Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Qupperneq 8
8
Frcttir
Fimmtudagur 8. júní 2000
Grímur Gíslason og Sigmar Georgsson byggja ráðstefnuhús:
Draumur að veruleika
Nú hefur fengist grænt ljós á
byggingu fjölnota skemmti- og
ráðstefnuhúsi á vatnstankinum í
Löngulág. Það hefur staðið
nokkur styrr um byggingu
hússins, en eftir að samþykkt
fékkst frá Hollustuvemd Ríkisins
um að nauðsynlegar ráðstafanir
yrðu gerðar til þess að tryggja
frárennslismál, og ná sátt við íbúa
nærliggjandi húsa samþykkti
bæjarstjórn bygginguna. Húsið er
1216 fermetrar að grunnfleti og
300 fermetra koníaksstofa, en gert
er ráð fyrir að húsið taki allt að sex
til sjöhundruð manns. Gert er ráð
fyrir að húsið verði opnað í byijun
október. Það er Egill Guðmunds-
son hjá Arkís sem teiknar húsið,
en hann hefur einnig teiknað
menningarhúsið sem hugmyndir
eru um að reisa í hrauninu austan
við bæinn.
Grímur Gíslason og Sigmar Georgs-
son eru aðalhvatamenn og hug-
myndasmiðir að byggingunni og þeir
eru fyrst spurðir að þvf hvers vegna
þeir tveir hafi ákveðið að sameinast
um byggingu á slíku húsi. Sigmar
segir að eftir að hann hætti rekstri
Vöruvals hafí hann verið með annan
fótinn hjá Grími. „Hann vissi að ég
hafði verið í Rekjavík í leit að nýju
fyrirtæki til þess að setja upp í Eyjum.
Eg hafði meðal annars leitað til
Nýsköpunarsjóðs og Iðntæknistofn-
unar í þessu skyni. Síðan gekk ekkert
eftir af því. Eg var svo einhvem tíma
í spjalli hjá Grími og hann fer þá að
viðra hugmyndir sínar um byggingu
skemmti- og raðstefnuhúss á vatns-
tankinum. Ég greip hugmyndina
fegins hendi, en hann getur nú sagt
betur frá hugmyndinni.“
Gömul hugmynd
Grímur, komstu Sigmari niður á
jörðina?
„Nei, ég held að ég hafi frekar
komið honum upp á himininn. Ég er
búinn að ganga með hugmyndina
lengi, en ekki þorað út í framkvæmdir.
Svo frétti ég að til stæði að byggja þak
ofan á vatnstankinn sem þátt í viðhaldi
hans, en það hafði staðið til lengi. Þá
fannst mér lag að drífa í þessu núna
eða sjá eftir því alla ævi að hafa setið
auðum höndum. Ég sagði síðan
Sigmari frá þessari „brjáluðu hug-
mynd“. Ég hélt nú að hann myndi
taka dræmt í en hann samþykkti þetta
á innan við fimm mínútum. Ég fer
síðan á fund hjá bæjarveitum um hvort
hægt væri að fá tankinn sem grunn
undir téða byggingu. Þeir gripu
hugmyndina fegins hendi og þá að
spara sér peninga í leiðinni. Þannig
sáu þeir leið til þess að nýta það fé
sem færi í þakbyggingu, sem hlutafé í
fyrirtækinu."
Sigmar segir að Bæjarveitur komi
með þakpeninginn inn sem hlutafé,
sem endurgreiðist innan tíu ára.
„Vatnstankurinn sjálfur er einnig
verðlagður sem hlutafé og vilja þá að
sjálfsögðu hafa hönd í bagga með
framkvæmdum og eiga því mann í
stjórn og geta fylgt eftir kröfum Holl-
ustuverndar um lagnabrunninn og
allan frágang á frárennsli. Þetta er jú
vatnsból Eyjamanna og eðlilegt að
þeir eigi mann inni til þess að tryggja
þá hagsmuni.“
Sannfærðist þú á fimm mínútum
Sigmar?
„Við fórum strax að ræða þessi mál
af alvöru. Ég var orðinn mjög
hvekktur á að ganga á milli manna í
Reykjavík. Ég var í tvígang kominn
með fyrirtæki í hendurnar þar sem
bara átti eftir að skrifa undir, en gekk
svo til baka á síðustu stundu. En
þegar þetta kom upp fannst mér rétt að
ganga til liðs við Grím.“
Viðbrögðin komu á óvart
Nú hefur byggingin farið íyrir brjóstið
á mönnum og í upphafi voru ekki allir
á eitt sáttir urn að reisa slíkt hús á
slikum stað. Áttuð þið von á þessum
viðbrögðum?
Grímur segir að svo haft alls ekki
verið. „Menn voru að misskilja þessa
framkvæmd og héldu að þama yrði
skrall um hverja helgi. Það er hins
vegar alls ekki stefnan. Við erum að
stefna inn á nýjan markað, sem er að
geta fengið árshátíðir, þing, ráðstefnur
og stærri fundi til Vestmannaeyja.
Þetta er algerlega óplægður akur og
því miklir möguleikar. Þá er ég ekki
bara að tala um veitingahlutann,
gistingu né ferðir til og frá Éyjum, því
þetta skapar gríðarlegar tekjur fyrir
bæinn í heild sinni. Markaðurinn í
Vestmannaeyjum er ekki nógu stór
einn og sér fyrir nýtingu svona húss,
hins vegar er hann mjög góður
grunnur og væri ekki hægt nema hann
væri líka til staðar. Vestmannaeyjar
hafa mjög mikla sérstöðu að þessu
leyti, enda hafa þeir fundir og
árshátíðir sem haldnar hafa verið í
Eyjum fram til þessa fengið mikinn og
góðan hljómgrunn hjá minni fyrir-
tækjum sem hafa komið hingað í
þessu skyni. Ánægja slíkra hópa er
fyrst og fremst fólgin í stuttum
vegalengdum og talað um mun betri
árangur af til dæmis fundum hér, en
nokkum tíma í Reykjavík, því þar eru
menn alltaf í einhverju skreppi."
Sigmar segir að í Eyjum sé svo
margt sem mæli með að fá slíka hópa
til Eyja. „Hér hafa menn næði til þess
að sinna því sem þarf að sinna vegna
fundarhalda, en auk þess er hægt að
fara með fólk í skoðunarferðir og
bjóða upp á ýmsa afþreyingu sem ekki
tekur langan tíma.“
Gríðarleg atvinnutækifæri
Þeir félagar segja einnig að fyrirtæki
Gríms.Veisluþjónustan hafi fyrir
löngu sprengt utan af sér núverandi
húsnæði. „Hann þurfti að komast í
stærra eldhús, til þess að anna
markaðnum," segir Sigmar. „Þá
sáum við að með því að byggja þetta
stórt hús væri hægt að fara með
starfsemina í nýja húsið og tryggja um
leið reksturinn á þeim stað. Þaðerþví
ekki bara verið að hugsa um rekstur
ráðstefnuhúss, heldur væri atvinnu-
starfsemi í húsinu alla daga. Einnig
kom hann með aðra hugmynd sem
hann hefur verið að velta lengi fyrir
sér, en það er framleiðsla á fiskréttum
til útflutnings. Núverandi húsnæði
Veisluþjónustunnar gæti því fullnægt
þeirri framleiðslu. Það sannfærði mig
strax um ágæti hugmyndarinnar."
Grímur segir að samkvæmt út-
reikningum þeirra og áætlunum ætti
bygging hússins að standa undir sér
eftir eitt ár. „En eins og Sigmar segir
er aðstaðan orðin of lítil fyrir Veislu-
þjónustuna. Það stendur fyrir dyrum
stór samningur við Sláturfélag Suður-
lands um að hefja framleiðslu undir
merki 1944 réttunum. Bara það er
gríðarleg viðurkenning á þessari
starfsemi, bæði hvað varðar afurðir og
aðstöðu. Þetta er ekki frágengið, en
menn eru mjög spenntir fyrir öðrum
framleiðsluþáttum líka.“
Má segja að draumur ykkar beggja
hafí ræst þama í tankinum?
„Það má segja það,“ segir Grímur.
„Við erum að tala um gríðarleg
atvinnutækifæri, því um er að ræða
tuttugu til tuttugu og fimm störf, sem
er frábært fyrir Vestmannaeyjar í heild
sinni, þegar alltaf er verið að biðja um
aukna fjölbreytni í atvinnulífinu."
Grímur og Sigmar vonast úl að fólk
sjái að þeir séu að gera góða hluti og
að þeir vilji halda sátt við alla. „Við
teljum okkur vera að gera góða hluti.
Þetta verður enginn skrallstaður. Við
leitum líka tilboða í Eyjum í hluti eins
og húsgögn og glugga og Geir á
Reynisstað reyndist með hagstæðasta
tilboðið á húsgögnum og Gefjun í
Eyjum er með sína glugga inni
varðandi þann þátt. Húsið er hins
vegar íslenskt frá A- Ö. Burðar-
einingamar em frá Límtré á Flúðum
og útveggir og einangrun er frá
Yleiningum í Reykholti í Biskups-
tungum. Húsið er sértstaklega hannað
sem samkomuhús, veggir em þykkir
og mikil einangmn, sem sértaklega er
hönnuð fyrir tónlistarflutning, svo
þama á að verða góður hljómburður.
Síðan verða allar tengingar fyrir
rafmagn og tölvur svo að halda megi
ráðstefnur með öllum nútímakröfum.
Við megum ekki verða eftirbátur
annarra á þessu sviði, svo við verðum
að stíga skrefið til fulls. Þess vegna
viljum við hvetja fólk sem hefur
eitthvert fjármagn til þess að leggja
það í sína heimabyggð og stuðla að
betra og bættara bæjarfélagi í Eyjum.“
TEIKNINGAR af ráðstefnuhúsinu. Neðri teikningin sýnir hvernig húsið kemur til með að líta út, séð frá
bænum.
■W 'j'ií.
FYRSTA skóflustungan varð að lítilli fjölskylduathöfn. Sigmar tekur fyrstu skóflustunguna.