Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Qupperneq 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 26. ágúst 1999
nw
Do Re Mí
'ilboðsvika
IMýjar vörur
Á (MiLbSBffgjJ
A sj][lli &j:/a£>^2J 03/ufeku
Do Re Mi Barnafataverslun Kirkjuvegí 10
J
Atvinna
Starfskraft vantar hálfan daginn frá 13.00 til 17.00.
Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar á staðnum
ísjakinn
Smóar
Til leigu
Til leigu er tveggja herbergja
íbúð. Laus 1. speptember.
Upplýsingar í s. 481-1113 og
481-2134
Til leigu
Til leigu tveggja herbergja íbúð
á besta stað í bænum.
Upplýsingar í s. 481-3048 og
481-2248
Hús til leigu
Þriggja til fjögurra herbergja hús
í miðbænum er til leigu. Laust
frá 1. sept. nk.
Upplýsingar í s. 555-2939
Barnapössun
Get bætt við börnum í
dagvistun. Hef leyfi.
Upplýsingar gefur Sæunn í s.
481-1540
Bíll til sölu
Til sölu er Toyota Corolla ‘98.
Ekin 13.000 km. Græn að lit og
vel með farin.
Upplýsingar í s. 481-2750
• • ✓
Skopti Orn Olafsson stjórnarmaður í Eyverjum:
Ánægður með hvernig til tðkst á SUS-þingi
Um scinustu helgi flykktust ungir
sjálfstæðismenn á 35. Sambands-
þing ungra sjálfstæðismanna sem
haldið var í Eyjum. Þingið var sett
af formanni SUS, Ásdísi Höliu
Bragadóttur, sem lét nú af for-
mennsku sambandsins eftir tveggja
ára farsælt starf. Rúmlega 450
manns höfðu rétt til setu á þinginu
en í kringum 400 manns létu sjá sig
í Eyjum þar sem veður setti strik í
reikninginn.
Skapti Örn Ólafsson sem sæti á í
stjóm Eyverja sagði að strax í sumar
hefði verið ljóst að tveir menn höfðu
áhuga á að setjast í formannsstólinn,
þeir Sigurður Kári Kristjánsson og
Jónas Þór Guðmundsson. „Það var því
ljóst að margt yrði um manninn hér í
Eyjum helgina sem þingið átti að fara
fram. Á venjulegu SUS þingi eru um
200 - 250 manns en vegna þess að
formannsstólinn var laus var búist við
um 400 - 450 manns til Eyja. Að
undirbúa þing sem þetta er mikið verk
og strax í júlí hófust Eyverjar handa
við að undirbúa þingið. Var af nógu að
taka, þar sem margir komu að því að
gera umgjörð þingsins sem eftir-
minnilegasta. Þingið sjálft fór fram í
Framhaldsskólanum en starf í mál-
efnaefndum fór fram í Hamarsskóla
ogFramhaldsskólanum.“
í setningarræðu sinni kom Ásdísi
Halla Bragadóttur inn á grundvallar-
hugsjónir Sjálfstæðisflokksins, aukið
frelsi einstaklingsins og minnkandi
ríkisumsvif. Þar á eftir ávarpaði
formaður Eyverja, félags ungra
sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum,
þinggesti og sagði meðal annars að
Eyverjar fögnuðu 70 ára afmæli 20.
desember nk.
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
Davfð Oddson forsætisráðherra ávarp-
aði þingið á föstudaginn og sat síðan
fyrir svörum í hátíðarsal Framhalds-
skólans ásamt ráðherrum Sjálfstæðis-
flokksins, og sagði Skapti Örn að
fundurinn hafi verið fjörugur og
skemmtilegur.
Hvar eru stuðboltamir... ?
Skapti Öm segir að Eyverjar hafi eftir
fundinn með ráðherrunum haldið
glæsilega^ móttöku að hætti Eyja-
manna í Ásgarði, félagsheimili sjálf-
stæðisfélaganna í Vestmannaeyjum.
„Sýndu Eyverjar enn einu sinni að
þeir em manna skemmtilegastir á SUS
þingum, enda spurði Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra hvar stuðboltamir
Ási Friðriks., Goggi í Klöpp og Gaui
Bæjó væra. Svöruðu Eyverjamir því
að það væru samtals 30 ár og 150 kg.
sfðan þeir héldu uppi stuðinu, nú væri
það nýtt og ferskt afl sem héldi uppi
starfseminni af miklum krafti. Nýleg
og glæsileg aðstaða, sem Eyverjar
hafa verið að koma sér upp undanfarin
tvö ár, var til sýnis og vakti óskipta
athygli. Félagslegi þátturinn virðist oft
gleymast hjá mörgum aðildarfélum
SUS víða um land. Ungt fólk verður
líka að geta skemmt sér saman án þess
að vera ætíð að fjalla um stefnur
stjómmálaflokkanna og berja á
afturhaldsöflum í þjóðfélaginu."
Málefnastarf og
skemmtilegheit
Starf í málefnanefndum hófst síðan á
laugardag þar sem starfað var í 20
mismunandi nefndum, allt frá land-
búnaðamefnd til utanríkisnefndar.
Nefndimar lögðu síðan fram ályktanir
sem síðan voru bomar undir atkvæði á
þinginu og sagði Skapti Öm mikið og
skemmtilegt málefnalegt starf hafa
farið fram, og oft á tíðum skemmti-
legar umræður um hin ýmsu málefni.
Eftir mikil og löng fundahöld á
laugardeginum bmgðu þinggestir sér í
skoðunarferð um bæinn og komu
meðal annars við í Fiskmarkaði Vest-
mannaeyja. Þeir fengu síðan að
spreyta sig í þjóðariþrótt okkar Vest-
mannaeyinga, spranginu og sleppa
nokkrum pysjum. Síðar um kvöldið
var síðan efnt til hátíðarkvöldverðar í
Týsheimilinu, þar sem bæjarstjórinn
okkar Guðjón Hjörleifsson stýrði
veislunni af miklum myndugleik. í
skemmtidagskrá eftir kvöldverðinn
var mikið um atriði þar sem hlátur-
taugar þinggesta titruðu lengi og vel.
Fyrst ber að nefna heimsfræga hljóm-
HELGI Bragason, formaður Eyverja og Jóhanna Eyjólfsdóttir
(Martinssonar) framkvæmdastjóri SUS, báru hitann og þungann af
undirbúningi og framkvæmd þingsins.
sveit með nokkrum Eyverjum, sem
steig á stokk. Það er hljómsveitin
„Heymarlausu hænumar" en söngv-
arinn, Gunnar Friðfmnsson, varafor-
maður Eyverja, stýrði hljómsveitinni
með óaðfinnanlegri söngrödd. Þess
má geta að hljómsveitin var strax
bókuð í Kringluna um jólin, hvort það
er til þess að trekkja að eða ekki skal
ósagt látið.
Frambjóðendumir, Jónas Þór og
Sigurður Kári voru síðan fengnir upp
á svið til að láta til sín taka í söng-
listinni. Eftir góðan mat frá Veislu-
þjónustu Gríms og hin ýmsu
skemmtiatriði steig stórhljómsveitin
Buttercup á sviðið og spilaði fram eftir
nóttu við góðar móttökur.
Formannskosningamar
Stóra stundin var síðan á sunnudaginn
þegar ganga átti til kosninga til
stjómar og formanns Sambands ungra
sjálfstæðismanna. Þar sem veður hafði
sett strik í reikninginn á laugardag og
sunnudagsmorguninn komust færri en
vildu til Eyja. Gripu formannsefnin til
ýmissa ráða til að koma mann-
skapnum til Eyja en allt kom fyrir
ekki. En það var um hádegisbil á
sunnudaginn þegar opnaðist fyrir flug,
að í kringum 100 manns komu til Eyja
til að styðja sína menn í for-
mannskjörinu.
Skapti Öm segir að úrslit kosn-
inganna hefðu orðið þau að Sigurður
Kári vann yfirburðasigur á Jónasi Þór
með 211 atkv. á móti 143 atkv.
Jónasar. „Það var magnþrungin
spenna sem greip þinggesti þegar
fulltrúi fráfarandi stjónar SUS las upp
tölurnar. Báðir frambjóðendur
ávörpuðu þingheim eftir að úrslit lágu
fyrir og hvöttu þeir til samstöðu og að
menn gætu unnið saman af heilindum
eftir þessa miklu og hörðu kosn-
ingabaráttu. Það er því ljóst að þeir
eiga eftir að láta mikið að sér kveða í
þjóðmálaumræðunni í framtíðinni.
Eftir að búið var að kjósa formann og
stjóm SUS var þinginu slitið og ljóst
að einu stærsta og eftirminnilegasta
SUS þingi frá upphaft var lokið. Það
fór því vel á því að halda SUS þing
hér í Eyjum á 70 ára afmæli Eyveija."
Það var margt gott fólk sem kom að
þinginu á einn eða annan þátt og vildi
Skapti Öm koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg.
Vildi stjórn Eyverja þakka skóla-
stjórum Framhaldsskólans og Ham-
arsskólans, og starfsmönnum þeirra
kærlega fyrir afnotin á skólunum,
Fiskmarkaði Vestmannaeyja og
mörgum, mörgum fleiri sem ekki er
hægt að tilgreina hér.
Glerlist á Lundanum
Steinunn Guðmundsdóttir glerlistakona mun opna sýningu á
glerverkum á Lundanum í dag kl 15.00.
Glerið sker hún út og setur saman á ný með blýi eða tini. Einnig sýnir hún
kertastjaka og ýmsa aðra nytjahluti úr gleri. Steinunn segir að hún hafi unnið
að glerlistinni í tæpt ár, en áhuginn á listinni hafi alltaf verið til staðar. „Eg
gerði eymalokka úr lundanefum og lundafótum, auk hálsmena hér í eina tíð,
en hef nú snúið mér aðallega að glerlistinni," segir Steinunn. Hún hefur sýnt
á handverksmörkuðum og sýndi síðast á handverkssýningu í Hrafnagili í
Eyjafirði í sumar. Sýningin er aðeins opin í dag og á morgun frá klukkan
15.00 til 19.00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Verkin em öll til sölu.