Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2000, Page 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 10. febrúar 1999
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
10. febrúar fimmtudagur
Kl. 10.00 Foreldramorgunn, mæð-
ur, þurfum að leggja á ráðin fram
á vor með fræðslu og skemmtun.
Fjölmennum.
Kl. 17.30 TTT-starfið (tíu til tólf
ára) Alltaf eitthvað ferskt og
spennandi
Kl. 18.00 Kyrrðar og bænastund
með Taize-lagi, tekið á móti
bænaefnum hjá prestunum.
13. febrúar sunnudagur
Kl. 11.00 Sunnudagaskólinn,
aldrei meira fjör. Trebbi og félagar
koma í heimsókn. Börn og for-
eldrar velkomin meðan húsrúm
leyfir.
Kl. 14.00 Messa. Altarisganga,
fermingarbörn og foreldrar þeirra
hvött til að ganga saman til altaris.
Kl. 16.00 Messunni útvarpað á
FM 104.
Kl. 20.30 Æskulýðsfundur í
Landakirkju, Skapti Örn og Óli
Jói sjá um fjörið ásamt ung-
lingum.
15. febrúar þriðjudagur
kl. 16.30 Kirkjuprakkarar. Heim-
sókn á Sjúkrahúsið og endað í
bakaríi. Krakkar á aldrinum 7-9
ára eru velkomin. Mætið stund-
víslega.
16. febrúar miðvikudagur
Fermingarfræðsla kl. 14.40, 15.40
og 16.40. Fermingarböm mæti
klár f sína tíma. Gestur frá Afríku
í heimsókn.
20.30 Opið hús í KFUM&K-
húsinu fyrir unglinga.
17. febrúar fimmtudagur
Kl. 10.00 Foreldramorgunn í
Safnaðarheimilinu.
Kl. 14.30 helgistund á Sjúkra-
húsinu annarri hæð. Heimsókn-
argestir velkomnir.
Kl. 17.30 Nú er TTT-starfið eins
og venjulega.
kl. 18.00Kyrrðarogbænastund.
Hvítasunnu
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20-21 Bænasamkoma.
Föstudagur
Kl. 20-21 Bænasamkoma.
Laugardagur
Kl. 20-21 Bænasamkoma.
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma
með lifandi boðskap.
Þriðjudagur
Kl. 17.30 Krakkakirkjan.
Allir velkomnir.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 12. febrúar
Kl. 11.00 Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
Biblían
talar-sími
4811585
Handknattleikur kvenna; Sigurbjörn þjálfari ætlar sér alla leið með stelpurnar
Besta lið deildarinnar
-og meira sjálfstraust gæti skilaó þeim alla leið
ÍBV-stelpurnar hafa haft ástæðu til að fagna undanfarið. Á laugardaginn mæta þær ÍR á heimavelli og
sigur í honum tryggir stöðu liðsins á toppnum. Mynd: Páll Marvin
Mikil sigling hefur verið á stelpun-
um í meistaraflokki ÍBV í hand-
boltanum undanfarið. Eftir að hafa
tapað tveimur leikjum með einu
marki hafa þær unnið þrjá leiki í
röð og eru með því að tryggja sig í
efsta hluta deildarinnar. Stelp-
urnar eiga þrjá leiki eftir í deildinni
og stefna á eitt af tjórum efstu
sætunum til að ná betri stöðu í
úrslitunum.
Sigbjöm Óskarsson, þjálfari slelpn-
anna, segir að nú séu þær loksins
famar að sýna sitt rétta andlit. „Eftir að
hafa unnið þrjá leiki í röð erum við
komin á rétt ról í deildinni. Við emm í
5. sæti með 21 stig en næst á undan
okkur er Stjaman með 22 stig eftir 18
leiki. Svo em þrjú lið á toppnum með
25 stig, Grótta/KR eftir 18 leiki og
Víkingur og FH eftir 17 leiki,“ sagði
Sigbjöm í samtali við Fréttir.
Sigbjöm segir að liðið sé á réttri leið
en það sé helst sjálfstraustið sem
vantar. Það hafi komið berlega í ljós í
leikjunum gegn Gróttu/KR og
Stjömunni sem töpuðust með einu
marki. „Næst unnum við Fram, Vík-
ing og Aftureldingu. Afturelding var
ekki mikil fyrirstaða eins og var vilað
fyrirfram en það var eins og þær væm
hálf hissa á að vinna Fram og Víking.“
Þessir sigrar hafa ekki komið þér á
óvart? „Nei, alls ekki. Þó við séum
ekki með stóran hóp þá er ég
sannfærður um að við emm með besta
hópinn í deildinni í dag. Framan af
stóðum við kannski ekki undir þessum
væntingum en núna er liðið á uppleið
og við erum að bæta okkur. Við
eigum ennþá helling inni og getum
unnið öll liðin á góðum degi. Til þess
þurfum við líka að ná upp sjálfs-
traustinu. ÍBV hefur lent svolítið utan
gátta hjá stóru fjölmiðlunum í vetur,
eins og við séum ekki inni í myndinni
og það hjálpar ekki til að byggja upp
sjálfstraustið."
Næsti leikur IBV er á laugardaginn
þegar stelpumar mæta IR í
Iþróttamiðstöðinni. Þá verða eftir tveir
leikir í deildinni, KA úti og Valur
heima. Verða þeir í lok febrúar.
„Leikurinn á laugardaginn er mjög
mikilvægur. Þó við séum ofar en ÍR
hafa ÍR-stelpumar verið að koma á
óvart og má alls ekki vanmeta þær.
Það er því mikilvægt fyrir okkur að fá
sem flesta á leikinn til að styðja okkur.
Okkar markmið er að komast í eitt af
fjómm efstu sætunum í deildinni og
emm við í ágætri stöðu til að klára það
sjálf. Með því fáum við heima-
leikjaréttinn í úrslitunum el' til
oddaleiks kemur."
Hvaða markmið haftð þið sett
ykkur í úrslitakeppninni? „Við ætlum
okkur alla leið enda emm við að bæta
okkur og liðið er á fullri siglingu.
Eigum við ekki minni möguleika en
önnur lið á að komast í lokaumferð
úrslitanna og keppa um íslands-
meistaratitilinn,“ sagði Sigbjöm að
lokum.
HARPA efur lífinu lit!
HÖRPU
SKIN >
ElUgger
viðarvörn
er> HÖRPL
MABPA
LPULITt
Fyrir ári gerðu Harpa hf. og skilancfnd Týs og Þórs samning þar sem Harpa hf. greiðir til skilanefndar
ákveðna upphæð í samræmi við sölu á málningu til Vestmannaeyja. Þessir fjármunir skila sér síðan beint
til íþróttahreyfingarinnar í Vestmannaeyjum. Þessi samningur fór vel af stað og eru báðir aðilar hans
ánægðir með útkomuna eftir árið og var því ákveðið að framlengja honum um eitt ár.
Sveinn Sveinsson frá Hörpu hf. afhenti Guðjóni Hjörleifssyni fyrir hönd skilancfndar hluta afrakstrar,
en áður hafði Harpa hf. greitt hluta af samningnum. Undirskrift samningsins fór fram í Brimnesi sem er
Leiðréttins
Kornið var að máli við íþróttablaða-
mann Frétta um helgina og hann
beðinn um að koma á framfæri leið-
réttingu. Þar var að verki ónefndur
fyrirliði meistaraflokks ÍBV og vildi
ólmur leiðrétta markaskorara í fyrsta
ælrngaleiknum gegn Fylki. Því miður
voru upplýsingar blaðamanns rangar
og var sagt að Ingi, Steingrfmur og
Gunnar Heiðar hefðu skorað mörk
IBV. Hið rétta er að Ingi, Hlynur og
Gunnar Heiðar skomðu mörkin. „Rétt
skal vera rétt. enda er farið að líða
lengra og lengra milli marka hjá
manni. Eins gott að minnast þeirra
þegar þau koma.“ sagði fyrirliðinn.
umboðsaðili Hörpumálningar í Vestmannaeyjum. I samningnum felst
að um leið og Hörpumálning er keypt í Vestmannaeyjum, hvort sem
um er að ræða málningu á hús eða báta fer ákveðið hlutfall til
íþróttahreyfingarinnar og hækkar það hlutfall eftir því sem salan
eykst. Á myndinni má sjá frá vinstri Guðjón Hjörleifsson, Svein
Sveinsson, Viktor Helgason, Þór Vilhjálmsson, Jóhann Pétursson,
Guðjón Rögnvaldsson og Svavar Sigmundsson.
FLUGFELAG ISLANDS
Gerum öllum fært að fljúga
Uppl. og pantanir, 481 3300