Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Side 1
26. árgangur • Vestmannaeyjum 26' ágúst 1999 • 34. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax:481 1293 Framhalds- skólinn settur Framhaldskólinn í Vestmanna- eyjum var settur síðastliðinn þriðjudag að viðstöddum kennur- um og nemendum næsta skólaárs. Að sögn Olafs H. Sigurjónssonar skólameistara verða tæplega 260 nemendur í skólanum í vetur þar af 60 nýnemar sem er svipað og síð- astliðinn vetur. Ólafur sagði að árgangurinn nú væri frekar lítill, en um 90% nemenda sem luku grunn- skólaprófi í Vestmannaeyjum í fyrra setjast nú á skólabekk í Framhalds- skólanum. Einhverjir hafa einnig farið í skóla upp á landi, eða farið á vinnumarkaðinn. Engin skipstjómar- braut er nú við Framhaldsskólann, en að öðm leyti er skipting milli námsbrauta svipuð og verið hefur, en flestir em þó skráðir á náttúm- fræðibraut og félagsffæðibraut. Allar kennarastöður hafa verið mannaðar og litlar breytingar í kennaraliðinu, nema hvað aðeins em breytingar í hópi stundakennara, þurfti þó ekki að fá kennara ofan af landi heldur var hægt að manna allar stundakenn- arastöður heimamönnum. „Viðför- um af stað full af bjartsýni og krafti,“ sagði Ólafur. NEMENDUR taka við stundatöflum hjá Ragnari Óskarssyni kennara ÞESSIR ungu merih voru að sleppa pysjum í Höfða- víkinni en galsinn var það mikill að þeir enduðu í sjónum. Skólarnir aö hefjast Nemendur heldur flelrí en í fyrra Aukiö val nemenda íníunda bekk Skólastarf hefst nú um mánaða- mótin í grunnskólunum en Fram- haldsskólinn byrjaði sl. þriðjudag með skólasetningu og er kennsla þar hatin. Ekki er enn fyllilega ljóst hver nemendafjöldi verður í Framhalds- skólanum á haustönn þar sem fólk hefur enn verið að innrita sig síðustu daga. Þá em alltaf einhveijir sem skrá sig en mæta svo ekki. Samkvæmt nýjustu tölum er fjöldi nemenda um 260 eða eilítið færra en á haustönn í fyrra. Skipstjómarbraut verður ekki við skólann og sjávarútvegsbraut, sem auglýst var, verður að líkindum ekki starfrækt í vetur, a.m.k. ekki á haustönn, þar sem fáir sóttu um nám á henni. Nú tekur gildi ný aðalnáms- skrá sem felur m.a. í sér breytingar á kennslu í sumum áföngum. I Hamarsskóla verða í vetur 355 nemendur eða aðeins fleiri en á síðasta skólaári. Halldóra Magnús- dóttir, skólastjóri, er í leyfi en skóla- stjóri í vetur verður Bergþóra Þór- hallsdóttir. Ekki hefur enn verið gengið frá ráðningu aðstoðarskóla- stjóra en viðræður hafa staðið yfir við Sigurlás Þorleifsson og líklegt að hann gegni því starfi í vetur. Bergþóra segir að þrír nýir kennarar bætist í kenn- arahópinn, allt nýútskrifaðar konur. Bergþóra segist vera ánægð með að við skólann em í vetur allir kennarar með full réttindi ef undan er skilinn einn leikskólakennari sem raunar hefur fulla menntun sem slíkur. Af 29 kennurum í Hamarsskóla em aðeins fjórir karlar en 25 konur. Bergþóra segir að starfið verði með svipuðu sniði í vetur og verið hefur. Þó tekur nú gildi ný skólanámskrá og henni fylgja ákveðnar breytingar. í vetur verður um aukið val nemenda að ræða í 9. bekk um námsgreinar. Nemendur munu velja sér greinar eftir því hvers konar nám þeir hyggjast stunda í framhaldsskóla. Þá verður í vetur byrjað að kenna ensku í 5. bekk sem fyrsta erlenda tungumál en dönsku- nám hefst ekki íyrr en í 8. bekk. Hjálmfríður Sveinsdóttir, skólastjóri Bamaskólans, segir að þar verði í vetur um 450 nemendur og er það heldur aukning frá síðasta skólaári. Því veldur m.a. að sex ára árgang- urinn, sem nú kemur inn, er fjöl- mennur. Jóna Ólafsdóttir, aðstoðar- skólastjóri, er í leyfi og Hjálmfríður sagði í viðtali við blaðið í gær, að ekki væri enn á hreinu hver myndi gegna því starfi, það myndi líklega skýrast í dag en enginn sótti um starfið. Nokkrar breytingar verða á kennara- liði skólans. Sex nýir kennarar koma til starfa og þrír sem hefja störf að nýju eftir leyfi. Flestir kennara skólans hafa full réttindi, tveir em leikskólakennarar og einn sem ekki hefur réttindi. Hjálmfríður segir að alls séu 65 starfsmenn við skólann, af þeim séu 53 konur en 12 karlar. Breytingar á skólastarfi fylgja flestar nýrri námskrá og em svipaðar og í Hamarsskóla. Sem fyrr há þrengsli skólastarfinu. Nú fjölgar um eina bekkjardeild og Hjálmfríður segir það skapa vandræði sem ekki er enn séð fyrir endann á. „Við verðum að reyna að þreyja af þennan vetur og vona að húsnæðismálin verði leyst fyrir næsta skólaár,“ sagði Hjálmfríður. Þá vildi Hjálmfríður benda for- eldmm á að kíkja vel í hársvörð bama sinna. Undanfarin ár hefur borið á því að óboðnir, hvimleiðir gestir hafa leynst þar, gestir sem hvorki em æskilegir í skólum né á heimilum. Háspenna Einn mikílvægasti leikur ÍBV verður á sunnudaginn í Frosta- skjólinu þar sem liðið mæti KR- ingum. Leikurinn getur ráðið úrslitum um hvort liðið hampar Islandsmeistara- titilinum þann 19. september nk. Búist er við að Eyjamenn fjöl- menni á leikinn og og bjóða bæði Heijólfúr og Flugfélag íslands hag- stæð fargjöld af þessu tilefni. Er Herjólfur með pakkaferðir í sam- vinnu við Skeljung á leikinn. Þeir sem vilja geta svo keypt miða í forsölu íTvistinum. Sjá viðtal við Bjarna þjálfara á bls. 15. ÍSEifiÖMiffllD liríj.jijiii.i Ji SíáÍÍJJJ4J3JJ' Flötum 20 - Sími 481 1535 yigfgí/OÍ/ <jjj úuiuráíöúi Græðisbraut 1 - Sími 481 3235 Frá Eyjum Frá Þorl. Alla daga kl. 08.15 kl. 12.00 Aukaferðir á fimmtud., föstud. og sunnud. kl. 15.30 kl. 19.00 MmwÉmímM Sími 481 2800, fax 481 2991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.