Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Side 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 26. ágúst 1999
frettir
Áyóöí upp á 5,2
milljónir
Á fundi bæjarráðs á mánudag lá
fyrir bréf frá Eignarhaldsfélagi
Bmnabótíifélags íslands um ágóða-
hlutagreiðslu fyrir 1999 og nemur
upphæðin 5.216.900 kr. í fram-
haldi af þessu bréfi lagði Ragnar
Óskarsson fram bókun þar sem
hann leggur áherslu á að þessu fé
verði varið til biunamála. Nánar er
greint frá þessu hér á síðu 2.
Fleiri bókanir
Ragnar Óskarsson lét bóka fleira á
þessum bæjarráðsfundi. Svohljóð-
andi bókun barst einnig frá honum:
„I framhaldi af samþykkt bæjar-
stjómar, frá 2. nóv. 1998 og bókun
minnihluta bæjarstjómar 22. júlí
1999, legg ég áherslu á að
Þróunarfélagið flýti sem kostur er
þeirri vinnu sem eftir er í samræmi
við fyrrgreinda samþykkt bæjar-
stjórnar." Þama mun Ragnar vera
að ýta eftir því að Þróunarfélagið
leggi fram lillögur að endurbótum í
atvinnumálum í Vestmannaeyjum.
Engir nautgripír á
Stakkó
Fyrirbæjarráðsfundi á mánudag lá
bréf frá þeim Ómari Garðarssyni og
Sigurgeir Jónssyni. Þar sækja þeir
um að fá hluta af Stakkagerðistúni
undir nautgriparækt. Bæjarráð gat
ekki orðið við því erindi.
Snöggatgreiðsla
Fyrir fundi bæjatTáðs lágu sjö mál.
Sjöunda og síðasta mál á dagskrá
var að ákveða að næsti fundur
bæjarstjómar yrði 9. september nk.
en ekki 2. september eins og áður
hafði verið ákveðið. Bæjarráðs-
fundurinn hófst kl. 16.00 og var
honum lokið kl. 16.20. Þaðtókþví
ekki nenia 20 mínútur að hespa
þessum sjö málum af og verður það
að leljast snaggaraleg afgreiðsla.
Greinilega er ekki verið að hangsa
yfir hlutunum í bæjarráði, þar er
þetta stutt og laggott.
Brotistínní
Ráðhúsið
Þegar starfsfólk Ráðhússins mætti
til vinnu á mánudagsmorgun kom í
ljós að brotist hafði verið þar inn
um helgina. Rúða hafði verið
brotin á suðurhlið hússins og farið
þar inn. Farið hafði verið um allt
hús, m.a. brotin rúða í millihurð í
kjallara þar sem gengið er upp á efri
hæð. Ekki víu- að sjá að neinu hefði
verið stolið en tnikið gramsað.
Ekki er vitað hvort þessir óboðnu
gestir hafa verið á ferðinni
aðfaranótt sunnudags eða mánu-
dags en þeir sem orðið hafa varir
við grunsamlegar mannaferðir við
Ráðhúsið um helgina em beðnir að
láta lögreglu vita.
Stúturnúmer25
Á fimmtudag í síðustu viku var 25.
ökumaðurinn á þessu ári tekinn
vegna grans um ölvun við akstur.
Var hann sviptur ökuréttindum til
bráðabirgða.
Áhöld til neyslu
Á föstudag var farið á tvo staði í
bænum í leit að fíkniefnum. Þar
fundust áhöld til neyslu slíkra efna
en engin efni.
Eignarhaldsfélag Brunabótafélags íslands:
Greiðir 5 milljðnir
krðna til bæjarins
Eignarhaldsfélag Brunabótafélags
Islands greiðir 130 milljóna króna
framlag til ágóðahlutar til sveit-
arfélaga sem eiga aðild að sam-
cignarsjóði EBI. I hlut Vestmanna-
eyjabæjar koma rúmar 5 milljónir
króna en í heild sinni hljóta að-
ildarsveitarfélög á Suðurlandi
tæpar 18 milljónir króna. Þetta
framlag er í samræmi við ákvarð-
anir stjórnar og fulltrúaráðs EBI.
Þau áttatíu og sex sveitarfélög sem
eiga aðild að sjóðnum fá greitt
framlag til ágóðahlutar í samræmi
við eignarhlut sinn í sjóðnum.
Hilmar Pálsson, forstjóri EBI, segir
að í samræmi við samþykktir félagsins
hafí stjóm og fulltrúaráð EBÍ mælst til
þess við aðildarsveitarfélögin að þau
verji fjármununum til forvama,
greiðslu iðgjalda af tryggingum
sveitarstjóma og brunavama í sveitar-
félaginu. „Nú er nýlokið útboði á
tækjabúnaði fyrir slökkvilið sveitar-
félaga sem skipulagt var af EBl og
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Fimm sveitarfélög hafa nú þegar lýst
yfír vilja sínum til að festa kaup á
nýjum slökkvibifreiðum og mun EBI
bjóða hagstæð kjör við fjármögnun
kaupanna."
Hilmar segir að fjöldi þeirra sveitar-
félaga sem áhuga hafi á því að taka
þátt í útboðinu sé ekki endilega
mælikvarði á branavamir sveitar-
félaga, heldur fari það ekki síður eftir
stærð þeirra og tekjum. „Þau fimm
sveitarfélög sem hafa lýst yfir áhuga á
að festa kaup á nýjum slökkvibílum
era Sandgerði, Reykjavík, Hveragerði,
Fjarðabyggð og Seyðisfjörður. Hér er
um nýjar bifreiðir að ræða, en hins
vegar er það opið ef einhver önnur
sveitarfélög vilja bætast við.“
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
segir að Vestmannaeyjabær eigi
ágætan slökkvibíl og þess vegna muni
bærinn ekki verða eitt þeirra sveitar-
félaga sem taka mun þátt í slökkvi-
bílaútboðinu. „Við erum að efla
branavamir hjá stofnunum bæjarins
og eram vel búnir hvað slökkvibíl
varðar. Þannig að þessi upphæð, sem
kemur til greiðslu nú, mun fara sem
tekjur til bæjarins. Hins vegar finnst
mér ekkert óeðlilegt að sveitarfélög
sem vantar slökkvibfl, nýti sér þetta
útboð EBÍ.“
í lyrrahaust lagði meirihluti bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokkins fram
tillögu þess efnis í bæjarráði um að
slíta Eignarhaldsfélagi Brunabótafé-
lags Islands og að eignum þess yrði
ráðstafað til tryggingartaka og sveitar-
félaganna, eins og lög þess gerðu ráð
fyrir. Guðjón Hjörleifsson sagði að
ekki virtist vera áhugi hjá öðram
sveitarfélögum um að slíta félgainu.
„Reykjanesbær ályktaði reyndar um
málið á sínum tíma, en dró síðan
ályktunina til baka.“
Lögreglan lekur ekkí
Starf lögreglu er oft og tíðum
skrýtið, mörg mál kærð til hennar
og til þess ætlast að Iögreglan leysi
úr hinum ýmsu málum.
Það getur reynst snúið nema í
samvinnu með samborguranum. Þar
má nefna skemmdarverk og innbrot.
Fólk sem vart verður við eitthvað
gruggugt, svo að ekki sé nú minnst á
ef fólk horfir á skemmdarverk eða
innbrot, á að sjálfsögðu að tilkynna
lögreglu um slíkt. Ekki viljum við
sem einstaklingar láta skemma eigur
okkar og þurfa síðan sjálf að bera
tjónið. Stundum heyrast þær raddir að
ekki sé hægt að tilkynna neitt til
lögreglu, þaðan leki allt út. Lög-
reglumaður, sem blaðið ræddi við,
fullyrðir að það sé ekki rétt, lögreglan
virði slíka upplýsingaleynd. Aftur á
móti komi slíkar fullyrðingar flestar
frá þeim aðilum sem era í fíkni-
efnaneyslu og innflutningi slíkra efna.
Lögreglumaðurinn fullyrðir að þeir
komi þessum orðrómi á framfæri til
að verja sjálfa sig.
Umferðarskólinn Ungir vegfarendur, sem er ætlaður 5 til 6 ára börnum, starfaði í Vestmannaeyjum
síðastliðinn mánudag og þriðjudag og var mikill áhugi og eftirvænting eins og undanfarin ár meðal
barnanna sem nú sækja skólann. Umferðarskólinn er samstarfsverkefni Umferðarráðs og allra
sveitarfélaga landsins. I umferðarskólanum er farið yfir mikilvægustu umferðarreglurnar, sögð
leikbrúðusaga, sýndar stuttar kvikmyndir og umferðarmyndir á glærum. Allt efnisval miðast við að búa
börnin undir að takast á við umferðina og nota þann öryggisbúnað sem við á. Einnig gefst foreldrum
kostur á að fræðast um sérstöðu barna í umferðinni og fá þeir fræðslurit heim með barninu. Þegar
blaðamann bar að garði í Hamarsskólanum, þar sem skólinn var starfræktur, fór fram afhending
viðurkenninga fyrir myndir sem börnin gerðu heima hjá sér fyrri daginn. Var mikil stemmning meðal
barnanna, enda lögreglumaður í fullum einkennisbúningi sem veitti börnunum viðurkenningarnar og
Iét góð hvatningarorð fylgja með.
frettir
Vanrækslaáskoðun
í dagbók lögreglu í síðustu viku
voru færslur alls 192 og er það vel
yfir meðaltali. Ein ástæða þess er
sú að áhersla hefur verið lögð á
skoðuníumál ökutækja og hafa
margir verið kærðir vegna van-
rækslu á að færa bfla sína til
skoðunar. Bíla á að skoða einu
sinni á ári nema nýjar bifreiðir í
einkaeign. Skoðunarmánuður
ræðst at' síðustu tölu í skráningar-
númeri. Endi númerið á 9 á að
færa bflinn til skoðunar í september
og endi það á 0 skal færa hann til
skoðunar í október.
Erill um helgina
Töluverður erill var hjá lögreglu
aðfaranætur laugardags og sunnu-
dags. Bar þar mest á hávaða en auk
þess var farið inn í bifreiðar og þær
látnar renna og hurðir þeirra skildar
eftir opnar. Þá var band strengt yfir
götuna frá Vestmannabraut 73 yfir
í Stjórnsýsluhúsið með þeim af-
leiðingum að leigubifreið, sem ekið
var eftir götunni, lenti á bandinu og
skemmdist. Þeir sent gætu gefið
upplýsingar um hver eða hverjir
komu þessu bandi fyrir, eru beðnir
að hafa samband við lögreglu.
Tialdi og búnaði
stolið
Á sunnudagskvöld var lögreglu
tilkynnt um þjófnað á tjaldi,
tveimur svefnpokum, tösku og úlpu
sem tveir drengir voru með í
Herjólfsdal. Þeir höfðu verið í
dalnum á laugardag og sunnudag,
yfirgáfu tjaldið á sunnudag kl. 17
en þegar þeir komu til baka um kl.
22 var allt horfið. Drengirnir höfðu
þennan búnað að láni og sakna
hans ekki síst þess vegna. Þeir sem
hafa upplýsingíu- vegna þessa máls
era beðnir að láta lögreglu vita.
Ennafsauðum
í síðasta blaði var frá því sagt að
kylfingar væra orðnir þreyttir á
lausagöngu sauðfjár á golfvellinum
og hefðu boðað til smölunar og
slátrunar á laugardag með tilheyr-
andi grillveislu. Þar sem Landsmót
unglinga fór fram unt helgina var
ekki unnt að smala en blaðið hefur
fregnað að nokkrir fóthvatir kylf-
ingar séu tilbúnir næst þegar
ferfættir sauðir láta sjá sig á golf-
vellinum og hyggi gott til glóð-
arinnar að geta fyllt á í frystikistum
sínum. Eigendum fyrmefndra
sauða virðist nokkuð sama um þá,
allavega hafa menn svarið af sér að
þeina fé gangi laust og ættu því
varla að verða mikil eftirmál þótt
téðir sauðir hyrfu til beitar á
golfvöllum annars heims.
ÍBV-ball á Broadway
ÍBV ball verður á Broadway (Hótel
Islandi) á laugardagskvöldið í
Reykjavík. Þar vej’ður upphitun
fyrir leik KR og ÍBV á sunnu-
daginn. Leikur KR og ÍBV á
sunnudaginn er auðvitað leikur
ársins í íslenskri knattspymu í ár.
Fréttatilkynning.
(FRÉTTIR)
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugyallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavikurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.