Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 10. febrúar2000
Sandur rennurúr
krepptum hnefa
-Það er alltaf verið að punda á ungu kynslóðina í fjölmiðlum og ég tók það fyrir á
tónleikunum. Ef einhverjir eru teknir á balli með E-töflur þá er það forsíðufrétt í öllum
blöðum og Ijósvakamiðlum, en það telst ekki frétt ef einn skóladansleikur er edrú, það er
bara lásí. Það selur ekki og við höfum ekkert með það að gera, segir Bubbi Mortens
Miðvikudaginn 2. febrúar
hélt Bubbi Morthens tónleika
í bíóinu á vegum Nemenda-
félags Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum. Góð
mæting var á tónleikana og
Bubbi í góðu formi og ekki
annað að heyra en að
áheyrendur hafí verið vel
með á nótunum og líkað vel
það sem kóngurinn
matreiddi úr tónlistar- og
sagnaskjóðunni. Þaðer
ekkert launungarmál að
Bubbi hefur mikið lagt í að
vara ungt fólk við
hörmungum eiturlyfja-
fíknarinnar, enda dvaldi
hann sjálfur í völundarhúsi
fíknarinnar og veit því hvaða
hættur leynast í þeim
ranghölum, tilbúnar að
hremma ungt fólk sem ekki
kann fótum sínum forráð í
hita ímyndaðra flottheita
hvers kyns vímuefna. Að
loknum tónleikunum
spjallaði blaðamaður Frétta
við Bubba og sem von var
snerist spjallið mikið um
eiturlyfjadrauginn og hvaða
leiðir Bubbi telur
vænlegastar til að vekja fólk
til umhugsunar um hættur
vímunnar, en einnig leiddist
spjallið inn á gamla
verbúðastemmningu í
Eyjum, hvar Bubbi er ekki
óhagvanur.
Bubbi segir að hann tali alveg
massíft um hættur eiturlyfja-
neyslunnar og það mætti alveg kalla
það herferð gegn eiturlyljum eða
missjón. „Sérstaklega á tónleikum
sem skólar standa að.“ sagði Bubbi.
„Það er ekkert verið að biðja mig um
það sérstaklega heldur bara að halda
tónleika, en ég hef þetta sem part af
prógramminu, enda tel ég skipta
ofsalega miklu máli að rætt sé um þá
hlið málsins, sem snýr að
neikvæðninni. Það er alltaf verið að
punda á ungu kynslóðina í
ijölmiðlum og ég tók það fyrir á
tónleikunum. Ef einhverjir eru teknir
á balli með E-töflur þá er það
forsíðufrétt í öllum blöðum og
ljósvakamiðlum, en það telst ekki
frétt ef einn skóladansleikur er edrú,
það er bara lásí. Það selur ekki og
við höfum ekkert með það að gera.
Sem betur fer er lágt hlutfall ungs
fólks sem fer í ólöglega vímugjafa
enn sem komið. Stærsti hlutinn fer í
áfengi og aðalvandamálið er áfengis-
neyslan. Þar virðast yfirvöld reyna
að sleppa fyrir hom. Það er verið að
lala um vínkúltúr. Ég starfa íþessum
geira og sé engan vínkúltúr. Ég sé
bara ölæði og hræðilega hluti,
barsmíðar, hjón að rífast og svo
framvegis. Reyndar er ég ekki að
spila yfir borðum. Það má kannski
segja að vínkúltúr sé að fólk drekkur
vín með mat og fínt mál, við gerðum
það ekki hér áður fyrr og kannski
ekkert nema gott um það að segja, en
ég er inni á þessum skemmtistöðum
og er að skemmta þar, og bætt
vínmenning; ég verð að segja að þau
tuttugu ár sem ég hef verið í
bransanum, hef ég bara séð þetta
versna með hverju ári.“
Bubbi var ekki að koma til Eyja í
fyrsta sinn nú. Hann var að vinna í
stöðvunum og bjó á verbúðum bæði
hér og víðar um landið. Þess vegna
vilja margir eiga dálítið í Bubba og
ekki síst Eyjamenn. „Auðvitað eiga
þessir staðir í mér. Hér hefur verið
uppspretta fjölda texta. Obbinn af
Isbjarnarblús varð til í Eyjum og á
Eskiftrði. Síðan tengist þetta allt í
gegnum tíðina, þegar ég er að syngja
um hafið og verbúðalífið. Auðvitað
eru þetta minningar sem ég bý að,
bæði frá Vestmannaeyjum og
Austfjörðunum. Eyjamenn mega
alveg eiga í mér, sem og Aust-
firðingar. Ég held að ég hali tekið út
manndómsárin á landsbyggðinni. Þó
ég sé fæddur í Reykjavík og allt það,
á ég ekkert meiri rætur þar innra með
mér, en landsbyggðin. Þegar ég er
nýorðinn 16 ára er ég að beita línu á
Bolungarvík og er á ýmsum stöðum
úti á landi þangað til ég verð 22 ára.
Þannig að ég held að ég haft mótast
miklu meira sem landsbyggðarmaður
að þessu leyti á þessum árum. Þess
vegna hef ég kannski líka sungið
meira um landsbyggðina því það var
mér aldrei eins fjarlægt og öðrum
poppurum sem fannst það kannski
hallærislegt, fyrir utan að spila á
sveitaböllum. Ég sá miklu meira í
þessu. Ég hef séð toppinn af
landsbygðinni þegar allt var í
rosalegri uppsveiflu, en ég hef líka
séð hnignunina."
Bubbi hefur ferðast og spilað um
landið í tuttugu ár, þar áður að vinna í
sjö til átta ár. þannig að hann segist
hafa fína viðmiðun og vill meina að
hrunið haft byijað um leið og
kvótakerfinu var komið á 1984. „Þá
tek ég eftir að hrunið byijar. Þegar
kvótakerfið var kýlt í gegn átti það að
vera í einhverja 18 mánuði. Þegar
kerfið hefur verið í tvö ár fer ég að sjá
þetta og eitthvað mikið að ske úti á
landsbyggðinni. Ég vil mótmæla því
að flóttinn af landsbyggðinni sé
vegna þess að fólk sé að sækja í
menninguna fýrir sunnan. Ég segi
bara að flóttinn af landsbyggðinni er
stjómvöldum að kenna, ekki
Reykvíkingum. Það em ríkisstjómir
undanfarinna ára sem bera ábyrgðina,
það er mín skoðun."