Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 03.12.1998, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 03.12.1998, Page 8
8 Fréttir Fimmtudagur 3. desember 1998 Saga fimmenninganna, sem voru hætt komnir við Bjamarey á síðasta ári, í bókinni Útkall - Fallið fram af fjalli: Hringdu í 1021 í nýrri Útkallsbók Óttars Sveinssonar er lýst fjórum átakamiklum atburðum. Einn þeitra tengist Vestmannaeyjum því hann fjallar um það er fimm menn úr Eyjum voru bársbreidd frá því að drukkna við Bjarnarey sumarið 1997. Þeirra eina von var GSM- sími. Einnig er sagt frá því er Bryndís Brandsdóttir jarðfræðingur og bandarískur starfsbróðir hennar óku í jeppa fram af Grímsfjalli, hröpuðu um 200 metra - og lifðu það af. Sá atburður vakti upp minningar um atvik sem gerðisl níu árum áðurertveir menn fóru fram af nánast á sama stað - ótrúlegur atburður sem ekki komst í fjölmiðla á sínum tírna. Síðasta sagan lýsir því er átta björgunarsveitarmanna frá Dalvík var saknað í tæpa tvo sólarhringa í.marsmánuði síðastliðnum. í manndrápsveðri þurftu þeir að grafa sér snjóbyrgi í 1250 metra hæð og var vistin þar vægast sagt nöturleg. Jens með „örlagarikasta farsíma íslandssögunnar. Hér er gripið niður í þriðja kafla bókarinnar sem fjallar um mennina fímm frá Heimaey. Þrír félagar höfðu verið við lundaveiðar í Bjarnarey. Þetta voru þeir Pétur Steingrímsson, Jens Karl Magnús Jóhannesson og Omar Stefánsson. Þegar hér er komið sögu voru Gylfi Gíslason og Björgvin Arnaldsson að sækja þá út í eyjuna á báti þess síðarnefnda. Ómar stóð aftast á steðjan- um þegar báturinn kom „Mér leist ekkert á veðrið og ölduganginn þegar við vorum komnir þarna niður. Jens fór fyrstur út í bátinn, síðan Pétur og ég síðastur. Um leið og ég tók í rekkverkið á hvalbaknum fór báturinn snöggt frá berginu. Ég datt í sjóinn en náði að halda mér. Ég var í tvískiptum sjóstakk utan yfir skyrtu og buxur en með stígvél á fótum þannig að ég blotnaði ekki mikið. í næstu dýfu náði ég að svipta mér um borð.“ Pétur fór aftur í bátinn þegar hann kom um borð. Hann var í gönguskóm með þykkum og hörðum sóla: „Ég sá strax hve báturinn var orðinn siginn. Aldan stóð beint upp að steðjanum. Þegar bátnum var bakkað frá kom sjór inn að aftanverðu. Þegar ég var að koma mér fyrir innan um fuglana fann ég að sjórinn var kominn vel upp á kálfa. Skórnir lóru á kaf. Ég spurði Björgvin hvort hann væri ekki að lensa. ,Jú!“ svaraði hann. Lundinn lá út um allt í bátnum. Mér fannst líklegt að fuglinn lægi ofan á lensidælunni þannig að hún virkaði ekki. Bátnum var nú siglt til suðurs með fram berginu. Við vorum 10-20 metra frá eynni. Björgvin var að snúa í átt að Heimaey þegar stór alda kom. Fyrst skall hún á berginu en kastaðist síðan á bátinn og fyllti hann að aftan. „Ætlið þið ekki að setja lensidæluna á?“ kallaði Jens.“ Óniar var framanvert í bátnum „Ég sá að sjór var farinn að flæða í bátinn að aftan og ákvað að fara fram í litla lúkarinn fremst til að dreifa þunganum. Þar var mikið af lunda. En það flæddi meira og meira inn í bátinn þar til mótorinn drap á sér. Pétur kallaði að við skyldum henda lundanum í sjóinn til að létta bátinn. Ég opnaði þá lúgu til að handlanga fuglinn upp á hvalbakinn. Jens tók á móti honum og henti kippunum í sjóinn. Þetta virtist gera lítið gagn. Skuturinn var kominn á kaf. Sjórinn hafði flætt að dyrum lúkarsins. Eina undankomuleið mín var nú að troða mér gegnum lúguna upp á hvalbak." Hver í kapp við annan hentu mennirnir fuglinum í sjóinn. Þar sem engin lensport voru á bátnum flæddi sjórinn ekki út aftur og lítil raf- magnsdæla mátti sín h'tils gegn þessum ósköpum. „Hann er að sökkva undan okkur!“ kallaði Pétur. Honum var ljóst að báturinn færi niður á skammri stundu: „Ég stóð aftast. Allt í einu fann ég að það var ekkert undir fótunum á mér. Iskaldur sjórinn náði mér í mitti. Ég var að fara á flot. Þegar ég horfði upp eftir þverhníptu berginu í Bjamarey fann ég hvað maður er lítill þegar náttúruöflin taka af manni völdin. Ég hugsaði um hvort Omar kæmist út úr þröngum lúkamum að framan.“ Hringdu í tíu tuttugu og einn! Jens sá nú sitt óvænna: „Mér varð ekki um sel. Við vomm að sökkva! Ómar var enn inni í bátnum. Stefnið var nánast það eina sem stóð upp úr sjónum. Nú kallaði Pétur: „Farðu fram á og hringdu í tíu tuttugu og einn!“ Pétur var í lögreglunni og hringdi oft í starfi sínu í Loftskeytastöðina í Vestmannaeyjum. Hann vissi hvað hann söng og ég hlýddi. Ég var ekki fótfimur en klöngraðist fram á, hélt mér í rekkverkið og tók upp símann. Ég sló inn númerið - 481 1021.“ Þegar Björgvin heyrði fyrirskipun Péturs til Jens um að hringja ákvað hann að taka símann sinn úr vasanum. Um leið og hann hafði stimplað númerið inn fór hann á kaf með símann. Gylfi félagi hans hafði verið að hugsa um allt annað en símhringingu er ósköpin dundu yfir: „Þegar ég var kominn í sjóinn upp í mitti mundi ég eftir derhúfunni minni sem ég hafði á höfðinu. Ég hélt mikið upp á hana. Ég tók hana af mér í skyndi, stakk henni inn á mig og renndi upp gallanum. Nú náði sjórinn mér upp undir hendur og ég fann hvemig hann flæddi inn undir gúmmígallann og ofan í stígvélin. Ég ákvað strax að reyna að synda að eyjunni.“ Aðeins stefnið stóð upp úr Aðeins stefni bátsins stóð upp úr sjónum. Jens ríghélt sér í rekkverkið - harðákveðinn að reyna að ná síma- sambandi á þeim fáu sekúndum sem gæfust áður en báturinn færi allur á kaf: „Ég hafði óvart ýtt tvisvar á Pétur og Jens við bátinn sem tveimur dögum áður hafði sokkið undan beim.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.