Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 4. maí 2000
fréttir
Vilja sjónuarpspall
við Hástelnsvöll
Knattspyrnudeild ÍBV hefur sótt
um leyfi skipulags- og bygginga-
nefndar til að setja upp sjón-
varpspall norðan megin við Há-
steinsvöll, fyrir miðju vallarins, á
stalli fyrir neðan gangbraut.
Áætlað er að pallurinn verði um 2,5
m á hæð eða í u.þ.b. 4 m hæð ylir
sjálfum vellinum. Þá er ætlunin að
pallurinn verði uppi meðan á
keppnistímabilinu stendur, frá
miðjum maí fram í september.
Þessu erindi hefur verið vísað til
umhverfisnefndar.
Huar eru gríllinP
Á undanförnum árum hafa þeir
Áhaldahússmenn smíðað sérhönn-
uð grill úr tunnum og hafa lánað
þau til þeirra sem haldið hafa
grillveislur í stærri kantinum. Upp-
haflega voru grillin sex talsins en
nú vill svo til að einungis þrjú hafa
skilað sér í Áhaldahúsið. Þar sem
aðalgrilltíminn er framundan vilja
þeir Áhaldahússmenn því biðja þá
sem eru með hin þrjú í sínum
fómm að skila þeim sem allta fyrst.
Merkiasala
Landssamtök hjatfasjúklinga verða
með sína árlegu merkjasölu á
föstudag og laugardag við tjórar af
verslunum bæjarins. Öllum ágóða
af sölunni verður varið til að efla
endurhæfmgarþjónustu hjartasjúkl-
inga á landsbyggðinni.
Garðyrkjustjóra falið
aðsvara
I síðasta tölublaði Frétta birtist opið
bréf til bæjaryfirvalda frá Ómari
Garðarssyni, ritstjóra. Þar voru
lagðar fram 11 fyrirspurnir sem
óskað var svara við. Þetta bréf var
tekið til umfjöllunar á fundi
umhverfis- og landnytjanefndar á
þriðjudag og þar samþykkt að
Kristján Bjamason, garðyrkjustjóri,
svari bréfritara.
Framlaguppá
7,3 milljóPir
Á fundi bæjarráðs á mánudag lá
fyrir bréf frá félagsmálaráðuneyti
þar sem tilkynnt er um framlag úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna
sérþarfa fatlaðra nemenda í
gmnnskólum. Framlagið nemur kr.
7.340.000.
Samtökum78syujað
Bæjarráð tók fyrir á fundi sínum á
mánudag bréf frá Samtökunum 78
þar sem óskað er eftir fjárstyrk.
Samtökin 78 munu vera félags-
skapur samkynhneigðra. Bæjanáð
gat ekki orðið við þessu erindi.
Þórður sigraði
Á laugardag var Flaggakeppnin á
dagskrá hjá GV. Leikið var með
hálfri forgjöf, sem miðast við níu
holur, en farið yfir. á seinni níu
holurnar ef afgangur var af
höggum. Sigurvegari varð Þórður
Sigursveinsson sem endaði 20 m
framan við 12. holu. í öðru sæti
varð Leifur Ársælsson 1,10 m frá
11. holu og í þriðja sæti Leifur
Jóhannesson 1,20 m ifá 11. holu og
aðeins tíu cm frá því að hirða annað
sætið af afa sínum.
Barnaverndarnefnd:
Unnið með málefni 22
fjölskyldna á síðasta ári
Á síðasta fundi félagsmálaráðs
gerði félagsmálastjóri grein fyrir
innihaldi skýrslu til Barnaverndar-
stofu, vegna barnaverndarmála á
árinu 1999.
I skýrslunni kemur fram að unnið
hafi verið með málefni 22 íjölskyldna
í Eyjum vegna 28 bama, á grundvelli
bamaverndarlaga. Þar af vom sjö ný
mál. Alls bámst starfsmönnum nefnd-
arinnar 40 tilkynningar vegna 27
bama og er það svipaður fjöldi og
undanfarin ár. í vaxandi mæli leita
foreldrar sjálfir aðstoðar en aðrir
tilvísunaraðilar voru skólar og skóla-
skrifstofa, nágrannar og lögregla.
Helstu ástæður slíkrar tilvísunar eru
gmnur um vanrækslu eða vanlíðan
bams og gmnur um áfengis eða vímu-
efnaneyslu foreldra, auk annarra
erfiðleika svo sem hegðunarerfiðleika
hjá bami. I kjölfar könnunar mála var
ekki talin þörf á frekari afskiptum í
þremur tilvikum.
Helstu stuðningsúrræði bama-
vemdamefndar em ráðgjöf til foreldra
um uppeldi og aðbúnað, ráðgjöf veitt
börnum í formi viðtala eða persónu-
legrar ráðgjafar og aðstoð veitt á
gmndvelli laga um félagsþjónustu,
svo sem félagsleg ráðgjöf, heima-
þjónusta og fjárhagsaðstoð. Önnur
stuðningsúrræði em vistun á bömum
utan heimilis á einkaheimilum eða
greiningar- og meðferðarstofnunum á
vegum ríkisins. í árslok var málum
sex bama lokið en áfram unnið í
málefnum 22 bama.
Auk þessara mála var veitt ráðgjöf í
níu forsjárdeilumálum og 11 um-
gengismálum á árinu 1999. í sam-
starfi við lögreglu og sýslumanns-
sembættið í Eyjum var vísað til
starfsmanna bamavemdarnefndar
málum 40 bama m.a. vegna brota á
útivistarreglum, ölvunar, þjófnaðar og
eignatjóna.
Lögreglan:
Til athugunar
Nú, þegar sumarið er komið verður
aukning á reiðhjólanotkun og þá
sérstaklega hjá yngri kynslóðinni.
Af því tilefni vill lögregla minna
foreldra á að börn eiga að vera með
öryggishjálma við notkun reiðhjóla.
Lögreglumenn segja algengt að böm
séu án hjálma á reiðhjólum og er því
greinilegt að foreldrar standa sig ekki
hvað þetta varðar.
Þá hafa lögreglumenn og tekið eftir
því að oft em böm í bifreiðum án þess
að vera með spennt bílbelti. Er það
miður að foreldrar skuli ekki hafa
meiri áhyggjur af velferð bama sinna
en svo, að þeir séu reiðubúnir til að
leggja þau í hættu ef árekstur verður
eða ef hemla þarf snögglega. Það er
staðreynd að miklu meiri hætta er á
slysum í bifreiðum ef ökumenn og
farþegar em án öryggisbelta
Blaðinu hefur borist eftirfarandi bréf frá stjórn Foreldrafélagsins á
Rauðagerði, stflað á Skólamálaráð Vestmannaeyja/Leikskólafulltrúa,
Ráðhúsinu.
Við viljum með bréfi þessu vekja athygli skólamálaráðs/leikskólanefndar
á því að neyðarástand er farið að ríkja á lóð leikskólans Rauðagerðis. Eftir
athugun á lóðinni er okkur mjög brugðið. Grindverkið er að hruni komið
og reynar hrunið á nokkrum stöðum. Starfsfólk leikskólans hefur orðið að
binda grindverkið saman á löngum köflum. Göt hafa myndast á
grindverkið og dæmi eru þess að börn laumi sér þar út. Börnin okkar
komast auðveldlega út á götu og slíkt býður hættunni heim.
Nú líður að sumri, þeim árstíma sem leikskólabörn eyða að miklu leyti úti.
Það er eindregin ósk okkar að ný og örugg girðing verði sett upp fyrir
sumarið. Það er krafa foreldra, sem eiga börn á Rauðagerði, að úr þessu
verði bætt hið fyrsta því að slysin gera ekki boð á undan sér.
Með von um skjót viðbrögð
Vestm. 1. maí 2000
Stjórn Foreldrafélagsins á Rauðagerði
Smart færir út kvíarnar:
Hefur sölu
á fæðubót-
arefnum
Á laugardaginn í Alþýðuhúsinu
verður tískuverslunin Smart með
kynningu á fæðubótarefnum sem
hún er að hefja sölu á.
„Við erum með umboð fyrir
fæðubótavörur frá MLO, Universal
og Muscletech," sagði Gunnar Ingi
Gíslason í Smart þegar hann var
spurður um þessa hliðarbúgrein sína.
„Kynningin hefst klukkan 4 og þar
ætlum við að sýna hvað við höfum að
bjóða um leið og fólk fær tækifæri til
að leita til sérfræðinga í þessum
efnum. Fólk er mikið farið að nota
fæðubótarefni í staðinn fyrir máltíðir.
I Reykjavík eru komnar sérhæfðar
búðir á þessu sviði en hér hefur þetta
vantað. Það er því tími kominn til að
bjóða Eyjamönnum upp á þessa
þjónustu.“
Gunnar Ingi segir að fram til þessa
hafi það einkum verið fólk í íþróttum
og líkamsrækt sem hafi nýtt sér
fæðubótarefnin. „En það er að færast
í vöxt að fólk sem vill grenna sig nýti
sér fæðubótarefnin og svo henta þau
fyrir hvem sem er. I Alþýðuhúsinu á
laugardaginn gefst fólki kostur á að
kynna sér efnin og hvemig á að nota
þau. Til þess hef ég fengið fólk með
góða þekkingu á notkun þeltTa,“ sagði
Gunnar Ingi.
fréttir
Firpiakeppnipá
langardag
Næsta laugardag verður Firma-
keppnin hjá GV og verða leiknar
18 holur með og án forgjafar. Búið
er að opna allan völlinn til leiks og
komið inn á sumarflatir alls staðar.
Þetta er einnig fyni dagur í
undanrásum fyrir holukeppni GV
og Olís, seinni dagurinn verður
annan laugardag. Rástímum hefur
verið breytt frá því í fyrra, nú er
hægt að hefja keppni hvenær sem
er á tímabilinu frá kl. 9 - 13 en
verðlaunaafhending fer fram kl. 18.
Kylfingar em hvattir til að
tjölmenna í þetta mót og leika fyrir
þau fyrirtæki sem taka þátt í
mótinu.
Stálp jólaskrapti,
farsípiaog
blópiakerjpm
Þrír þjófnaðir vom kærðir til
lögreglu í sl. viku. Á miðvikudag
var tilkynnt að rauðri ljósaslöngu,
sem notuð hafði verið sem jóla-
skraut, hefði verið stolið af húsi
Heildverslunar Karls Kristmanns.
Á sunnudag var tilkynnt að farsíma
hefði verið stolið úr jakka sem var í
fatahengi í Kiwanishúsinu. Lög-
reglan óskar eftir upplýsingum um
þessi tvö mál. Á föstudag var svo
tilkynnt að þýfi væri að finna í húsi
nokkm í bænum og fór lögregla á
staðinn. Þar fundust bæði blórna-
ker og bekkir í eigu bæjarins og
viðurkenndu þeir sem í húsinu vom
að hafa tekið munina. Það mál telst
því upplýst.
Skemmdir
ogrúðobrot
Þrjú skemmdarverk voru tilkynnt í
vikunni. Áfimmtudagvartilkynnt
um mðubrot í bifreið sem stóð við
Sólhlíð 19. Aðfaranótt föstudags
vom enn einu sinni unnar skemmd-
ir á listaverki við Ráðhúströð og á
sunnudag var svo tilkynnt að rúða
hefði verið lirotin í gamla golf-
skálanum í Herjólfsdal. Þar sem
ekki er vitað hveijir vom að verki í
ofangreindum málum óskar lög-
regla eftir upplýsingum um þá er
stóðu að þessum eignaspjöllum.
Eípr stútur enn
Enn var ökumaður tekinn, gmnaður
urn ölvun við akstur í vikunni en
alls voru tólf kærðir vegna brota á
umfet'ðarlögum. Þær kæmr voru
auk ölvunarakstursins, íyrir hrað-
akstur, ólöglega lagningu, akstur án
réttinda og akstur eftir sviptingu
réttinda.
Fótbrot í lapdgangí
Eitt slys var tilkynnt lögreglu í
vikunni. Átti það sér stað í land-
ganginum um borð í Herjólfi. Þar
hrasaði maður með þeint af-
leiðingum að hann fótbrotnaði.
FRETTIR
Utgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Hetjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.