afslátt í samræmi við fyrirliggjandi reglur. Stafkirkjan Undirbúningur að byggingu staf- kirkju við Skansinn er kominn í fullan gang í Noregi. Árni Johnsen segir að hún verði tilbúin til vígslu um mánaðamótin júní - júlí árið 2000 og tengist aðalhátíðahöldum kristnitöku- afmælisins. Rósa Signý, Úlfhildur, Auróra og Binna fylgdust af athygli með því sem fram fór á skjánum. Fjórir nemendur skráðir í fjar- kennslu á háskólasdgi í Eyjum Á mánudaginn var hófst fjar- kennsla á háskólastigi í fyrsta sinn í Vestmannaeyjum. Þetta er fyrsta tilraun til þess að koma almennu námi við Háskóla Islands á fjar- kennslubrautina. Vestmannaeyjar koma reyndar seinna inn í þetta tilraunaverkefni en aðrir staðir á landinu sem taka þátt í verkefninu, hins vegar eru gildar ástæður fyrir því að sögn Páls Marvins Jónssonar forstöðumanns tölvuvers Vest- manna eyja „Upphaflega stóð til að einungis Austurland yrði þátttakandi auk Reykjavíkur og það var ákvörðun sem tekin var í Háskólanum í Reykjavík. Hins vegar kont í ljós að tækja- búnaður til fjarkennslu var til staðar á fleiri stöðum á landinu til og þeir staðir lýstu yfir áhuga á því að vera með. Vestmannaeyingum stóð ekki til boða að vera með fyrr en á seinni stigum en fólk hér sýndi þessu áhuga svo ákveðið var að fara af stað nú.“ Páll Marvin segir að nú fari kennslan fram í gegnum tvær símalínur, en eftir áramót verður skipt út tækjabúnaði og þriðju línunni bætt við. „Sú breyting mun auka og hraða gagnaflutningi á milli staða og auka gæði sendinganna, jafnframt munu notkunarmöguleik- amir aukast til hvers kyns annarra fundarhalda með þessum fjarfunda- búnaði sem hægt er að fá leigðan gegn vægu gjaldi.“ Námið sem boðið er upp á núna í tilraunaskyni er fjögurra eininga nám í jarð- og landafræðiskor og nefnist inngangur að ferðamálafræðum. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg mentun. Námið er í fyrir- lestraformi, en nemendur geta svo nálgast fyrirlestrana á Intemetinu en samskipti við kennarann utan fyrir- lestranna fara fram í gegnum tölvu- póstinn. Þeir staðir sem gefst kostur á að taka þátt í námskeiðinu þar sem ljarfundabúnaður er til staðar em Nes- kaupstaður, Höfn í Homafirði, Egils- staðir, ísafjörður, Blönduós, Reykja- vík og Vestmannaeyjar. Fimm nemendur hafa skráð sig í námið í Vestmannaeyjum, en þær eru Rósa Signý Baldursdóttir, Ulfhildur Guð- bjömsdóttir, Auróra Friðriksdóttir og Binna Hlöðversdóttir. Þegar tíðindamaður birtist í miðri kennslustund hefði mátt heyra saumnál detta ef rödd Önnu Dóru Sæþórsdóttur hefði ekki hljómað úr hátölurum á sjónvarpstækinu hvar mynd hennar var á skjá ásamt fróð- legum upplýsingum um leyndardóma ferðamálafræðanna, svo mikill var alvömþungi og áhugi nemedanna. Að sögn kvennanna sem em skráðar í námið í Vestmannaeyjum hófst fjamámið fyrir fimm vikum, en þær segja að það muni ekki aftra þeim frá því að halda náminu áfram. „Við þurfum að vísu að vinna upp þennan tíma, en það er ekkert um annað að ræða en að bretta upp ermamar,“ segja þær galvaskar. Handrukkari meðveiðihnH Á laugardag var lögreglu tilkynnt að maður nokkur væri hingað kominn frá Reykjavík í þeim tilgangi að innheimta muni. Hljóðaði tilkynningin þannig að um svonefndan „handrukkara“ væri að ræða en sú stétt manna mun beita nokkuð óhefðbundn- um aðferðum við innheimtu þar sem Iíkamsafl ræður öllu meiru en lagabókstafur. Lögregla fór á staðinn og handtók manninn. Kannaðist hann við að vera að ná í muni fyrir félaga sinn en aftók með öllu að hann væri í stétt handrukkara. Við leit í bíl mannsins fannst veiðihnífur en ekki vitað hvort hann gegndi ein-hverju hlutverki í innheimtuað-gerðunum. Til öryggis lagði lögregla hald á hníftnn og að lok-inni skýrslutöku var innheimtu-manninum sleppt. Skoðunarstöð fyrir bif- reiðar opnuð í Eyium Langþráð baráttumál Eyja- manna er loks í höfn því í næsta mánuði verður opnuð aðstaða til daglegrar skoðunar á bifreiðum.. Ami Johnsen alþingismaður segir að Fmmherjar, arftakar Bif- reiðaskoðunar íslands, hafi yfir- umsjón með skoðunarstöðinni i' Eyjum en daglegur rekstur stöðvar- innar, sem verður opin hluta úr degi alla virka daga, verður í höndum Eyjamanns. „Það er mikilvægt að hafa fengið þessa þjónustu heim. Næsta skref er að fá undanþágu fyrir skoðun á stómm bflum sem em um 100 í Eyjum. Samkvæmt reglugerð þurfa þeir fullkomna stöð en þau mál á að vera hægt að leysa með öðm móti. Emm við Guðjón bæjarstjóri að vinna í því,“ sagði Ámi. SIMI 4S1 3440 aUTNWGAR - VESTMAÍWAEYJUM ftmola !■■■! 1 -■ it |muI--for voyivyv iww nvwn u itHNi ivn m» Vöruafgreiðsla Sklldlngavegl 4 Ciml 481 3440 Vöruafgreiðsla í Reykjavík AðoHlutnlngar Héðlnsgötu 2 Sfml S81 3030 verð nú verð áður lifrarpylsaósoðiniostiupoka pr. kg. kr.: 469,- 548,- Blððmör ósoðinn 5 stk. í poka pr. ky. kr.: 399,- 488,- Framhryggssneiðar vaiið súpukjöt pr. kg. kr.: 499,- 995,- kortanmabil

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.