Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Page 15

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Page 15
Fimmtudagur 26. ágúst 1999 Fréttir 15 Knattspyrna: Bjarni Jóhannsson þjálfari um KR-leikinn í Frostaskjólinu á sunnudaginn Rúmlesa sex stiga leikur Leikur ÍBV gegn KR á sunnudag er nánast eins og úrslitaleikur í úrvals- deildinni. Urslit í honum hafa gífurlega þýðingu fyrir bæði lið enda tekið að líða á seinni hluta leiktímabilsins. „Þessi leikur er ekki ósvipaður og síðasti leikurinn okkar í fyrra,“ segir Bjami Jóhannsson, þjálfari IBV. „Þessi tvö lið hafa verið afgerandi í deildinni í sumar, baráttan hefur staðið milli þeirra allt mótið. Segja má að þetta sé rúmlega sex stiga leikur, mjög þýðingarmikið að ná góðum úrslitum í honum. Við unnum fyrri viðureign liðanna í Eyjum í sumar, það er eini leikurinn sem KR hefur tapað í sumar, en þau úrslit hjálpa okkur lítið á sunnudaginn. Þá verðum við að sýna allar okkar bestu hliðar. Raunar hefur ÍBV gengið vel á KR-vellinum, við unnum þar bæði í fyrra og hitteðfyrra. En þar ber einnig allt að sama bmnni, þau úrslit hjálpa okkur ekki í næsta leik“ Bjami segir að breytingar séu ekki fyrirhugaðar á skipulagi liðsins, hvorki í mannskap né leik. „Auðvitað em alltaf einhverjar smávægilegar breytingar frá leik til leiks en slíkt er auðvitað ekki gefið upp fyrir leikinn. Við vomm mjög ósáttir við að detta út úr bikarkeppninni. Nú eigum við þennan titil að verja og við munum leggja allt undir til að ná því marki. Eg efast ekki um að sama viðhorf sé til staðar hjá KR-ingum, þá er eflaust farið að þyrsta í titil eftir öll þessi ár. Þetta verður því ömgglega hörku- leikur á sunnudag enda mikið í húfi fyrir bæði lið,“ sagði Bjami Jó- hannsson. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná sambandi við Atla Eðvaldsson, þjálfara KR, en hann er staddur í Skotlandi, ásamt liði sínu, og ekki væntanlegur til landsins fyrr en á morgun. - .. .t.‘ ■ -■ ■•*-■- • -■ -s .-■ •■• . - - ....:•■“ '■ .____u3T- fef £& ■ .«■ '■■ . ■" •';■■'*’ > :r'íW - ■ : .f'/ -'.-A- , •■’■■ ■•■■ -V. •- * * * . INGI Sigurðsson meiddist illa í lokaleik KR -g ÍBV í fyrra og náði ekki að klára leikinn. Áður hafði hann samt náð að skora og átti því sinn þátt í að ÍBV tókst að ná Islandsmeistaratitlinum við nefið á KR-ingum. Ingi hefur leikið vel í sumar og vonandi nær hann að leika sama leikinn og í fyrra, skora a.m.k. eitt mark ensleppa ómeiddur. Dansleikur 03 upphitun fyrir leik Stuðningsmenn ÍBV í Reykjavík ætla að hita upp fyrir KR-leikinn með stórdansleik í veitingahúsinu Broadway á laugardag. Þar verður kvöldverður með sýningu og dansleikur með Sóldögg á eftir. Við innganginn verður stuðningshópurinn með ýmiss konar IBV-varning til sölu. Á sunnudag er svo upphitun á Glaumhar og sætaferðir þaðan á völlinn. Stuðningsmenn ÍBV eru hvattir til að mæta tímanlega á völlinn, norðanmegin móti stúkunni, íklæddir hvítum treyjum, treflum og ÍBV- húfuni, til að styðja sína menn til sigurs. Góður stgur hjá þriðja flokki Þriðji flokkur ÍBV karla sigraði ÍA í A-riðli íslandsmótsins á þriðjudag 3 - 2. IVIörk IBV skoruðu Bjarni Rúnar Einarsson 2 og Hörður Orri Grettisson. IBV virðist því á góðri leið með að bjarga sér frá falli í riðlinum. Þess má geta að Skagamenn eru efstir í A-riðli en Eyjamenn áttu stórleik og unnu verðskuldað. Tippið í gang Getraunaþjónusta IBV opnarað nýju á laugardaginn eftir smá sumarfrí. Opið verður frá kl. 10.30-13.00. Ensku leikimir eru komnir á seðilinn og því ekkert að vanbúnaði að byrja að spá í spilin, fá nýjasta IBV slúðrið staðfest hjá Edda Garðars og Tói segir ykkur sögur úr 2. flokki. Hópaleikurinn hefst aðra helgi, laugadaginn 4. september. Því er um að gera að byrja að undirbúa sig, jafnvel fmna nýjan makker til þess að ná betri úrslitum en í fyrra. Ágóðinn af getraunum rennur sem fyrr í unglingastarf ÍB V og nýtur yngri kynslóðin því góðs af því þegar þið tippið. Tekin hefur verið í notkun glæný tölva sem auðveldar tippið til muna. Munið að ÍBV fær miklu stærri hlut af tippinu sé tippað beint í gegnum tölvuna í Týsheimilinu. Hvemig væri að sameina laugar- dagsmorgunrúntinn og kaupa laugar- dagssælgæti og tippa í leiðinni... Gctraunaþjónusta IBV Knattspyrna: Landssímadeild karla - Fram 0 - IBV 2 Orusst Liðsmenn IBV sýndu í leiknum gegn Fram á Laugardalsvelli á sunnudaginn að þeir höfðu nýtt sfðustu viku til að hlaða batteríin. Unnu þeir tiltölulega auðvcldan sigur á Frömurum og eru Eyja- menn því ennþá með í slagnum um íslandsmeistaratitlinn. Leiknum lauk með 0-2 sigri Eyjamanna. ÍBV byrjaði leikinn með miklum krafti og uppskar fyrra markið strax á 2. mínútu þar sem Ivar og Ivar vom að marki. Ivar Bjarklind komst upp á endamörkum og gaf fyrir markið þar sem nafni hans Ingimarsson náði til boltans og skoraði. ívar Bjarklind átti eftir að koma aftur við sögu þegar hann skoraði seinna mark ÍBV á 62. mínútu. Var það eftir að Ingi Sigurðsson skallaði fyrir markið. Ivar var staddur á marklínu og skoraði. Með þessum sigri tekst ÍBV að halda í skottið á KR-ingum sem eru á mikilli siglingu. Þegar þetta er skrifað eru KR-ingar með 33 stig eftir 14 leiki og ÍBV 30 stig eftir 13 leiki. Takist ÍBV að sigra í Valsleiknum eru Eyja- menn komnir upp að hlið KR-inga en þeir státa af hagstæðari markamun, sem er 20 mörk í plús á móti 15 mörkum hjá ÍBV. Meðan þessi markamunur helst verður ÍBV að komast stigi yfir og það gæti tekist á sunnudaginn í Frostaskjólinu. í gær lék IBV við Val en af óvið- ráðanlegum ástæðum verðum um- fjöllun að bíða næsta blaðs. Körfubolti: Leitinni lokið Bandarískur þjálfari ráðinn í körfunni Körfuknattleikslið Eyjamanna, IV hefur ráðið spilandi þjálfara til starfa fyrir komandi átök í vetur. Sá heitir David Grissom, tæplega tveggja metra hár Bandaríkjamaður með íslenskan ríkisborgararétt, sem hefur m.a. spilað með Keflavík og KR. Amsteinn Ingi Jóhannesson for- maður IV segir að það sé mikill fengur að hafa fengið jafn sterkan leikmann og Grissom er. Hann hefur verið valinn í landslið íslands, en hafði stuttu áður ákveðið að leggja skóna á hilluna en hefur nú tekið þá fram á ný. „Miklar vangaveltur hafa verið um hver yrði þjálfari í vetur og hefur m.a. verið rætt við Jón Kr. Gíslason fyrr- verandi landsliðsþjálfara, en sökum anna gat hann ekki gefíð sig 100% í starfið og mælti því með Grissom,“ sagði Amsteinn. Hann sagði ennfremur að lið IV yrði tvískipt í vetur, hluti leikmanna flyst búferlum og fer í skóla í Reykjavík. Munu þeir halda úti æf- ingum þar, einnig væri verið að leita eftir sterkum leikmönnum á höfuð- borgarsvæðinu til að æfa með þeim, enda telst það ekki mjög freistandi að koma til Vestmannaeyja til að spila körfubolta enn sem komið er. Ferðir á KR-lcikinn Eins og alltaf þegar ntikið stendur til í boltanum þjappa Eyjamenn sér saman, nær og fjær og gera allt til að styðja sína menn. Nú á sunnu- daginn er einmitt einn mikilvægasti leikur ÍBV í ár þegar Eyjamenn mæta liði KR í Reykjavík. Herj- ólfur býður upp á hópferð og er fólki það í sjálfevald sett hvenær það fer, þ.e. föstudag, laugardag eða sunnudag, en seinni ferð Hetjólfs seinkar og er haldið úr Þorlákshöfn kl. 21.30. Einnig mun Flugfélag íslands bjóða stuðningsmönnum ÍBV í hópferð og er farið í hádeginu á sunnudaginn og til baka kl. 22.10. Flugið frarn og til baka kostar aðeins 5.730. Upphitun á Glaumbar Stuðningsmannaklúbbur ÍBV í Reykjavfk (ÁTVR) verður með upphitun fyrir leik KR og ÍBV á sunnudaginn. Áætlað er að hittast á Glaumbar síðdegis, eða upp úr íjögurleytið. Stuðningsmannaklúbbur ÍBV í Reykjavík hefur reynst ÍB V frábær bakhjarl undanfarin ár. Stuðnings- menn ÍBV eru hvattir til þess að klæðast hvítu með rauðu ívaft og skella sér í upphitun á Glaumbar. Á úrtökumót KSÍ Ástvaldur Gylfason og Stefán Bjöm Hauksson, leikmenn 3. flokks ÍBV, tóku þátt í úrtökumót KSÍ hjá piltum fæddum 1984 í Snæfellsnesi um síðustu helgi. Þrjár Eyjastúlkur úr 3. llokki, Erna Dögg Sigurjónsdóttir, Berg- lind Þórðardóttir og Hanna Guðný Guðmundsdóttir, hafa verið valdar á úrtaksæfingar U17 ára. Æftng- amar verða um miðjan september. Framundan Fimmtudagur 26. ágúst IBV-Valur í Landsímad. kvenna kl. 18.30. Fram-ÍBV 2. fl. karla kl. 19.00. Sunnudagur 29. ágúst KR-ÍBV 2. fl. kvenna kl. 14.00. KR-ÍBV Landsúnad. karla kl. 18.00 Þriðjudagur 31. ágúst ÍBV-Fjölnir Landsímad kvenna kl. 18.00. Miðvikudagur 1. scptember ÍBV-Víkingur Landsímadeild karla kl. 18.00. Ynsri flokkar Verið er að athuga áhuga fyrir körlúknatlleik fyrir krakka á aldrinum 8 - 12 ára, (jafnvel yngri og/eða eldri ). Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að hafa sam- band við Amstein í síma 481 -1248, eða Sæþór Orra í síma 896-8873. Nýr liðsmaður Frétta Júlíus Ingason hefur tekið við startl Rúts Snorrasonar sem umsjónar- maður íþrótta á Fréttum. Þeir sem þurfa að koma á fram- færi upplýsingum af íþróttasviðinu haft samband við Júlíus. Golf á sunnudas Sparisjóðsmótið í golfi verður nk. sunnudag. Það hefst kl. 11.00 og verður ræst út á öllum brautum samtímis. Skráning er í golfskála.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.