Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 03.12.1998, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 03.12.1998, Blaðsíða 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 3. desember 1998 • 49. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293 Hamarsskóli átd 30 fulltrúa í fatahönnunarkeppni grunnskólanna sem fram fór í Laugardalshöllinní á sunnudaginn. Hér sjást nokkrir beirra ennánarábls.12. Útsvarið hækkar um 0,7% sem eykur tekjur um 35 milljónir: Yfirtaka grunnskólans ein ástæða hækkunarinnar -Oddviti minnihlutans og forsætisráðherra sammála í fordæmingu á skattahækkunum Á fundi bæjarráðs á mánudag var Iögð fram tillaga um að hækka út- svarsprósentu um 0,7%, úr 11,24% í 11,94%. Var tillögunni vísað til bæjarstjórnar og verður hún vænt- anlega afgreidd á bæjarstjórn- arfundi í dag. Þrátt fyrir þessa hækkun er Vestmannaeyjabær í lægri kantinum með álagningu útsvars, sé miðað við önnur bæjarfélög en mörg þeirra nýta sér hámarksálagningu sem er 12,04%. Reykjavík var lengi með sömu álagningu og Vestmannaeyjar en hefur nú boðað hækkun upp í 11,99%. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, segir að ástæður fyrir hækkuninni séu aukin þjónusta og kostnaður samfara henni, yfirtaka grunnskólanna og væntanleg einsetning þeirra, endur- bygging íþróttamiðstöðvar, fram- kvæmdir við Framhaldsskólann og framlög bæjarins til félagslega íbúða- kerfisins. Áætlað er að þessi hækkun þýði auknar tekjur bæjarsjóðs upp á 35 milljónir. Þorgerður Jóhannsdóttir, oddviti V- listans í bæjarráði, sagði að hún hefði ekki lagt fram sérstaka bókun á fundi bæjarráðs. Aftur á móti hefði hún sagt á íúndinum að forsætisráðherra og oddviti minnihlutans í Reykjavík hefðu sagt allt sem segja þyrfti um þessar hækkanir. „Við munum láta bóka mótmæli okkar á bæjarstjómarfundi á fimmtu- dag,“ (í dag) sagði Þorgerður. „Við erum einhuga um að hafna þessum hækkunum.“ Umdeilt blaðaviðtal: MérfinnstÁrni lohnsen vera hálfiria -segir Páll Oskar Hjálmtýsson í Testamentinu í nóvemberblaði Testamentisins, sem er málgagn sósíalista á Islandi, er opnuviðtal við Pál Oskar Hjálmtýsson, söngvara. Þar viðrar hann hugsanir sínar og er óvæginn í gagnrýni á samfélagið. En hvað mesta athygli vekur í við- talinu jálit söngvarans á þingmann- inum Áma Johnsen. Ámi fær vægast sagt lélega einkunn og orðrétt segir í viðtalinu: „Mér finnst Ámi vera hálf- viti og veit ekki hvemig mér finnst að hafa hálfvita í valdastöðu." Þá rekur Páll Óskar einnig þátt Áma í því þegar lög um staðfesta samvist samkyn- hneigðra vom afgreidd á alþingi en Ámi var mótfallinn þeim lögum. Þá rifjar Páll Óskar upp atvik sem gerðist á þjóðhátíðinni í hitteðfyrra þegar kynnirinn Ámi Johnsen gerði athugasemdir við háttalag söngvarans og fylgdarmanns hans uppi á sviði. Segir Páll Óskar að kynnirinn hafi lagt hendur á fylgdarmanninn og velur Áma enn hin verstu orð í lýsingum sínum af þessu atviki. Páll Óskar er samkynhneigður eins og flestum mun kunnugt. Afstaða hans til Áma mótast mjög af því en Ámi hefur ekki verið sérstakur talsmaður þeirra viðhorfa til þessa. Þessi skrif í Testamentinu hafa verið talsvert til umræðu í fjölmiðlum að undanfömu. I Fréttum í dag er bréf frá þjóðhátíðamefnd ársins 1996 og þar svara þeir því sem þeir nefna ósannar og rætnar yfirlýsingar Páls Óskars í garð Áma, þjóðhátíðar og Vestmannaeyinga almennt. Bréf þjóðhátíðamefndar er á bls. 6. Sýnið aógát á aðventu Lögregla vill niinna ökumenn á að aka varlega nú eins og raunar alltaf. Aftur á móti er frekar þörf á að aka varlega þegar líða fer að jólum þar sem gangandi vegfarendunt ijölgar mikið þá vegna jólaverslunar. Ökumenn em og hvattir til að leggja bifreiðum sínurn ekki þannig að gangandi vegfarendur verði fyrir óþæg- indum. Verði ökumenn staðnir að því að leggja bílum sínum ólöglega, mun lögreglan beita sektum. Ný skip væmanleg til EyjaP Það sem af er árinu hefur verið mikið um breytingar og endurbætur á tlota Vestmannaeyinga. Má þar nefna Antares VE, Sighvat Bjarnason VE, Emmu VE, Byr VE og Smáey VE Eitt af stærri útgerð'um í bænum er ásamt fleirum að kanna smíði nýs skips sem ætlað er til túnfiskveiða. Það mál ætti að skýrast upp úr áramótum. Þá er ein gamalgrónasta úterðin í Eyjum að athuga með kaup á nótaskipi frá Chile og er þar um að ræða skip með burðargetu upp á 1700 tonn. Ekkert mun þó fullráðið með þau mál enn sem komið er en ætti að skýrast á næstu dögum hvort af verður. Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi barnaleikritið Bangsímon og vinir hans um helgina. Á bls. 12 í blaðinu í dag er nánar sagt frá sýningunni. Bflaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉTTINGAR OG SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 481 1535 VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ: Græðisbraut 1 - sími 481323 Mán - lau Sunnudaga Aukaferðir föstudaga Frá Eyjum Frá Þorl.höfn kl. 08:15 kl. 12.00 kl. 14.00 kl. 18.00 kl. 15.30 kl. 19.00 Heriólfur /mícw /UÍid Sími481 2800 Fax 481 2991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.