Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Síða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Síða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 26. ágúst 1999 Málverkasýning Steingríms St. Th. Sigurðssonar Astríður, taumlausar ástríður „Það lá nú vel á mér, enn þá með New York stemmninguna í mér. Svo hringdi ég í Jóa á Hólnum, sem ég vil kalla Jóa á Háhólnum og hann býður mér í morgunkaffi og þegar ég er kominn upp á Hólinn hjá honum ákveð ég að mála myndina þaðan. Síðan heitir myndin Vm/- Tileinkað Jóa á Háhólnum.“ Steingrímur við myndina sem hann málaði í inspírasjón af Háhólnum og var komin á sýninguna um kvöldið. Steingrímur St. Sigurðs- son listmálari er maður ekki einhamur og ekki til sá hlutur sem hann hefur ekki skoðun á. Hann á langan feril að baki sem blaðamaður og málari og opnaði sína hundruðustu og fyrstu myndlistar- sýningu á föstudaginn í síðustu viku. Þetta var þriðja einkasýning hans í Eyjum, en fyrstu sýningu sína hélt hann í Eyjum 1972, en Steingrímur helgar þessa sýningu Páli Helgasyni, Páli Pálssyni og Helga Benediktsyni. Berfættur í sandölum Steingrímur er nýkominn frá New York þar sem hann dvaldi í nokkra daga og er heimsborgin honum ofarlega í huga. Það hefur aldrei verið lognmolla í kringum Steingrím og það er völlur á honum þegar blaðamaður gengur í Akógessalinn þar sem myndir liggja á gólfi meðfram öllum veggjum og ein sem hengd hefur verið upp og listamaðurinn segist hafa málað um morguninn í mikilli inspírasjón, útvarp í horninu sem lekur frá sér léttum tónum. A flygli í öðru homi er expressó kaffikanna í umbúð- unum ásamt fleiri smáhlutum, ómiss- andi fyrir listamann að hengja upp sýningu. Ég kasta kveðju á manninn stórskorinn og skeggjaðan, berfættan á Rómarsandölum, í þykkum fjólu- bláum skíðabuxum, vesti og jakki yfir og hann segir: „Já blessaður, hverra manna ertu?“ Ég segi honum undan og ofan sitthvað um ættemi mitt. „Ertu af Bergs- eða Víkings- lækjarætt?" „Hvað veit ég um það. Þessir for- feður mínir eru bara fæddir á téðum stöðum." Steingrímur lítur á mig fullur vorkunnar og segir að hann sé að bíða eftir einni mynd sem komi með flugi daginn eftir. „Hún heitir Skutla vestfirsk," bætir hann við. „Og er aldeilis mögnuð mynd, viltu kaffi, eða toddí við kvefi, alger kvefelexfr, blandaður suðrænni sítrónu og sjóræningjarommi.“ Hvað er list Ég þigg toddíið og spyr manninn hvað list sé. „Þetta er góð spurning. Menn hafa verið að bisast við að svara þessu ár og síð og meira að segja hefur verið skrifuð bók sem heitir What is art eftir Herbert Reed sem var enskt gáfnaljós þegar ég var við nám í Englandi forðum daga. Eftir öllum sólmerkjum að dæma þá komst hann ekki að neinni ákveðinni niðurstöðu. Hins vegar held ég að list sé það sem hugur og hjarta skapar, en að sjálfsögðu í jafnvægi. Ég var einmitt að tala um þetta við listamann úti í New York, sem ég hitti bara óvart á stað sem heitir Book café við endann á Church- street. Þá kemur það í ljós að hann er þýskur gyðingur sem flúði nasistana. Við fórum einmitt að tala um hvað væri list og hvemig list yrði til. Það er svo mikið atriði að listamaðurinn sé í vissu sálarástandi. Hann yrði að vera með hugljómun en ekki nóg með það, heldur yrði hann líka að hafa sálarfrið, því ella færi allt úr böndum. Ég vil halda því fram að listin sé stærðfræði að vissu leyti blandin andagift og eitt sem ég legg mikla áherslu á og það er að kraftur sé til staðar, eins og í lífinu sjálfu, en við getum ekki kóperað líftð.“ Mikil tilhlökkun Getur ekki verið meiri kraftur í listinni heldur en finnst í líftnu sjálfu? „Það er nú sagt að Hemmingway sálugi hafí alltaf verið að reyna að ná íjórðu víddinni, sko það em til þrjár víddir, maður verður að mála í þremur víddum. Það verður að vera birta í mynd jafnvel þó að hún sé dökk, en þetta óþekkta sem glittir í er mjög eftirsóknarvert fyrir listamenn. Mér finnst í seinni tíð að ef að allt gengur þokkalega eftir allt puðið, þá er ég nokkuð ánægður með lífið. Vegna þess að maður verður að vera lífs- glaður.“ Ég hvái, því mér heyrist maðurinn segja lífsgraður. „Þetta er góð spuming. Með hugtakinu graður, sem er náttúmlega nauðsynlegasti eiginleiki sem til er, því hvað væri lífið án þess? Sko hugsaðu þér bara hvað henni fylgir mikil tilhlökkun.“ Þarfnast listin og listsköpuninn einhvers konar greddu? „Ástríðu, taumlausrar ástríðu, en eins og ég sagði áður verður að vera jafnvægi og það hefst ekki nema maðurinn ráði sinni líðan. Ég vil halda því fram að hver og einn ráði sinni líðan. Mér tekst þetta oft og það reyndi á það í New York á dögunum þar sem ég var í ellefu daga og ellefu nætur. Ég var einn allan tímann vegna þess að vinur minn, prófessorinn Richard Bamett, þurfti að skreppa í ferðalag. Ég fór út á Stateneyju því ég kynntist manni sem hét Raymond, kallaður Ray og rak Ray’s pizza niður við höfnina. Hann sagði að ég yrði að koma með honum til Stateneyju, en hún er sikileysk og mest gamaldags bær í New York. Þama var ég tvígang og inn á gafli hjá ítölskum íjölskyld- um og mér fannst ég bara heyra enduróminn úr Godfather. Við gengum framhjá pósthúsinu og á hægri hönd var held ég ráðhúsið, þar vom mikil salarkynni sem minntu mig á salarkynni samkomuhússins á Akureyri, sem var svona dansk- þýskur arkitektúr með Krónborgar- tumum, mjög tignarlegt. Þama inni var gífurlega stór mynd af Sammy Davis, Dean Martin og Frankie boy. Þeir em allir fæddir á Staten eyju, en vom allir bendlaðir við mafíuna." Roðgúll En hverfum frá New York og Stateneyju til Vestmannaeyja? „Já hér öðlast ég lífsgleðina 1972 sem hefur aldrei horfið alveg, vegna þess að mér var falið það vandasama hlutverk af fyrrverandi eiginkonu minni að taka að mér bömin. Það er líklega einsdæmi á Islandi að föður sé trúað fullkomlega fyrir bömum af móðurinni. Ég festi kaup á Roðgúl á Stokkseyri og vann fyrir því hörðum höndum og hélt meðal annars sýningu í Akóges og átti þá fyrir Roðgúl og skellti búnti af fimm þúsundköllum á borðið." Roðgúll hvað merkir það? Jú, það em skrítin þessi bæjamöfn á ströndinni, sem ég kalla nú La costa brava. Roð merkir fiskroð, gúll merk- ir trantur eða kjaftur og nafnið stendur fyrir roð í gúl. Þama mun því hafa búið maður sem veiddi físk í kjaft. Roð í þessari merkingu er hlutur fyrir heild, pars pro toto. Þama mun því hafa búið aflasæll maður.“ En þegar þú kemur öðm sinni til Eyja? „Þá kem ég til þess að endumýja gömul og góð kynni og kynntist dýrðlegu fólki hér, eins og Stebba pól, frænda mínum sem var vemdari sýningarinnar og Elísabetu Hallgíms- dóttur móður Högnu Sigurðar arkitekts. Hún er háöldmð og ég kem alltaf til hennar. Hún er skemmti- legasta kona á íslandi, grínagtug, ljómandi af gleði og er ekki að vorkenna sér; ekkert uppgerðarfas. Það er svo gaman að hitta fólk sem er skemmtilegt. Margt fólk sem ég hef kynnst hér í Eyjum er ennþá lifandi. Ég vil halda því fram að Vest- mannaeyingar og Vestfírðingar séu leifamar af þjóðarsálinni. Þeir em ferskir og hressir, eins og Páll Steingrímsson vinur minn og Ámi Johnsen, öndvegis strákar lausir við allan hátíðleika og setja sig ekki í neinar stellingar, Hermann ritstjóri og Robertó sem er mikill listamaður, sem á indæla fallega konu, sem hreyfir sig eins og gasella." Öfgamaður Þessi gleði sem þú nefndir er þetta einhver innri gleði, eða jafnvægi eins og þú segir að þurfi að vera í listinni? „Já, en ég er voðalega furðulegur. Ég er öfgamaður öðmm þræði, en ég varðveiti enn þá þessa rómantísku kennd, sem mörgum flnnst kannski bamaleg, en ég tel mig nú samt svona ískaldan raunsæismann á köflum, þó að maður geti ekki dæmt sjálfan sig. Ég hef sennilega farið í gegnum tilvemna á vissum næmleika og úthaldi, vegna þess að þegar ég vinn með gleði er úthaldið mikið. Það er eitt sem ég þoli ekki varðandi kollega mína, sem ég reyni nú að dæma ekki, að minnsta kosti ekki verk þcirra. Þeir halda margir að það fylgi því vald að vera listamaður, frekar en vélstjóri, bflstjóri eða verkamaður. Þetta er mesti miskilningur, mér leiðist þessi hroki og um leið snobberí sem myndast í kringum list, því hún á að vera eðlileg, eins og náttúran. Hún verður að vera verðug og rísa undir sér.“ Steingrímur stendur upp og sýnir mér myndina sem hann byrjaði að mála klukkan sjö um morguninn. „Mér bara datt í hug þegar ég var að koma af flugvellinum milli Fella að ég væri að sjá Vestmannaeyjar í fyrsta skipti í svona glimmerfallegu ljósi. Það lá nú vel á mér, enn þá með New York stemmninguna í mér. Svo hringdi ég í Jóa á Hólnum, sem ég vil kalla Jóa á Háhólnum og hann býður mér í morgunkaffi og þegar ég er kominn upp á Hólinn hjá honum ákveð ég að mála myndina þaðan. Síðan heitir myndin Vm/-Tileinkað Jóa á Háhólnum,“ segir Steingrímur og snýr sér að öðmm gestum sýningarinnar. Sjálfur geng ég út í ferskt kvöldið og laus við kvefið sem ég var ekki með. Benedikt Gestsson

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.