Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Blaðsíða 10
10 Fréttir Fimmtudagur 8. júní 2000 Reikningar bæjarsjóðs og stofnana 1999: Tekjur bæjarins meira en að standa gera ekki undir rekstri Meirihlutinn segir að rekstur sveitarfélaga um allt land hafi þyngst og að kostnaður við aukna þjónustu í sveitarfélögunum hafi ekki skilað sér í tekjum sem skyldi. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins líta samt björtum augum á framtíðina og munu starfa áfram af festu og ábyrgð bæjarfélaginu til heilla. Minnihlutinn krefst uppstokkunar í fjármálastjórn og að fenginn verði hlutlaus aðili með haldgóða þekkingu á fjármálastjórn til að meta skuldaþol bæjarfélagsins og fjárhagsstöðu og aðstoða bæjarstjórn við að koma fjármálum bæjarfélagsins í lag GUÐJÓN bæjarstjóri er sakaður um að reyna að berja í brestina í fjármálum bæjarins. Reikningar bæjarsjóðs Vest- mannaeyja og stofnana hans fyrir árið 1999 voru lagðir fram til seinni umræðu í bæjarstjórn í síðustu viku. Eins og við er að búast eru himinn og haf milli álits meirihluta sjálfstæðismanna á reikningunum og bæjafulltrúa Vestmannaeyja- listans. Sjálfstæðismenn segja ljóst að rekstur sveitarfélaga um allt land hafi verið að þyngjast töluvert og kostnaður við aukna þjónustu í sveitarfélögunum skili sér ekki í tekjum sem skyldi. Minnihlutinn segir aftur á móti að stokka þurfi upp fjármálastjórn bæjarins, fá hlutlausan aðila með haldgóða þekkingu á fjármálastjórn til að meta skuldaþol bæjarfélagsins og að aðstoða bæjarstjórn við að koma fjármálum bæjarfélagsins í lag. Reikningar bæjarsjóðs voru samþykktir með fjórum atkvæðum meirihlutans en minnihlutinn sat hjá. Aðrir reikningar voru sam- þykktir með sjö samhljóða at- kvæðum. Bókun sjálfstæðismanna I bókun sjálfstæðismanna segir að ársreikningarnir beri með sér að miklar breytingar hafa orðið í fram- setningu reikninganna og ber þar hæst að lífeyrisskuldbindingar eru nú færðar að fullu en byijað var á því árið 1998. Segja þeir að þetta hafi jafn- framt áhrif á rekstur og efnahag hafnarsjóðs og Bæjarveitna. „Sameiginlegar tekjur urðu kr. 853,9 m. kr. á móti 754,6 milljónum króna og er það hækkun upp á 13,15 % á milli ára. Utsvarstekjur urðu nokkuð lægri en reiknað var með í upphaflegri fjárhagsáætlun, en tæpum 20 millj- ónum hærri miðað við endurskoðaða áætlun. Framlag úr Jöfnunarsjóði hækkaði verulega eða um rúmar 40 milljónir. Aðrir tekjuliðir voru á á- ætlun. Nettó rekstrargjöld, án fjármagns- liða, urðu kr. 824,5 m. kr. á móti 728,9 m. kr. árið áður sem er hækkun upp á rúm 13% milli ára. Stærstu útgjalda- liðimir vom fræðslumál sem tóku til sín (nettó) 303,1 m.kr. á móti 248 milljónum árið áður sem er 22,2% hækkun á milli ára og em það aðallega kjarasamningar við kennara sem gerðir vom á árinu. Rekstur félagsþjónustu (nettó) var 155,3 m.kr. á árinu á móti 142 milljónum árið áður sem er 9,3% hækkun á milli ára. Gjaldfærð fjár- festing var nettó 72,3 m.kr. sem er 21,3 milljónum kr. lægra en áætlað var. Eignfærð fjárfesting var nettó 52.6 m.kr. eða urn 14,7 milljónum lægra en áætlað var. Helstu fram- kvæmdir voru við Iþróttamiðstöðina, Listaskólann, Hamarsskólann og Hraunbúðir. Tekjur ársins hjá hafnar- sjóði vom 120 m.kr. sem er um 10,5 m.kr. lægra en áætlað var. Rekstrargjöld hafnarsjóðs án vaxta, vom að upphæð 91 m. kr. og vom þau tæpum 6 m. kr. undir áætlun. Félagslegar íbúðir em sem áður fyrr vandræðabam í rekstri bæjarfélagsins sem byggt var að mestu upp í tíð vinstd manna. Rekstramiðurstaðan varð neikvæð sem nemur 24 millj- ónum og peningaleg staða var neikvæð um 417 milljónir í árslok. Rekstur Bæjarveitna var í góði lagi og skiluðu Rafveita, Vatnsveita og Sorpbrennsla og Hitaveita samtals 16.6 m.kr. frá rekstri af reglulegri starfsemi. Ekki vom tekin ný lán á árinu hjá Bæjarveitum. Ljóst er að rekstur sveitarfélaga um allt land hefur verið að þyngjast töluvert og hefur kostnaður við aukna þjónustu í sveitarfélögunum ekki skilað sér í tekjum sem skyldi. Bæjar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins líta björtum augum á framtíðina og munu starfa áfram af festu og ábyrgð bæjarfélaginu til heilla,“ segja sjálf- stæðismenn í bókun sinni. Bókun Vestmannaeyjalistans Það kvað við allt annan og dekkri tón í bókun minnihluta Vestmanna- eyjalistans. Þar segir að reikningar bæjarsjóðs fyrir árið 1999 beri með sér að enn hallar á ógæfuhliðina í fjár- málum bæjarfélagsins. „A þeim tíma sem sjálfstæðismenn hafa verið við völd, frá árinu 1990, hefur fjárhagsstaðan sífellt versnað með hverju árinu sem líður og nú er svo komið að fjárhagsstaðan er orðin það afleit að við svo búið má ekki standa öllu lengur. Samanburður á lykiltölum úr reikningum bæjarsjóðs milli áranna 1990 og 1999 er gleggsta dæmið um hvemig fjármálastjóm sjálfstæðismanna hefur verið,“ segir í bókun Vestmannaeyjalistans og máli sínu til stuðnings birta þeir eftirtaldar tölur: um samanburð áranna 1990 til 1999. Hlutfall af skattatekjum 1990 1999 Skuldir 126% 198% Rekstur málaflokka án vaxta 70% 97% Greiðslubyrði lána (nettó) 'll% 17% Gjaldfœrð og eignfœrð fjárfesting 26% ' 15% „Þetta gerist á sama tíma og sjálf- stæðismenn hafa sífellt hækkað útsvarið og önnur gjöld á bæjarbúa. Hér er því um dapurlegar niðurstöður að ræða. Þessar niðurstöður em, eins og við fulltrúar Vestmannaeyjalistans höfum oft bent á, óþægilegur, en um leið raunvemlegur dómur um misheppnaða fjármálastjóm meiri- hluta sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveit- arfélaga hefur sem kunnugt er gert alvarlegar athugasemdir við fjár- haginn og eru þær ásamt öðm staðfesting á því sem að ofan greinir. Það sem af er þessu kjörtímabili og á því síðasta höfum við bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans margsinnis með bókunum og tillöguflutningi í bæjar- ráði og bæjarstjóm bent á versnandi fjárhagsstöðu Vestmannaeyjabæjar. Þá höfum við einnig bent á að fjöl- breyttara atvinnulrf í Vestmannaeyjum sé frumforsenda góðrar Ijárhagslegrar afkomu Vestmannaeyinga og um leið bæjarfélagsins í heild. Við teljum því að óijúfanleg tengsl séu á milli þess að ráða bót á þeim fjárhagsvanda sem bæjarfélagið stendur nú frammi fyrir og stórátaks í atvinnumálum. Við teljum nauðsynlegt að setja nú þegar í gang ferli til þess að ná raun- hæfum markmiðum um bætta fjár- hagsstöðu bæjarfélagsins. Við leggjum áherslu á að hér er um að ræða margra ára ferli enda er fjárhagsstaðan það erfið að langan tíma tekur að ráða bót þar á. Þær aðgerðir sem grípa þarf til nú þegar eru m.a. eftirfarandi: 1. Bæjarstjóm Vestmannaeyja þarf að gera sér grein fyrir og viðurkenna þá alvarlegu stöðu sem ljármál bæjarins em í. 2. Stokka þarf upp fjármálastjóm Vestmannaeyjabæjar, fá hlutlausan aðila með haldgóða þekkingu á ijármálastjóm til að meta skuldaþol bæjarfélagsins og íjárhagsstöðu og að aðstoða bæjarstjóm við að koma íjármálum bæjarfélagsins í lag. 3. Marka þarf stefnu, setja markmið og gera áætlun til næstu ára um raunhæfa nýsköpun í atvinnumálum. 4. Virkja þarf Þróunarfélag Vest- mannaeyja í samræmi við lið 2, enda býr það yfir vitneskju, þekkingu og reynslu sem nýst getur vel í slíkri áætlunargerð. 5. Leita þarf samstarfs við utanað- komandi aðila, s.s. Byggðastofnun, Iðntæknistofnun og fleiri í samræmi við lið 2. Bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans sitja hjá við afgreiðslu reikninga bæjarsjóðs en greiða atkvæði með reikningum stofnana hans. Að öðm leyti vísum við hér með í bókanir um fjárhag bæjarfélagsins undanfarin ár, bæði er varðar afgreiðslu fjárhags- áætlana og reikninga," segir í bókun Vestmannaeyj al i stans. Ársreikningar bæjarsjóðs og stofhanahans 1999 Ársreikningur bæjarsjóðs Vestmannaeyja 1999 Niðurstöðutölur reksturs: Sameiginlegar tekjur (nettó) kr. 853.961.435 Rekstrartekjur umfram gjöld kr. 14.013.125 Gjaldfærð fjárfesúng (nettó) kr. 72.363.633 Eignfærð fjárfesting (nettó) kr. 52.652.633 Niðurstöðutölur efnahags kr. 1.251.140.120 Eigið fé, neikvætt kr. 488.520.085 Ársreikningur hafnarsjóðs Niðurstöðutölur reksturs: Rekstrartekjur kr. 120.030.311 Tap ársins kr. 136.436.551 Niðurstöðutölur efnahags kr. 1.243.073.972 Eigið fé alls kr. 837.376.943 Ársreikningur félagslegra íbúða 1999: Niðurstöðutölur reksturs: Rekstrartekjur kr. 15.026.807 Tap ársins kr. 24.077.352 Niðurstöðutölur efnahags kr. 246.561.390 Eigið fé, neikvætt kr. 220.024.846 Ársreikningur Bæjarveitna Niðurstöðutölur reksturs: Rekstrartekjur kr. 483.076.157 Tap ársins kr. 2.472.530 Niðurstöðutölur efnahags kr. 1.132.609.602 Eigið fé alls kr. 352.215.114 Ársreikningur Lífeyrissjóðs starfsm. Vestm.bæjar Niðurstöðutölur reksturs: Lækkun á hreinni eign á árinu kr. 4.862.349 Niðurstöðutölur efnahags kr. 88.750.403 Hrein eign kr. 88.750.403

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.